Morgunblaðið - 27.11.1996, Qupperneq 18
18 MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 19.96
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Bandaríkjamenn lýsa ánægju
með stefnubreytingu Iraka
Líkur á að SÞ
leyfi takmark-
aða olíusölu
London. Reuter.
Reuter
Etrúskur fjársjóður frá
sjöundu öld f.Kr.
VERÐ á olíu féll nokkuð í gær á
heimsmarkaði er líkur þóttu vaxa
á því að Irakar fengju að selja
nokkurt magn olíu innan skamms.
Sérfræðingar telia þó að áhrifanna
muni einkum gæta næsta vor, þá
muni verð bytja að lækka fyrr en
venjan er á þeim árstíma. Stjórn
Saddams Husseins í Bagdad ákvað
á mánudag að samþykkja skilyrði
sem Sameinuðu þjóðimar hafa sett
fyrir því að leyfa írökum að flytja
út olíu að andvirði tveggja millj-
arða Bandaríkjadollara, um 130
milljarða króna, á sex mánuðum
til að þeir geti greitt fyrir mat-
væli og lyf. Samningur þessa efnis
var gerður í maí en Irakar hafa
neitað að samþykkja öll skilyrðin.
Áður en viðskiptabann var sett
á íraka vegna innrásarinnar í Kúv-
eit fluttu þeir út um 2,5 milljónir
fata en fá nú að selja allt að
800.000 föt, magnið mun ráðast
af verðinu.
Fulltrúar öryggisráðs SÞ hafa
ekki fengið fullnægjandi upplýs-
ingar um vopnabúnað íraka til að
geta fullyrt að Saddam ráði nú
ekki yfir neinum gereyðingarvopn-
um og er ljóst að því kemur ekki
til greina að aflétta endanlega öll-
um viðskiptaþvingunum á landið.
Vísbendingar eru um að írakar
eigi enn einhver efna- og sýklavopn
eða búnað til að framleiða slík
vopn.
„Allt bendir til þess að fram-
kvæmdastjórínn sé reiðubúinn að
leyfa söluna vegna samþykkis ír-
aka,“ sagði Madeleine Albright,
aðalfulltrúi Bandaríkjanna hjá SÞ
í gær. Hún bætti því við að Banda-
ríkjamenn væru mjög ánægðir með
framvindu mála.
Viðskiptabannið hefur komið
STJÓRN Kúbu hafnaði í gær nýjum
sendiherra Spánar og sakaði spænsk
stjórnvöld um afskipti af málefnum
landsins.
Þessi ákvörðun Kúbana kom
Spánveijum í opna skjöldu. Stjórn-
arandstæðingar sögðu hins vegar
að augljóst hefði verið hvað væri í
aðsigi.
Jose Maria Aznar forsætisráð-
herra hefur verið við völd í sex
mánuði og á þeim tíma hafa Spán-
veijar tekið harðari stefnu gagnvart
Kúbu, Bandaríkjamönnum til
ánægju, en stjórn Kúbu til ama.
Þetta hefur meðal annars komið
hart niður á almenningi í írak.
Stjórn Saddams hefur óspart nýtt
sér myndir af vannærðum börnum
í áróðursstríðinu gegn banninu
sem Bandaríkin hafa stutt af
mestri eindrægni allra þjóðanna í
öryggisráðinu. Hafa þeir bent á
að Saddam hafi efni á að reisa
tugi glæsihalla og veita sjálfum
sér hvers kyns munað þótt þegnar
hans líði skort.
30% til endurreisnar
Takist að leysa síðustu ágrein-
ingsatriðin sem eftir eru er gert ráð
fyrir að hægt verði að endumýja
samninginn að loknu sex mánaða
tímabilinu. Umrædd skilyrði voru
m.a. að eftirlitsmenn SÞ fengju að
fylgjast vel með því að ekki yrðu
brotin nein ákvæði um olíusöluna
en írakar vildu sjálfir fá að ákveða
alla tilhögun eftirlitsins.
Er Saddam sendi herlið til hér-
aða Kúrda í norðri í sumar til að
hjálpa liðsmönnum annarrar helstu
Kúrdafylkingarinnar í innbyrðis
átökum þar frestuðu SÞ að senda
eftirlitsmenn á vettvang og dróst
því enn að hægt yrði að ganga frá
olíusamningnum. Það fer mjög fyr-
ir bijóstið á írökum að 30% tekn-
anna af olíunni eiga að fara í sjóð
til endurreisnar vegna tjónsins sem
þeir bökuðu Kúveit og bandamönn-
um í Persaflóastríðinu. 10% á að
nota til að kosta starf eftirlits-
manna SÞ er fylgjast með vopna-
búnaði Saddams.
Megnið af olíunni verður flutt
um leiðslur er liggja að vinnslu-
stöðvum í Tyrklandi og segja þar-
lendir embættismenn að tæknilega
ætti ekkert að vera því til fyrir-
stöðu að hefjast handa í byijun
desember.
fram í því að Spánveijar hafa knúið
fram yfirlýsingar af hálfu Evrópu-
sambandsins um að efla ætti lýð-
ræði á Kúbu og auka samskipti
landsins við katólsku kirkjuna.
Aznar gagnrýndur
Gagnrýnendur þessarar stefnu
segja að hið sérstaka samband Spán-
veija við rómönsku Ameríku muni
gjalda hennar og Felipe Gonzales,
fyrrverandi forsætisráðherra, sagði
að stjórnendur fyrirtækja annars
staðar í Evrópu iðuðu í skinninu að
smeygja sér inn í það tómarúm, sem
nú kynni að myndast.
NÝLEGA fundust níu ósnertar
grafir frá tímum Etrúska á
Italíu og í þeim voru meira
en 100 leirker, vasar, bikarar
og önnur ílát frá sjöundu öld
Málið er hið vandræðalegasta
fyrir stjórn Majors og ekki síst
fyrir Kenneth Clarke, fjármálaráð-
herra, því flestar ákvarðanir hans
varðandi tekjur og útgjöld og um
skattabreytingar komu fram í
trúnaðarskjölunum. Gordon
Brown, fjármáiaráðherra í
skuggaráðuneyti Verkamanna-
flokksins, fordæmdi skjalalekann
en sagðist ekki telja hann næga
ástæðu til þess að Clarke segði
af sér.
Skjölin bárust blaðinu Daily
Mirror en yfirmenn þess ákváðu
heldur að halda að sér höndum
og birta ekki upplýsingar úr þeim
þar sem þær þóttu til þess fallnar
að valda upplausn á alþjóðlegum
fjármagnsmarkaði.
Blaðið, sem lýst hefur stuðningi
við stjórnmálastefnu Verka-
mannaflokksins, lagði fimm síður
undir frásögn af skjölunum og
að það hefði komist yfir þau. Þar
sagði, að þau innihéldu upplýs-
fyrir Krist. Eru munirnir
ýmist etrúskir eða grískir og
voru á sínum tíma fluttir inn
frá Ródos, Korintu, Spörtu og
Krít.
ingar um 80% þeirra ákvarðana,
sem Clarke myndi kynna er hann
fylgdi frumvarpi sínu úr hlaði.
Þar væri m.a. kveðið á um breyt-
ingar á skattkerfinu, ný ákvæði
um tekju-, erfðarfjár-, fjár-
magnstekju-, vega- og fyrir-
tækjaskatta.
Pier Morgan, ritstjóri blaðsins,
ákvað síðan að skila þeim i hendur
ríkisstjórninni. Staðfest var í gær
af hennar hálfu, að skjöiin, sem
blaðið hafði undir höndum, voru
ósvikin. Talsmaður stjórnarinnar
lýsti yfir sérstöku þakklæti í garð
blaðsins fyrir að prenta ekki úr
skjölunum, birting hefði verið and-
stæð þjóðarhagsmunum.
Hundruð opinberra starfs-
manna verða yfirheyrð næstu
daga vegna rannsóknarinnar og
ákveðið hefur verið að endurskoða
m.a. hvernig staðið er að frágangi
fjármálafrumvarpsins og tengdra
skjala til prentunar og prentun
þeirra.
Bíll Elenu
Ceausescu
seldur
Búkarest. Reuter.
GAMALL Renault-bíll, sem var
í eigu eiginkonu Nicolae Ceaus-
escu, einræðisherra í Rúmeníu,
var seldur fyrir jafnvirði
120.000 króna á uppboði í
Búkarest á mánudag.
Elena Ceausescu, sem
gegndi ýmsum embættum á 24
ára valdatíma eiginmannsins,
hafði gefið skyldmennum sín-
um bílinn skömmu fyrir upp-
reisnina árið 1989 þegar hjónin
voru tekin af lífi. Síðan hefur
bíllinn gengið kaupum og söi-
um, er orðinn óttalegur skijóð-
ur og hefur ekki verið notaður
í tvö ár vegna skorts á vara-
hlutum. Síðast var hann í eigu
lögreglunnar í Brasov í
Transylvaníu og hún stóð fyrir
uppboðinu. Rúmenskur ellilíf-
eyrisþegi keypti beygluna.
Hjónin lifðu í vellystingum
þótt þau legðu fast að alþýð-
unni að spara og afneita mun-
aði. Rúmensk yfirvöld gerðu
eignir hjónanna upptækar eftir
uppreisnina, meðal annars 40
hallir, sveitasetur og veiðihús.
Hundruð flaskna af fágætu víni
hafa einnig verið boðin upp á
undanförnum sjö árum.
Iran
Herferð
gegn gervi-
hnatta-
diskum
Teheran. Reuter.
LÖGREGLAN í íran hefur hafið nýja
herferð gegn gervihnattadiskum, sem
hafa verið bannaðir í landinu, nokkr-
um vikum eftir að bandaríska sjón-
varpsstöðin Voice of America hóf út-
sendingar á nýjum þætti með vinsæl-
um írönskum listamönnum.
Að sögn íbúa höfuðborgarinnar,
Teheran, hefur lögreglan hafið leit
að gervihnattadiskum og gert þá
upptæka í nokkrum hverfum borg:-
arinnar. Margir hafa því gripið til
þess ráðs að taka móttökubúnað sinn
niður til að komast hjá upptöku og
sektargreiðslum.
Stjórnvöld í íran bönnuðu alla
gervihnattadiska í fyira til að veijast
vestrænni „menningarinnrás". Margir
tóku þá niður en settu þá fljótlega
upp aftur. Talið er að um 250.000
gervihnattadiskar séu í landinu og
margir hafa gripið til þess ráðs að
dylja þá og Iátið þá líkjast loftræsti-
tækjum eða öðrum búnaði.
Þátturinn í Voice of America nýtur
mikilla vinsælda í íran, enda er þar
leikin írönsk popptónlist sem hefur
verið bönnuð í landinu á þeirri for-
sendu að hún sé „úrkynjuð". Enn-
fremur hefur þar verið boðið upp á
ráðgjafarþjónustu fyrir þá sem vilja
flytjast til Bandaríkjanna.
-------» ♦ »------
Prodi
neitar sök
Róm. Reuter.
ROMANO Prodi, forsætisráðherra
Ítalíu, bar í gær af sér ásakanir um
hagsmunaárekstur en þær koma
fram í kæru á hendur honum og fimm
öðrum fyrrverandi stjórnarmönnum
í IRI, sem er risastórt eignarhaldsfé-
lag í eigu ríkisins.
í yfirlýsingu frá Prodi segir, að
það veki athygli, að enn einu sinni
hafi almenningsálitið verið mótað
fyrirfram með því að láta upplýs-
ingar úr dómskerfinu leka til fjöl-
miðla áður en sakborningarnir sjálfir
voru Iátnir vita.
Fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnar John Majors lekið til götublaðs
Rannsókn fyrirskipuð á
orsökum skialalekans
London. Reuter. Daily Telegraph.
JOHN Major, forsætisráðherra Bretlands, hefur fyrirskipað ítarlega innan-
búðarrannsókn á því með hvaða hætti og hvers vegna 36 skjöl og skýrsl-
ur, alls um 100 blaðsíður af leynilegum upplýsingum, um undirbúning og
gerð fjárlagafrumvarps stjórnarinnar, sem lagt var fyrir þingið í gær, var
lekið til fjölmiðla. Hugsanlegt er að lögreglu verið falin rannsóknin á síð-
ari stigum því skjöl af þessu tagi eru nánast flokkuð sem ríkisleyndarmál
þar til ráðherra hefur flutt fjárlagaræðu sína.
Kúba hafnar sendiherra
Madrid. Reuter.