Morgunblaðið - 27.11.1996, Side 60

Morgunblaðið - 27.11.1996, Side 60
•UYIINDAI HÁTÆKNI TIL FRAMFARA gi Tæknival SKEIFUNNI 17 SlMI 550-4000 ■ FAX 550-4001 MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÖLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 1996 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Morgunblaðið/Ámi Sæberg NOKKRUM mínútum eftir að rafmagn fór af stórum hluta höfuðborgarsvæðisins voru starfsmenn Landsvirkjunar farnir að huga að spennistöðinni á Geithálsi. Hluti eldingavara reyndist laus af undirstöðum og hafði varnarbúnaðurinn rofið strauminn. Eldingavari rauf straum frá spennistöðinni á Geithálsi í gær Myrkvað í 20-60 mínútur ELDINGAVARI við spennistöð á Geithálsi rauf straum frá henni kl.17.40 í gær og varð rafmagns- laust í nánast allri Reykjavík, Kópa- vogi og Garðabæ. Rafmagnslaust var víðast hvar í 15-20 mínútur, en dæmi eru þó um hverfi, þar sem rafmagnslaust var í um klukku- stund. í Seláshverfi komst rafmagn til dæmis ekki á fyrr en skömmu fyrir kl. 19. Starfsmenn Landsvirkj- unar unnu í gærkvöldi að því að fmna orsök rafmagnsleysisins, en stöðin á Geithálsi var tekin úr notk- un á meðan og rafmagn leitt til höfuðborgarsvæðisins með öðrum hætti. „Við vitum ekki hvort eldingu laust niður í eldingavarann, en hann brást altént við eins og það hafi gerst. Við teljum hugsanlegt að hann hafi bilað eða raki komist að honum,“ sagði Þorsteinn Hilmarsson, upplýsinga- fulltrúi Landsvirkjunar. „Eldingavar- inn er hluti af vamarbúnaði, sem á að tjúfa straum við óvenjulegt ástand, svo ekki verði skemmdir á dýrum búnaði. Það gerðist og þá fór rafmagn af stórum hluta höfuðborg- arsvæðisins." Þorsteinn sagði misjafnt eftir aðstæðum á hveijum tíma, hve víða rafmagn færi af. „Þar getur skipt máli hvernig rafmagn er leitt að borginni. Það kemur inn eftir þrem- ur meginleiðum, um spennistöð við Korpu við Úlfarsfell, spennistöð við Geitháls og spennistöð við Hamra- nes í Hafnarfjarðarhrauni. Núna fór sambandið bæði á Geithálsi og Hamranesi þegar spennirinn fór á fyrri staðnum. Það er of snemmt að segja til um hvort straumur fór af í Hamranesi vegna of mikils álags eftir að Geitháls datt út, eða hvort aðra skýringu er að finna.“ Rafmagn hefur ekki farið af á höfuðborgarsvæðinu með þessum hætti fyrr, að sögn Þorsteins. „Hins vegar eru mörg dæmi þess, að ef mikilvægir hlutir bila, sem eru í notkun í kerfinu á þeim tíma, þá hefur það nokkuð víðtæk áhrif.“ Engin óhöpp Að sögn lögreglu urðu engin umferðaróhöpp sem rekja mátti til myrkvunarinnar, en tafir urðu við umferðarljós, enda rofnaði straumur á miklum annatíma í umferðinni. Mikið magn smygls gert upptækt í Brúarfossi TOLLGÆSLAN í Reykjavík gerði við tollleit í fyrradag upptækt mikið magn smygls um borð í Brúarfossi. Við leit fundust 87 kassar af bjór, um 100 kg af kalkúnakjöti og tals- vert af áfengi og tóbaki. Samkvæmt upplýsingum Brynj- ólfs Karlssonar, deildarstjóra rann- sóknardeildar hjá Ríkistollstjóra- embættinu, er málið ekki að fullu upplýst. Þó liggur fyrir að a.m.k. 7-8 skipveijar hafi tekið þátt í smyglinu. Smyglið er eitt hið mesta sem hefur verið upplýst í Reykjavík í seinni tíð, að sögn Brynjólfs. Hann segir að Ríkistollstjóraembættinu sé heimilt að ljúka málum að fullu ef talið er að sekt fyrir brot einstakl- ings verði ekki ákvörðuð hærri en 75 þúsund krónur. Að öðrum kosti tekur ákæruvaldið við málinu. Heiti potturinn fór til Isafjarðar Ung hjón unnu 32,6 milljónir UNG hjón á ísafirði hlutu 32 milljónir og 632 þúsund krónur þegar dregið var í heita potti Happdrættis Háskólans í gær. Þetta er næst hæsti hagp- drættisvinningur hérlendis. Ar- ið 1994 hlaut íslenzk fjölskylda 39,5 milljónir í Víkingalottóinu. Alls var dregið um 58,7 millj- ónir í heita pottinum og kom vinningur á miða númer 20483. Fimmfaldur trompmiði og tveir aðrir miðar voru seldir, allir á Isafirði. Báðir þeir miðar eru einnig í eigu ungra hjóna og fá þau 13 milljónir og 502 þúsund krónur í sinn hlut. Tvær fjölskyldur á ísafirði hafa því hlotið óvæntan jóla- glaðning í ár, samtals rúmar 46 milljónir króna. Miklar framfarir í meðferð krabbameinssjúklinga Lífshorfur hafa stórbatnað á aldarfjórðungi LÍKURNAR á því að læknast af krabbameini hafa tvöfaldast á ein- um aldarfjórðungi. Þá er átt við hlutfall þeirra sem eru á lífi fimm árum eftir að sjúkdómurinn greindist. Framfarir hafa orðið í öilum ald- ursflokkum en þær eru þó hlut- fallslega meiri meðal yngri sjúkl- inga en hinna eldri. Nú eru á lífi meira en sex þúsund íslendingar sem fengið hafa krabbamein. Þessar upplýsingar koma fram í tímaritinu Heilbrigðismálum og byggjast á nýjum tölum úr krabba- meinsskrá Krabbameinsfélags ís- lands. Misjafnt eftir kynjum Þannig lifðu 50% kvenna sem greindust með krabbamein á árun- um 1986-1990 í fimm ár eða leng- ur eftir að sjúkdómurinn greindist og 38% karla. Þrír af hveijum fjór- um geta vænst þess að lifa að minnsta kosti eitt ár. Meðal karla eru horfurnar á lækningu bestar hvað varðar húð- L m b fs iei atr ho ns ia< rfi sjC 5 f ir krabba- iklinga hafa rá 1956 0/o (V KOI' UR' !. 5 í rA 50», DU \ 5U r r* 4U 277 4 7 3U 16» v_ <AR AR í.5£ r 2U ” ÍU 19 - 56 ’6 30-6 1 ’6 5 -7 6 7 0 -7 1 7 5 -8 6 '8 0 -8 1 '8 5 -9 6 ’9 0 -9 0 1 4 krabbamein, krabbamein í þvag- blöðru og í blöðruhálskirtli. Hjá konum eru bestar horfur á lækn- ingu á skjaldkirtilskrabbameini, leghálskrabbameini og bijósta- krabbameini. ÚTFLUTNINGUR Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna á ferskum flök- um á Evrópumarkað nær tvöfald- ast á þessu ári miðað við árið í fyrra. Eins og staðan er í dag stefnir útflutningurinn á árinu í um 700 tonn en á síðasta ári voru um 350 tonn af ferskum flökum seld á þessum sama markaði og 180 tonn árið 1994, sem var fyrsta árið sem SH hóf ferskfiskútflutn- ing á þennan markað. „Við erum að selja fersk flök til um þijátíu viðskiptavina í Þýskalandi og að jafnaði erum við með um fjórar flugferðir í viku,“ segir Kristján Hjaltason, forstöðu- maður söluskrifstofu SH í Ham- borg, en megnið af útflutningnum fer þar í gegn. „Þeir íslensku framleiðendur, sem verið hafa að framleiða flök fyrir okkur, eru 21 hf. Ahugi á tilbúnum íslenskum fiskréttum Að sama skapi hefur orðið vart mikils áhuga á tilbúnum fiskréttum frá íslandi, að sögn Kristjáns, og þegar orðinn allverulegur sölukipp- ur í þeim framleiðslugeira. SH á 25% hlut í íslensk-frönsku eldhúsi hf., sem flutt var til Akraness í sumar, en fyrirtækið framleiðir m.a. fískrétti, tilbúna til neyslu, sem söluskrifstofa SH í Hamborg hefur unnið að markaðssetningu á. „Þetta eru mjög spennandi afurðir sem lík- að hafa vel og skilað hafa góðum árangri á markaðnum ytra,“ segir Kristján. ■ Útflutningur SH/Dl SH tvöfaldar sölu á ferskum flökum að tölu, þeirra stærstur er Grandi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.