Morgunblaðið - 10.01.1997, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 10.01.1997, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1997 11 FRÉTTIR Áhyggjur verslunareigenda á Garðatorgi vegna skrílsláta unglinga að undanf örnu „Nokkurs konar skálm- öld ríkir“ Undanfama mánuði hefur hópur unglinga safnast saman við verslunarmiðstöðina Garðatorg í Garðabæ og bera verslunareig- endur þar umgengni þeirra illa söguna, einkum á nýársnótt. „Við sem hér erum með rekstur önnumst ein allar viðgerðir og þrif, þannig að vissulega kemur þetta ástand við okkur.“ A NYÁRSNÓTT voru þrettán rúður brotnar í yfirbyggingu verslunar- miðstöðvarinnar Garðatorgi og skemmdir unnar á bifreiðum í grenndinni þegar lögreglan hafði afskipti af skrílslátum. Ida Christiansen, formaður Hagsmunasamtaka verslunar- og fyrirtækiseigenda á Garðatorgi, segir um nokkra hríð hafa ríkt „nokkurs konar skálmöld" á þessu svæði. Kæra lögð fram „Þetta er ekki í fyrsta skipti sem rúður eru brotnar hjá okkur en núna sáum við ástæðu til að leggja fram kæru því umfangið var eins mikið og raun ber vitni. Við höfum átt í vandræðum með unglinga inni á torginu í allan vetur, eins og birt- ist til dæmis í að við hugðumst hafa verslanir opnar til klukkan 22 á kvöldin, en oft þurfum við að loka mun fyrr um helgar vegna látanna. Þetta hefur farið í taugarnar á við- skiptavinum okkar, en þeir skilja eðlilega fæstir hvað við eigum við að etja,“ segir hún. Hún segir unglingana hanga löngum stundum inni í verslunarmiðstöðinni og utan hennar, hrækja á gólf, reykja í leyfisleysi og viðhafa svívirðingar í garð þeirra sem gera at- hugasemdir við framferði þeirra. Allt tiltal hafi reynst þýðing- arlaust. „Auk þess hafa blóm verið rifin upp og bekkir brotnir eða þeim stol- ið. Þetta er ákveðinn kjarni sem ber ábyrgð og virðast tveir drengir hafa forystu en umhverfis þá eru einhverjir aðdáendur sem fylgja þeim að málum. Fyrir utan ástand- ið í verslunarmiðstöðinni hefur fólk í nágrenninu orðið fyrir áreitni og ónæði, því að lætin eru mikil og hefur bæði verið talað um áfengi og eiturlyf í því sambandi, án þess að hægt hafi verið að staðfesta slíkt,“ segir Ida og kveðst lang- þreytt orðin á ástandinu og hún telji þörf á úrbótum hið fyrsta. Svartir sauðir skýla sér í hópnum Viðskipti drógust saman Gústaf Sófusson, sem rekur sölu- turninn Sælgætis- og vídeóhöllina á Garðatorgi, segir 50 til 150 ungl- inga safnast saman utan við versl- unarmiðstöðina um helgar og sé ástandið þannig að hann hafi þurft dyravörslu við verslun sína. Við- skiptavinir hafi forðast þennan múg og hafi viðskiptin af þeim sökum minnkað um ein 10% á mánuði, og enn meira ef eingöngu væri miðað við jielgarverslun. „í heild eru þetta ágætir krakkar sem mér hefur komið vel saman við, en innan um eru svartir sauðir, fjórir til sex talsins, sem eru fyrir- ferðarmiklir og skemma fyrir hin- um. Ástandið var einkum slæmt í október og nóvember en eftir að félagsmálayfirvöld fengu foreldra til gæslu á kvöldin, lagaðist ástand- ið til muna, en hún hefur hins veg- ar ekki verið til staðar að undan- förnu og því var ástandið t.d. slæmt á nýársnótt," segir Gú- staf. Álftarós hf. hefur unn- ið að byggingu 10 þúsund fermetra stórhýsis _________ skammt frá Garðatorgi undanfarin þrjú ár og segir Oddur H. Oddsson, verkstjóri hjá fyrirtækinu, að seinustu tólf mánuði hafi áþreifanlega orðið vart við skemmdarfýsn unglinga á svæð- inu, auk sóðaskapar. Ikveikja olli miklu tjóni „Fyrir tæpu ári var kveikt í vinnuskúr hjá okkur sem hafði í för með sér tjón fyrir um tvær og hálfa milljón króna, og ýmislegt annað hefur verið eyðilagt undanfarna mánuði, svo sem rúður, auk þess sem brotist hafi verið inn á svæðið nær vikulega. Það er mjög erfitt að halda ungl- ingum frá húsinu, nema með eftir- liti allan sólarhringinn eða öflugu .. ----------------------- ■ ■ ■■ ■ hJ UNGLINGAR hafa verið til vandræða í verslunarmiðstöðinni Garðatorgi í allan vetur. þjófavarnakerfi, og við höfum lengst af ekki talið nauðsynlegt að ráðast í slíkar framkvæmdir. Nú er málum hins vegar svo komið að við teljum ástæðu til að herða eftir- litið,“ segir Oddur. Óskar Þórsson er búsettur skammt frá Garðatorgi og skemmdu unglingar bifreið hans á nýársnótt, eftir að lögreglan hafði reynt að tvístra hópnum og reka hann frá verslunarmiðstöðinni. Þrjár aðrar bifreiðir voru skemmdar við sama tækifæri. „Þarna var fjölmennur hópur, að mestu til friðs, en þó ekki alveg. Nágranni minn ætlaði að skipta sér af krökkunum enda ósáttur við að búið var að beija hliðina á bifreið hans inn á milli stuðara, en hann mátti þakka fyrir að sleppa inn til sín eftir þau afskipti því að lýðurinn snerist gegn honum. Honum var fylgt inn með karatespörkum á hurðina og þótt hann hafi ekki leit- að til læknis, var hann lurkum lam- inn næsta dag, og mér skilst að tjónið á bílnum nemi um 200 þús- und krónum," segir Óskar. Keyrði um þverbak Eðvar Ólafsson, rannsóknarlög- reglumaður í Hafnarfirði, segir þessi mál sem um ræðir upplýst og hafi seinasta helgi verið að mestu friðsæl. „Það hafa komið upp nokkur til- felli um brot og á nýársnótt keyrði um þverbak þegar skemmdir voru unnar á eignum. Þarna gekk óvenjumikið á og má segja að þarna hafi verið um einhvers konar mú- gæsing að ræða. í fyrravetur var búið að uppræta þessi læti og mál- in komin í ágætis horf, en leiðindin hafa færst í aukana frá því að skól- ar hófust í haust og um áramótin náði þetta hámarki. Við tókum nokkra spellvirkja og voru það krakkar á aldrinum 15 til 18 ára, sem voru með fíflalæti undir áhrif- um áfengis," segir hann. Ágæt löggæsla Eðvar segir lögreglustöð til stað- ar í Garðabæ og sé gæsla í henni til miðnættis en eftir þann tíma sé bifreið frá lögreglunni í Hafnarfirði á ferli á svæðinu. „Löggæslan er ágæt en lögreglan ræður aldrei við allt það sem upp kemur og þegar krakkar hópast saman á þennan hátt er erfitt að eiga við málin, ekki síst þegar í hópnum eru einhverjir vitleysingar sem skýla sér bak við hann. For- sprakkarnir hafa ekki verið kærðir en þeir hafa fengið tiltal og málun- um verður fylgt eftir í samræmi við það sem þurfa þykir.“ Dúfnaeigandinn á Akranesi Börn á Selfossi mega fá dúfumar „EF EINHVERJIR krakkar á Selfossi hafa áhuga á að eign- ast dúfur mega þeir eiga þess- ar tvær, sem eru hjá meindýra- eyðinum. Ég vona að samvisk- an segi honum að láta börnin fá þær endurgjaldslaust," sagði Þórarinn Helgason, dúfnaeigandi á Akranesi, í samtali við Morgunblaðið í gær. Jóhannes Þór Olafsson, meindýraeyðir, sagði að ef dúfurnar færu á góðan stað væri honum sama. Eins og skýrt var frá í blað- inu í gær er Þórarinn ósáttur við að Jóhannes Þór Ólafsson meindýraeyðir á Selfossi fór fram á greiðslu fyrir dúfur, sem hann handsamaði og reyndust vera bréfdúfur í eigu Þórarins. Þórarinn líkti mál- inu við gíslatöku og kvaðst ekki reiðubúinn til að greiða lausnargjald. Hann reiknaði með að meindýraeyðirinn hefði aflífað dúfurnar, en meindýraeyðirinn sagði þær báðar í góðu yfirlæti hjá sér. Kostnaður húseiganda Jóhannes Þór Ólafsson, meindýraeyðir á Selfossi, sagði síðdegis í gær að þótt fjöldi barna vildi án efa eign- ast dúfur væri ekki víst að all- ir foreldrar væru jafn hrifnir. „Mér þykir þetta mál allt hið barnalegasta. Húseigandinn, þar sem dúfumar voru fangað- ar, er búinn að leggja í kostn- að vegna þrifa, meðal annars þurfti hann að leigja háþrýsti- dælu til að ná dritinu af húsinu og honum finnst eðililega slæmt ef hann þarf að auki að greiða fyrir handsömun dúfna í annarra eigu. Mér þykir þó leiðinlegt ef fuglamir þurfa að kveljast og verð feginn ef dúfurnar fara á góðan stað.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.