Morgunblaðið - 27.11.1996, Side 20
20 MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
1-
ERLEIMT
Afstæðis-
kenningin
á uppboði
BLAÐIÐ, sem hér sést, er úr handriti
að rökfærslu Alberts Einsteins fyrir af-
stæðiskenningunni og var selt á 398 þús-
und dollara (rúmlega 26 milljónir króna)
á uppboði hjá Christies í New York í
fyrradag. Kaupandinn var bóksali í Kali-
forníu. Ekki tókst að fá lágmarkstilboð
í skjalasafn með 400 sendibréfum Ein-
steins til fjölskyldu hans og var það því
ekki selt. Lágmarkið var hálf milljón
dollara.
Flugræningjar taldir af
La Galawa. Reuter.
AÐSTOÐARFLUGSTJÓRI eþíópísku
farþegaþotunnar, sem hrapaði í Ind-
landshaf eftir að henni hafði verið rænt
á laugardag, kvaðst í gær ekki geta stað-
fest að tveir menn, sem lifðu flugslysið
af og voru settir í gæsluvarðhald, væru
flugræningjarnir.
Lögreglan í Eþíópíu gaf út yfirlýsingu
um að mennimir tveir væru ekki viðriðn-
ir flugránið.
Clarke tekst að
lægja öldur
vegna EMU
KENNETH Clarke, fjár-
málaráðherra Bretlands,
segir að brézk stjórnvöld
muni áfram geta framfylgt
sjálfstæðri efnahagsstefnu,
þótt Evrópusambandið sam-
þykki „stöðugleikasátt-
mála“ í tengslum við Efna-
hags- og myntbandalag
Evrópu (EMU) og breyti
samþykktum um gengis-
samstarf Evrópu. Ekkert af
því, sem samþykkt verði á
næstunni varðandi EMU, bindi Bret-
land, ákveði það að standa utan
myntbandalagsins.
Þetta kom fram í yfirlýsingu
Clarkes um afstöðu ríkisstjórnarinn-
ar í EMU-málum, sem hann flutti í
þinginu síðdegis á mánudag. Yfirlýs-
ing af þessu tagi er í hæsta máta
óvenjuleg, enda flutt aðeins sólar-
hring áður en íjármálaráðherrann
heldur fjárlagaræðu sína í þinginu.
ESB-andstæð-
ingar í þingflokki
íhaldsmanna
þvinguðu fram
yfirlýsingu Clar-
kes, en þeir hafa
hótað að segja
sig úr þing-
flokknum vegna
þess að ríkisstjórnin hefur neitað að
leyfa þingumræðu um þijú þingskjöl
varðandi Efnahags- og myntbanda-
lagið og talið nægja að þau yrðu
rædd í. þingnefndum. Að sögn
brezkra blaða féllst John Major for-
sætisráðherra á að Clarke talaði í
þinginu til þess að forðast að
óánægja ESB-andstæðinganna
skyggði á fjárlagaræðuna.
Að mati brezkra blaða tókst
Clarke að lægja öldurnar vegna
EMU og fresta a.m.k. uppreisn ESB-
andstæðinga í þingflokknum. Efa-
semdamennirnir svokölluðu kröfðust
þess að Clarke skýrði afstöðu ríkis-
stjórnarinnar til viðræðna um stöð-
ugleikasáttmálann og önnur atriði
varðandi EMU áður en fundur fjár-
málaráðherra Evrópusambandsríkj-
anna yrði haldinn í Brussel í næstu
viku. Það verður síðasti fjármálaráð-
herrafundurinn fyrir leiðtogafund
ESB í Dubiin um miðjan desember
og búizt er við að fjármálaráðherr-
arnir reyni að leysa sem flest ágrein-
ingsefni varðandi stöðug-
leikasáttmálann. Hin endan-
lega ákvörðun verður hins
vegar í höndum leiðtoga-
fundarins.
Bretar ekki sektaðir
fyrir fjárlagahalla
utan EMU
Clarke sagði í umræðun-
um að ekki væri við því að
búast að stöðugleikasátt-
málinn yrði frágenginn á
fjármálaráðherrafundinum í næstu
viku. Hann sagði nauðsynlegt og
jákvætt að þingið færi ofan í saum-
ana á þessum málum og engar bind-
andi ákvarðanir yrðu teknar án und-
angenginna umræðna á brezka þing-
inu. Clarke sagðist myndu gera þann
fyrirvara á ráðherrafundinum að
þingið yrði að fara yfir það, sem þar
yrði samþykkt. „Stöðugar umræður
um EMU á þingi og einstök móður-
sýkisköst þing-
manna eru hins
vegar ekki í þágu
brezkra hags-
muna,“ sagði
fjármálaráðherr-
ann.
Hann sagði að
réttur Breta til
að standa utan EMU yrði óbreyttur,
þótt stöðugleikasáttmáli yrði sam-
þykktur, en slíkur sáttmáli hefði í
raun verið fyrirséður allt frá gerð
Maastricht-sáttmálans. Stæði Bret-
land utan EMU, myndu stjórnvöld
áfram geta rekið sjálfstæða efna-
hagsstefnu. „Við myndum áfram
hafa sömu skuldbindingar og nú um
að forðast of mikinn fjárlagahalla,
en ekki verður um það að ræða að
við verðum beitt sektum eða öðrum
refsiaðgerðum þótt ijárlagahallinn
fari úr böndum,“ sagði Clarke.
Hann sagði að stöðugleikasátt-
málinn væri skynsamlegur út frá
brezkum hagsmunum, hvort sem
Bretar hygðust ganga í EMU eða
ekki. Yrði Bretland aðildarríki EMU
væru það hagsmunir þess að önnur
ríki gætu ekki rekið óábyrga ríkis-
fjármálastefnu. Stæði Bretland hins
vegar utan EMU, væru það hags-
munir þess að evró-svæðið yrði stöð-
ugt, enda yrðu stærstu viðskiptavin-
ir Breta innan þess.
Kenneth
Clarke
EVRÓPA^
.
m
Stækkun ESB til
austurs í áföngum
AUSTUR-Evrópuríkin tíu, sem
sækjast eftir aðild að Evrópusam-
bandinu geta ekki vænzt þess að
njóta neinna sérkjara varðandi inn-
tökuskilyrðin og líklegast er að
stækkun ESB til austurs fari fram
í áföngum. Þetta kom fram í máli
Jacques Santer, forseta fram-
kvæmdastjórnar ESB, er hann
kynnti niðurstöður sérstaks fundar
framkvæmdastjórnarinnar um um-
sóknir Austur-Evrópulandanna sl.
laugardag.
Santer sagði ákvörðunina um
það, hvort og hvenær aðildarvið-
ræður hæfust við umsóknarríkin
tíu, myndu verða tekna sjálfstætt
í hveiju tilviki. Ákvarðanir myndu
byggjast á hlutlægu mati á aðildar-
hæfni ríkjanna. Sérstök vináttu-
tengsl við einstök aðiidarríki ESB
myndu ekki tryggja umsóknarríki
aðgang að fyrstu umferð aðildarvið-
ræðna.
Úrvinnsla svara við
spurningalistum frestast
Vonir um að takast myndi að
vinna úr svörum ríkisstjórna um-
sóknarlandanna við ýtarlegum
spurningalista framkvæmdastjórn-
arinnar um stjórnsýslu og efnahag
viðkomandi ríkja fyrir áramót hafa
nú verið afskrifaðar.
Spurningalistinn var sendur út
til ríkisstjórnanna í apríl sl. og svör
þeirra bárust á þúsundum blað-
síðna. Embættismönnum fram-
kvæmdastjórnarinnar ætlar að
reynast mun erfiðara en að var
stefnt að meta svörin, segir í
European Voice.
Að sögn embættismannanna er
allt of algengt að ríkisstjórnirnar
dragi upp bjartsýnni mynd af ár-
angri af endurskipulagningu
stjórnsýslunnar en ástæða er til
og að svörin séu oft óskýr og tví-
ræð.
Framkvæmdastjórnin vinnur nú
hörðum höndum að því í samvinnu
við ríkisstjórnir umsóknarlandanna
að sannreyna uppgefnar upplýs-
ingar, en pólitísk viðkvæmni hefur
hægt á því ferli. Það er því ekki
búizt við endanlegri matsskýrslu
ESB um aðildarhæfni Austur-Evr-
ópuríkjanna fyrr en á komandi vori.
4-