Morgunblaðið - 27.11.1996, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 1996 47
Á MYNDINNI eru f.v.: Geirlaug Þorvaldsdóttir, formaður, Guð-
björg Vilhjálmsdóttir, styrkþegi, Unnur María, systir Hallfríðar,
og Guðrún Magnúsdóttir, móðir Ingibjargar, en þær tóku við
styrknum fyrir þeirra hönd.
Styrkveitingar Félags ís-
lenskra háskólakvenna
FÉLAG íslenskra háskólakvenna
hefur veitt þremur konum í dokt-
orsnámi styrk, hvern að upphæð
100 þúsund krónur en alls bárust
félaginu 40 umsóknir.
Þær eru: Guðbjörg Vilhjálms-
dóttir, kennslustjóri i námsráð-
gjöf við Háskóla íslands. Hún er
að ljúka doktorsnámi í félags-
fræði menntunar og starfs í
Hertfordshire á Englandi. Rann-
sóknin hefur bæði fræðilegt og
hagnýtt gildi. Fræðilegt mark-
mið er t.d. að kanna félagsleg
áhrif á hugmyndir 15-16 ára
unglinga um störf, námsval og
starfsval. Innsýn í hugarheim
unglinga gerir ýmiskonar ný-
breytni í fræðslu og ráðgjöf um
nám og störf mögulega.
Hallfríður Þórarinsdóttir er
að ljúka skrifum á doktorsrit-
gerð við mannfræðideildina í
New School for Social Research
í New York. Markmið og vísinda-
legt gildi verkefnis er annars
vegar orðræðan um íslenska
tungu sem menningararf sem á
sér langa sögu og hins vegar
þjóðarumræðan um aðild íslands
að evrópska efnahagssvæð-
inu/Evrópubandalaginu sem
snýst um hagsmuni þjóðarinnar
og er öllu nýrri.
Ingibjörg Jónsdóttir hefur lok-
ið prófi í heimskautafræðum.
Hún er nú í doktorsnámi í Cam-
bridge á Englandi. Doktorsverk-
efni hennar er: Hafís við ísland
árin 1850-1950. Ætlunin er að
bera hafíssöguna saman við veð-
urfarssögu þá sem fæst með ís-
kjörnum úr Grænlandsjökli og
setkjörnum úr sjó og stöðuvötn-
um á íslandi.
I sljórn Félags íslenskra há-
skólakvenna eru: Geirlaug Þor-
valdsdóttir, formaður, Margrét
Sigurðardóttir, varaformaður,
Brynja Runólfsdóttir, gjaldkeri,
Ásdís Guðmundsdóttir, ritari,
Áslaug Ottesen, ritari við útlönd,
Kristín Njarðvík og Ragnheiður
Ágústsdóttir, meðstjórnendur.
Ný hársnyrtistofa
í Hafnarfirði
NÝ hársnyrtistofa, G-Tveir, hefur
verið opnuð á Lækjargötu 34 í
Hafnarfirði. Það eru hárgreiðslu-
meistararnir Guðfinna Krisljáns-
dóttir og Guðlaug Steindórsdóttir
sem eiga og reka stofuna.
Boðið er upp á allt sem góðri
hárgreiðslustofu sæmir, en Guð-
finnu og Guðlaugu til aðstoðar
eru hárgreiðslunemarnir íris og
Hjördís. Á myndinni sjást þær
ásamt meisturum sínum.
Erindi um erfi-
ljóð og harmljóð
FÉLAG íslenskra fræða boðar til
fundar með Þórunni Sigurðardóttur
í Skólabæ, Suðurgötu 26, í kvöld,
miðvikudagskvöldið 27. nóvember,
kl. 20.30. Þórunn fjallar í erindi
sínu um erfiljóð og harmljóð á sautj-
ándu öld.
I fréttatilkynningu segir: „Bók-
menntagreinin erfiljóð var ein vin-
sælasta tegund tækifæriskvæða á
17. öld en hefur ekki hlotið mikið
rúm í bókmenntasögunni. Kvæðin
hafa annars vegar verið notuð af
síðari tíma mönnum sem heimildir
um menn og samtímaatburði og
hins vegar verið gagnrýnd fyrir
ópersónulegar mannlýsingar og
skort á raunsæi. í fyrirlestrinum
fjallar Þórunn um þessi kvæði með
hliðsjón af viðhorfum til lífs og
dauða sem byggja á hinum lúterska
rétttrúnaði 17. aldar og hlutverk
kvæðagreinarinnar túlkað í sam-
ræmi við þau. Einnig verða erfiljóð
tímabilsins skilgreind sem tvær
bókmenntagreinar, erfiljóð og
harmljóð, er höfðu mismunandi
hlutverki að gegna í samtímanum.“
Eftir framsögu Þórunnar verða
almennar umræður. Fundurinn er
öllum opinn.
FRÉTTIR
Uppsveifla hjá fjöl-
skylduvænna S VFR
GÓÐ uppsveifla var í starfsemi
Stangaveiðifélags Reykjavíkur á
starfsárinu 1995-1996 að sögn
Bergs Steingrímssonar fram-
kvæmdastjóra félagsins sem
kynnti ársskýrslu sína á aðalfundi
SVFR um síðustu helgi. Á fund-
inum var að auki samþykkt mjög
fjölskylduvæn tillaga og ein breyt-
ing varð á stjórn SVFR.
„Rekstur félagsins gekk vonum
framar,“ sagði Bergur, „Veltan
jókst um 6,8% og sala veiðileyfa
um rétt tæp 9%. Hagnaður fyrir
fjármunatekjur og fjármagnsgjöld
rúmlega þrefaldaðist, vaxtatekjur
tæplega sexfölduðust, vaxtagjöld
minnkuðu um rúmlega 85% og
hagnaður félagsins sex og hálf-
faldaðist. Hvað getum við verið
annað en ánægðir." Einnig sagði
Bergur: „í heildina seldust 88%
af framboðnum stöngum í verð-
mætum talið á móti 86% í fyrra.“
Best var salan á aðalsvæði Hítar-
ár á Mýrum, 95% og Norðurá
93%. Markverður var samdráttur
í sölu veiðileyfa í Elliðaánum þar
sem 85% veiðileyfa seldist.
Kenndu menn um kýlaveikifar-
aldri 1995. Hann lét þó ekkert á
sér kræla síðasta sumar.
Friðrik Þ. Stefánsson formaður
SVF’R einfaldaði dæmið um sölu
veiðileyfa er hann sagði: „SVFR
hafði 6.131 stangardag til ráð-
stöfunnar á árinu á móti 5.925
árið 1995. Af þessum stangardög-
um seldust um 81% á móti 79%
árið áður. Sem hlutfall af verð-
skrá er samanburðurinn hagstæð-
ari og seldust þar 88% af upp-
reiknaðri verðskrá á móti 86%
árið áður.“ Friðrik bætti við:
„Rekstrartekjur félagsins námu
rúmlega 86 milljónum á móti tæp-
lega 81 milljón 1995. Þetta þýðir
tekjuhækkun upp á um 5,5 millj-
ónir.“
AÐALSVÆÐI Hitarár var best selda veiðisvæði SVFR. Á
myndinni eru veiðimenn að renna í tveimur bestu veiðistöðun-
um, Kverkinni t.v. og Breiðinni t.h., en í baksýn er frægt
veiðihús Hítarár, Lundur.
Fjölskylduvæn tillaga
Stjómin lagði fram tillögu til við-
bótar lögum um inngöngu nýrra
félaga. Var hún samþykkt. Sem
fyrr kostar 8.500 krónur að ganga
í félagið, en einstaklingar undir 16
ára borga 5.000 krónur. 2. liður
þessarar reglugerðar er á þá lund
að félagsgjöld skuli vera 5.000
krónur á ári fyrir fullorðna, en
2.500 krónur fyrir hina yngri, auk
þess sem félagar 67 ára og eldri
greiði aðeins 1.000 krónur á ári.
Nýlundan sem samþykkt var
hljómar þannig: Séu fleiri en einn
aðili í sömu fjölskyldu í félaginu
(með sama aðsetur) skal gefinn
sérstakur fjölskylduafsláttur, þ.e.
fyrsti aðili greiði í félagsgjöld kr.
5.000, maki kr. 3.500 og börn 16
ára og yngri kr. 1.500. Sé um
fjölskylduaðild að ræða, er ein-
ungis eitt eintak Veiðimanns og
Veiðifrétta sent á heimilið, en að
öðru leyti skulu réttindi og skyld-
ur slíkra félaga þær sömu og
annarra félaga. Félagar sæki
sjálfir um fjölskylduaðild á þar til
gerðu eyðublaði sem fæst á skrif-
stofu SVFR. „Við höfum verið í
markvissu starfi síðustu ár að
gera starfið fjöiskylduvænna,
m.a. með markvissu barna- og
unglingastarfi. Þetta er enn eitt
skrefið á þeirri braut,“ sagði
Bergur Steingrímsson.
Breyting á stjórn
Gengið var til kosninga um
sæti þriggja stjórnarmanna,
þeirra Kristjáns Guðjónssonar,
Þórólfs Halldórssonar og Ólafs
H. Ólafssonar varaformanns.
Gáfu þeir allir kost á sér til endur-
kjörs. Þá bauð sig fram Ólafur
yigfússon framkvæmdastjóri
Útilífs. Stjórnarkjörið reyndist
æsispennandi. Kristján og Þórólf-
ur fengu örugga kosningu, en
nýliðinn náði að fella varafor-
manninn á einu atkvæði.
Málþing um
ljósmyndun
MÁLÞING um Ijósmyndun sem list-
grein verður haldið í kvöld, miðviku-
dag kl. 20,30 í Gerðarsafni.
Það er Ljósmyndarafélag íslands
sem stendur að málþinginu. Þar
verður fjallað um ljósmyndun sem
listgrein, um ljósmyndasöfn og op-
inbera stefnu varðandi slík söfn.
Tenging norð-
ur- og suður-
hluta Vest-
fjarða verði
könnuð
NOKKRIR áhugamenn um sam-
göngumál munu á næstunni standa
fyrir undirskriftasöfnun meðal íbúa
Vestfjarðakjördæmis.
Þar verður skorað á þingmenn
kjördæmisins að beita sér fyrir því
við endurskoðun vegaáætlunar á
Alþingi í vetur, að veitt verði fé til
að rannsaka þá valkosti sem fyrir
hendi eru, til að tengja saman norð-
ur og suðurhluta Vestfjarða, með
heilsársvegi úr Dýrafirði í Vatns-
ljörð.
Þeir sem að undirskriftasöfnun-
inni standa, telja það eitt allra
mesta hagsmunamál byggðanna á
sunnan og norðanverðum Vest-
ijörðum að tengja þær betur saman
með varanlegum vegi, segir í frétta-
tilkynningu. Þrátt fyrir að hér sé
um langtímaverkefni að ræða, sem
ekki verður hrist fram úr erminni,
telja þeir löngu tímabært að málið
verði rannsakað á faglegum grunni,
svo ráðamenn og almenningur geti
gert sér grein fyrir um hvað málið
snýst.
Reiknað er með að undirskrifta-
söfnuninni ljúki fyrir jól.
Barnaklám rætt
í málstofu um
mannréttindi
MÁLSTOFA um mannréttindi verð-
ur haldin fimmtudaginn 28. nóvem-
ber kl. 20.30 í húsi Félags bóka-
gerðarmanna, Hverfisgötu 21.
Yfirskrift málstofunnar er barna-
klám. Þorsteinn A. Jónsson, skrif-
stofustjóri í dómsmálaráðuneytinu,
María Erla Marelsdóttir, lögfræð-
ingur Mannréttindaskrifstofu ís-
lands og Kirstín Jónasdóttir, fram-
kvæmdastjóri Barnaheilla hafa
framgöngu um frumvarp til laga
um breytingu á almennum hegning-
arlögum (barnaklám) sem lagt var
fyrir Alþingi í haust og ijalla jafn-
framt um umræður á alþjóðavett-
vangi, segir í fréttatilkynningu.
Málstofa um mannréttindi mun
í vetur boða til funda um mál sem
hafa verið ofarlega á baugi í mann-
réttindaumræðunni hér heima og
erlendis. Þeim sem hafa áhuga á
að kynna sér viðfangsefni málstof-
unnar er bent á að hafa samband
við Mannréttindaskrifstofu íslands.
■ GEFIÐ hefur verið út í litlu
upplagi stórt kort með mynd af
Betlehemsstjörnunni, einum af sjö
steindum gluggum í Þykkvabæjar-
kirkju sem Bendikt Gunnarsson,
listmálari, hefur gert en Oditmann-
bræður í Þýskalandi útfært. Aftan
á kortinu er ljóð um kirkjuna úr
bókinni Fegursta kirkjan á íslandi
eftir Jón Ögmund Þormóðsson. Það
er litgreint í Offsetþjónustunni ehf.,
en prentað í Grafik hf. Kortið, sem
má nota sem jólakort eða við ýmis
tækifæri, fæst hjá formanni sóknar-
nefndar kirkjunnar, Ágústi Gísla-
syni í Nýjabæ eða sóknarprestinum,
Auði Eir Vilhjálmsdóttur.
■ Á KRINGL UKRÁNNI halda
Tómas R. Einarsson, kontrabassa-
leikari, Björn Thoroddsen, gítar-
leikari, og Einar Valur Scheving,
trommuleikari, tónleika miðviku-
dagskvöldið 27. nóvember kl. 22. Á
efnisskránni eru þekkt djasslög eft-
ir höfunda eins og C. Parker, S.
Rollins, T. Monk o.fl.