Morgunblaðið - 10.01.1997, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1997 23
LISTIR
Akvarell-myndir Hafsteins Austmanns í Listþjónustunni
Morgunblaðið/Kristinn
HAFSTEINN Austmann í hinu nýja sýningarrými
Listþj ónustunnar.
„Það göf-
ugasta af
öllu
göfugu“
SÝNING á akvarell-myndum
eftir Hafstein Austmann list-
málara hefst í Listþjónustunni,
Hverfisgötu 105, 2. hæð, á
morgun, laugardag. Sex myndir
verða á sýningnnni, málaðar á
árunum 1982-1992, en engin
þeirra hefur verið sýnd opinber-
lega áður. Sýningin verður ekki
opnuð með formlegum hætti,
sem er í samræmi við stefnu
Listþjónustunnar.
Hafsteinn kveðst hafa málað
akvarell-myndir frá blautu
barnsbeini enda sé akvarellan
það „göfugasta af öllu göfugu
í myndlistinni". „Ég hef alltaf
unnið akvarelluna með olíunni
og í seinni tíð hef ég unnið
þetta þannig að ég mála akv-
arell-myndir á morgnana til að
koma mér í gang, því málarar
eru svo viðkvæmir eins og allir
vita, en sný mér að olíunni upp
úr hádegi og vinn fram eftir
degi eins og ég hef úthald til.“
Flestir myndlistarmenn eru
á einu máli um að akvarellan
sé erfið viðfangs enda verður,
samkvæmt „hinni réttu að-
ferð“, svo sem Hafsteinn kemst
að orði, að henda myndunum
og byrja upp á nýtt mistakist
eitthvað. „Þegar menn eru
lausir við skólana og kennar-
ana finna þeir hins vegar hin
ýmsu „trikk“ til að komast hjá
þessu.“
Hafsteinn er annar myndlist-
armaðurinn til að sýna í sýning-
arrými Listþjónustunnar, sem
opnað var undir lok síðasta
árs, og er eitt hið minnsta
sinnar tegundar hér á landi.
Ber hann mikið lof á Sverri
Geirmundsson, forsvarsmann
Listþjónustunnar, sem sérhæf-
ir sig í alhliða þjónustu við
myndlistarmenn, og segir
framtak hans til mikillar fyrir-
myndar. „Sverrir er greinilega
metnaðargjarn maður."
Sýningarrými Listþjón-
ustunnar er opið virka daga
kl. 12-18 og kl. 14-18 um helg-
ar, lokað á mánudögum.
Le
Áður kr. 79.900
IVu kr. 63.900
rðdæmi
pfi m/rúmi kr.
Hægindcistóll m/sksmli
Hómmóður beyki/svort
li/tisvefrjbekkur
Ruggustqlor
5jónvorp$skópur
49.900
JJ&tá 38.900
9.800
JJ-riT.29.700
1 3.900
59.800
Sundurdregið bQrnorúm hvítt34rf0n 29.900
Gdhúsbojrð 10.900
;t fleira
Su
raut 22, simi 553 601 1
Ung söngkona
syngur í Kópavogi
ARNDÍS Halla Ás-
geirsdóttir sópran-
söngkona kemur
fram á tónleikum í
Digraneskirkju
sunnudaginn 12.
janúar kl. 20.30. Á
efnisskránni verða
meðal annars við-
fangsefni eftir Moz-
art, Hándel, Schu-
bert, Sigvalda Kald-
alóns, Pál ísólfsson
o.fi. Með Arndísi
Höllu leikur Jónas
Ingoimundarson á
píanó.
Arndís Halla
fæddist í Reykkjavík en ólst upp
i Hafnarfirðinum og á Álfta-
nesi. Hún hóf söngnám 1989.
1991 hóf hún nám hjá Snæ-
björgu Snæbjarnar-
dóttur við Söngskól-
ann í Reykjavík og
dvelur nú í Berlín
við nám og störf.
Arndís Halla hef-
ur m.a. sungið
spænsku prinsess-
una í óperettunni
Die Bandieten eftir
Offenbach sem sýnd
var í Offenbach the-
ater í Berlín og
Gabríelu í Parísarlífi
eftir Offenbach í
Komischeoper í
Berlín.
Framundan eru
æfingar á óperunni Jakob Lenz
eftir Rihm og hlutverk nætur-
drottningarinnar í Töfraflaut-
unni eftir Mozart í Berlín.
Arndís Halla
Ásgeirsdóttir
Ljóðatónleikar end-
urteknir öðru sinni
FÆRRI komust að en vildu þegar
Ljóðatónleikar Gerðubergs, sem
frumfluttir voru síðastliðinn
sunnudag, voru endurteknir. Þeir
verða því haldnir að nýju í kvöld,
föstudagskvöldið 10. janúar, kl.
20.30. Fljdjendur eru Gunnar Guð-
björnsson tenór og Jónas Ingi-
mundarson píanóleikari.
Gunnar Guðbjörnsson starfar
um þessar mundir við óperuna í
Lypn í Frakklandi en hefur verið
á íslandi um jólin og sungið fyrir
landa sína. Þetta verður allra síð-
asta tækifærið til að hlýða á söng
hans áður en hann heldur aftur
utan.
SPÁDÖMAR BIBLÍUNNAR
Enn eitt námskeiðið um hrífandi spádóma Bibiíunnar, þar
sem Daníelsbók er sérstaklega tekin til meðferðar, hefst á
Hótel íslandi 13. janúar kl. 20 og verður einu sinni í viku, á
mánudögum, alls 10 skipti.
Leiðbeinandi verður dr. Steinþór Þórðarson og er aðgangur
ókeypis.
Þátttakendur hafi með sér eintak af Biblíu.
Innritun í síma 588 7800 á daginn og 554 6850 á kvöldin.
ÁRSHÁTÍÐ
Verður haldin í Mánabergi
laugardaginn 11. janúar 1997.
Þríréttaður kvöldverður,
skemmtiatriði Hljómsveit
Magnúsar Kjartanssonar
leikur fyrir dansi.
Skeljungur hf.
Einkaumboð fyrir Shell-vörur á íslandi
Ingvar Helgason ehf
M Sarvarhðjfða 2 132 Rnkjavík pósth. 12260
polrris ski-doo. D/NX fi YAMAHA ARCTIC CAT
I húsi Ingvars Helgasonar
Sævarhöfða 2, Reykjavík
laugardaginn 11. og
sunnudaginn 12. janúar 1997
Opið frá kl. 10 - 18 laugardag
12 - 18 sunnudag.
ásamt ýmsum
aukabúnaði.
VÉLSLEDA OG
ÚTILÍFSSÝNING
AÐGANGUR ÓPEYPIS!
Sýning á vélsleðum,
varahlutum, ýmsum
aukabúnaði, öryggisbúnaði,
leiðsögutækjum, fatnaði í
miklu úrvali og mörgu fleiru
tengdu vélsleðamennsku og
almennri útivist. Glæsileg
aðstaða fyrir sýnendur og
gesti. Næg bílastæði, góð
aðkoma.
L?
V. Reykjavík