Morgunblaðið - 27.11.1996, Qupperneq 44
44 MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ófboí e^jvtvn
fMrir io $tk. bdkkd
Hagkaup býður í dag,
eða meðan
birgðir endast,
162.000 egg
á einstöku
jólatilboðsverði:
49 kr. 10 stk. í bakka.
Til þess að
sem flestir geti
nýtt sér tilboðið
takmarkast það við
2 bakka á mann.
Matur og matgerð
Laufabrauð
Það liggur við að ég sakni hagamúsarinnar
núna, segir Kristín Gestsdóttir, sem hefur
ekki séð eina einustu mús á þessum vetri.
Um síðustu helgi þegar við
fullorðna fólkið vorum að
búa til laufabrauðsdeig og fínna
til tól og tæki til laufabrauðs-
gerðar, fóru barnabörnin í skóg-
arferð til að leita að músasporum
í snjónum. Þegar inn kom fórum
við að skoða hin ýmsu mynstur
sem skera má í laufabauð. Mesta
athygli vakti sú munsturgerð
sem heitir „músaslóð" og var það
mynstur útfært á ýmsa vegu.
Laufabrauó
meó kúmeni
1 kg hveiti
1 Vá dl sykur
1 tsk. lyftiduft
14 tsk. hjqrtarsalt
2 tsk. kúmen
7 '/i dl mjólk
150 g smjörlíki
1. Setjið mjólk í pott ásamt kúm-
eni og sjóðið í 2-3 mínútur. Bræðið
smjörlíki og setjið saman við.
2. Setjið hveiti, sykur, lyftiduft
og hjartarsalt í skál. Bætið mjólk-
ur/smjörlíkisblöndunni út í og hnoð-
ið deig þar til það er gljáandi og
sprungulaust. Haldið deiginu heitu
meðan flatt er út. Vefja má álpapp-
ír utan um það og setja handklæði
yfir. Gott getur verið að búa bara
tii helming í einu.
3. Fletjið örþunnt út, skerið síðan
undan diski og skerið laufaskurð í
deigið.
4. Hitið feitina, takið ögn af deig-
inu og steikið til að aðgæta hitann.
Steikið síðan á báðum hliðum.
Þrýstið hlemmi varlega ofan á
laufabrauðskökuna um leið og hún
er tekin úr pottinum. Leggið á eld-
húspappír.
oÚtihurðir
*gluggar
Smíðutn útihurðir,
bílskúrshurðir,
svalahurðir, glugga,
fógogfleira. |
Vélavinnum efni. Í
BjLDSHOFÐA 18 • 112 REYKJAVIK
SIMI 567 8100 • FAX 567 9080