Morgunblaðið - 10.01.1997, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 10.01.1997, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1997 31 »út imar sjúks morðingja. Höfuðsyndirnar sjö sáu_34.000 manns (18,7), sem sýnir að íslendingar hafa mikinn áhuga á góðum en líka hrottalegum sakamála- myndum; Lömbin þagna var í efstu sætunum fyrir nokkrum árum. Mynd af allt öðrum toga var í áttunda sæti en þar fór Eddie Murphy á kostum í endurgerð Jerry Lewis myndar sem kallaðist Klikkaði prófessorinn. Hana sáu 33.913 manns (18,6). Fyrsta myndin sem gerð var í tölvu eingöngu hitti einnig í mark hér heima. Hún hét Leikfangasaga og var frá Disney- félaginu og hana sáu 32.430 manns (17,8) en frábær talsetningin hefur haft sitt að segja fyrir aðsóknina. Og loks er Jim Carrey með aðra mynd á topp tíu listanum, Algjöra plágu, sem 27.200 manns sáu (14,9). Samanlagt voru því seldir tæplega 70 þúsund miðar á myndir Carreys svo hann er enn ókrýndur konungur gamanmynd- anna hér á landi. í ellefta sæti er svo Arnold Schwarzenegger í „Eraser“ en Arnold er ekki ókunnugur metsölulist- anum hér á iandi. Tvenna hjá Travolta Þegar litið er yfir aðrar myndir á listanum vekur athygli að skýstróka- tryllirinn Stormur eða „Twister" skyldi ekki ná inn á topp tíu listann en hún var önnur vinsælasta mynd sumarsins í Bandaríkjunum. Þá naut skoska myndin „Trainspotting" um- talsverðra vinsælda og gleðilegt er að ein besta og frumlegasta saka- málamynd ársins, Góðkunn- ingjar lögreglunnar, náði inn á listann. Einnig vekur at- hygli að John Travolta á tvær myndir á listanum, Brotna ör og Fyrirbærið. Alls eru 28 myndir á listan- um yfir mestsóttu myndir síð- asta árs sem er svipaður ijöldi og var í fyrra (27 myndir). Hann er tekinn saman eftir upplýsingum frá kvikmynda- húsunum í Reykjavík og er aðsóknin sem myndirnar hafa fengið á landsbyggðinni tekin með. Á listanum eru allar myndir sem fengu 15.000 manns í aðsókn eða meira og eru innifaldar myndir sem frumsýndar voru í lok árs 1995. Þær eru merktar sér- staklega. i myndirn- ndi 1996 .................. 70.093 manns ........................ 66.600 ....................... 50.041 ........................41.803 ....................... 38.555 ....................... 36.961 ....................... 34.000 ' Professor) ............33.913 ....................... 32.430 ....................... 27.200 ........................27.119 ....................... 26.637 ....................... 25.248 ....................... 24.404 ....................... 24.037 ....................... 23.788 ........................21.427 ........................21.305 ........................ 20.689 .........................19.729 .........................18.000 .........................17.800 .........................17.182 .........................17.073 .........................16.745 .........................16.364 .........................16.000 lecision) .....................15.578 ie Usual Suspects) .............15.147 Neytendasamtökin vara við samningum um kaup á orlofshlutdeild Lög til að tryggja rétt neytenda væntanleg Tugir manna hafa upp á síðkastið leitað til Neytendasamtakanna vegna kaupa á svokall- aðrí orlofshlutdeild sem fyrirtækið GCI íslandi ehf. hefur hafíð sölu á hér á landi í hótelíbúð- um á Suður-Spáni. Neytendasamtökin telja skorta á að fólk fái nægjanlegar upplýsingar um í hveiju orlofshlutdeildin felst. MEÐ KAUPUM á orlofs- hlutdeild eignast fólk afnotarétt í orlofshús- næði að lágmarki í eina viku á ári hveiju en samningarnir eru oft gerðir til 99 ára og ganga þeir í erfðir. Orlofshlutdeildinni fylg- ir oftast skiptiréttur sem felur það í sér að eigandi hennar getur skipt á rétti sínum fyrir vikudvöl annars staðar samkvæmt samningum þar að lútandi. GCI íslandi ehf. er hluti af GCI International sem rekur skrifstofur í Tævan, Hong Kong, Singapúr, á Spáni og íslandi. Fjöldi fólks hér á landi hefur verið boðaður á ferða- kynningu hjá fyrirtækinu, en fólki er boðin aðild að félagsskap sem kallast „Sunset Beach Club“ og kaupir viðkomandi rétt til að dvelja árlega á hóteli við Benalmadena strönd um lengri eða skemmri tíma. Þeir sem gera kaupsamning við GCI öðlast með því rétt til að skipta um dvalarstað í gegnum fyrirtækið RCI sem býður dvöl á um 3.000 stöðum í 80 löndum. RCI var stofnað 1974 og er það fyrirtæki frumkvöðull að sölu orlofshlutdeilda. Það er nú með 68 skrifstofur í 33 löndum og hjá því starfa 4.200 manns, en um þrjár milljónir manna í um 175 löndum eru í dag eigendur orlofshlutdeilda. Að sögn Olafar Norðdal, lögfræð- ings hjá samgönguráðuneytinu, er GCI Islandi ehf. með svokallað B-leyfi til reksturs ferðaskrifstofu, en slíkt leyfi á við um ferðaskipu- leggjendur sem ekki annast almenna farmiðasölu né umboðssölu og er tryggingarfjárhæðin fyrir slíkt leyfi ein milljón króna. Olöf segir að það hefði verið túlkunaratriði að GCI ís- landi ehf. þyrfti leyfi af þessu tagi. „Sumir telja reyndar að þeir hefðu kannski ekki þurft ferða- skrifstofuleyfi, en það var í rauninni öruggara fyrir þá að hafa þetta því þeir eru að útvega gistingu, en að öðru leyti fellur þetta ekki undir neina ferðaþjónustu,“ segir Ólöf. Ágeng sölustarfsemi Jón Magnússon, varaformaður Neytendasamtakanna, segir orlofs- hlutdeildir af þessu tagi vera mjög vondan fjárfestingarkost fyrir neyt- endur og því vari samtökin við þess- um viðskiptum. Hins vegar fari GCI íslandi ehf. alfarið eftir íslenskum lögum við sölu orlofshlutdeildanna, en lögin hér á landi séu hins vegar mun ófullkomnari en lög um neyt- endavernd í öðrum löndum. Þá séu þau ekki í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins frá 1994 um við- skipti af þessu tagi, en breyta þarf íslenskum lögum í samræmi við hana fyrir lok apríl næstkomandi. „í dag er ferðamálastarfseminni háttað með þeim hætti að þeir sem skipuleggja svokallaðar alferðir gera það með því að setja saman fleira en eitt atriði. Algengast er að sett sé saman ferð og gisting og það selt sem einn pakki. Ef þú ætlar í dag að kaupa þér ferð til vinsælla ferðamannastaða í gegnum ferða- skrifstofu þá kaupir þú það á lægra verði en ef þú ætlar að kaupa ferð og gististað þar fyrir utan sem þú kemur tii með að eiga með því að eiga það sem kallað er orlofshlut- deild, en það er möguleiki til notkun- ar á ákveðnu húsnæði í takmarkaðan tíma á ári. Fólk er að fjár- festa þarna fyrir 300-500 þúsund krónur eftir atvik- um og þessum peningum er meira eða minna á glæ kastað að mínu vití, eins og málum er háttað í dag. Það kann að vera að þetta breytist í framtíð- inni, en eins og staðan er í dag þá er þetta svona,“ segir Jón. Hann segir að yfirleitt gleymist að gera fólki nægjanlega góða grein fyrir því að þegar það sé búið að inna af hendi greiðslu fyrir orlofs- hlutdeildina þá sé það ekki búið með fjárfestingar sínar. Það tæki til við- bótar að sér ákveðna prósentutölu af útgjöldum við stjórnun, viðhald og fleira á gististaðnum. „Reynslan er sú að þessi fjárfesting skilar fólki aldrei neinum fjármunum eða rentum til baka og reynslan er líka sú að fólk stendur uppi með þess- ar eignir sem óseljanlegar. Þá er sölu- starfsemin í kringum orlofshlutdeild- ina mjög ágeng gagnvart hugsanleg- um kaupanda, hvort sem það er hér í Evrópu eða Bandaríkjunum. Það er hringt í fólk og því sagt að það hafi unnið eitthvað í happdrætti og því er sagt að verið sé að selja fasteign- ir, en það er rangt þar sem einungis er verið að selja einhvern nýtingar- hluta. Fólki er svo boðið á kynningar- fund og þar er það sett undir háþrýst- ing,“ segir Jón Ekki í samræmi við lágmarksreglur Hann segir að vegna þess hve um lítt fýsilegan fjárfestingarkost sé að ræða hafi Evrópuþingið og Evrópur- áðið gefið út sérstaka tilskipun í október 1994 um verndun kaupenda vegna tiltekinna þátta í samningum um kaup á réttindum til að nýta fast- eignir á skiptileigugrunni, en aðildarríkin þurfa að hafa sett í lög sín ákvæði í samræmi við tilskipunina fyrir lok apríl næstkomandi og enn hafi það ekki verið gert hér á landi. Hann segir augljóst að eigendum GCI íslandi ehf. sé þetta ijóst og svo virðist sem þeir hafi hafið starfsemi hér með skilmálum sem séu ekki í samræmi við þær lágmarksreglur sem gerðar séu kröf- ur um í tilskipuninni. „I sjálfu sér geta neytendasamtök ekki haft neitt við því að segja þótt fólk geri vitlausa samninga og nýti fjármuni sýna óskynsamlega. Neyt- endasamtökin og neytendahug- myndafræðin eru hins vegar til þess að benda neytendum á að hlutir séu ekki skynsamlegir," segir Jón. _„í gögnum sem ég hef séð frá GCI ís- landi eru ekki gefnir upp hlutir sem kveðið er á um í tilskipun Evrópu- ráðsins að eigi að gefa upp, en ÖCI íslandi er aðili sem fer eftir ísiensk- um lögum sem eru miklu ófullkomn- ari hvað snertir neytendavernd held- ur en lög flestra nágrannalanda okk- ar og á þeim grunni geta menn starf- að. Það er einmitt það sem er svo gremjulegt.“ Fyrst og fremst ákvæði um neytendavernd Tryggvi Axelsson, iögfræðingur hjá viðskiptaráðuneytinu, segir að drög að lagafrumvarpi um viðskipti með orlofshlutdeildir, sem byggist á ofangreindri tilskipun, liggi nú fyrir, en þau hafi undanfarið verið í sam- ráði milli ráðuneyta og því samráði ljúki væntanlega innan skamms. „Þetta frumvarp er samið á grund- velli þessarar ESB-tilskipunar, sem skylt er að verði innleidd eða um- hverft í réttarskipan allra aðildarríkj- anna fyrir 29. apríl 1997. Þá eiga öll EES-ríkin að hafa sett þessa til- skipun í sín lög, en lögin munu gilda um þessa samninga um orlofshlut- deildir," segir Tryggvi. Hann segir að með lögunum verði fyrst og fremst sett ákvæði um neyt- endavernd varðandi viðskipti með or- lofshlutdeildir. Samningarnir verða að vera á tungumáli kaupandans og í þeim verði ítarlegar reglur um þær upplýsingar sem neytandinn eigi að fá í samningi um orlofshlutdeildir, t.d. um skilyrði varðandi nýtingu við- komandi fasteignar, þá þjónustu sem viðkomandi hafi aðgang að og hvort honum sé skylt að inna af hendi einhveijar aðrar greiðslur en fyrir kaupin á orlofshlutdeild- inni. Þá eigi í samningnum að vera ákvæði um riftun sem fari eftir al- mennum samningalögum og í lögun- um verður ákvæði um að samningar um kaup á orlofshlutdeildum taki aldrei gildi fyrr en 10 dögum eftir undirritun. Þannig fái fólk ákveðinn umþóttunartíma og geti það sagt samningnum upp innan hans. Þessi 10 daga réttur getur síðan fram- lengst í þrjá mánuði ef seljandi or- lofshlutdeildanna hefur ekki uppfyllt þá upplýsingaskyldu sem lögin koma til með að kveða á um. Gert ráð fyrir umþótt- unartíma Fara alfarið eftir íslensk- um lögum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.