Morgunblaðið - 27.11.1996, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Umdeild kaup forkaupsréttarhafa á hlutabréfum Þróunarsjóðs
Gætu hagnast
verulega
ÞEIR sem nýttu sér forkaupsrétt á
hlutabréfum Þróunarsjóðs í Meitlin-
um í Þorlákshöfn og Búlandstindi á
Djúpavogi gætu átt eftir að hagnast
vei-ulega ef markaðsverð á hluta-
bréfum í félögunum helst jafn hátt
og það hefur verið síðustu vikurnar.
Gæti pappírslegur hagnaður skipt
hundruðum þúsunda og jafnvel
milljónum króna í sumum tilvikum,
en það er meðal annars háð því
hver niðurstaða verður af mála-
rekstri fyrir Héraðsdómi Reykjavík-
ur um hveijir teljist forkaupsréttar-
hafar, en verði niðurstaða málsins
Mata hf. í vil sem höfðar málið
gæti forkaupsréttarhöfum átt eftir
að fjölga verulega.
Um er að ræða 70 milljóna króna
hlutafé að nafnvirði í Búlandstindi,
sem stendur forkaupsréttarhöfum
til boða á genginu 1,15 og hlutafé
að nafnvirði 119,3 milljónir króna í
Meitlinum á nafnverði eða genginu
1,00. Forkaupsréttur 38 aðila, hlut-
hafa og starfsmanna, sem skylt er
að bjóða forkaupsrétt að eignarhlut
sjóðsins berist tilboð í hann sam-
kvæmt iögum um Þróunarsjóð, var
viðurkenndur í Búlandstindi. For-
kaupsrétti Mata hf. og 22 tengdra
aðila var hafnað á þeirri forsendu
að hlutabréf í félaginu hefðu verið
keypt eftir að Þróunarsjóður hefði
tekið tilboði í fyrirtækið og for-
kaupsrétti tveggja annarra aðila var
einnig hafnað á sömu forsendu.
Fimm tilboð bárust hins vegar í
eignarhlutinn í Meitlinum, fjögur frá
hluthöfum Meitilsins og eitt frá
stjórnarmanni í félaginu. Komið
hefur í ljós að þrír stjórnarmenn í
Búlandstindi nýttu sér einnig for-
kaupsrétt að bréfum í félaginu og
hefur Þróunarsjóður leitað eftir
lagalegri áiitsgerð á því hvort
stjórnarmenn í félögunum teljist
starfsmenn og beri því forkaupsrétt-
ur eða ekki. Er búist við niðurstöðu
þar að lútandi mjög fljótlega.
Samkvæmt túlkun Lagastofnun-
ar á lögum um Þróunarsjóð skiptist
eignarhlutur sjóðsins jafnt á milli
allra þeirra sem neyta forkaupsrétt-
arins. Varðandi. Búlandstind getur
það þýtt að allt frá 35 aðilum, að
því gefnu að stjórnarmenn teljist
ekki eiga forkaupsrétt, og upp í
rúmlega sextíu aðilar eigi forkaups-
réttinn.
Hlutafé á bilinu rúmlega ein millj-
ón og upp í tvær milljónir að nafn-
verði gætu því komið hlut hvers
eins og kaupgengið væri 1,15.
Kaupverð tveggja milljóna í hluta-
bréfum væri því 2,3 milljónir. Gengi
hlutabréfa í Búlandstindi á Opna
tilboðsmarkaðnum hefur hins vegar
stöðugt farið hækkandi allt frá því
ísfélagið í Vestmannaeyjum gerði
tilboð í bréfin 26. ágúst og forkaups-
réttarhöfum var boðið að ganga inn
í kaupin. Siðustu viðskipti með bréf-
in á Opna tilboðsmarkaðnum voru
21. nóvember síðastliðinn og þá
seldust hlutabréf að nafnvirði 100
þúsund krónur á genginu 2,45 eða
fyrir 245 þúsund krónur. Gengið
hafði þá lækkað frá fyrrihluta mán-
aðarins þegar það fór hæst í 2,62,
en í síðustu tíu viðskiptum með
hlutabréf í félaginu hefur rúmlega
ein milljón króna að nafnvirði í
hlutabréfum skipt um eigendur.
Söluverð tveggja milljóna króna
hluts í félaginu á síðasta viðskipta-
gengi yrði 4,9 milljónir króna og
hagnaður samkvæmt því 2,6
milljónir. í gær voru nokkur sölutil-
boð á hlutabréfum í félaginu á Opna
tilboðsmarkaðnum. Lægsta tilboðið
var á genginu 2,50. Hins vegar var
ekkert kauptilboð skráð í Búlands-
tind á markaðnum, sem hægt er að
taka mark á.
23,9 milljónir í hlut hvers
Um Meitilinn gegnir talsvert öðru
máli að því leyti að þar er bæði um
að ræða stærri eignarhlut að nafn-
verði og einnig kemur stærri hlutur
í hlut hvers og eins þar sem aðeins
fimm aðilar nýttu sér forkaupsrétt-
inn, flórir hluthafar og einn stjórnar-
maður. Miðað við það koma tæpar
23,9 milljónir í hlut hvers og eins.
Ef niðurstaðan verður sú að stjórn-
armenn eigi ekki forkaupsrétt að
hlutum í félögunum mun eignarhlut-
ur Þróunarsjóðs skiptast á milli íjög-
urra aðila og koma þá rúmar 29,8
milljónir í hlut hvers og eins. Þar sem
tilboð í hlutabréfin var á genginu
1,00 er kaupverðið jafnt og nafnverð
eða 23,9 milljónir í öðru tilvikinu og
29,8 milljónir í hinu tilvikinu.
Nokkru eftir að frestur til að nýta
sér forkaupsrétt að eignarhlutunum
í Meitlinum rann út var tilkynnt um
sameiningu Meitilsins við Vinnslu-
stöðina í Vestmannaeyjum og munu
hluthafafundir í félögunum væntan-
lega taka afstöðu til þess í næsta
mánuði. Fram hefur komið að hver
1.000 króna hlutur í Meitlinum verð-
ur metinn á rúmar 700 krónur í
Vinnslustöðinni. Miðað við það jafn-
gildir 23,9 milljóna króna hlutur í
Meitiinum 16,7 milljóna króna hlut
að nafnvirði í hinu nýja fyrirtæki sem
verður til eftir samrunann.
Vinnslustöðin er skráð á Verð-
bréfaþingi og síðustu viðskipti með
hlutabréf í félaginu áttu sér stað á
mánudaginn að nafnverði 500 þús-
und krónur á þreföldu nafnverði.
Gengi bréfa i fyrirtækinu hefur far-
ið lækkandi undanfarið og var til
dæmis 3,25 um miðjan mánuðinn,
en viðskipti frá því þá nema tæpum
tveimur milljónum króna að nafn-
virði. Miðað við gengið 3,00 er
markaðsverð 16,7 milljóna króna
hlutar í Vinnslustöðinni rétt rúmar
50 milijónir króna eða 26 milljónum
hærra en kaupverð hlutabréfanna í
Meitlinum. Nokkur sölutilboð á
hlutabréfum í Vinnslustöðinni voru
inni á Verðbréfaþingi í gær, en að-
eins eitt kauptilboð. Hagstæðasta
sölutilboðið var 3,00, en kauptilboð-
ið var á genginu 2,35.
Ohagstæður
um 9 milljarða
JÖFNUÐUR á viðskiptum við út-
lönd var óhagstæður um fjóra
milljarða króna á öðrum ársfjórð-
ungi í ár og um 1,6 milljarða króna
á þriðja ársfjórðungi. Nú stefnir í
að viðskiptajöfnuðurinn í ár verði
óhagstæður um 9 milljarða króna,
en hann var hagstæður um 1,6
milljarða króna í fyrra.
Þetta kemur meðal annars fram
í nýjum hagvísum Þjóðhagsstofn-
unar. Þar segir að viðskiptajöfnuð-
ur hafi ekki verið óhagstæður á
öðrum ársfjórðungi frá árinu 1992
og ekki ó'nagstæður á þriðja árs-
fjórðungi frá árinu 1991.
Þá kemur fram að þróun við-
skiptajafnaðarins í ár stafi af mik-
illi aukningu innflutnings sem
meðal annars eigi rætur sínar að
rekja til vaxandi kaupmáttar og
bjartsýni um efnahgshorfur. Vöru-
innflutningur fyrstu níu mánuðina
hafi verið 15,8% meiri að raungildi
en yfir sama tíma í fyrra og vöruút-
flutningur hafi aukist um 8,6%.
Tangi hf. á Vopnafirði
Býður út
150 millj-
óna hlutafé
TANGI hf. á Vopnafirði hefur boð-
ið út nýtt hlutafé að nafnvirði 150
milljónir króna. Útboðsgengi verð-
ur 1,75 þannig að söluandvirði
bréfanna verður 262,5 milljónir.
Tilgangur útboðsins er að mæta
fjárfestingum í framleiðslutækjum
vegna áherslubreytinga í vinnslu
og styrkja eiginfjárstöðu og
greiðslustöðu félagsins, að því er
segir í frétt.
Tangi gerir út frystitogarann
Bretting og ísfisktogarann Eyvind
Vopna, en þeir hafa einkum verið
á karfa- og grálúðuveiðum. Land-
vinnslan hefur aftur á móti einkum
verið byggð á ferskum og frystum
þorski af rússneskum veiðiskipum.
Þá gerir dótturfélag Tanga,
Bjarnarey, út loðnuskipið Sunnu-
berg GK 199 og sömuleiðis er
Tangi meirihlutaeigandi í Lóni sem
rekur fiskimjölsverkmiðju. Verið
er að auka afkastagetu þeirrar
verksmiðju í 500-550 tonn á sólar-
hring. Loks á fyrirtækið 15% í
Skálum ehf. sem gerir út loðnu-
skipið Júpíter og þriðjungshlut í
Bakkasíld ehf.
Áhersla á vinnslu
uppsjávarfiska
Hinu nýja fjármagni úr útboð-
inu verður varið til fjárfestinga í
nýjum frystibúnaði sem eykur
frystigetu fyrirtækisins úr 60
tonnum í 250 tonn á sólarhring.
Sérstök áhersla verður lögð á
vinnslu uppsjávarfiska til mann-
eldis, en dregið úr vægi landfryst-
ingar bolfisks. Gert er ráð fyrir
að hægt verði að frysta 6.700
tonn af loðnu og síld á árinu 1997
með hinum nýja búnaði.
Tangi skilaði alls um 21 milljón-
ar króna hagnaði fyrstu átta mán-
uði ársins borið saman við 2 millj-
óna hagnað allt síðastliðið ár. Velt-
an nam 806 milljónum fyrstu átta
mánuðina sem er um 166 milljón-
um meira en allt síðasta ár. Áætl-
anir gera ráð fyrir að hagnaður
þessa árs verði um 24 milljónir
króna og 44 milljónir á næsta ári.
Hluthafar hafa forkaupsrétt að
bréfunum fram til 10. desember
nk. en þá verða þau boðin til sölu
á almennum markaði.
Stöðuveit-
__ ingarhjá
Islandsbanka
ÍSLANDSBANKI hefur ráðist í
skipulagsbreytingar í kjölfar nýrr-
ar stefnu sem mörkuð hefur verið
fyrir bankann og dótturfélög hans.
Sett hefur verið á stofn fyrirtækja-
svið til að annast þjónustu við stór-
fyrirtæki, stofnanir og sjóði. Hinu
nýja sviði er skipt upp í fyrirtækja-
þjónustu, viðskiptastofu og fjár-
stýringu. Verið er að breyta starf-
semi útibúa þannig að þau verði í
auknum mæli sölu- og þjón-
ustumiðstöðvar og til að samræma
og efla sölustarfið hefur verið sett
á fót sérstök söludeild.
Öll bakvinnsla á höfuðborgar-
svæðinu og hluti af störfum í
höfuðstöðvum hafa verið sameinuð
í eina deild, miðvinnslu. Loks hefur
ný deild, áhættustýring, verið
stofnuð til að efla og bæta þann
þátt í starfseminni. Þessu fylgja
breytingar meðal stjómenda i
bankanum.
• BIRGIR Ómar Haraldsson
hefur verið ráðinn forstöðumaður
fyrirtækjaþjónustu á fyrirtækja-
sviði íslandsbanka. Birgir Ómar
er 41 árs verkfræðingur. Hann
nam skipaverkfræði í Glasgow og
árið 1987 lauk
hann MSc-prófi í
viðskipta- og
flutningafræði
frá City Univers-
ity Business
School í London.
Síðustu 9 árin
hefur Birgir
Ómar verið fram-
kvæmdastjóri skipafélagsins Jökla
hf. Hann er formaður Sambands
íslenskra kaupskipaútgerða, á sæti
í framkvæmdastjórn Verkfræð-
ingafélags íslands, auk þess sem
hann er stjómarformaður Slipp-
stöðvarinnar hf. á Akureyri og
Vélsmiðjunnar Stáls hf. á Seyðis-
firði. Birgir Ómar kemur til starfa
hjá íslandsbanka í næsta mánuði.
Hann er kvæntur Hrafnhildi
Jóakimsdóttur og á hann þijú
börn og eina stjúpdóttur.
• VILHJÁLMUR Vilhjálmsson
hefur verið ráðinn í starf forstöðu-
manns Viðskiptastofu íslands-
banka. Vilhjálmur er nú útibús-
stjóri í Skútuvogi, en starfaði áður
að viðskiptum með skuldabréf og
hlutabréf hjá Verðbréfamarkaði
Islandsbanka, fyrst sem sérfræð-
ingur og síðan deildarstjóri fyrir-
tækjaþjónustu VÍB. Vilhjálmur er
viðskiptafræðing-
ur frá HÍ, útskrif-
aðist vorið 1991
oghófþástörf
hjá VÍB. Vil-
hjálmur er kvænt-
ur Svövu B. Sig-
urjónsdóttur
leikskólakennara
og eiga þau 3 börn.
• KOLBRÚN Jónsdóttir hefur
verið ráðin i stöðu útibússtjóra við
útibúin í Skútuvogi og á Dalbraut.
Kolbrún er 34ra
ára viðskipta-
fræðingur frá
Háskóla íslands.
Síðustu sjö árin
hefur hún verið
fjármálastjóri
Húsasmiðjunnar.
Hún er gift Páli
Hilmarssyni,
deildarstjóra og eiga þau tvö börn.
Kolbrún tekur við nýja starfinu í
desember.
• JÓN Þórisson
hefur verið ráðinn
sölustjóri íslands-
banka. Jón er
32ja ára. Hann er
stúdent frá MR
og lauk námi í
viðskiptafræðum
frá Endurmennt-
unarstofnun Háskóla íslands árið
1994. Jón hefur starfað hjá ís-
landsbanka frá árinu 1985, síðustu
þijú árin sem útibússtjóri útibúsins
við Gullinbrú. Jón er kvæntur
Margréti Kr. Sigurðardóttur,
viðskiptafræðingi og eiga þau eina
dóttur.
• EMIL Emilsson hefur verið ráð-
inn í stöðu útibússtjóra við útibú
íslandsbanka við Gullinbrú. Emil
er 37 ára við-
skiptafræðingur
frá Háskóla Is-
lands. Hann hefur
undanfarin tvö ár
starfað sem fram-
kvæmdastjóri
Össurar stoðtækja
hf. og Hjálpar-
tækjabankans, en
áður var hann markaðsstjóri Sam-
bands íslenskra sparisjóða. Eigin-
kona Emils er Sigríður Erla Jóns-
dóttir Diego, viðskiptafræðingur
og eiga þau tvö böm.
• HALLDÓR S. Magnússon hef-
ur verið ráðinn forstöðumaður mið-
vinnslu. Halldór er 54ra ára við-
skiptafræðingur. Hann útskrifaðist
frá Háskóla Islands árið 1969 og
tók síðan MBA gráðu við Univers-
ity of Oregon árið 1983. Það ár
hóf hann störf í Iðnaðarbankanum
sem forstöðumaður Alþjóðadeildar
og gegndi þeirri
stöðu áfram eftir
stofnun íslands-
banka þar til nú
er hann tekur við
stjórn þessarar
nýju deildar. Hall-
dór er kvæntur
Kristínu Bjarna-
dóttur, aðstoðarskólameistara
Fjölbrautaskólans í Garðabæ og
eiga þau þijú börn.
• STEINÞÓR Pálsson hefur ver-
ið ráðinn forstöðumaður áhættu-
stýringar. Steinþór er 36 ára við-
skiptafræðingur
og lauk MBA
gráðu frá Edin-
borgarháskóla
árið 1995. Hann
hefur starfað hjá
Verslunarbank-
anum síðan árið
1984 ogvaryfir-
maður lánasviðs
frá 1987. Við stofnun íslands-
banka var Steinþór ráðinn for-
stöðumaður fyrirtækjadeildar. Síð-
an hefur hann einnig veitt forstöðu
fjárfestingarlánum og útibúaþjón-
ustu. Undanfarið ár hefur Steinþór
verið verkefnisstjóri við stefnumót-
un fyrir bankann. Kona Steinþórs
er Áslaug Guðjónsdóttir, tölvun-
arfræðingur og eiga þau tvær
dætur.