Morgunblaðið - 10.01.1997, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 10.01.1997, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1997 49 BRÉF TIL BLAÐSINS Til ritstjóra Morgunblaðsins Frá Jónasi H. Haralz: í TILEFNI af Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins þann 5. þ.m. vill undirritaður koma á framfæri nokkrum ábendingum til glöggvunar þeim málefnum sjáv- arútvegsins, sem þar eru tekin til umijöllunar. í upphafi síðastliðins áratugar var svo komið, að fiskistofnar hér við land voru í bráðri hættu vegna offjölgunar fiskiskipa og ofveiði, er henni fylgdi. Um leið hafði hag- kvæmni fiskveiða stórlega minnk- að. Við þessu var brugðist með róttækri breytingu, _ þegar aflak- vótum var komið á. Árangur þeirr- ar breytingar hefur verið mikill, í sannleika sagt ótrúlega mikill. Fiskistofnar eru ekki lengur í hættu, þótt þörf sé mikillar aðgát- ar, og veiðar eru orðnar hagkvæm- ar á nýjan leik, þótt enn sé eftir meiru að sækjast í þeim efnum. Stór og öflug útgerðarfyrirtæki hafa orðið til í fyrsta sinn frá því snemma á þessari öld, jafnhliða því sem minni sérhæfð fyrirtæki hafa sprottið úr grasi. Ekki hafa komið fram tillögur um annars konar stjórnun fiskveiða, sem líkur eru á að gætu náð svipuðum ár- angri, né heldur hafa slíkar leiðir verið farnar í öðrum löndum. Morgunblaðið telur, að sú skipt- ing arðs, sem af þessum stjórn- unaraðferðum leiðir, fullnægi ekki eðlilegum réttlætiskröfum. Við þetta er tvennt að athuga. í fyrsta lagi verður nýtt fyrirkomulag, hvað svo sem það kann að vera, að geta skilað svipuðum árangri og hið núverandi varðandi verndun fiskistofna og hagkvæmni rekstr- ar. Ef það tekst ekki, verður auk- ið réttlæti í skiptingu arðs til lí- tilla hagsbóta. I öðru lagi er það misskilningur að telja að núver- andi fyrirkomulag taki ekki tillit til réttlætissjónarmiða. Það er þvert á móti byggt á þeim sjón- armiðum, að ekki sé rétt að skerða bótalaust skilyrði manna til þeirrar atvinnu, sem þeir hafa áður stund- að, og að rétt sé að menn njóti ávaxta þess erfiðis, sem þeir leggja þar til að bæta atvinnurekstur sinn. Sé talið að önnur réttlætis- sjónarmið eigi að koma til sögunn- ar, verður varla undan því vikist að leita leiða, er geri þau samrým- anleg þessum fyrri sjónarmiðum, sem raunar eru grundvallaratriði þjóðskipulags á íslandi. Af því sem hér að framan hefur verið sagt mætti ljóst vera að umræðan um málefni sjávarút- vegsins ætti ekki að snúast um róttækar breytingar. Við búum við fyrirkomulag, sem hefur reynst árangursríkt og heilladijúgt. Það getur efalaust tekið endurbótum. En þær endurbætur mega ekki raska þeim grundvallaratriðum sem árangur núverandi fyrirkomu- lags byggist á, eigi þær að leiða til aukinnar hagkvæmni og meira réttlætis. Það er umræða um slík- ar lagfæringar sem þörf er á, og sem Morgunblaðið ætti að stuðla að. Reykjavík, 6. janúar 1997, JÓNAS H. HARALZ, fv. bankastjóri. Leiðrétting frá Textavarpinu Frá Agvsti Tómassyni: HAUKUR Vilhjálmsson, stunda- kennari við Háskóla íslands, og Kristinn Jón Bjarnason skrifa opið bréf til útvarpsráðs í Morgunbiað- ið í fyrradag, 8. janúar. í bréfinu er farið rangt með kostnaðartölu sem nauðsynlegt er að leiðrétta strax. Þar segir að Sjónvarpið hafi fjárfest fyrir 30-40 milljónir króna í viðbótartækja- búnaði við Textavarpið svo unnt væri að texta fyrir heyrnarlausa. Þessi upphæð er mjög fjarri sanni. Kostnaðurinn var um það bil 1,3 milljónir króna árið 1994. Óðrum athugasemdum í bréfinu er ekki mitt að svara fyrir, út- varpsráð mun eflaust gera það. Eg get hins vegar ekki látið hjá líða að benda á hversu vel þjón- usta Textavarps Sjónvarpsins er sniðin að þörfum heyrnarlausra, þótt almennir fréttatímar og inn- lent efni sé þar ekki textað nema við sérstök tækifæri. í Textavarp- inu geta heyrnarlausir, eins og reyndar allir aðrir, gengið að nýj- ustu fréttum frá fréttastofum Rík- isútvarpsins frá morgni til kvölds, alla vikuna, alla daga ársins. Auk almennra frétta er að finna í Textavarpinu veðurfréttir (endurnýjaðar 5 sinnum á sólar- hring), íþróttafréttir og íþróttaúr- slit, staðan í helstu leikjum er færð inn jafnóðum frá marki til marks og því má segja að bein útsending sé frá þeim. Til viðbótar þessu eru í Texta- varpinu fjölmargar þjónustusíður með upplýsingum um færð á veg- um, flugumferð og fleira. Þessi þjónusta nýtist heyrnarlausum sérstaklega, því upplýsingunum er annars miðlað um almenna símakerfið. Að lokum má minna á að Félag heyrnarlausra hefur sér að kostnaðarlausu aðgang að 20 síðum í Textavarpinu. Markviss notkun heyrnarlausra á Textavarpinu, eins og það er rekið nú, ætti því að geta verið þeim gott vopn í baráttunni við þá einangrun og öryggisleysi sem þið minnist á í upphafi greinar ykkar. í von um gott samstarf við Fé- lag heyrnarlausra, hér eftir sem hingað til. Virðingarfyllst, ÁGÚST TÓMASSON, forstöðumaður Textavarps Sjónvarpsins. PCIlímogfuguefni m __ r.i ■nawrirtuiiJ-iu 1VI 1 KTa&HMI i f-n i M ±t Stórhöfða 17, við Gullinbrú, sími 567 4844 WICANDERS GUMMIKORK | WICANDERS í metravís • Besta undirlagið fyrir trégólf og linoleum er hljóðdrepandi, eykur teygjanleika gólfsins. • Stenst hjólastólaprófanir. • Fyrir þreytta fætur. GUMMIKORK róar gólfin niður! ÞÞ &co Þ. ÞORGRIMSSON &CO ÁRMÚLA29 • PÓSTHÓLF 8360 • 128 REYKJAVÍK SÍMI553 8640 568 6100 FITUBRENNS±UNAMSKEIÐ HEFJAST14. JANÚAR! AEROBIC OG FITUBRENNSLA AÐHALD * VIGTUN * MATARÆÐI * FITUMÆLING LOKAÐIR TÍMAR FYRIR FÓLK SEM VILL MISSA 15 KG EÐA MEIRA LEIÐBEINENDUR: DAGMAR OG ÁSDÍS. YOGAFLÆÐl/FUN FIT YOGA LEIÐBEINANDI: STEINI SKOKK-KLÚBBUR GYM 80 LEIÐBEINANDI: FRÍÐA RÚN JEET KUNE DO LEIÐBEINANDI: JlMMY AIKIDO LEIÐBEINANDI: HRÓAR GYM - virkar! GYM 80, SUÐURLANDSBRAUT 6, (BAKHÚS), SlMI 588 8383 Nú adeins: Nú aðeins: m Nú aðeins: Holtagörðum v/Holtaveg 104 Reykjavík Skeífunni 13 108 Reykjavík 568 7499 Norðurtanga 3 600 Akureyri 462 6662 Reykjavíkurvegi 72 220 Hafnarfjörður 565 5560 IjfffiiuJM'ílJuppíli Áður 990,-Æk . Marsar geralr |jú aðeins áj^ «Fl/2 virði (ekki barnasloppar) Aour allt að 2.500,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.