Morgunblaðið - 10.01.1997, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 10.01.1997, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1997 25 LISTIR „MARGRÉT Rún Guðmundsdóttir lýkur námi sínu með kjark- aðri og mjög metnaðarfullri kvikmynd, Albaníu-Láru,“ stendur meðal annars í umsögn á prófskírteininu. Islenskt hand- verk í Ráðhúsinu Margrét Rún kvik- myndagerðarmaður Útskrif- ast með hæstu einkunn MARGRÉT Rún Guðmundsdótt- ir lauk fyrir skemmstu námi í kvikmyndaleikstjóradeild Kvik- myndaháskólans í Miinchen með hæstu mögulegri einkunn. Er það afar sjaldgæft - gerist í minna en 5% tilvika, að sögn Margrétar Rúnar. „Margrét Rún Guðmundsdótt- ir lýkur námi sínu með kjark- aðri og mjög metnaðarfullri kvikmynd, Albaníu-Láru,“ stendur meðal annars í umsögn á prófskírteininu. „Hún segir frá út frá sjónarhóli barns sem gefur henni tækifæri til að leika sér að raunverulegum og ímynd- uðum heimi, bæði hvað form og innihald snertir. Þennan leik setur hún inní kvikmyndamálið og færir það upp á plan lista- mennsku af hæstu gæðum og þar eð hún notar alla brellu- möguleika — raunverulega og elektróníska — sem til eru í dag er myndmálið þrungið næstum ótakmörkuðum krafti. Tæknileg útfærsla myndarinnar er einnig á hæsta plani og heimildarvinn- an að baki sögunni gerð af sam- viskusemi og alúð. Kvikmyndin, sem bæði skelfir áhorfandann og heillar hann, fær bestu mögu- legu einkunn sem prófnefndin getur veitt.“ „Ég bjóst alls ekki við þessu,“ segir Margrét Rún. „Ég vissi að vísu að einkunn mín í samskipta- fræði hlyti að vera ágæt, því ég hafði skilað þar inn ritgerðum sem ég lagði töluverða vinnu í, annars vegar um stöðu óháðra kvikmynda- og sjónvarpsfram- leiðenda í flestum löndum Evr- ópu síðastliðin tíu ár og hins vegar um nýtt kvikmyndamál eða elektrónískt myndmál." Margrét Rún kveðst á hinn bóginn hafa kviðið einkunninni úr leikstjóradeildinni, þar sem hún hafi heyrt um fjölda nem- enda sem hefðu fengið heldur „kvikindislegar umsagnir", svo sem að þeir hefðu enga leik- stjórahæfileika og ættu frekar að klippa myndir. „Ég vissi að ég yrði ofsalega reið, ef eitt- hvað sem mér þætti móðgandi stæði í skírteininu, og var því ekkert að flýta mér að sækja það. Auðvitað er þessi umsögn mikilvæg, því hún er eins og stimpill sem fylgir manni alla ævi. Ég var því búin að semja um það við manninn minn, að þegar ég loksins sækti það myndi hann lesa það fyrst yfir til að segja mér hvort ég ætti yfir höfuð að lesa það og hversu reið hann héldi að ég myndi verða.“ SÝNING á úrvali úr flóru íslensks listhandverks eftir 24 listamenn verður opnuð í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag, föstudag, kl. 16. Sýningin er samstarf Handverks, reynslu- verkefnis á vegum forsætisráðu- neytis, og Happdrættis SÍBS til kynningar á íslensku listverki. Sýn- ingin mun standa yfír til 14. jan- úar. Guðni Franzson klarinettuleik- ari spilar við opnunina. Skartgripir, klæði, leikföng, húsmyndir og hattar eru meðal þess sem til sýnis verður. Sýningar- gripirnir eru unnir úr leir, leðri, ull og silki, gulli og kopar, gleri og SVAVA Björnsdóttir myndhöggv- ari opnar sýningu í Nýlistasafninu, Vatnsstíg 3b, laugardaginn 11. janúar kl. 16. í texta sem Halldór Björn Run- ólfsson skrifar með sýningunni segir: „Þótt höggmyndir Svövu Björnsdóttur virðast næsta aug- ljósar í öllum sínum formræna ein- faldleik búa þr yfir mun meiri flækjum en títt er um jafn sam- hverf og kerfisbundin listaverk. Það er ekki erfitt að koma auga á ýmsar módernískar forsendur þeirra svo sem einhliða val á efni- viði, sífellda endurtekningu staðl- aðra grunneininga og augljósa tré. Munirnir á sýningunni eru vald- ir af Handverki og eru á vinninga- skrá Happdrættis SÍBS 1997. Starfsemi Handverks flutti í byrj- un árs að Amtmannsstíg 1 og þar verður skrifstofa sem veitir þeim þjónustu sem hafa eða vilja hafa handverk að atvinnu. Veitt er ráð- gjöf um markaðssetningu, sölumál, hönnun, námsleiðir í handverki og fleira. Handverk gefur út frétta- blað, skipuleggur sýningar á hand- verki og nytjalist og vinnur að ýumsum sérverkefnum í þágu ís- lensks handverks. Eitt slíkt er sam- starfið við Happdrætti SÍBS. formgerð. Inntak þeirra býr samt yfir margslunginni merkir.gu, ekki síst vegna staðsetningar verkanna á mörkum tveggja ólíkra strauma, formrænna og hugrænna. Notkun Svövu á pappa er vissulega mód- ernisk vegna þess að pappír sem efni í þrívíða list á sér litla sem enga sögu. Hins vegar má lesa ómæld söguleg áhrif úr mótun hennar á pappanum og litunum sem hún blandar við massann. Þar koma ekki síður í ljós tengsl verka hennar við málaralist fyrri tíðar en höggmyndlist okkar tíma.“ Sýningin er opin daglega frá kl. 14-18 og lýkur 26. janúar. Svava Björnsdóttir í Nýlistasafninu Sófasett leðulíki 3+2 Áður 69.300 Sömu tilboð á geisladiskum einnig í báðum verslunum okkar. Tónaflóð T ^■íHI riötubúðin Tónaflóð Bíldshöfða 18 1 CJllCvIlCJLr Laugavegi 20 S:567 - 1830 S:552 - 0í81 Vinyl Lp plötur Hundruðir titla á 200 kr. stk. Kassettur Mikið úrval frá 99 kr. starúm 11 cm þykkri dýnu. íður 8.998 4#998 stgr. „„jtsófasctt + borð Verð frá 19.99S stgr. Kjarakaup ehf Faxateni 10, sími 568 4910. Visa og Euro raðgreiðslur hefst í dag kl. 10:00 í Framtíðarmarkaðnum Faxafeni 10 (þar sem Kjarakaup og Heildsölulagerinn eru til húsa.) Versluninn Tónaflóð hefur um tveggja ára skeið boðið ánægðum viðskiptavinum sfnum upp á tónlist af ýmsu tagi á verði sem þekktist ekki áður (undir 500 kr.) Nú bjóðum við enn betur ! Geisladiskar jD% afisláttur af jólatónlist (af okkar lága verði.) 20% afsláttur af öllum öðrum geisladiskum (af okkar lága verði.) Christmas with Nat and Dean Nat King Cole The Christmas Album Venjulegt verð 999 kr. Verð nú 498 kr. Ýmsir ísiensk poppsaga 1972 - 1977 Ýmslr Lordagsbal Ýmsir 2cd Now 35 Rlchard Clayderman The Collection Jólatré og jólavörur Nú á 80% Boxrðm 90x200 * n 990 Verð áðurl 2.990 HÚ B.99B stgr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.