Morgunblaðið - 10.01.1997, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.01.1997, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1997 FRÉTTIR Niðurstöður efnafræðiprófs í HÍ kærðar til Háskólaráðs Nemendur íhuga að fá úrskurð dómstóla HÁSKÓLARÁÐI hafa borist kærur frá tveimur nemendum vegna mis- taka sem urðu í tímavörslu í efna- fræðiprófí á fyrsta ári í læknadeild Háskóla íslands í desember. Nem- endur i einni prófstofunni fengu allt að 20 mínútum lengri tíma en aðrir til að ljúka prófinu. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, for- maður Stúdentaráðs, segir að nem- endur sem ekki komust áfram í úrtökuprófum í læknadeild íhugi jafnvel að kæra málið til dómstóla, fáist ekki viðunandi niðurstaða inn- an Háskólans. Að tillögu stúdenta hefur Háskólaráð samhljóða ákveð- ið að ráðast í gagngera endurskoð- un á prófvörslu í skólanum, sérstak- lega í samkeppnisprófum. Deildarráð læknadeildar úr- skurðaði á mánudag að atvikið hefði ekki haft áhrif á hvaða nemendur fengu að halda áfram. „Fjölmargir nemendur hafa varpað fram kvört- unum og spumingum til deildarinn- ar, til dæmis við hvaða forsendur deildin styðjist þegar hún metur það að þetta hafí ekki haft áhrif á prófniðurstöður," segir Vilhjálmur. „Þeir nemendur sem ég hef rætt við, sem eru næstir því að komast áfram í deildinni, eru tilbúnir að ganga langt til að ná rétti sínum. Þeir hafa nefnt það að kæra málið til dómstóla. Finnist ekki viðeigandi lausn fínnst mér það mjög líklegt.“ Niðurstöður endurskoðaðar Nemendur sem fengu lengri próf- tökutíma voru tuttugu talsins. Alls komust níu þeirra áfram í læknis- fræðinni, eða 45%. Hlutfallið hjá öðmm nemendum var 17,5%. Sam- kvæmt tölfræðilegu mati sem gert hefur verið innan Háskólans em innan við eins prósents líkur á þess- ari niðurstöðu hefði aðstaða nem- enda verið jöfn. Á fundi Háskóla- ráðs sem haldin var í gær var ákveð- ið að fela kennslunefnd í lækna- deild að fara að nýju yfir prófniður- stöður. Grunur leikur á að einn nemenda sem sat efnafræðiprófíð hafi brotið prófreglur með því að beita forritan- legri vasatölvu. Talið er að hann hafi geymt glósur í tölvunni og notað þær til að svara prófspurning- um. Nemandinn var einn þeirra sem komust áfram í deildinni en ef gmnurinn reynist réttur gæti verið að hann glataði sæti sínu. Styrktaruppboð hjá Christies í Lundúnum Dagar í Laxá boðnir upp HIÐ fræga uppboðsfyrirtæki Christies í Lundúnum gengst fyrir sérstöku alþjóðlegu styrktamppboði 23. apríl nk. og rennur allur ágóði til Norður-Atlantshafs laxasjóðsins, NASF, sem Orri Vigfússon hefur veitt forstöðu frá upphafi og hefur að markmiði að kaupa eða leigja öll veiðiréttindi á laxi í söltu vatni. Meðal þess sem á boðstólum verður eru tveir dagar á besta tíma í Laxá á Ásum sumarið 1998, báð- ar dagsstangimar, en þar er um gjöf frá Veiðifélagi Laxár á Ásum að ræða. Miðað við verð veiðileyfa í ánni síðustu sumur gætu dagarnir farið á allt að 800.000 krónur. Veiðileyfi í mörgum ám „Ég bind að sjálfsögðu miklar vonir við þetta uppboð," sagði Orri Vigfússon í samtali við Morgun- blaðið. Orri og samstarfsmenn hans hafa unnið að því ötullega síðustu mánuði að fá hagsmunaaðila til að gefa veiðileyfí og ýmsa gripi á upp- boðið. Hefur sú vinna gengið að óskum að sögn Orra. Auk veiðidaga í Laxá á Ásum hefur NASF fengið veiðileyfí í Norðurá frá SVFR, Ytri-Rangá frá Þresti Elliðasyni, Straumfjarðará frá leigutökum árinnar og Laxá í Aðaldal frá Laxárfélaginu. Einnig verða á uppboðinu veiði- leyfí í ýmsar af þekktustu laxveiði- ám beggja vegna Atlantsála, m.a. í Noregi, Rússlandi, írlandi og Kanada. Þá verða listaverk og eitt mesta veiðiflugusafn sem til er, hnýtt af flestum fremstu fluguhnýt- urum heims á uppboðinu. MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Kristinn SAMNINGANEFNDIR sjómanna og útvegsmanna komu saman hjá ríkissáttasemjara í gær. Á myndinni eru Sævar Gunnars- son, formaður Sjómannasambandsins og Þórir Einarsson ríkissáttasemjari. Arangurslaus sátta- fundur sjómanna ENGINN árangur varð af stuttum sáttafundi milli samninganefnda Sjómannasambandsins, LÍU og VSÍ sem haldinn var hjá ríkissáttasemj- ara í gær en þetta var fyrsti við- ræðufundurinn sem fram fer frá því að sjómenn vísuðu kjaradeilu sinni við útgerðarmenn til sátta- semjara. Aðalkrafa sjómanna er að allur afli verði seldur um fiskmarkaði en mikið ber í milli með deiluaðilum. Var ákveðið að halda viðræðu- tilraunum áfram 24. janúar, skv. upplýsingum Morgunblaðsins. Nokkur félög á almenna vinnu- markaðinum og félög opinberra starfsmanna hafa þegar vísað kjaradeilu sinni til sáttasemjara en skv. upplýsingum blaðsins er búist við að mikill fjöldi verkalýðsfélaga vísi deilum sínum til sáttasemjara 15. janúar í samræmi við viðræðu- áætlanir sem gerðar hafa verið. Samkvæmt nýsettum lögum um stéttarfélög og vinnudeilur verða samningsaðilar að hafa vísað kjara- deilu til sáttasemjara og reynt þar til þrautar að ná samningum með milligöngu sáttasemjara áður en heimilt er að viðhafa atkvæða- greiðslur um boðun vinnustöðvunar. Aðeins tveir stóðust samkeppnispróf á fyrsta ári í tannlæknadeild * Argangurinn í deildinni er eitt par Morgunblaðið/Golli PARIÐ Erna Sigurðardóttir og Stefán Pálsson voru þau einu sem náðu samkeppnisprófum í tannlækningum á fyrsta ári. Þau voru að vonum ánægð með árangurinn í gær en höfðu vart áttað sig á þvf hver yrðu örlög þeirra í deildinni. Framboð Guðrúnar skuldlaust FORSETAFRAMBOÐ Guðrúnar Pétursdóttur er nú skuldlaust eða því sem næst. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins verður endanlegt uppgjör framboðsins birt opinberlega ein- hvern næstu daga. Skuldirnar hafa verið greiddar með framlögum fyr- irtækja og einstaklinga. Guðrún Agnarsdóttir skuldar 4,3 mil\jónir Forsetaframboð Guðrúnar Agn- arsdóttur skuldar enn um 4,3 millj- ónir króna. Að sögn Elínar Þor- steinsdóttur, fjármálastjóra fram- boðsins, skilaði fjáröflunarskemmt- un sem haldin var í október síðast- liðnum 1,1-1,2 milljónum króna. Engar ákvarðanir hafa verið teknar um framhaldið. ♦ ♦ ♦-- Árekstur við einbreiða brú TVEIR fólksbílar skullu saman við brúna yfír Kaldaklifsá undir Aust- ur-Eyjafjöllum síðdegis í gær. Báð- ir ökumennimir voru fluttir á Sjúkrahús Reykjavíkur til aðhlynn- ingar en farþegi í öðrum bílnum slapp ómeiddur. Áð sögn lögreglunnar á Hvols- velli er brúin einbreið yfír Kalda- klifsá. Bílamir komu úr gagnstæðri átt og skullu saman rétt austan við brúarstólpann. Báðir bílarnir em taldir ónýtir. AÐEINS tveir stóðust samkeppn- ispróf í tannlækningum á fyrsta ári sem þreytt voru í desember sl. en af þeim sökum tókst ekki að fylla numerus clausus í deild- inni. Aðeins níu reyndu við próf- in að þessu sinni en síðustu ár hefur sex nemendum verið hleypt áfram í deildinni. Svo skemmtilega vill til að hinir heppnu, Erna Björg Sigurðar- dóttir og Stefán Pálsson, eru par. Samkvæmt reglum deildarinn- ar komast þeir 6 nemendur sem eru með hæstu meðaleinkunn áfram, nái þeir öllum prófum á annað borð. Guðjón Axelsson, deildarfor- seti tannlæknadeildar, segir að þessum tveimur nemendum verði kennt á sínu námsári, eins og ekkert hafi í skorist, enda taki Háskólinn þá skyldu á sig við innritun nýnema hvert haust að mennta þá til loka. Ánægð en hógvær Þau Stefán og Erna voru að vonum ánægð með árangurinn þegar Morgunblaðið ræddi við þau í gær en jafnframt mjög hógvær. Þau komust nú áfram í annarri tilraun en það heyrir orðið til undantekningar að menn nái clausus í fyrstu tilraun í tannlækningum, sjúkraþjálfun eða læknisfræði. Margir spyrja sig eflaust hvaða áhrif það muni hafa á sam- bandið að hefja sex ára nám sam- an í tveggja manna bekk. Stefán sagðist alls ekki óttast að þetta mundi hafa slæm áhrif áþað. Upplýsti hann að raunar væru þau ekki saman öllum stundum sólarhringsins þar sem þau hefðu tekið þá ákvörðun að lesa ekki námsefnið saman. „Við hittumst á hinn bóginn í skólanum og auðvitað berum við saman bækur okkar ef eitthvað vefst fyrir okk- ur,“ sagði Stefán. Níu hleypt inn næst? Gárungarnir hafa þegar tekið upp á því að kalla skötuhjúin dýrustu tannlæknanema frá upp- hafi en aldrei hafa færri staðist samkeppnispróf. Aðspurður kvaðst deildarforsetinn vona að umræða um að réttast væri að leggja niður tannlæknanám á íslandi kviknaði ekki að nýju. Sagði hann takmark deildarinn- ar að mennta eins marga tann- lækna og aðstaða leyfði en af þeim sökum hefur fjöldi nem- enda verið takmarkaður við sex. Guðjón segir vel koma til greina að rýmka numerus claus- us á næsta ári, hleypa þá allt að níu nemendum inn ogtryggja þannig að aðstaða til að mennta tannlækna í deildinni nýtist til fullnustu. Segir hann deildina hafa heimild til að taka inn fleiri nemendur til að útskrifuðum tannlæknum fækki ekki skyndi- lega. Deildarforsetinn útilokar að nemendunum verði annað hvort flýtt í námi eða þeir látnir bíða eftir næsta hópi. Þá er útilokað að haldin verði ný samkeppnis- próf til að fjölga í hópnum. Ein ástæða þess að fleiri náðu ekki clausus er að tiltölulega fáir reyndu við samkeppnisprófin. Innritun í tannlækningar og sjúkraþjálfun hrundi í haust og aðeins 14 innrituðu sig í tann- lækningar. Engu að síður segir deildarforsetinn að miðað við fallhlutfall síðustu ára hefðu fjórir átt að ná prófum. Karlar í meirihluta í sjúkraþjálfun Á námsbraut í sjúkraþjálfun reyndu 46 manns við samkeppn- ispróf. Reglur um clausus kveða þar svo á að 18 hæstu komast j áfram, nái þeir öllum prófum. Að þessu sinni náðu aðeins 18 prófunum og fylltu þess vegna kvótann sjálfkrafa. I fyrra náðu t.d. 40 manns öllum prófum af 80 sem reyndu en samt komust aðeins 18 áfram. Samkvæmt upplýsingum Hjördísar Ingvarsdóttur, skrif- stofustjóra, urðu þau tíðindi í fyrsta sinn í 20 ára sögu náms- brautarinnar að karlmenn voru í meirihluta þeirra sem stóðust clausus.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.