Morgunblaðið - 10.01.1997, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 10.01.1997, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1997 29 AÐSENDAR GREIIMAR Kaupmáttur budd- unnar, 8% hækkun? SIÐUSTU vikur hafa launþegar fengið þær fréttir að kaupmáttur þeirra hafi aukist um samtals 8-9% á síðustu tveim árum. Vinnuveit- endasambandið hefur m.a. haldið þessu á lofti í samningaviðræðum en á sama tíma þvertaka þeir fyrir að ræða kröfu um 4-5% kaupmátt- araukningu á ári, þó þriggja ára samningur sé í boði. Það eru alls ekki allir launamenn sem merkja það í budd- unni, að þar sé meira til innkaupa eða afborg- ana lána, hvað þá heldur að peninga- seðlar hlaðist upp til að kaupa skattaafslátt eða leggja fyrir í sparn- að. Þeir sem fengið hafa 6-8% kaup- hækkun á síðustu tveimur árum fínna ekki þennan kaupmáttarauka hjá sér og spyija Þjóðhagsstofnun og valdhafa, hvert fór kaupmáttar- aukinn? Ha, hvaða kaupmáttur? Og það stendur ekki á svarinu, jú, jú sjáðu til ágæti launamaður, kaupið hækkaði um 7% að meðaltali vegna kjarasamninganna í febrúar 1995 og auk þess hafa laun hækkað vegna starfsaldurs og svo er þarna launaskrið fyrir utan samninga. Samtals hækkuðu launin um rúm 10% að meðaltali á tæpum tveim árum. Og gættu að því að tugþús- unda króna hækkun á mánaðartekj- um alþingismanna, ráðherra, emb- ættismanna o.fl. er ekki inni í þessu meðaltali. Þetta er bara meðaltal- ið hjá ykkur í félögun- um innan ASÍ. Þegar meðallaunin ykkar hækka um 10% og verðbólgan er um 4% og að samið var um sitthvað fleira hefur kaupmátturinn aukist um 8-9% síðustu tvö árin. Já, en launin mín hækkuðu bara tvisvar á tveimur árum, segir launamaðurinn, fyrst um 2.700 kr. og svo um 3% fyrir ári og svo hækkaði líka desemberuppbótin. Ég fann kaupmáttarauka þegar samn- ingar náðust um að fella niður skatta á lífeyrisíðgjaldi en það náði nú ekki neinum 8 eða 9 prósentum. Nú er ég svipað settur og fyrir tveimur árum, næ ekki endum saman fyrir greiðslum af húnæðisláninu og ekki endast launin betur fyrir hita, raf- magni og matarinnkaupum. Já, en kæri vinur, þú verður að átta þig á því að eyðslan hefur auk- ist í þjóðfélaginu og þú ert einn af þeim sem kaupa meira en áður, kannski hefur þú endurnýjað brauð- ristina og látið gera við sjónvarpið og svo taka krakkarnir meira til sín þegar þau eldast og fara í skóla. Hagtölurnar sýna að kaupmátturinn hefur aukist um 8% og hana nú. Samningar framundan Og launamaðurinn segir, jæja ég skil þetta ekki alveg með kaupmátt- araukann en það eru að koma samn- ingar og nú hlýt ég að fá kauphækk- un svo góðærið skili sér í mína buddu. Já, já, segja Vinnuveitendasam- bandið og fjármálaráðherra. Við höfum prýðisgóða áætlun um það. Við hækkum launin um 2,5-3% á þessu ári og þá er ekki víst að verð- bólgan verði meira en 2% svo þú Þó laun hækki um 5% í 2,5% verðbólgu, segir •• ___ Orn Friðriksson, lækkar kaupmáttur meðallauna vegna skattanna. færð varanlegar kjarabætur. For- sætisráðherra og utanríkisráðherra bæta við og segja já og svo lækkum við skattana sem við hækkuðum fyrir áramótin og hin áramótin svo það verður betri tíð og blóm í þínum haga. Og taktu nú ekki mark á verkalýðsfélögunum sem heimta meiri launahækkanir og kaupmátt- artryggingu, það verður allt sett út í verðlagið og hærri skatta svo þér er nær að fara að okkar ráðum. Já, en bíðum nú við, hugsar launa- maðurinn, minnugur þess að hann saknar enn 8% kaupmáttaraukning- ar síðustu tveggja ára, hvernig skil- Örn Friðriksson ar þetta sér í budduna mína? Ætli það sé ekki best að ég reikni sjálfur. Týndur kaupmáttarauki Nú, nú, þá er að lesa sig í gegn- um launaseðla frá síðasta ári. Með 15 tímum í yfirvinnu á viku voru mánaðarlaunin að meðaltali 155 þúsund krónur, það fóru 4% í lífeyr- isiðgjald og 1.800 kr. á mánuði til stéttarfélagsins. Skattkortið hennar Gunnu var nýtt að fullu (80%) og svo komu barnabætur og barna- bótaauki fyrir strákinn og stelpuna og vaxtabætur út af 4 milljón króna húsbréfinu og þá voru til ráðstöfun- ar að meðaltali 152.166 kr. á mán- uði. Þessir ágætu herrar bjóða mér nú skattalækkun út á skattahækk- un fyrri ára. Ég tek því með hæfi- legri varúð en reikna þó með að skattahækkuninni sem Alþingi ákvað fyrir áramótin verði allri skil- að til baka í kjarasamningum þann- ig að gagnvart sköttum, barna- og vaxtabótum verði kerfið óbreytt. Þá er það launahækkunin, 2,5-3% segja þeir og 2% verðbólga. Ætli mér sé ekki óhætt að vera bjartsýnn og reikna með því að verkalýðshreyfingin geti kreist út 5% launahækkun í áföngum og að verðbólgan verði ekki nema 2,5% á árinu. Og þá er að reikna út kaup- máttaraukann í buddunni. Launin hækka um 5% og fara upp í 162.750, en bíðum nú við, þá lækka vaxtabætur og barnabóta- auki og skatturinn tekur sitt af launahækkuninni. Ráðstöfunartekj- urnar hækka þá aðeins úr 152.166 í 155.221 kr. á mánuði. í budduna bætast þá 3.055 krónur sem er 2% hækkun ráðstöfunartekna. Jæja þó það, dugar kannski fyrir vaxta- hækkun á húsláninu, eða hvað? Æ, nei, það má ekki gleyma verð- bólgunni, ef krónunum í buddunni fjölgar um 2% í 2,5% verðbólgu þá er kaupmáttur ráðstöfunartekna rokinn út í veður og vind og ég stend lakar á eftir. Nonni frændi og framkvæmdastjórinn Hvernig ætli kaupmáttardæmið líti út hjá Nonna frænda, sem hefur að öllu leyti sömu aðstæður nema að heildarlaunin hans eru talsvert lægri eða 110.000 kr. á mánuði? Með öllum bótum eru ráðstöfunar- tekjurnar hjá honum 134.428 kr. og eftir 5% kauphækkun hafa þær hækkað um 2.168 kr. eða um 1,6%. Ekki verður hann betur staddur með kaupmáttinn í 2,5% verðbólgu, það verður ennþá stærri mínus í budd- unni hans. Hjá Sigga nágranna mín- um sem er ógiftur, barnlaus og fær engar vaxtabætur og hefur 65.000 á mánuði hækka ráðstöfunartekjur um 1.811 kr. og hann rétt hangir í því að halda óbreyttum kaupmætti í 2,5% verðbólgu af því að launin hans eru svo lág. En hvað með Frissa fram- kvæmdastjóra sem hefur 400.000 kr. á mánuði (sérstökum þarfa- greiðslum er sleppt), hann hefur að öðru leyti sömu aðstæður og Nonni. Fyrir launahækkun hefur hann 271.032 kr. til ráðstöfunar á mán- uði. Það bætast um 11.000 krónur í budduna hans á mánuði hveijum sem er rúmlega 4% hækkun ráðstöf- unartekna. Þar sem launin hans Frissa eru vel yfir fátæktarmörkum getur hann ráðstafað tekjuaukanum til að fjárfesta í hlutabréfum sem bæði færa honum arð og auk þess 40.000 kr. í skattaafslátt. Loks fannst einn réttlátur sem fær kaup- máttarauka í veskið sitt. Og okkar ágæti launamaður sem saknar góðærisins sér nú að auðvit- að hafa einhveijir fengið góðan kaupmáttarauka síðustu ár. Gallinn er bara sá að launin hans eru vitlaus- um megin við strikið. Ríkið inn- heimtir nefnilega um 60% af kaup- hækkuninni sem hann og Nonni fá en aðeins 45% af kauphækkuninni hans Frissa. Höfundur er formaður Félags járniðnaðarmanna. Hvað er félagsráðgjöf? MARKMIÐ þessarar greinar er að glöggva með lesendum hvað fé- lagsráðgjöf er á tiltölulega einfald- an hátt. Ekki verður fjallað um sögu greinarinnar heldur miklu fremur stöðu hennar í nútímasam- félagi eins og hún birtist almenn- ingi. Félagsráðgjöf er nám á háskóla- stigi og starfsheitið er lögverndað þ.e.a.s. enginn má kalla sig félags- ráðgjafa nema sá einn sem hefur öðlast leyfí til þess. Heilbrigðisráðu- neytið veitir leyfið. Félagsráðgjafar starfa við ýmsar stofnanir í samfé- laginu þar sem fólk ferðast og rek- ur erindi sín. Starfsvettvangurinn er stór og ekki unnt að fjalla um einstaka geira hans í stuttri blaða- grein. Breytt samfélag Samfélagið hefur tekið miklum breytingum á síðustu áratugum. Hlutverkin sem fjölskyldan sinnti áður hafa mörg hver flust til stofn- ana. Fagmenn hafa tekið við hlut- verkunum í stað fjölskyldumeðlima. Þetta þýðir að fjölskylda í samfé- lagi nútímans þarf að kljást við margar ólíkar stofnanir sem hefur Félagsráðgjafar veita ráðgjöf, segja Guðrún H. Sederholm, Ella Kristín Karlsdótir og Áslaug Olafsdótir, í félagslegum og persónulegum málum. þau áhrif að lífið verður flókið og illskiljanlegt fyrir einstaklingana. Foreldrahlutverkið er dæmi um slíkt. Uppeldi fer að miklu leyti fram utan fjölskyldunnar, í skólum, fé- lagsmiðstöðvum, í félagahópnum og í gegnum fjölmiðla svo eitthvað sé nefnt. Aldraðir eru oft fjarri kjarnafjölskyldunni og bilið á milli ungra og aldinna breitt. Lögráða einstaklingur þarf að fást við margar ólíkar aðstæður. Hann er bam foreldra sinna, náms- maður, starfsmaður, leigjandi, hús- eigandi, sjúklingur og svo mætti lengi telja. Það eru margir þræðir sem toga í einstaklinginn og enn fleiri sem toga í fjölskylduna alla. Eins og sjá má á síðum dagblað- anna og í fréttum útvarps og sjón- varps þá eru vandamálin mörg sem tengjast þessum aðstæðum. Samfé- lagið leitar skýringa á því sem úr- skeiðis fer og þá er oft litið til fjöl- skyldunnar og henni kennt um hvernig komið er fyrir einstaklingn- um og fjölskyldan verður syndasel- ur. Hlutverk félagsráðgjafans er að aðstoða fjölskylduna við að greiða úr þráðunum, veita upplýsingar um þau réttindi sem meðlimir hennar hafa, styðja hana í erfiðleikum, út- skýra flækjurnar sem vefjast fyrir henni og tryggja að þörfum hennar og einstaklingann sé mætt af sam- félaginu á hinum ýmsu sviðum. Aðferðir félagsráðgjafar Heildarsýn er sú aðferðafræði sem félagsráðgjafar nýta sér til þess að sinna fyrrgreindum verkum. Félagsráðgjafinn kynnir sér allar aðstæður, einstaklingsins eða Qöl- skyldunnar sem til hans leitar, þær sem hann hefur aðgang að. Hann skoðar einstaklinginn í ljósi þeirra ólíku aðstæðna sem hann stendur í hveiju sinni eins og fyrr er frá greint. Félagsráðgjafinn reynir að skilja samhengi aðstæðnanna og þau áhrif sem það hefur á einstakl- inginn. Til þess notar hann fræði- legar kenningar og reynslu í starfi. Hann býr sér til mynd af veruleika einstaklingsins, tengslum hans við aðra einstaklinga, stofnanir og stöðu hans í samfélaginu. Myndina reynir hann að hafa sem gleggsta og ítarlegasta og tryggir með við- tölum við einstaklinginn að myndin sé honum kunnugleg. Með því tryggir hann sér heildarsýn á að- stæður einstaklingsins eins og framast er hægt. Algengasta vinnulag í félags- ráðgjöf er viðtöl. Hópstarf er einnig notað. Vinnulagið er breytilegt eftir eðli mála og gerð stofnana. Rannsóknir er mikilvægur þáttur í félagsráðgjöf og nauðsynlegur til þess að varpa ljósi á aðstæður og til þess að þróa nýtanlegar vinnuað- ferðir. Heildarsýn í féiagsráðgjöf varpar ljósi á sameiginlega hagsmuni og stöðu einstaklinga og fjölskyldna og nýtist sem baráttuaðferð fyrir bættum kjörum. í stuttu máli sagt: Félagsráðgjafi veitir ráðgjöf í félagslegum og per- sónulegum málum einstaklinga. Hann vinnur út frá heildarsýn. Hann kynnir sér aðstæður og þarf- ir skjólstæðings og beitir faglegri þekkingu til þess að veita honum stuðning og meðferð. Félagsráð- gjafi fæst einnig við mótun og ný- sköpun félagslegra úrræða. Heild- arsýnin er sú aðferðafræði sem ein- kennir vinnubrögð félagsráðgjafans og leggur þannig grunn að sam- skiptum hans við stofnanir og ein- staklinga sem tengjast málum skjólstæðingsins. Höfundar eru starfandi félagsráðgjafar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.