Morgunblaðið - 10.01.1997, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 10.01.1997, Blaðsíða 40
40 FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SIGURÐUR R. JÓHANNSSON + Sigurður Rúd- olf Jóhannsson var fæddur i Vest- mannaeyjum 14. október 1930. Hann lést á Landspítalan- um 2. janúar síðast- liðinn. Hann var sonur hjónanna Jó- hanns Björnsonar formanns og konu hans Ingibjargar __. Þórarinsdóttur. ' Sigurður var yngst- ur fjögurra systk- ina. Eldri systkini hans voru María, Karl og Þórir, sem nú eru öll látin. Auk þess átti Sigurður fóstursystur, Ragnhildi, sem lifir bróður sinn. Sigurður ólst upp í Vestmannaeyjum og var jafnan kenndur við Höfðahús, en svo nefndist foreldrahús hans. Sigurður kvæntist Kristínu Björgu Pétursdóttur 24. októ- ber 1954. Hún er dóttir hjón- anna Ingibjargar Ogmunds- dóttur og Péturs Laxdal. Sig- ...r i urður og Kristín bjuggu í Vest- mannaeyjum til ársins 1973 eða Upphaf þess að við Sigurður kynntumst og tengdumst má efa- laust rekja til sólbjartra nátta norð- ur á Siglfírði um miðja öldina. Síld- in var líf bæjarins og bræðslulyktin lá oft eins og þung slæða yfir bæn: um þegar logn var og blíðviðri. í þá daga var það ekki kallað meng- un heldur peningalykt og Siglfirð- ingar fögnuðu þeim ilmi og söknuðu hans sárt þegar hann síðar hvarf 'og með honum bjargræðið. Ungur Vestmanneyjapiltur leitaði í bjarg- ræðið eins og svo ijöldamargir aðr- ir en hann fann ekki aðeins sumar- launin sín við síldarlöndun á Siglu- fírði, heldur einnig unnustu er síðar varð eiginkona og lífsförunautur. I sumarlok fluttist Kristín systir mín til Vestmannaeyja og þau Sigurður hófu búskap þar. Eins og gefur að skilja var ekki mikill eða greiður samgangur á milli Vestmannaeyja og Siglufjarðar á þessum árum, báðir staðirnir samgöngulega mjög einangraðir. Það leið því nokkur tími þar til ég kynntist þessum nýja mági mínum að einhveiju gagni. Þegar lyktin hvarf frá Siglufirði og atvinnan þar með, þá varð að leita annað eftir atvinnu og lífs- björg. I Vestmannaeyjum var næg vinna og þótt systir mín og mágur byggju þröngt með nýfæddan son- inn þá var ég boðinn velkominn til dvalar og Sigurður tryggði mér vinnu í Hraðfrystistöðinni þar sem hann sjálfur vann þá. í nær hálft ár fórum við saman til vinnu á fram að gosi, lengst af á Brimhólabraut 32. Eftir gos bjuggu þau í Reykjavík. Börn þeirra eru: 1) Pétur Laxdal, kvæntur Helgu Guðlaugsdóttur, þau eiga þijú börn, Kristínu Björgu, ívar og Lindu. 2) Ingibjörg, gift Hjálmari Sveins- syni og eiga þau þijú börn, Svein Inga, Elfu Björk og Elísu Ösp en fyrir átti Ingibjörg Sigurð Grétar Kristjánsson. Fyrir hjónaband eignaðist Sigurður tvo syni, a) Magnús, kvæntan Ástu Sig- tryggsdóttur og eiga þau þrjú börn, Eirík, Valgeir og Lindu, og b) Ólaf Oddgeir. í Vest- mannaeyjum vann Sigurður lengst í Fiskimjölsverksmiðju Vestmannaeyja, en í Reykjavík sem vaktmaður á Landspítalan- um. Útför Sigurðar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. morgnana, unnum saman allan daginn og fórum síðan saman heim á kvöldin og eyddum saman kvöld- inu. Við kynntumst mjög náið þessa mánuði og þau kynni voru góð. Sigurður var vinamargur og vin- sæll. Hann hafði sérstaklega létta lund og naut sín vel glaður í góðra hópi. Hann var tilfinningaríkur og hrifnæmur og þoldi illa ef hallað var á það sem honum var kært en það var margt og flest tengdist það Vestmannaeyjum. Hvergi leit hann fegurri fjöll né fegurri dal en heima og ekkert félag var betra eða átti betra skilið en íþróttafélagið Týr - alveg sama hvernig því gekk. Feg- urstu lögin voru lög Oddgeirs og mesta hátíð á íslandi var Þjóðhátíð í Eyjum. Sigurður var einlægur sósíalisti og verkalýðssinni og margar snerrurnar átti hann ef honum fannst hallað ómaklega á sósíalista - og væri hallað á sósíal- ista þá fannst honum það ætíð ómaklegt. Eftir þessa fyrstu hálfs árs dvöl mína búandi hjá þeim hjónum, þá kom ég oft út til Eyja, sem gestur, með konu minni og fjölskyldu. Þær voru margar Þjóðhátíðirnar sem við áttum í tjaldi með Sigurði og Krist- ínu. Andrúmsloftið á Þjóðhátíð í þá daga var nær ólýsanlegt. Allir voru velkomnir alls staðar. Matur var á allra borðum fyrir gesti og gang- andi. Ef einhver heyrði söng og langaði að taka þátt í gleðinni þá var bara að ganga inn. Ekkert tjald var svo lítið að ekki væri rúm fyrir einn í viðbót! t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SÍMON S. MARIONSSON, áður til heimilis á Álfaskeiði 43, Hafnarfirði, sem andaðist 26. desember sl., hefur verið jarðsunginn í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug. Fyrir hönd aðstandenda, Ásthiidur Simonardóttir, Ásthildur Ágústsdóttir. Lokað Lokað verður til 14.00 í dag vegna jarðarfarar GUÐRUNAR JONSDÓTTUR. Iðunn ehf., tískuverslun v/Nesveg, Seltjarnarnesi. Þjóðhátíðardaga naut Sigurður glaðværðar sinnar, hrifnæmi, vin- sælda og sönggleði til fullnustu og við hin, sem vorum með honum, nutum þess einnig. Þrátt fyrir léttleika og glaðværð átti Sigurður við veikindi að stríða nær allt sitt líf. Hann átti við höfuð- mein að stríða frá því í æsku, sem orsakaði það að stundum missti hann tengsl við umhverfið í nokkrar sekúndur í senn. Alla ævi varð hann því að vera á sterkum lyfjum, sem setti mark á lífsþrek hans þegar aldur færðist yfir. Aldrei lét hann þó sjúkdóminn buga glaðværðina eða félagatengslin. Eins og hjá svo mörgum Vest- mannaeyingum urðu straumhvörf í lífi Sigurðar og Kristínar við eldgos- ið í Vestmannaeyjum 1973. Þá fluttu þau til Reykjavíkur og hafa verið búsett hér síðan. Fyrir röskum áratug keyptu þau sér land austur við Apavatn. Þegar ég leit landið fyrst sá ég aðeins þýfða fúamýri. vaxna sinu, á algjör- um berangri. Á þessum bletti hafa þau Sigurður og Kristín dvalið öll sumur síðan og í dag dettur engum, sem lítur landið, í hug fúamýri eða berangur. Ótrúleg gróðurvin hefur litið dagsins ljós þarna við vatnið og þar er risið myndarlegt hús með nafni æskuheimilisins; Höfðahús. Fyrir nokkrum árum varð Sig- urður að gangast undir hjartaupp- skurð. Eftir þá aðgerð náði hann aldrei fullri heilsu á ný. Þrekið minnkaði frá ári til árs og fyrir tveimur árum varð hann að hætta að vinna. Þótt augljóst sé hvert stefnir kemur andlát vinar alltaf sem högg. Nú þegar Sigurður er allur er notalegt að ylja sér við arin minninganna. Allar góðu stundirnar, sem við áttum saman, lifa og munu lifa á meðan einhver man þær. Gróðurreitur austur við Apavatn mun um ókomin ár vitna um þá sem gróðursettu og hlúðu að veikum græðlingum og gerðu þá að styrkum stofnum. Ár hvert mun hann grænka til heiðurs minn- ingu Sigurðar Jóhannssonar, sem ásamt konu sinni og bömum gaf honum líf. Systur minni börnum og barnabörnum votta ég mína dýpstu samúð. Siguijón Pétursson. Elsku afi. Það er svo margt sem mig langar til að segja þér, það er svo margt sem reikar um hugann á stundu sem þessari. Þegar pabbi hringdi, morguninn sem þú kvadd- ir, vissi ég strax að þú værir far- inn. Ég skynjaði návist þína svo sterkt og ég veit að þú verður áfram hjá okkur og verndar okkur öll og það hjálpar okkur mikið. Ein af mínum fyrstu minningum er ein- mitt um þig, „komdu nú Kristín mín, núna skulum við syngja sam- an“. Þú kenndir mér svo ótal margt, s,s. að dansa, syngja og síðast en ekki síst á lífið sjálft. Þú hafðir líka alltaf svo mikinn áhuga á öllu því sem ég tók mér fyrir hendur og hvattir mig óspart áfram. Það hefur alltaf yljað mér um hjartarætur meira en orð fá lýst. Það var sama hvort „litla Kristín" spilaði á tón- leikum, lék i leikriti eða sparkaði bolta, alltaf komstu og heiðraðir mig með nærveru þinni. Þú hefur veitt mér meiri stryk og innblástur en þig grunar og allt sem þú kennd- ir mér og sagðir er vel geymt í hjarta mínu. Ég brosi i gegnum tárin, þegar ég hugsa um allar ferðirnar í Höfða- húsið. Þá var grillað, farið í sigling- ar og auðvitað reytt svolítið af arfa. Já elsku afi, gróður og garðar áttu hug þinn allan og hvergi naustu þín betur en einmitt í garðinum við Höfðahúsið, með hausinn á kafi í mold og drullu, og eitt skal ég segja þér, að loforðið sem ég gaf þér um Höfðahúsið mun ég efna, sama hvað ég þarf að leggja á mig til þess, og ef þaj) dugar ekki þá legg ég bara meira á mig en það. Þegar Lindu litlu var sagt að afi væri dáinn, spurði hún að bragði „og hvenær kemur hann þá aftur?“ Það sama hugsaði ég fyrst eftir að ég vissi að þú værir farinn, það er svo óraunverulegt að fá aldrei að heyra sönginn þinn eða hláturinn aftur. Það er svo skrítið að hugsa til þess að næst þegar „litla Krist- ín“ stendur á stórum tímamótum, eins og að útskrifast úr Háskólan- um, að þá komist þú ekki til að fagna með mér. En ég veit að þú verður þar nálægt eins og alltaf. Ég veit líka, að þú hafði áhyggjur af því að Linda litla myndi ekki muna eftir honum afa sínum, þú sagðir mér það þegar þú komst í vetur og gafst henni mynd af þér. Ég lofa því að hún mun aldrei gleyma þér, ég ábyrgist það, enda er svo margt sem segja þarf, þegar þú ert annars vegar. Ég mun líka miðla til hennar öllu því sem þú kenndir mér. Þessum síðustu jólum mun ég aldrei gleyma. Ég þakka Guði fyrir að hafa fengið að eyða þeim með þér. Á aðfangadagskvöld baðstu mig og Sigga frænda, að vera ömmu til halds og trausts þeg- ar þú værir farinn, það munum við gera eftir fremsta megni og eins og þú veist verður Siggi hjá ömmu í vetur á meðan hann klárar skólann. Elsku afi, takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og okkur öll, og að lokum þakka ég Guði fyrir að hann Siggi í Höfðahúsi var afi minn. Þín að eilífu Kristín Björg Pétursdóttir yngri. Að heilsa ókunnugum, sem á vegi manns verður með einu hand- taki innsiglar ekki framhald langrar vináttu í ólgusjó mannlífsins. Þetta er okkur hjónum efst í huga, þegar svo sviplega hverfur frá okkur hugljúfur nágranni úr höfuðborginni og spurði okkur, hvort við vissum um nokkurn land- skika hér til sölu undir sumarbú- stað. Við höfðum sjálf verið þar niðurkomin í fimm ár í níu fermetra bárujárnsskúr, sem var okkur sum- arhöll í svokölluðu Vatnsholtslandi, með Mosfell fyrir augum, að ógleymdu Apavatni, spegilslétt þessa stundina. Við gáfum honum og þeim sem með honum voru allar mögulegar upplýsingar og sögðum frá reynslu sem við höfðum af þessum landsins gæðum, að þurrir blettir væru frek- ar fáir, en að öðru ieyti var nóg af freðmýrunum, sem betur hentaði vaðstígvélum. Undir lokin vísuðum við til landeigandans, sem ætti í fórum sínum loftmynd af dýrðinni, sem þau sæju nú með eigin augum, þúfa við þúfu, sem kostar átak að breyta til batnaðar; þetta væri berjalaust land, ef börn vildu tína upp í sig. En mér var sagt við út- borgun, að Apavatn væri ekki ama- legt, nógur fiskur í allar máltíðir, ekki bara urriði og bleikja, heldur þar að auki væri sá lottóvinningur fyrir hendi að fá einn og einn lax til tilbreytingar, því það væri sann- að mál, að þessi konungur veiðifiska hefði orðið eitthvað áttavilltur, hvernig sem það gat gerst, og fá því þessar „smuguveiðar" í kaup- bæti. Þar sem kynni mín af Sigurði Jóhannssyni voru nær öll í léttari kantinum, vona ég að mér verði fyrirgefið það sem sækir á hugann þegar ég kveð hann hinstu kveðju, því ferðir okkar hvors til annars voru ekki langur gangur, þar sem landskikar okkar lágu hlið við hlið, en fórum færri heimsóknir í aðra bústaði, þótt vegalengdir væru ekki til að aftra því. Við urðum fljótt samstiga að gefa ekkert eftir í veiðiskapnum og fórum undantekningarlaust einir á vatnið þótt fjöldi bústaða hafi sett svip sinn í kringum okkur. Til að byija með rerum við eins og forfeð- ur okkar gerðu mann fram af manni. En svo þurftu erfiðir sjúk- dómar að hrella okkar, svo við sáum þann kost vænstan að söðla um til að iétta okkur erfíðið og keyptum því litla utanborðsmótora, sem vafði nokkuð upp á sig, því bændaútgerð- inni á bökkum Ápavatns var ekki hlátur í huga vegna þess arna. En náðarsamlega fengum við þó und- anþágu, eftir útskýringar á sjúk- dómum okkar og læknisvottorð upp á það gætum við afhent með hraði. Sá öryggisventill var okkur skjöld- ur, því eins og hendi sé veifað breyt- ist spegilslétt vatnið í þungar öldur og rok í fangið til lands. Hin fyrstu sumur var meiri kvóta að fá, en hefur farið mikið minnk- andi, þótt allar mögulegar platgræj- ur færu útbyrðis til að lokka þessa nytsömu sakleysingja á beituna. En svo gerðist eitt sinn hið skemmtilegasta. Það var rykkt kröftuglega í bæði færin okkar, og það var ekki að sökum að spyija; þvílikur stærðar silungur kom hátt upp úr vatnsborðinu og í látunum flæktust færin okkar saman, en hann skyldi ekki sleppa úr greipum útgerðar Sigurðar og Kristins. Oft- ar en einu sinni misstum við minni fisk af færunum, svo okkur lá við gráti einsog „sægreifunum" úti í hafsauga. Eftir að hafa klófest tröllið og rotað, jafnvel rotað aftur til örygg- is eftir að hann var dauður og það var engin spurning, að þetta væri lax. Við höfðum að vísu ekki nóga skilgreiningu á stórsilungi og laxi, því laxveiðar úr ám landsins voru engar frá okkar hendi, svo var kaupmættinum fyrir að þakka. Til að taka allan vafa frá okkur, komum við á leiðinni heim til bú- staðar, sem í bjó fróðleiksmaður um alla lífkeðjuna og börðum þar dyra. Húsbóndinn opnaði fagur- brúnn á sundskýlu og augun í hon- um víkkuðu til allra átta þegar hann leit veiðina. Við drógum ekki við okkur að kreíjast svara: Er þetta ekki ósvikinn lax? Komið inn fyrir svo ég geti gefið ykkur kaffi, á meðan ég fletti fiskabókinni, þó ég eigi ekki að þurfa þess. Svo opnaði hann kjaftinn á veiðinni og fór eins og myndhöggvari höndum yfír lista- verk. Eftir útreikning á lengd, þyngd og höfði skepnunnar kom úrskurðurinn, þetta er ekki lax, en stærsti silungur, sem ég hef séð á minni lífsfæddri ævi. Verið yfir ykkur hamingjusamir þegar þið skolið honum niður. Við kvöddum með viðeigandi brosi til dómarans. Eftir alla veiðitúrana vorum við Sigurður heitinn sammála um að greinarmunur væri á bleikju og urriða. Urriðinn var frekar latur á spriklið, þegar dregið var að bátn- um, en þeim mun meiri hamagang- ur hjá bleikjunni; líkt og kvenna- hreyfíngar haga sér. Sigurður var einstaklega hláturmildur svo augun tindruðu, þegar mér datt í hug ein- hver vitleysan, sérstaklega viðkom- andi kátu kvenfólki. Ekki verður svo minnst Sigurðár að láta hjá líða hvað honum var hlýtt til stærri sem smærri dýrateg- unda sem hann kom auga á í kring- um sig. Hann bókstaflega talaði til þeirra og skipti engu máli hvort það var hestur, ungar í hreiðri eða haga- mús, sem kom mörgum til að stappa niður fæti. Hann gaf henni máltíð úr lófa sínum, ef hann gat gómað hana. Þannig var innrætið til mál- leysingjanna. Sigurður heitinn og eftirlifandi kona hans, Kristín Pétursdóttir, áttu það hvort með öðru að vera samhent hjón í sinni lífsbaráttu. Þau drógu ekki af sér að breyta þúfna- geri kringum bústaðinn, með hand- afl eitt að vopni, í grænar flatir og tijágróður sem teygði fíjótt úr sér, svo manni finnst vera nokkuð sann- færandi mælikvarði í þeim upp- vexti, hvað hratt líður okkar tími, sem erum komin af léttasta skeiði. Ég veit fyrir víst, að Sigurður hefði ekki kært sig um einhver mærðarskrif. En okkur hjónum er harmur í huga, þegar við kveðjum það handtak, er heilsaði okkur ljúfl- ingurinn Sigurður Jóhannsson. Hafi hann þökk fyrir allt og allt. Svo margt hefur orðið á annan veg en ætlað var, hvort mundi nokkur sem hér á leið um leita það uppi sem lífið af hendingu dæmdi á okkur. (Matthías Johannessen) Við hjónin vottum eiginkonu hans og ættingjum samúð og óskum þeim blessunar. Kristinn Gísli Magnússon.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.