Morgunblaðið - 10.01.1997, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 10.01.1997, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Nýr meirihluti D-lista og F-lista myndaður i Vesturbyggð: HEIMAMENN óttast að rebbaátið sé farið að segja verulega til sín . . . Þijár kindur sóttar í Fjörður ÞRJÁR kindur voru sóttar í Fjörður fyrr í vikunni, en þær höfðu orðið eftir við leitir þar síðasta haust. Átta manna leiðangur fór eftir kindunum og var bæði farið á bátum og á vélsleðum. Eitt lamb sem skilið hafði verið eftir í göngum í haust var sótt en það var frá Fagrabæ og þá voru tvær fullorðnar ær frá Grýtu- bakka teknar heim í hús en þær höfðu ekki fundist á liðnu hausti. Kindurnar frá Grýtubakka voru við Botn í Þorgeirsfirði, en lambið fannst frammi á Keflavíkurdal. Vel á sig komnar „Það er ekki hægt að segja að þær hafi verið spikfeitar, en þó vel á sig komnar," sagði Stefán Kristjánsson, bóndi á Grýtubakka. Vitað væri um eina kind á þessum slóðum, hún hef- ur haldið sig í klettum og sést af sjó. Ætla menn að sögn Stefáns að athuga hvort hún færir sig ekki, óþarfi sé að leggja sig i hættu fyrir eina kind. „Það hefði sjálfsagt verið gert í eina tíð, þegar menn voru að berjast fyrir lífi sínu, en nú kaupa menn sér bara pastapoka." Óvenjumikill snjór er nú í Fjörðum. Stefán vitnaði til eldri manna í hreppnum sem sögðu að jörð hefði ævinlega verið auð fram til áramóta. Mikið hefði snjóað í logni í nóvember síðastliðnum og væri hann enn yfír nú. Morgunblaðið/Kristján STEFÁN í fjárhúsunum á Grýtubakka með ána sem fannst við Botn í Þorgeirsfirði í vikunni. Hún er dálítið kalin á snopp- unni, en var að öðru leyti vel á sig komin. Safnkortshafár fá aö auki 3% afslátt I punktum. allttil alls Gagnvegi • Skógarseli • Stórahjalla • Ægisíðu • Lækjargötu Hafnarfirði Cheerios 425 gr. Pastaréttur frá Sóma Vegur náttúrulífsmynda vaxandi Get vel vikið fyrir Attenborough PÁLL Steingrímsson vann til umtalsverðra metorða á stærstu sýningu náttúrulífsmynda sem haldin er í Evrópu á ári hverju í franska þorpinu Menigout. Alls berast til dómnefndar 300 náttúru- lífsmyndir og velur sérstök dómnefnd 40 umræddra kvikmynda til úrslita, en áður hefur hún valið tíu hinna sigurstranglegustu og er höfundum þeirra boð- ið á hátíðina. 30.000 gestir streyma til þorpsins á ári hverju til þess að fylgjast með rjómanum af þessari grein kvikmyndagerðar. Páll var fyrst inntur eftir þvr' hvernig það var til að hann var staddur þarna. „Mér var boðið, ekki bara að taka þátt í hátíðinni, heldur var ég einn af þeim tíu sem fékk sér- stakt boð um að koma út. Þetta var mikill vegsauki fyrir mig, sér- staklega þegar ég _sá í hvaða fé- lagsskap ég var. Ég svitna ekki þótt ég þurfi að víkja fyrir Atten- borough og vita það að bæði hann og fleiri sem þarna voru og standa í fremstu röð hafa aðgang að öllum þeim peningum semjæir þurfa til framleiðslu sinnar. Ég var þarna með kvikmyndina mína „Nábúar — Æður og maður“ og þó hún fengi ekki eitt af þremur efstu sætunum þá er ég ánægður með að vera í hópi 10 bestu af 400.“ Þetta er ekki beint þekktasta borg Frakklands? „Nei, og það var pínulítil kómík í því hvernig mér gekk að komast á staðinn. Þegar ég stóð einn á brautarpalli í París og var orðið ljóst að það var engin móttöku- nefnd og auðsjáanlegt að enginn á staðnum ætlaði að tala við mig, fór ég upp á jafnsléttu og reyndi við leigubílana. Ég reyndi alls að tala við níu leigubílstjóra og reyndi að bera fram nafnið Menigout með öllum þeim tilþrifum sem mér kom til hugar en enginn þeirra skyldi mig fyrr en einn þeirra kveikti á perunni er ég dró upp miða með teikningu sem var tákn hátíðarinn- ar, en það er fugl með kvikmynda- slaufu um hálsinn. Ég fór því upp í bílinn og síðan var ekið um skóga og engi í næstum hálfa aðra klukkustund. Þá stöðvaði sá franski bílinn og sagði: Menigout! Ég var undrandi, því það eina sem ég sá var gamall súrheysturn. En skyndilega sá ég fuglstáknið á tuminum og þá fóru hlutirnir að breytast. Skammt þarna frá var byggðin og þessi tröllstóra íþrótta- skemma sem tók 7.000 manns í sæti á hverri sýningu. Þarna var sýnt viðstöðulaust tólf tíma á dag, frá klukkan tvö á daginn til tvö á nóttunni og margar frábærar myndir á ferðinni. Mér var sýnd mikil upphefð þarna og ég gat auk þess glatt forráðamenn hátíðarinnar þegar ég fór í pontu og kynnti mig. Sagði þá að það kæmi mér ekki á óvart þótt svo vel tækist til með stóra uppákomu í litiu plássi. Sjálfur þekkti ég það frá minni heima- byggð og gat þess að það hefði aðeins verið einn Oddgeir Krist- jánsson. Þetta gerði ekki síst lukku þar sem áheyrendur mínir höfðu ekki hugmynd um hver þessi Odd- geir væri. En það er tilfellið, það er nóg að einn maður _____________ sé magnaður þá getur hann breytt heilu bæj- arfélagi." Hvernig verður þessu fylgt eftir? „Ég fékk fyrir skömmu bréf frá formanni dóm- nefndarinnar í Menigout þar sem hann hvatti mig til að sýna æðar- myndina á stórri kvikmyndahátíð fyrir náttúrulífsmyndir sem haldin er í Montana í Bandaríkjunum á hveiju vori. Við Hjörtur Howser, Páll Steingrímsson ► Páll Steingrímsson er Vest- mannaeyingur í húð og hár og hefur verið kvikmyndagerðar- maður um langt árabil, ýmist sem framleiðandi, leikstjóri eða myndatökumaður. Hann er fæddur 25. júlí 1930. Árið 1993 stofnaði hann kvikmyndafyrir- tækið Kvik hf. og hefur síðan sótt í vaxandi mæli á erlenda markaði og í erlenda samvinnu um gerð heimildarmynda sem einkum fjalla um samskipti manns og náttúru, menningu og listir. Maki Páls og meðeigandi í Kvik er myndlistakonan Rúrí. Ánægður að vera í hópi 10 bestu af 400 samstarfsmaður minn, erum nú að stytta myndina þar sem tímalengd heimildarkvikmynda í Evrópu hentar ekki fyrir Bandaríkin. Myndin verður tilbúin fyrir vorið. Þá er þess að geta, að mikil hreyfing er á myndum mínum og ég er ekki viss um að almenningur geri sér almennt grein fyrir þeim árangri sem náðst hefur miðað við að hér er um heimildarmyndagerð að ræða. Alls hafa fjórar af mynd- um mínum, um Surtsey, hvali og hvalveiðar, villigæsir og æðarfugl- inn verið sýndar erlendis. Það má segja að þær séu nokkurs konar myndaröð, því þær fjalla allar um sambýli manna og náttúrunnar. Myndirnar hafa verið sýndar í Þýskaiandi, Frakklandi, Japan, öll- um Norðurlöndunum og í fyrra voru þtjár myndanna sýndár þijá daga í röð í spænska ríkissjónvarp- inu og vöktu mikla athygli. Ef til vill opnast glufur á Bandaríkja- markaði eftir hátíðina í Montana í vor, hver veit? Þú ert nýlega kominn frá Amsterdam, hvað varstu að bauka þar?_ „Ég er í vaxandi mæli að leita eftir samfloti við erlendar sjóvarps- stöðvar til að framleiða myndirnar með mér. Það hefur gengið vonum framar síðustu tvö árin. I Amsterd- am lagði ég fram hugmyndir og drög að sjónvarpsmyndum um lunda og lundakarla annars vegar og sögu norrænnar tónlistar hins vegar. Ég ræddi alls við ellefu að- ila og þótt ekkert sé komið út úr þeim þreifingum fékk ég nógu góðar undirtektir til þess að vera hóflega bjartsýnn.“ Svo varstu að Ijúka við mynd um sögu þjóðhátíðarinnar í Vest- mannaeyjum? „Já, við framleiddum sjö hund- ruð eintök og settum í sölu í Eyjum _________ rétt fyrir jól. Við vorum of seinir til að ná ár- angri í jólasölunni. Ég byija myndina á árinu 1973 til þess að ná —— Stebba Pól með. Síðan eru tökur frá 1980-86 og aftur 1994-95. Það skemmtileg- asta við myndina er klippivinnan þar sem fólk beinlínis eldist á með- an það horfír á myndina. Þá kemur þarná fram þverskurður í veðri og mannlífi. Þetta var skemmtilegt verkefni“.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.