Morgunblaðið - 27.11.1996, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 1996 19
ERLENT
Deila franskra vöruflutningabí lstj óra
Vaxandi bjart-
sýni á lausn
París. London. Reuter. Daily Telegraph.
NOKKUR árangur náðist í gær í
samningaviðræðum franskra vöru-
flutningabilstjóra og vinnuveitenda
en þó ekki nóg til þess að bílstjórarn-
ir afléttu umsátursástandi um tugi
borga og bæja Frakklands. Að sögn
franska ríkissáttasemjarans Roberts
Cros, hafa deiluaðilar orðið sammála
um breytingar á veikindafríum, um
ferðapeninga og um allshetjarbann
við akstri flutningabíla um þjóðvegi
Frakklands á sunnudögum, en bann
af því tagi hefur hingað til náð til
franskra bíla einvörðungu.
Cros sagði, að stjórnvöld hefðu
haft afskipti af deilunni til þess að
liðka fyrir lausn hennar og gert bíl-
stjórunum tilboð, sem ætti að auð-
velda þeim að fara fyrr á eftirlaun,
auðvelda endurnýjun í stéttinni og
stuðla að auknu öryggi ásamt því
sem launatengd gjöld flutningafyrir-
tækja, sem fækka vinnustundum
bílstjóra, verða lækkuð.
Rúmlega tíuþúsund flutningabíl-
stjórar hafa í níu daga lokað þjóð-
vegum og hraðbrautum víða um
Frakkland til þess að leggja áherslu
á kröfur um lækkun eftirlaunaaldurs
úr 60 árum í 55, hækkun launa og
breytingar á vinnutíma.
í gær var t.a.m. vegabann á 171
stað og hafa aðgerðirnar sagt veru-
'iega til sín í Lyon, næst stærstu
borg landsins, Bordeaux, Avignon,
Toulouse, Strasbourg, Dijon, Reims,
Le Mans og hafnarborgunum Caen
og Calais. Þar eð vörubílum hefur
verið lagt á vegum til og frá olíu-
birgðastöðvum hafa bensínsbirgðir
þrotið víða á bensínstöðvum, sem
neyðst hafa til að loka.
Aðgerðir vörubílstjóranna segja
einnig til sín í Bretlandi því þarlend-
ar stói-verslanir fá ávexti og græn-
meti frá Miðjarðarhafslöndum með
flutningabílum, sem aka verða um
Frakkland. Ráðgerði Tesco-sam-
steypan að hefja loftflutninga á
grænmeti og ávöxtum frá Spáni
leystist deilan ekki fyrir daginn í
dag.
Um eittþúsund breskra flutninga-
bíla eru innlyksa á frönsku hrað-
brautunum og vekur það gremju í
Bretlandi. Um borð er aðallega vara
sem þolir illa geymslu og verður
ónýt er hún kemst á leiðarenda.
Samtök flutningafyrirtækja hafa rit-
að John Major forsætisráðherra og
beðið hann um að mótmæla aðgerð-
unum, sem þau segja „með öllu ólög-
legar“, við frönsku stjórnina og
framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins. „Aðgerðirnar ganga þvert
gegn ákvæðum Rómarsáttmálans
um fijálst flæði vöru, þjónustu og
fólks,“ sagði í yfirlýsingu samtak-
anna. Breski samgönguráðherrann,
Sir Georg Young, sagði að kröfu um
skaðabætur til breskra flutningafyr-
irtækja vegna lokunar hraðbraut-
anna hefði verið komið á framfæri
við frönsku stjórnina.
Reuter
FRANSKIR vörubílstjórar hafa meðal annars lokað þjóðveginum fyrir sunnan Lyon í átta daga til
að leggja áherslu á kröfur sínar um hærri laun og styttri vinnuviku auk þess sem þeir krefjast þess
að komast á eftirlaun 55 ára í stað 60 nú.
Verkfall danskra flutningabílstjóra
Ongþveiti við landa-
mæri og fenuhafnir
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
MIKIÐ öngþveiti er við dönsku landa-
mærin og feijuhafnir í Danmörku og
víðar þar sem danskir flutningabíl-
stjórar hafa síðan á mánudag hindrað
landamæraumferð flutningabíla. Með
aðgerðunum vilja þeir mótmæla
væntanlegum breytingum á skatta-
lögum. Ef svo heldur fram sem horf-
ir gætu Evrópubúar misst af danskri
skinku á jólaborðið og dönskum jóla-
ttjám í stofuna og dönsk útflutnings-
fyrirtæki misst af jólasölunni. Að-
gerðimar njóta ekki stuðnings stétt-
arfélags bílstjóranna, sem hefur
hafnað beiðni þeirra um eina milljón
danskra króna í matarpeninga.
Bílstjórarnir byrjuðu á því að
stöðva umferð flutningabíla frá Dan-
mörku og þegar á mánudagskvöldið
biðu hundruð bíla við þýsk-dönsku
landamærin. í gær stöðvuðu þeir svo
einnig umferð bílanna inn í landið.
Eina undantekningin eru bílar með
lifandi dýr og neyðargögn. Öngþveit-
ið bitnar jafnt á dönskum sem er-
lendum bílstjórum. í gær mynduðust
til dæmis langar flutningabílaraðir
í Gautaborg vegna aðgerðanna, því
þaðan er mikil umferð yfir til Dan-
merkur. Mörg útflutningsfyrirtæki
fylgjast áhyggjufull með framvindu
mála, því í bílunum er meðal annars
mikið af matvælum á evrópska jóla-
markaðinn.
Vi\ja skattafrádrátt
Bílstjórarnir krefjast skattafrá-
dráttar upp á 500 krónur fyrir þá
daga, sem þeir keyra erlendis, en
frá áramótum missa þeir slíkan frá-
drátt upp á 150 krónur danskar, um
1650 íslenskar krónur. Carsten Koch
skattaráðherra hefur sagt að allar
slíkar breytingar séu verkefni þings-
ins og ekki gangi að panta slíkar
skattabreytingar. Stéttarfélag bíl-
stjóranna styður ekki lokun landa-
mæranna, þar sem bílstjórarnir tapi
á vinnustöðvuninni nú og önnur
stéttarfélög sýna þeim takmarkaða
samúð.
Hættir CIA
samstarfi
við BBC?
London. The Sunday Telegraph.
HORFUR eru á, að samstarfi
CIA, bandarísku leyniþjón-
ustunnar, og BBC, breska
ríkisútvarpsins, um upplýs-
ingaöflun verði bráðlega
hætt. Hefur það staðið í ára-
tugi og verið snar þáttur í
Heimsþjónustu BBC.
Þótt ekki hafí það farið
hátt hefur BBC notið mjög
góðs af samstarfinu við CIA
en þar á bæ er fylgst vel með
þvS, sem fram kemur hjá
fréttastofum og útvarps- og
sjónvarpsstöðvum víða um
heim. Yfírmenn CIA segja
hins vegar, að nú þegar kalda
stríðinu er lokið, sé ekki leng-
ur þörf fyrir þessa upplýs-
ingaöflun.
<£
(S
APÓTEK GARÐABÆJAR
ALLT AÐ 100 % AFSLÁTTUR
af hlut sjúklings við kaup á lyfseðilsskyldum lyfjum.
EINNIG 25 % AFSLÁTTUR AF NIKÓTÍNLYFJUM.
Góð þjönusta, mikið vöruúrval. Verið velkomin,
(S
APÓTEK GARÐABÆJAR
Garðatorgi