Morgunblaðið - 27.11.1996, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 1996 21
ERLENT
Kúariðan
á undan-
haldi
BRESKIR vísindamenn sögðu
í gær, að með skipulagðri
slátrun væri í raun búið að
uppræta kúariðu í ungum
nautgripum í Bretlandi. Þeir
hvöttu hins vegar til, að Evr-
ópuríkin legðu nú allt kapp á
að uppræta riðu í sauðfé með
sams konar aðgerðum. Roy
Anderson, faraldursfræðingur
við Oxford-háskóla, sagðist
búast við, að kúariðan yrði úr
sögunni í Bretlandi upp úr
miðju ári 1998 en lagði áherslu
á, að halda yrði áfram að
slátra 55.000 nautgripum eldri
en 30 mánaða vikulega. Fram
að þessu hefur um einni milljón
nautgripa verið slátrað vegna
kúariðunnar.
Spá alnæm-
isfaraldri
RÚSSUM, sem smitast hafa
af alnæmi, hefur fjölgað mikið
að undanförnu og á það sér-
staklega við um eiturlyfjaneyt-
endur. Hefur Rar-Tass-frétta-
stofan það eftir Míkhaíl
Narkevítsj, yfirmanni alnæm-
isvarna í Rússlandi, að jafn
margir hafi smitast á fyrstu
tíu mánuðum þessa árs og
fram til þess tíma frá 1987,
sem sjúkdómsins varð fyrst
vart í landinu. Sagði hann, að
alnæmisfaraldur væri í upp-
siglingu. Fjöldi smitaðra í
landinu er enn lítill miðað við
mörg önnur lönd en óttast er,
að það kunni að breytast á
skömmum tíma, meðal annars
vegna þess, að aðrir kynsjúk-
dómar hafa aukist mikið.
Sárasóttartilfellum fjölgaði til
dæmis um helming á síðasta
ári.
Þúsundir
handteknar í
Líbýu
MUAMMAR Gaddafi Líbýu-
leiðtogi hefur hafið enn eina
herferðina gegn efnahagslegri
spillingu og fara hópar ungra
manna, sem kallaðir eru „eld-
fjöllin“, hamförum gegn mörg-
um verslunareigendum í líb-
ýskum borgum. Gera þeir vör-
ur og peninga upptæka á þeim
forsendum, að okrað hafi verið
á varningnum. Hafa þúsundir
manna verið handteknar og
margir lokaðir inni í Tajoura-
fangelsinu austur af höfuð-
borginni Tripoli. Andstæðing-
ar Gaddafis segja, að herferðin
sé tilraun hans til að draga
úr óánægju landsmanna með
fátækt og erfiðleika en opin-
berir starfsmenn hafa margir
ekki fengið laun greidd í hálft
ár.
Afram skort-
ur í N-Kóreu
MÖRG ár munu líða áður en
efnahagslífið í Norður-Kóreu
jafnar sig á afleiðingum flóð-
anna síðastliðin tvö sumur.
Kemur það fram í fréttabréfí
Alþjóða Rauða krossins. Að
áliti stjórnvalda í landinu verð-
ur komuppskeran á þessu ári
tveimur milljónum tonna minni
en að var stefnt en það svarar
til þess, að það vantar 40%
upp á það, sem þarf.
Italskri konu finnst nóg komið og hyggst leita á náðir hæstaréttar
Gert að búa með
24 ára syni sínum
Róm. The Daily Telegraph.
ÍTALSKUR dómari hefur úr-
skurðað að ítali nokkur hafi rétt
til að búa hjá móður sinni þótt
hann sé orðinn 24 ára og móðirin
hafi vísað honum af heimilinu.
Maria Rosa er fráskilin tveggja
barna móðir og kvaðst hafa feng-
ið sig fullsadda á syninum þar sem
hann væri kröfuharður, dónaleg-
ur og jafnvel ofbeldisfuílur. Hann
starfar á bensínstöð og þótt tekj-
ur hans séu meiri en móðurinnar
segir hún hann ekkert leggja til
heimilisins og eyða peningunum
í dýran fatnað.
Dag einn þegar sonurinn var
ekki heima lét móðirin skipta um
lás á útidyrunum. Sonurinn
neyddist því til að gista hjá ömmu
sinni og höfðaði mál gegn móður-
inni, sem hefur nú verið gert að
taka við honum aftur. Að sögn
dagblaðsins La Repubblica er hún
staðráðin í að áfrýja úrskurðinum.
Blaðið segir þetta mál eitt
dæmið af mörgum um hversu ít-
alskir karlmenn séu háðir foreldr-
um sínum. Blaðið lýsir Mariu
Rosu sem „hetju okkar tíma“ og
segir hana hafa sýnt mikinn kjark
með því að vísa þessum „Ödipus"
út. Barátta hennar sé upphafið
að „nýrri kynslóðauppreisn - í
þetta sinn rísa foreldrarnir upp
gegn börnunum“ sem „mergsjúga
þá og kúga“.
Þótt konan hafi getað skilið við
eiginmanninn án nokkurra vand-
kvæða bendi úrskurðurinn til þess
að hún sitji uppi með soninn til
æviloka.
Samkvæmt nýlegri könnun búa
95% ítalskra karla á aldrinum
15-24 ára enn hjá foreldrum sín-
um og aðeins 0,4% þeirra búi ein-
ir. 52% karla á aldrinum 25-35
ára búa hjá foreldrunum en aðeins
29% kvenna í sama aldurshópi.
,, A ðalatrið i ð fyrir
stjórnmálamenn er að
menn taki eftir verkum
þeirra og myndi sér
skoðanir á þeim. Það er
siðan eðli lýðrœðisins að
menn séu ýmist með þeim
eða á móti.
ÓLAFUR RAGNAR
GRÍMSSON
Pálmi lónassoii L,
Stjórnmálamenn sem fólk
lœtur sérfátt um finnast
eru ekki að vinna verk
sem einhverju máli
skipta. “
BÓKAFORLAG
tsasá