Morgunblaðið - 27.11.1996, Síða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Þorsteinn Gauti
og Rachmaninov
TONLIST
llljómdiskar
PÍANÓKONSERT OG
RAPSÓDÍ A
Sergei Rachmaninov Píanókonsert
nr. 2 í e-moll. Rapsódía um stef eftir
Paganini. Þorsteinn Gauti Sigurðs-
son (pianó) ásamt Sinfóníuhljómsveit
Islands. Upptökur fóru fram í Há-
skólabiói í sept. 1994 og í maí 1995.
Tónmeistari: Bjarni Rúnar Bjaraa-
son. Upptökumeim: Þórir Stein-
grimsson og Hreinn Valdimarsson.
Utgefandi og dreifing: Japis JAP
9639-2.
RACHMANINOV (1873-1943)
er trúlega þekktastur fyrir píanó-
verk, þ. á m. konserta, enda sjálfur
framúrskarandi píanóleikari og hélt
fjölda tónleika beggja megin Atl-
antsála eftir að hann neyddist til
að yfirgefa Rússland eftir bylting-
una (1917). Hann samdi einnig
óperur, sinfóníur, kammerverk og
sönglög sem mörg hafa verið gefin
út á hljómdiskum hin síðari ár og
átt sinn þátt í endurmati á tónlist
hans. Á sínum tíma þótti hann
nokkuð íhaldssamur og rómantísk-
ur, enda er hann í sinfónískri tón-
list sinni svo sem eins og beint
framhald af Tchaikovsky og sam-
ferðamönnum hans, þó að vissulega
hafi hann þróað eigin stíl — sem
gat verið bæði ábúðarmikill og inni-
legur.
Hér höfum við tvö af hans þekkt-
ustu verkum, píanókonsertinn
fræga nr. 2 og Rapsódíu um stef
eftir Paganini fyrir píanó og hljóm-
sveit, sem var síðasta tónsmíð hans
fyrir þessa hljóðfæraskipan.
Konsertinn er með hans „róm-
antískari“ verkum, langur og
tæknilega kreíj'andi, fullur af
skapbrigðum, en einnig auðugur
af fallegum hlutum og „nostalg-
ískum“ tilfinningum (sbr. hæga
kaflann). Frægir eru upphafstakt-
arnir, sem byggja upp dramatíska
eftirvæntingu sem konsertinn
stendur oftast nær undir — stund-
um með glæsibrag á sínu róman-
tíska tónmáli. Rapsódían, sem eru
raunar 23 tilbrigði um þekkt stef
úr síðustu „kaprísu" Paganinis
fyrir einleiksfiðlu, er ekki síður
fjölbreytilegt „virtúósaverk" (sum
tilbrigðin æði langsótt), spennandi
og tæknilega krefjandi — og satt
að segja „geníalt" á köflum (sbr.
lokataktana).
Þorsteinn Gauti er stórgóður
píanisti, hefur bæði tæra tæknina
á valdi sínu og ekki síður það stóra
format sem svona tónlist krefst.
Leikur hans er ákaflega vel grund-
aður í blíðu og stríðu, frekar
„klassískur" en „rómantískur", ef
átt er við tilfinningasemi og yfir-
drifnar áherslur og flæði. Tónlistin
sjálf nýtur góðs af því. Eg var
farinn að halda að Sinfónían léki
án stjórnanda að þessu sinni og
þótti mér henni takast furðu vel
upp ogjafnvel sýna tilþrif á köflum
(sem auðvitað vakti spurningar um
gagnsemi stjórnenda). Á bls. 14 í
bæklingi rakst ég loks á nafnið
Ola Rudner, sem er fæddur í Sví-
þjóð og stundaði nám í Kaup-
mannahöfn, Manchester og Salz-
burg og ku vera ansi góður á fiðlu.
Og með því að hann hefur einnig
komið fram sem hljómsveitarstjóri
þótti mér einsýnt að hann bæri
nokkra ábyrgð á leik hljómsveitar-
innar, sem var dálítið „flatur“ og
viðburðarlítill á köflum í konsertin-
um (skrifist vissulega einnig á
reikning tónskáldsins), en átti fín-
ar rispur og flottar — einkum þeg-
ar á leið.
Ég var í fyrstu í nokkrum vafa
um upptökuna (jafnvægi og skýra
og hreina tónblöndun) í innkomu
hljómsveitarinnar og áfram (einn-
ig í hæga kaflanum), en sú tilfinn-
ing var gleymd og grafin þegar
leið á hlustun.
Oddur Björnsson
Karlakórssöngur
á Hvolsvelli
ÞAÐ er nú orðinn árviss viðburður
að Karlakór Selfoss, Karlakórinn
Þrestir í Hafnarfírði og Karlakór
Rangæinga haldi sameiginlega
hausttónleika. Nú verða þeir
laugardaginn 30. nóvember kl. 16
í Hvolnum á Hvolsvelli.
Karlakórinn Þrestir var stofnað-
ur 1912 og nú eru um 50 söng-
menn í kómum. Stjórnandi Þrast-
anna er Sólveig Einarsdóttir, undir-
leikari Miklós Dalmay og einsöngv-
ari með kórnum er Helgi Þórðar-
son.
Karlakór Selfoss er stofnaður
1965 og nú starfa 48 söngmenn
með kórnum. Kórinn er nú að gefa
út sína fyrstu geislaplötu. Stjórn-
andi er Ólafur Siguijónsson, undir-
leikari Helena Káradóttir og ein-
söngvari með kórnum er Berglind
Einarsdóttir.
Karlakór Rangæinga er yngstur
kóranna, rétt að slíta barnsskónum.
Hann var stofnaður árið 1990 og
stefnir nú á sína fyrstu söngferð á
erlenda grund. Félagar eru nú 42
talsins. Stjórnandi kórsins er Hall-
dór Óskarsson, undirleikari Hörður
Bragason og einsöngvari með kórn-
um er Jón Smári Lárusson.
Aðgangseyrir er 1.000 kr. og
800 fyrir eldri borgara en enginn
aðgangseyrir er fyrir börn. Allir
eru velkomnir meðan húsrúm leyfír
og jafnvel lengur.
STOFNENDUR Ljósmyndarafélags íslands í janúar 1926.
„ Að lýsa flöt“
MYNPUST
Listasafn Köpavogs
LJÓSMYNDIR
Ljósmyndarafélag Islands. Opið alla
dagafrá 12-18. Lokað mánudaga.
Til 1. desember. Aðgangur/sýningar-
skrá 200 kr.
MIÐAÐ við sögulegan bakgrunn
Ijósmyndarinnar hér á landi, hefði
mátt ætla að samtök ljósmyndara
væru eldri en 70 ára, en félagslyndi
er Islendingum ekki í blóð borið, sér
í lagi ef athafnir þeirra skara sjón-
menntir.
Vissulega er ljósmyndin mynd-
rænn miðill, sem tengist endurvarpi
sjónrænna atriða, þótt einhveijir hafi
verið lengi að uppgötva það hér á
útskerinu. I raun elsti sjónræni mið-
illinn með samfellda sögu eins og
stendur í sýningarskrá, en kannski
færi betur á því að segja myndmiðill-
inn. Huga má að sjónræna þættinum
í húsagerðarlist og varla hafa orðið
mörg rof á því að menn byggðu yfír
sig húsaskjól á Islandi frá landnáms-
öld, þótt mönnum sjáist því miður
alltof oft yfír þá hlið, sem telst þó
einn af grunnþáttum hennar auk
hins hagnýta, verklega og formræna.
Vísa hér til hinnar miklu sjónrænu
fegurðar í grjóthlöðnum réttum á
mynd Péturs Ólafssonar. Tilefni er
að minna á, að hönnun byggist einn-
ig á óáþreifanlegum atriðum, líkt og
draumum og mótun undirvitundar-
innar sem fæstir gera sér grein fyrir.
Hitt er svo annað mál að maður
skilur hvað átt er við, því Ijósmyndin
er allt í senn myndrænn, sjónrænn
sem listrænn miðill og þannig er
framslátturinn jafn lítið alrangur
sem að vera alveg kórréttur. En veig-
urinn í þessum orðaleik er að taka
undir hið síðastnefnda, að Ijósmyndin
er listrænn miðill, sem menn hafa
kannski verið tregir að viðurkenna
að fullu á íslandi. Miður er að lista-
söfnin hafí verið svo iengi að taka
við sér, því að á sviðinu hefur margt
stórvel verið gert. Það er svo alveg
hárrétt, að listasöfn erlendis og þá
helst nútímalistasöfn sinni því besta
sem gert er á sviðinu, þótt fullmikið
sé sagt að þau keppist við það, en
það er metnaður hvers safns að
rækta einnig þá hlið sjónmennta.
Listasafn, sem hefði fjárráð, hús-
næði og metnað til að kynna skil-
virka þróun á öllum sviðum sjónlista
frá upphafí væri býsna áhugavert,
því hér er fágæt saga falin fyrir
umheiminum. Á ég við sjónræna
sögu frá miðöldum fram til síðustu
tíma, sem gera myndi hvern viti bor-
inn Islending stoltan og útlenda_gesti
forviða. Frá teiknibókinni í Ama-
safni, húsagerðarlist, og yfir út-
skurð, vefnað og saum, fyrstu skól-
uðu listamannanna og til ljósmynd-
ara aldarinnar? Og skyldum við telj-
ast þjóð áður en slíkt verður að veru-
leika, eða skiptir öllu að draga sem
flesta titti úr sjó og menga landið
til að rúlla áfram öfugsnúinni, falskri
velferð?
Fyrir fimm árum var ljósmyndara-
félagið með mikla og glæsilega sýn-
ingu á Kjarvalsstöðum og ósjálfrátt
virkar þessi framkvæmd sem fram-
hald hennar í smækkuðu formi. Engu
að síður er hún mjög áhugaverð eink-
um fyrir sýnishorn eldri ljósmynda,
því þrátt fyrir stóraukna tækni mega
þeir ungu hafa sig alla við að ná
jafn sannverðugum og stemmninga-
ríkum sjónrænum lifunum og gengn-
ar kynslóðir. Látleysið og tilfínningin
fyrir aðalatriðunum og myndbygg-
ingunni er gegnumgangandi hjá hin-
um eldri, og satt að segja hrifu frum-
leikatilraunir hinna ungu takmarkað.
Frumleiki er eðlilegur þróunarferill,
sem kemur ef neisti er fyrir hendi,
en lærist ekki og hér fer allur remb-
ingur viðkomandi illa. Sviðsetja hefði
mátt sýninguna betur t.d. með yfir-
stærð á nokkrum vel völdum eldri
myndum til að auka sjónrænan
áhrifamátt hennar.
Afar hæpið er að nefna nöfn, þar
sem hver þátttakandi á einungis
ENGU íslenzku listasafni
hefur dottið í hug að festa
sér þetta snilldarverk Jóns
Kaldals, hvað þá aðrar ljós-
myndir.
örfáar myndir og eru misvel kynntir
af framlagi sínu, en ég staðnæmdist
aftur og aftur við myndir Péturs
Brynjólfssonar, Edvards Sigurgeirs-
sonar og Gunnars Hannessonar,
Láru Long, Rúnars Gunnarssonar,
Önnu Sigríðar og Jóhannesar Long.
Sýningin segir okkur öðru fremur,
að við höfum átt framúrskarandi ljós-
myndara og eigum raunar nokkra á
heimsmælikvarða í dag, þótt fæstir
þeirra séu með á sýningunni. Einnig
af horfnum myndefnum, sem málar-
ar okkar sinntu lítið eða vanræktu
en voru afar áhugaverð. Einnig að
núlistamenn dagsins hafí sitthvað til
fortíðar að sækja um snjallar hug-
myndir og myndefni, alíslenzkrar
fortíðar. Þá segir hún okkur einneg-
in, að enn kemst enginn með tærnar
þar sem Kaldal hafði hælana í
mannamyndagerð og loks mjög áber-
andi, að enn sé nokkurt land ónumið
þar sem eru nektar- og blómamynd-
ir, að ógleymdum náttúrulegum og
eðlisbornum frumleika.
Sýningarskráin ber meira svip af
ófrumlegu auglýsingariti en heimild
um merk tímamót, en inniheldur þó
nokkum gagnlegan fróðleik.
Bragi Ásgeirsson
.Tölvukjör
Tolvu,-
verslun
heimilanna
MUNIÐ:
Fræðsla & fjör
í Tölvukjör
- öll fimmtudags-
kvöldtil kl. 22:00
Opið í dag til klukkan 16:00
Frábær fjölskyIdutilboð
Þú finnur réttu jólagjöf fjölskyltlunnar hjá oltkur! Mikið úrval af tölvum og tölvubúnaði,
prenturum og margmiðlunarvörum á frábæru tilboðsverði. Við höfum opiö til kl. 16:00
i dag. Líttu við með fjölskylduna - við tökum vel á móti ykkur!
Trust Pentium 133 Mhz
133 MHz Intel Pentium örgjöivi
16 Mb E00 minni
Intel Triton VX kubbasett
15" PV litaskjár
1280 Mb diskur
2 Mb S3 Trio Virge skjákort
16 bita hljóðkort
8 hraða geisladrif
Sound Wave 240 hátalarar
Windows 95 lyklaborð, mús, Windows 95
Stærri skjár
Meira skjáminni
Öflugri hátalarar
Aðeins kr. 125.900
' oll fimmtudagskvöld
Fræðsla
& fjör
í Tölvukjör
fra klukkan sjo til tiu
108 Reykjavík
Sími 533 2323
milln tolvukjor@itn.is
Opifl virka daga 12:00-18:30
fimmtudaga 12:00-22:00
og laugardaga 10:00-16:00