Morgunblaðið - 27.11.1996, Page 55

Morgunblaðið - 27.11.1996, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 1996 55 http://www.isiandia. is/sambioin GULLGRAFARARNIR AÐDAANDINN Christina Ricci Anna Chlumskv Nú er tækifærið! Sýnd í A-saJ á öllum sýningum næstu 9 daga! Verður Djöflaeyjan vinsælasta mynd ársins? DAUÐASOK Far- eða Gullkortshafar VISA og Námu- og Gengismeðlimir Landsbanka fá 25% AFSLÁTT. Gildir fyrir tvo. KÖRFUBOLTAHETJAN is Daniel Stern akd Dan Aykioyd Sýnd kl. 5,7,9 og 11.15 íTHXDIGrTAL B.i.12. SAMWía Stórskemmtileg ævintýramynd um tvær stúlkur á ferðalagi í leit að horfnum fjársjóði. í aðalhlutverkum eru þær Christina Ricci (Adams Family, Casper) og Anna Chlumsky ( My Girl). SANDRA BULLOCK SAMUEL L, JACKSON MATTHEW MCCONAUCHEV KEVIN SPACY „Myndin er byggð á sterkri sögu sem gott handrit hefur verið gert eftir og hún er mjög vel leikin." ★★★ A.l. Mbl „Mynd sem vekur umtaj." ATTMF Splunkuný stórmynd frá leikstjóranum Tony Scott (Crimson Tide, True Romance, Top Gun). Róbert DeNiro fer hreinlega á kostum í magnaðri túlkun sinni á geðveikum aðdáanda sem tekur ástfóstri við skærustu stjörnuna í boltanum. Spennan er nánast óbærileg og hárin rísa á áhorfendum á þessari sannkölluðu þrumu!!! Aðalhlutverk: Róbert DeNiro, Wesley Snipes, Ellen Barkin, Benecio Del Toro og John Leguizamo. Axel Axelsson FM 95,7 Ómar Friðleifsson X-ið Endumýjun íslenskrar dægurtónlistar Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir PÁLL Oskar í útgáfuteiti sínu í Tunglinu. TÓNLIST Gcisladiskur „SEIF“ „Seif“, breiðskífa Páis Óskars Hjálmtýssonar. Lög eftir Valgeir Sigurðsson, Jóhann Jóhannsson, Pétur Hallgrímsson, Trausta Haraldsson, Bjarka Jónsson, Birki Bjömsson, Rósu Ingólfsdóttur, Burt Bacharach og Normu Tanega. Textar allir eftir Pál Óskar utan textinn við lag Burts Bacharachs og lag Rósu Ingólfsdóttur, sem er íslensk þjóðvísa. Upptökustjóm, forritun og hljóðfæraleikur var í höndum lagahöfunda og útsetningar em þeirra, nema útsetningin við Ræ ég við róður minn sem er eftir Jón Sigurðsson og lag Burts Bacharachs, sem er eftir Pál Óskar og Valgeir Sigurðsson. Upptökur, hljóðblöndun og stafræn yfitfærslavoru í höndum Ken Thomas. Páll Óskar gefur sjálfur út, Japis dreifir, 51,37 min. SÍÐASTA breiðskífa Páls Óskars Hjálmtýssonar var einskonar safn- plata þar sem hann flutti með sínu nefi uppáhaldslög úr ýmsum áttum. Ymsir urðu og til að gagnrýna Pál fyrir að feta I fótspor annarra og segja má að hann hafi gefið þeim langt nef með „Seif“, því á plötunni fær hann til liðs við sig nýtt lands- lið íslenskra lagasmiða og leggur grunn að nýrri íslenskri dægurtón- list. Erlendir straumar skila sér mis- jafnlega hratt inn í íslenskt tónlist- arlíf; rokkið kom seint og um síðir, pönkið var komið að fótum fram þegar pönkbylgja hófst hér á landi, og nú er röðin komin að danstónlist- inni sem farið hefur sem logi um akur víða í Vestur-Evróðu síðustu fimm ár eða svo. Síðustu misseri hafa ýmsir verið að gera sig til við dansstrauma ýmiss konar hér á landi, fækkað hljómum og fléttað inn í tónmál sitt hrynsyrpum. Ekki hefur þó verið gengið eins langt og Páll Óskar gerir á þessari plötu sinni, þar sem hann stígur fram í dansljós- ið sem alsköpuð dansstjarna sem hefur á valdi sínu alla strauma frá jungle í tripphopp, en segja má að merkimiðinn„dansplata“ sé eilítið villandi, því „Seif“ er fyrst og fremst bráðvel heppnuð poppplata. Miklu ræður um hve vel hefur tekist til að Páll Óskar hefur fengið til liðs við sig marga fremstu iaga- og hugmyndasmiði af yngri kynslóð- inni og tvo gamla refi að auki. Fremsta meðal jafningja verður að nefna Jóhann Jóhannsson sem kem- ur við sögu í fjórum lögum, eitt lag semja þeir Jóhann og Páll saman. Tvö semur Jóhann í samvinnu við Pál og Pétur Hallgrímsson og eitt með Páli og Siguijóni Kjartanssyni, gamalt lag sem endurgert er á plöt- unni. Framlag Jóhanns er honum mjög til sóma og reyndar er lagið Hvítt drasl framúrskarandi, tví- mælalaust besta lag plötunnar. Val- geir Sigurðsson kemur líka mjög við sögu, á tvö lög með Páli og tekur þátt í endurútsetningu á lagi Burt Bacharach In the Land of Make Believe. Þeir félagar Bjarki Jónsson og Birkir Björnsson hafa vakið at- hygli fyrir smekkvísi og settu saman með Páli afbragðs houselag. Einnig er vert að geta Trausta Haraldsson- ar sem á eitt lag, svellandi evrópu- diskó, en önnur lög eiga Rósa Ing- ólfsdóttir og Norma Tarrega. Eins og sjá má af þessari upptalningu eru lagahöfundar ólíkir en Páll Óskar hnýtir alla enda saman og í stað þess að verða ósamstæð verður plat- an fjölbreytt, líkt og safn bestu laga ólíkra listamanna. Sá sem hlustar á og sífellt nýtt uppáhaldslag eftir þvi sem hann hlustar oftar og „Seif“ lifir lengur fyrir vikið en margt það sem gefið er út fyrir þessi jól. Textar Páls Óskar eru jafnan per- sónulegir og snúast um ástina í óteij- andi gervum hennar. í yrkingum hans togast á löngunin til þess að vera sjálfstæður og sterkur og að gefast einhverjum á vald, að leggja hjarta sitt í hendur annars. Hvergi kemur þetta eins vel fram og í upp- hafslaginu, fyrsta almennilega ís- lenska jungle-laginu, en í lok plöt- unnar er Páll Öskar öllu Ijúfari í viðmóti, þó treginn sé ekki langt undan í frábærri útsetningu Páls Óskars og Valgeirs Sigurðssonar á In the Land of Make Believe. Það lag er er reyndar skólabókardæmi um það hvernig taka má lög eftir aðra og sýna á þeim nýjar hliðar, draga fram þætti sem áður voru huldir. Vel er til fundið að hafa á undan lokalagi plötunnar einskonar tilvitn- un í lagið Horfðu aftur, rétt eins og til að undirstrika að eiginlegri plötu sé lokið og framundan aukalag. Það aukalag syngur Kristjana Stefáns- dóttir mög vel með Páli. Páll Oskar hefur sérstakan söngstíl og fer ekki vel mikill hama- gangur og læti. Skemmtilegt er hve flosmjúk rödd hans fellur að hama- gangi og taktfylliríi, nefni sem dæmi upphafslagið Tókst. Undirleikur all- ur er framúrskarandi góður og vel til fundið að fá höfunda til að stýra upptökum á sínum hluta. Eina lagið sem ekki hefur heppnast fullkomlega er Ég er bundinn fastur við þig, kraftmikið evrópudiskó, það vantar meiri botn í lagið, meiri þunga í taktinn. Með „Seif“ hefur Páll Óskar vænt- anlega þaggað niður í öllum kverú- löntum fyrir fullt og fast; hann sann- ar á þessari afbragðsplötu að hann fyllir flokk þeirra sem vinna að end- urnýjun Islenskrar dægurtónlistar. „Seif“ er einfaldlega ein helsta út- gáfa ársins og ótrúlegt annað en að hún skipi sess með bestu plötum þegar upp er staðið. Árni Matthíasson Morgunblaðið/Jón Svavarsson „IKEA liðið“ var einnig mætt til leiks. Hér eru þær Elín Magnús- dóttir, Lilja Hafsteinsdóttir og Bertha Biering. Hagkaups- fólk skemmtir sér ÞAÐ VAR mikið um dýrðir hjá starfsmönnum Hagkaups þegar árshátíð fyrirtækisins fór fram um síðustu helgi á Hótel íslandi. Skemmtiatriði voru af ýmsum toga og þar á meðal var Bítlasýn- ing hússins framreidd og hinn kunni töframaður Skari Skrípó lék listir sinar. Að lokum dansaði LAUFEY Bjarnadóttir, Þórdís Ingolfsdóttir, Bylgja Sverrisdóttir fótafimt Hagkaupsfólk inn í nótt- og Inga Steinarsdóttir frá Njarðvík. ina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.