Morgunblaðið - 27.11.1996, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 1996 15
SIGURÐUR Höskuldsson hljómsveitarstjóri, Sigurbjörg Krist-
jánsdóttir bankamær og Kjartan Eggertsson tónlistarkennari á
æfingu fyrir vetrargleðina.
Vetrargleði í Ólafsvík
Morgunblaðið/Guðlaugur Wíum
GUÐRÚN Olga Gunnarsdóttir
húsmóðir þenur raddböndin.
Ólafsvík - Árviss vetrargleði hef-
ur verið haldin í Ólafsvík undan-
farin ár. Er þetta skemmtun sem
flestir Ólsarar hafa farið á og
nýtur mikilla vinsælda og er nú
haldin í sjöunda sinn. Skemmtiefn-
ið er allt heimatilbúið og flutt af
heimamönnum.
Að þessu sinni sem oftar var
sönggleðin höfð í fyrirrúmi. Ótrú-
legasta fólk hefur troðið upp með
söng og uppgötvast alltaf einhver
nýr söngvari í hvert sinn. I þetta
sinn vakti mikla athygli írsk stúlka
sem býr í Ólafsvík, Margaret Mary
Byrne. Öll vinna við vetrargleðina
er unnin í sjálfboðavinnu og renn-
ur ágóði skemmtunarinnar til Fé-
lagsheimilisins Klifs ásamt ágóða
af öðrum slíkum samkomum. Að
þessu sinni verður fénu varið til
kaupa á hljómflutningskerfi fyrir
húsið en samkomuhúsið er talið
eitt af þeim húsum á landinu sem
hefur bestan hljómburð.
Á aðgöngumiðanum að vetrar-
gleðinni var eftirfarandi visa ort,
af Sæbirni Ásgeirssyni:
I vetrar vosbúð, miklum snjó/við
bjóðum til veislu mikið
„sjóv“./Komið, gleðjist, kætið
geð/svo hver sem vill það geti
séð./HIæið dátt og syngið hátt/því
heilsteypt gleðin byijar
brátt./Fyrir Klifið gefist nú
tóm/búum húsið nýjum hljóm.
Aukning í loðdýra-
rækt á Héraði
Vaðbrekka, . Jökuldal - Aukning
hefur orðið í loðdýrarækt á Héraði
á þessu ári og með hækkandi verði
loðskinna hafa nokkrir bændur
ákveðið að hefja loðdýrabúskap að
nýju.
Alls hófu 18 bændur á Héraði
loðdýrabúskap á árunum milli 1980
og 1990, en upp úr 1990 voru búin,
sem lifðu af verðfallið á skinnunum
á seinni hluta níunda áratugarins
og fyrrihluta þess tíunda, komin nið-
ur í þrjú. Þessi þrjú bú er lifðu af
voru þijú af fjórum stærstu búunum
á Héraði.
Nú hafa fimm bændur hafið loð-
dýrabúskap aftur í litlum mæli, þar
af einn í fyrrahaust en §órir í haust.
Einn af þeim er hóf loðdýrabúskap
aftur í haust er Stefán Geirsson
bóndi og hreppstjóri á Ketilsstöðum
í Hlíð.
Stefán hefur nú í haust keypt sér
fjörutíu blárefi til að hefja loðdýra-
búskapinn að nýju en Stefán var
með fjörutíu læður á árunum 1984
til 1987. Stefán segir að það sé ekki
eins mikið fyrirtæki að heíja loð-
dýrabúskap nú og þegar hann byij-
aði í fyrra skiptið því nú séu öll hús
og aðstaða fyrir hendi. Stefán segist
hugsa sér gott til glóðarinnar nú þar
sem skinnaverð fari hækkandi og
segir að hægt muni vera að hafa
tekjur af refarækt um þessar mund-
ir.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
STEFÁN Geirsson og Guðmundur Ólafsson, bóndi á Hrólfsstöð-
um, við afhendinguna á dýrunum.
NANNA Tómasdóttir, formanður húsnefndar, afhendir Guð-
laugu Stefánsdóttur þakklætisvott fyrir framlag hennar og
Aðalsteins Jónssonar til verksins.
Morgunblaðið/Benedikt Jóhannsson
AUSTRAHÚSIÐ svonefnda hefur nú fengið gagngera andlitslyftingu.
Eskifirði - Austrahúsið svonefnda
var formlega vígt og tekið í notkun
eftir enduruppbyggingu þann 2. nóv-
ember sl.
Aðalsteinn Jónsson, forstjóri Hrað-
frystihúss Eskiíjarðar, gaf ungmenna-
félaginu Austra húsið árið 1993 og
hefur síðan af og til verið unnið við
Austrahúsið
tekið í notkun
endurreisn þess. Settur var kraftur í
þá vinnu í sumar og ákveðið að ljúka
framkvæmdum hið bráðasta með um-
talsverðum styrk frá þeim hjónum
Aðalsteini Jónssyni og Guðlaugu Stef-
ánsdóttur í formi fjárframlags, en að
auki hafði Aðalsteinn lánað menn frá
frystihúsinu til verksins. í húsinu er
einn stór salur auk tveggja herbergja,
en því er m.a. ætlað að bæta félagsað-
stöðu heimamanna.
r inter
Samskipti fslands við umheiminn eru mikilvægur þáttur i því að kynna landið sem
fyrirmynd friðar og hreinnar náttúru. Þess vegna gefur Friður 2000 öllum félagsmönnum
tölvupósthólf og aðgang að internetinu. Vanti þig tölvuna þá getum við útvegað Pentium
tölvur á góðum kjörum. Þú færð einnig allt að 73% ódýrari simtöl til útianda, alþjóðlega
neyðartryggingu og ýmis önnur fríðindi þegar þú gerist félagi Friðar 2000. cE
Friður 2000, Ingólfsstræti 5, Reykjavík, sími 552 2000, www.peace.is/2000 íP