Morgunblaðið - 27.11.1996, Qupperneq 38
38 miðvikudágur 27. nóvember 1996
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Listasafnið okk-
ar Akureyringa
Í GRÓFARGILI hér á
Akureyri hefur þróast
athyglisverð starfsemi.
Listasumar er orðinn
fastur liður þar. Mynd-
listarskólinn er skóli,
sem tekið er eftir, Ketil-
húsið, með allri þeirri
fjölbreyttu starfsemi
sem þar á að verða er
spennandi verkefni,
Ðeiglan, sem er fjöl-
notasalur, er sífellt með
eitthvað í „deiglunni".
Gilfélagið, sem er hópur
fólks með hugsjónir og
áhuga á að gera list-
greinum hátt undir
höfði, er orðinn öflugur
félagsskapur. Ýmis gall-
erí hafa einnig verið stofnuð og ekki
má gleyma kaffíhúsinu hennar Karól-
ínu, þar sem pláss er fyrir alla, hvort
sem áhuginn er á listinni hveiju sinni
eða ekki.
Mig langar til að fara nokkrum
orðum um Listasafnið á Akureyri
sem opnað var í Gilinu 28. ágúst
1993. I mars 1994 voru samþykktar
í bæjarstjóm Akureyrar reglur fyrir
safnráð Listasafns Akureyrar, og er
þar m.a. kveðið á um hvert verksvið
safnráðsins skuli vera. Á hátíðar-
stundum komum við í Safnið, t.d.
þegar opnaðar eru sýningar eða tök-
um á móti gestum, sem við viljum
sýna það besta.
Eftir þessi rúmlega þrjú ár, sem
safnið hefur verið til, fínnst mér vera
kominn tími á að líta yfír farinn veg
og endurskoða og læra af því sem
gert hefur verið og bæta og breyta
því sem okkur fínnst að mætti ef tii
vill vera öðruvísi.
Það er nefnilega ekki nóg að hafa
áhugasaman forstöðumann í starfi,
ef við reynum ekki að hlúa að starf-
seminni. Við verðum að sýna, að við
viljum hafa Listasafn, sem eftir er
tekið. Reykjavík og ná-
grenni fengu að njóta
þess að leggja áherslu
á íslenska myndlist áður
en Listasafnið á Akur-
eyri var opnað. Bæjar-
yfírvöld á Ákureyri hafa
mótað stefnuna. Við
þurfum að tryggja, að
þeirri stefnu sé fram
haldið og hún sé í stöð-
ugri skoðun, því á sviði
lista verða miklar breyt-
ingar. Má þar til dæmis
nefna notkun margm-
iðlunar, sem hefur rutt
sér mjög til rúms á sviði
listarinnar. Nauðsyn-
legt er að auka þjónustu
safnsins við hinn al-
menna bæjarbúa, og ekki hvað síst
við skólana, miðla fræðslu um mynd-
list og veita skólafólki innsýn inn í
þá veröld sem í myndlistinni býr.
Á fyrsta eða öðru ári safnsins var
nemendum boðið að koma með kenn-
ara sínum í heimsókn og veit ég að
Stund milli anna á lista-
safni, segir Valgerður
Hrólfsdóttir, getur
orðið sálinni holl hvíld.
margir nutu þeirra heimsókna. Síðan
var unnið út frá heimsókninni í
myndmenntatímum. Auðvitað mætti
samþætta námsgreinar skólanna á
ýmsa lund. Til dæmis gæti íslensku-
kennarinn og myndmenntakennarinn
unnið gott starf með nemendum sín-
um á þann hátt. Ég tók fram, að
slíkar heimsóknir hefðu verið, en þar
sem ekki hefur enn verið ráðinn safn-
kennari við Listasafnið, hefur þessi
þáttur starfseminnar orðið útundan.
Valgerður
Hrólfsdóttir
Til þess að efla slíka starfsemi
þyrfti að ráða safnkennara, sem hefði
það að aðalstarfí að taka á móti slík-
um hópum og kynna þeim listasög-
una og glæða þannig áhuga þeirra.
Ekki veit ég hve margir Akur-
eyringar hafa komið á Listasafnið
okkar, en þeir sem ekki hafa litið
þar inn, ættu að líta við og sjá hvern-
ig Listasafnið þeirra hefur búið um
sig. Þangað er hægt að koma án
þess að gera boð á undan sér. Ég
hef hitt fólk, sem nýtur þess að koma
við og ganga einn hring í sýningar-
sölunum á leið heim úr vinnunni.
Ekki slæm hugmynd, eða hvað?
Á þeim tímum sem við nú lifum
á, er annríki mikið og fólk kvartar
gjarnan yfír tímaleysi. Samt reynum
við að rækta líkamann með íþrótta-
tímum, því okkur er sagt að það sé
hollt fyrir líkama og sál og enginn
efast um það. Stund milli anna á
listasafni getur einnig orðið sálinni
holl hvíld og því ágætis hugmynd
fyrir alla fjölskylduna að finna þá
andlegu hvíld sem í þvi felst að skoða
list. Vonandi getum við einnig komið
upp sýningum á myndböndum þar
sem listamenn og verk þeirra væru
kynnt, þar sem við gætum sest og
notið á þann hátt.
Með þessum skrifum langaði mig
aðeins til að vekja okkur bæjarbúa
til umhugsunar um þá starfsemi sem
í Gilinu er og minna á Listasafn Akur-
eyrar. Vonandi vakna einhveijar
spumingar hjá þér, lesandi góður, og
helst áhugi á því sem fram fer í Gil-
inu. Ég veit, að þú munt fá góðar
móttökur ef þú kemur í heimsókn.
Þú getur líka komið án þess að þurfa
að eiga samskipti við neinn, aðeins
að koma og njóta þess sem sýnt er
að flutt. Sýnum metnað okkar sem
búum í skóla- og menningarbænum
Akureyri, leggjum rækt við listgrein-
amar. Á þann hátt auðgum við líf
okkar. Við sem komum gjaman á
Listasafnið verðum að halda vöku
okkar og láta í ljós jákvæða gagnrýni
á því sem betur mætti fara. Nemum
staðar og njótum þess sem fyrir augun
ber, gott, andlegt fóður fyrir sálina.
Höfundur er bæjarfulltrúi á
Akureyri.
Ljósmyndasýning Morgunblaðsins
NÁTTÚRUHAMFARIRNAR Á VATNAJÖKLI
OG SKEIÐARÁRSANDI hlaup á Skeiðarársarídi í byrjun
nóvember eru meðal mestu náttúru-
hamfara á íslandi á þessari öld. Á svipstundu stórskemmdust samgöngumannvirki á
Skeiðarársandi og hringvegurinn rofnaði sem olli einstaklingum og fyrirtækjum á sunnan-
og austanverðu landinu miklum óþægindum.
Ljósmyndarar Morgunblaðsins fylgdust vel með náttúruhamförunum og í anddyri
Morgunblaðshússins, Kringlunni 1, hefúr verið komið upp yfirlitssýningu á völdum myndum
sem teknar voru þar.
Sýningin stendur til föstudagsins 6. desember og er opin á afgreiðslutíma blaðsins kl. 8-18
alla virka daga og laugardaga kl. 8-12.
Allar myndirnar á sýningunni eru til sölu.
MYNDASAFN
Þróunarsjóður
sjávarútvegsins
borgar!
LOKSINS virðist sú
ákvörðun í höfn að nýtt
og fullkomið hafrann-
sóknaskip verði keypt
eða smíðað. Það var
löngu tímabært því frá-
leitt er að þjóð sem lifir
í svo ríkum mæli á auð-
lindum sjávar bjóði ekki
sínum vísindamönnum
upp á sómasamlega
aðstöðu til rannsókna á
þessu mikilvæga sviði.
Þegar meint aðhald er
í ríkisumsvifum eru
slíkar fjárfestingar ekki
einfalt mál. Lausnin að
þessu sinni var þó ein-
föld. Þróunarsjóður
sjávarútvegsins borgar. Samkvæmt
stjórnarfrumvarpi sem nú er til
umfjöllunar verður hlutverki sjóðs-
ins gjörbreytt.
Grisj unar hlutverki
lokið
Hlutverk sjóðsins upphaflega var
að stuðla að minnkun fiskiskipaflot-
ans og fækkun fiskvinnsluhúsa og
skapa þannig svigrúm fyrir bætta
nýtingu framleiðslutækja og betri
rekstur sjávarútvegsfyrirtækja. Frá
því lögin tóku gildi vorið 1994 hafa
tvívegis verið gerðar breytingar á
þeim til að skerpa frekar þetta grisj-
unarhlutverk. Árangur hefur orðið
nokkur sem lesa má af fækkun
krókabáta og útgefinna veiðileyfa.
Vegna þessara úreldinga hafa þeg-
ar verið greiddir tæpir 3 milljarðar
króna. Einungis 7 fiskvinnsluhús
þó hafa verið úrelt og vegna þeirra
hefur sjóðurinn greitt netto 19 millj-
ónir króna. Grisjunarhlutverki hans
lýkur um næstu áramót, því næsta
rúma áratuginn verður meginverk-
efni sjóðsins að fjármagana kaupin
á hafrannsóknaskipinu auk þess að
standa við þegar gerðar skuldbind-
ingar.
Einföldun gjaldsins
skynsamleg
Við breytt hlutverk sjóðsins
hljóta menn að setja spurningar-
merki við óbreytta innheimtu
gjalda. Eigendur fiskiskipa og fisk-
vinnsluhúsa munu, ef frumvarpið
verður óbreytt að lögum, greiða til
sjóðsins til ársloka 2005. Utgerðin
hefur skv. gildandi lögum greitt
gjald af úthlutuðu aflamarki, eða 1
kr. fyrir hvert þorskígildiskíló, frá
upphafi yfirstandandi fiskveiðiárs.
Berist greiðslur vegna þess ekki
skilvíslega fellur veiðileyfi skips nið-
ur. Þá hafa eigendur fiskiskipa frá
upphafi greitt gjald sem miðast við
stærð skipanna og eigendur fisk-
vinnsluhúsa hafa greitt hlutfall af
fasteignamatsverði húss og lóðar.
Frá næstu áramótum til ársloka
2005 munu þessar greiðslur sam-
tals nema um 6,5 milljörðum. Þar
af koma frá fiskvinnslu rúmar 700
milljónir og útgerð m.v. stærð skipa
um 750 milljónir. Stærsti hluti upp-
hæðarinnar, eða tæpir 5 milljarðar
koma vegna greiðslu 1 kr. á hvert
úthlutað þorskígildi-
skíló. Ef gjaldið yrði
einfaldað, fiskvinnsl-
unni sleppt og viðmið-
inu við stærð skipanna
en einungis innheimt
gjald miðað við úthlut-
að aflamark, sem er
skynsamlegt, þyrfti
einungis að hækka
þorskígildiskílóið um
27 aura til að ná inn
sömu upphæð, eða um
6,5 milljörðum.
Útgerð með
hagnað -
vinnsla með tap
Fiskvinnslan í land-
inu á í vanda. Sá vandi er að hluta
kerfislægur og verður að því leyti
viðvarandi þar til breyting verður
gerð. Sú mikla handstýring sem
vinnslan býr við varðandi hráefni-
söflun og afsetningu afurða rímar
afar illa við markaðsvæddar veiðar.
Forsvarsmenn segja hana ekki rísa
undir kröfum um betri kjör; hún
berst í bökkum. Samt leggur ríkis-
stjórnin nú upp með það að þegar
upp verði staðið verði fiskvinnslan
alls búin að greiða um 800 milljón-
Þegar upp verður stað-
ið, segir Svanfríður
Jónasdóttir, verður
fiskvinnslan alls búin að
greiða um 800 milljónir
króna fyrir 19 milljóna
króna úreldingarstyrk.
ir króna fyrir 19 milljóna króna
úreldingarstyrk. Þannig styrki fisk-
vinnslan útgerðina. Utgerð sem
skilar svo miklum hagnaði að út-
vegsmenn gátu ekki dulið fögnuð
sinn á nýafstöðnum aðalfundi. Er
þetta nú hægt? Væri ekki réttlátara
að breyta gjaldinu í þá veru sem
hér er bent á, þannig að útgerðin
greiði ein og þá bara af úthlutuðu
aflamarki?
Tilgangur
gjaldtöku
í umræðum um veiðileyfagjald á
Alþingi hafa andstæðingar gjalds-
ins gjarnan gripið til þess að vor-
kenna fiskvinnslunni og notað það
sem rök í málinu. Við jafnaðarmenn
höfum þó margítrekað að ekki
standi til að taka veiðileyfagjald af
fiskvinnslu enda fái hún ekki úthlut-
að veiðileyfum heldur þurfi að
kaupa allt sitt hráefni eins og ann-
ar iðnaður í landinu. Á sínum tíma
var það sagður eini tilgangur þess
að láta fiskvinnsluna greiða þróun-
arsjóðsgjald að með því öðlaðist hún
rétt til úreldingarstyrkja. Núna,
þegar breyta á hlutverki þróunar-
sjóðs en halda skal gjaldtöku af
fiskvinnslunni áfram, heyrist hins
vegar ekkert, alls ekkert, í þessum
meintu vinum fískvinnslunnar.
Okkur jafnaðarmönnum finnst
sjálfsagt að atvinnulífið greiði fyrir
þá þjónustu sem hið opinbera veitir
því. Við höfum sagt að eðlilegt sé
að veiðileyfagjald fari til að byija
með til þess að greiða slíka þjón-
ustu við útgerðina. Hér er ríkis-
stjórnin að feta sig inn á slíkar
brautir og það er vel. Það er hins
vegar býsna langt seilst þegar farið
er að sækja fé til þess í tóman og
götóttan vasa fiskvinnslunnar. Hún
á nóg með sig.
Höfundur er alþingismadur í
þingflokki jafnaöarmanna.
Svanfríður
Jónasdóttir