Morgunblaðið - 27.11.1996, Page 22
22 MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 1996
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
LESIÐ verður upp í Skaftfelli á Seyðisfirði þar sem ný listamið-
stöð bæjarins er til húsa.
Upplestur á Seyðis-
firði og Vopnafirði
UPPLESTRARKVÖLD verða hald-
in á Seyðisfírði og Vopnafírði um
mánaðamótin þar sem sex skáld
munu lesa úr nýútkomnum verkum
sínum; Einar Kárason, Vigdís
Grímsdóttir, Þórarinn Eldjárn,
Gerður Kristný, Andri Snær
Magnason og Elín Pálmadóttir.
Þetta er í fyrsta skipti sem slíkt
upplestrarkvöld fer fram á Seyðis-
fírði, en Vopnfirðingar háfa áður
efnt til bókmenntakvölda í jólabóka-
flóðinu.
Að sögn Þóru Guðmundsdóttur,
sem er í forsvari fyrir Skaftfells-
hópnum á Seyðisfirði sem stendur
fyrir upplestrinum ásamt menning-
armálanefnd bæjarins, hafa um 140
manns sótt þessi kvöld á Vopnafirði
80. sýning á
Bar Pari
80. SÝNING á Bar Pari eftir Jim
Cartwright verður laugardags-
kvöldið 30. nóvember. Uppselt hef-
ur verið á nær allar sýningar, en
rúmt ár er liðið frá frumsýningu.
Leikritið gerist á bar og er sýnt
á Leynibarnum í kjallara Borgar-
leikhússins. Hlutverkin, sem eru 14,
eru í höndum Sögu Jónsdóttur og
Guðmundar Ólafssonar. Leikstjóri
er Helga E. Jónsdóttir.
Síðasta sýning fyrir jól verður
7. desember og ein sýning er fyrir-
huguð milli jóla og nýárs.
og væri vonast til að undirtektir
yrðu svipaðar á Seyðisfirði. „Upp-
lesturinn fer fram í nýrri listamið-
stöð hér í bænum sem staðsett er
í gömlu húsi sem heitir Skaftfell.
Það er skemmtileg tilviljun að afí
og amma Vigdísar Grímsdóttur
bjuggu einu sinni í þessu húsi; það
má því segja að hún sé að koma I
heimsókn til þeirra að lesa. Sam-
hliða upplestrarkvöldinu verður
sýning á lista- og handverkum eftir
Seyðisfírðinga í húsinu. Einnig mun
Djasstríó Öllu í Múla spila. í húsinu
verður raunar leikin tónlist alla
aðventuna."
Höfundarnir sex munu lesa á
Seyðisfirði 30. nóvember en á
Vopnafirði 1. desember.
Gallerí Fold
með útibú í
Kringlunni
GALLERÍ Fold við Rauðarár-
stig hefur opnað útibú í
Kringlunni. Þar verður lögð
áhersla á listmuni úr gleri og
keramiki, auk minni mynd-
verka.
Galleríið hefur tekið upp
samvinnu við vel þekkt gler-
og keramiklistafólk um kynn-
ingu og sölu. Rekstur gallerís-
ins á Rauðarárstígnum verður
óbreyttur.
Svipir og
sveitungar
MYNDLIST
Norræna húsið
MÁLVERK
Gunnar Örn. Opið alla daga frá kl.
14-17. Til 1. desember. Aðgangur
200 krónur.
HRATT flýgur ögurstund, varð
mér hugsað á sýningu Gunnars Am-
ar í Norræna húsinu á dögunum er
í ljós kom að listamaðurinn fyllir
senn fímmta áratuginn. Eins furðu-
stutt og manni fínnst vera frá þeim
tímum er hann var í röð ungu og
upprennandi málaranna sem einna
atkvæðamestir voru um ný viðhorf
í íslenzku myndlistarlífi og stóðu
utan Súm-hópsins. Framlag einstaki-
inga, sem voru þó sumir mun at-
kvæðameiri um sýningahald hefur
ekki verið haldið fram í sama mæli
af fræðingum, líkt og að hópeflið
skipti meira máli. Það bíður síns tíma
að gera hér rækilega úttekt og vænti
ég þess -að margur reki þá upp stór
augu.
Það er að verða að hefð að mynd-
listarmenn sem standa á þessum
tímamótum setji sjálfir upp sýningar
og er áhugavert framtak en hér
þyrftu samtök þeirra og listasöfn að
vera betur vakandi, einkum hvað
heildarúttekt á ferli þeirra fram-
sæknustu áhrærir. Ekki er langt síð-
an Gunnar Öm sýndi í öðrum aðal-
sal Listasafns Kópavogs og vakti
sýningin drjúga athygli því ljóst var
að um umtalsverða getjun væri að
ræða í myndveröldum hans. Og hann
er enn á fullu í þessari uppstokkun
og að hræra I litunum á litaspjaldinu
og dúkunum og það í bókstaflegri
merkingu þvf fáir málarar munda
pentskúfínn jafn hratt og óformlega.
Hér fylgir Gunnar eftir einni hug-
dettunni af annarri og helst eru það
sveitungar hans og umhverfi sem
hann tekur til meðferðar og hantérar
á sinn auðkennandi hátt.
Athygli vekja fjölmargar ásjónur
sem raðað er hættulega þétt á vest-
urvegg, en þar blasa við heilar 22
myndir er nefnast „Sveitungar"
(Heimurinn, heimili okkar allra). Hér
er um stílfærð og margræð andlit
að ræða og mun frekar hugljómun
en að farið sé eftir útlínum viðkom-
andi og þær vandvirknislega kort-
Endurunnin lög
Bjarkar á plötu
ÚT ER komin ný breið-
skífa Bjarkar Guð-
munds_dóttur, Telegr-
am. Á plötunni eru
ýmis lög af plötu henn-
ar Post, en í _ mjög
breyttri útgáfu. í sam-
tali við Morgunblaðið
sagði Björk það heill-
andi að láta verk sín í
hendur annarra til að
vinna upp á nýtt, en
hún stýrði allri endur-
vinnslu á lögunum.
Björk segir að hún
hafí reynt að draga
allt annað fram í lög-
unum en áður hafi
komið fram og ýkja
alla þætti þeirra. Fyrir vikið hafi
verið erfítt að raða lögunum saman,
þau hafí verið það ólík, og því hafi
útgáfan tafíst lítið eitt. Björk segist
hafa gaman að vinna með verk
annarra og þá ekki síst að láta aðra
endurgera eigin verk, en hún valdi
sjálf lög á diskinn og hafði þann
hátt á að biðja fjölda listamanna
að endurvinna verk sín, fékk inn
tugi laga og valdi síðan
þau bestu úr.
Björk vinnur Telegr-
am með ýmsum lista-
mönnum, þar á meðal
Brodsky strengja-
kvartettinum, sem get-
ið hefur sér gott orð
fyrir flutning á jafnt
klassískri tónlist sem
nútímalegri framúr-
stefnutónlist, skoska
slagverksleikaranum
Evelyn Glennie, sem
hefur meðal annars
komið hingað til lands
til tónleikahalds, en að
sögn Bjarkar leikur
Glennie á útblástursrör
bifreiða, brasilíska tónlistarmannin-
um Eumir Deodado, sem kom með-
al annars að síðustu plötu Bjarkar,
Dillinja, dansdúettinum LFO,
Outcast, Dobie og Mika Vaino.
Björk hefur hafið vinnu við næstu
breiðskífu sína, sem koma á út um
mitt næsta ár, en upptökur fara
fram á Spáni.
Björk
Guðmundsdóttir
Bókmenntir
á geisladiskum
ÚT eru komnar tvær geislaplötur í
flokknum, Bókmenntir á geisladisk-
um, önnur með ljóðum Davíðs Stef-
ánssonar frá Fagraskógi og á hinni
eru fimm smásögur eftir jafnmarga
höfunda.
Sestu hérna hjá mér, nefnist
geislaplata með ljóðum Davíðs Stef-
ánssonar frá Fagraskógi. Arnar
Jónsson leikari hefur tekið saman
helstu ljóð skáldsins og útbúið til
flutnings. Hann ásamt Helgu Jóns-
dóttur flytja ljóðin, sem eru um 40
talsins.
Þetta er fyrsti diskurinn í útgáfu-
röð, sem nefnist „Lifið er ljóð“, þar
sem ýmsum skáldjöfrum eru gerð
skil.
Smásögur er heitið á annari
geislaplötu. Á henni eru smásög-
urnar „Júbal ég - lausi“ eftir Aug-
ust Strindberg, „Maðurinn sem
safnaði vindum" eftir Ingvar Orre,
„Teikn og tákn“ eftir Vladimir
Nabokov,, „Hvar á að spila í kvöld“
sem John O’Hara skrifaði og „Eitt-
hvað verður gert“ eftir Heinrich
Böll. Lesarar eru Jóhann Sigurðar-
son, Ragnheiður Steindórsdóttir,
Örn Árnason, Arnar Jónsson og
Erlingur Gíslason.
Útgefandi er Hljóðsetning ehf.
nýtt fyrirtæki í eigu leikaranna
Jóhanns Sigurðarsonar, Amar
Árnasonar, Sigurðar Siguijónsson-
ar og tónlistarmannsins Stefáns
Hjörleifssonar. Leiðbeinandi verð
er 1.990 kr.
GUNNAR Örn. Endir, upphaf. Olía á striga.
lagðar. Hins vegar dregur maður
ekki í efa að sitthvað af persónuein-
kennum fólksins sé að baki útfærsl-
unnar, og myndrænt séð eru nr. 1,
3 og 15 hvað áhugaverðastar vegna
svipmikils tjákrafts. Tvískipta mynd-
in „Horft í blámann” (35) er sömu-
leiðis mjög áhugaverð. Hins vegar
er því ekki að neita að sumar andlits-
myndanna eru fulllausar í sér og að
hér hefði grisjun mátt koma til.
Athygli vekja stórir og órólegir
dúkar gagnsærra litaheilda, sem
standa þó fullkomlega fyrir sínu ef
ekki kæmu til ýmsar harðar þekjandi
formanir á víð og dreif. Þetta er að
vísu til í númálverki eins og fleira,
er öllum lögmálum samræmis og
fagurfræði er hafnað, en á síður við
hér og virkar mjög framandi. Allt
annar handleggur er svo myndaröðin
„Annar heimur“ (46-55) á suður-
vegg í innri sal en þar verður hin
óformlega órólega heild gagnsærra
forma er byltast um flötinn einmitt
að sterku og bundnu samræmi. Eins
konar reglu í ftjálsri mótun.
Bragi Ásgerisson
Upplestur
í Gerðar-
safni
UPPLESTUR á vegum Ritlist-
arhóps Kópavogs verður hald-
ið í kaffistofu Kópavogs,
Gerðarsafni milli kl. 17 og 18,
fímmtudaginn 28. nóvember.
Gestir þessa viku verða rit-
höfundarnir Bjarni Bjarnason,
Einar Örn Gunnarsson og ísak
Harðarson og lesa þeir úr
verkum sem út koma fyrir
þessi jól. Bjarni les úr skáld-
sögunni Endurkoma Maríu,
Einar Örn les einnig úr nýrri
skájdsögu, Draugasinfóníunni,
en ísak fetar nýjar slóðir í bók
sinni Þú sem ert á himnum,
Þú ert hér, þar sem hann dreg-
ur upp mynd af trúarreynslu
sinni.
Bjarni Bjarnason hefur áður
sent frá sér sögur og ljóð,
m.a. ljóðabókina Urðarljóð og
útópíuna í Óralandi, auk skáld-
sögunnar Víslands. Einar Örn
hefur helst fengist við sagna-
gerð, m.a. gefíð út skáldsög-
urnar Næðing og Benjamín.
ísak sté fram á ritvöllinn 1982
með bókina Þriggja orða nafn
og síðan hefur komið út eftir
hann Tjöldi bóka, til að mynda
smásagnasafnið Snæfellsjök-
ull í garðinum.
Staða ljós-
myndunar
í DAG, miðvikudag, kl. 20.30
verður haldið í Gerðarsafni,
Kópavogi, málþing á vegum
Ljósmyndarafélags íslands um
stöðu ljósmyndunar sem list-
greinar, hver stefna opinberra
aðila er varðandi sérstakt ljós-
myndasafn og hvort núverandi
söfn sinni hlutverki sínu að
safna samtímalist.
„Einnig er þetta upplagt
tækifæri fyrir ljósmyndara
(lærða sem ólærða) að spyija
sjálfan sig að því hvar þeir
standa í íslenskri listaflóru og
hvort ljósmyndum er metin að
verðleikum," segir í kynningu.
Fyrirlestur
í Nýlista-
safninu
KRISTÍN Ómarsdóttir rithöf-
undur heldur fyrirlestur í dag
miðvikudaginn 27. nóvember
kl. 20.30 í Nýlistasafninu,
Vatnsstíg 3b.
Fyrirlesturinn nefnist: Bylt-
ing tilfinninganna - „Einn dag
verða allir menn frjálsir. Einn
dag mun réttlætið sigra og
jafnvægið komast á... Bylting
tilfinninganna er fyrirlestur
um tilfínningar...“ segir í
kynningu.
Aðgangur er ókeypis og all-
ir velkomnir.
Sýningum að
ljúka á Kar-
demommu-
bænum
SÝNINGUM fer nú fækkandi
á Kardemommubænum, sem
verið hefur á fjölum Þjóðleik-
hússins frá liðnu hausti. Sýn-
ingar eru orðnar 76 talsins og
tala áhorfenda komin hátt í
32 þúsund.
Síðasta sýning samkvæmt
áætlun er 1. desember, en
aukasýningar verða laugar-
dagana 30. nóvember og 7.
desember.