Morgunblaðið - 10.01.1997, Qupperneq 30
30 FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
AFSLATTARKERFI
M J ÓLKURAFURÐ A
AFSLÁTTARKERFI vegna magnkaupa er alþekkt í
viðskiptum. Á því byggist m.a. annars samkeppni í
verzlun. Þannig geta þeir kaupmenn, sem hafa mikla sölu,
lækkað vöruverð og smærri kaupmenn hafa bundizt sam-
tökum og myndað innkaupasambönd til þess að verða
samkeppnisfærir í verði við stóru verzlanirnar. Slíkir við-
skiptahættir tíðkazt hvarvetna og þykja góðir, enda lækk-
ar slík samkeppni vöruverð til hagsbóta fyrir neytendur.
Nýtt afsláttarkerfi á viðskiptum með mjólk og osta
átti að taka gildi um áramótin, jafnt á vörum, sem eru
ekki háðar verðlagsákvörðun og hinum, þar sem verðlagn-
ing er bundin ákvörðun svokallaðrar fimmmannanefndar.
Þetta afsláttarkerfi hefur hins vegar ekki tekið gildi enn,
vegna ágreinings Alþýðusambands íslands um verðlags-
mál landbúnaðarins, sem olli því, að ASÍ sagði sig úr
nefndinni. Hugmyndir eru um að koma afsláttarkerfinu í
framkvæmd á þann veg, að um leið og 1% til 3,5% magnaf-
sláttur er gefinn, verði hið almenna heildsöluverð hækkað
um 1%. Þannig ætlar mjólkuriðnaðurinn að láta litla kaup-
manninn á horninu greiða afsláttinn til stóru viðskiptavin-
anna.
Hver skyldi nú vera ástæða slíks háttalags? Ástæðan
er auðvitað, að í verðlagningu mjólkurafurða á heildsölu-
stigi er engin samkeppni. Þar ríkja forneskjulegir við-
skiptahættir og í stað þess, að milliliðirnir í mjólkuriðnað-
inum taki á sig afsláttinn og minnki sína álagningu, dett-
ur þeim aðeins eitt ráð í hug; að hækka mjólkurverð til
neytenda í landinu um upphæð sem nemur afslættinum.
Þetta eru úreltir viðskiptahættir, sem furðulegt er að
menn geti kinnroðalaust rætt um á opinberum vettvangi.
Þetta er einfaldlega ekki hægt og verði af slíkri fram-
kvæmd, kallar það einfaldlega á uppstokkun á öllu sölu-
kerfi mjólkurvara.
KAUPMATTUR
OG SAMKEPPNI
FÁTT hefur styrkt almennan kaupmátt í landinu betur
en hörð og vaxandi samkeppni í smásöluverzlun.
Stórar verzlunareiningar, eins og Hagkaup og Bónus, sem
og stærri verzlunarsamsteypur, njóta margs konar hag-
ræðingar og hagstæðari innkaupa, sem sagt hafa til sín
í lægra vöruverði til almennings. Landsbyggðarverzlun,
sem að jafnaði er smærri í sniðum, hefur átt í vök að
verjast í þessari hörðu samkeppni, enda hefur fólk flykkzt
hvaðanæva af landinu til innkaupa þar sem verð er hag-
stæðast.
Fróðlegt er að sjá, hvernig Kaupfélag Árnesinga hefur
snúið vörn í sókn í þessum efnum. Á fyrri hluta liðins árs
sameinaðist Kaupfélag Rangæinga KÁ. Áður hafði KÁ
tekið yfir rekstur kaupfélaganna í Vík í Mýrdal og í Vest-
mannaeyjum. KÁ styrkti enn stöðu sína með kaupum á
verzlunum Hafnar-Þríhyrnings á Hellu og Selfossi og
kaupum á meirihluta í ferðaþjónustufyrirtækjunum Foss-
nesti og Gesthúsum. Samhliða færði fyrirtækið sig úr til-
tölulega fjölbreyttum rekstri inn á færri svið og einbeitir
sér nú að dagvöruverzlun, ferðaþjónustu og þjónustu við
búrekstur á Suðurlandi öllu. Ekki fer á milli mála að með
þessum hætti hefur KÁ styrkt mjög samkeppnisstöðu við
höfuðborgarsvæðið, einkum í smásöluverzlun.
Mikil eftirsjá er af ýmsum smærri verzlunum, sem týnt
hafa tölunni í harðri samkeppni síðustu tíu-fimmtán árin,
bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni, einkum
verzlunum „kaupmannsins á horninu,“ sem veittu góða
og persónulega þjónustu. Sem betur fer halda þó margar
þeirra velli. Ljóst er engu að síður að hin harða sölusam-
keppni, sem hér er til ^staðar, leiðir til stækkandi verzlunar-
eininga. Viðbrögð KÁ, sem ótvírætt styrkja samkeppnis-
stöðu þess gagnvart höfuðborgarsvæðinu, kann að varða
veg fyrir landsbyggðarverzlunina í baráttunni um við-
skipti almennings. Flest bendir hins vegar til að verzlunar-
samsteypur á landsbyggðinni, sem á höfuðborgarsvæðinu,
stæðu sterkari að vígi sem hlutafélög en samvinnufélög,
m.a. með tilliti til fjármögnunar á hlutabréfamarkaði.
Kvikmyndaaðsóknin 1996
Djöflaeyjan sló
Hollywood-mynd
*
Ríflega 70.000 manns sáu Djöflaeyjuna á Is-
landi á síðasta árí og hún varð vinsælasta
mynd ársins. í kjölfarið sigldi Þjóðhátíðardag-
ur og aðrar Hollywood-myndir. Amaldur
Indriðason hefur tekið saman lista yfir
vinsælustu myndir síðasta árs.
ALLS SELDUST 70.093 miðar
á vinsælustu bíómynd ársins
1996, Djöflaeyjuna eftir
L Friðrik Þór Friðriksson, og
trónir hún á toppi listans yfir mest
sóttu myndir ársins, talsvert fyrir ofan
næstu mynd á eftir, metsölumynd
heimsins, Þjóðhátíðardag eða „ID4“.
Vel má vera að íslendingar hafi einir
í heiminum gert bíómynd sem skákaði
metsöluskrímslinu frá Hollywood á
heimavelli.
Velgengni Djöflaeyjunnar hefur
verið með ólíkindum og jafnvel komið
framleiðendunum á óvart sem töluðu
fyrir frumsýningu um að myndin þurfti
40.000 manns til að sleppa fyrir horn.
Tekjur af henni nú nema meira en 50
milljónum króna og eins og leikstjórinn
lét frá sér fara er ekki ólíklegt að
velgengni Djöflaeyjunnar blási nýju
lífi í íslenska kvikmyndagerð.
Uppreisn íslenskra kvikmynda
íslensk bíómynd hefur ekki notið
viðlíkra vinsælda síðan á fyrstu árum
kvikmyndavorsins. Svo virtist að að-
sókn á íslenskar bíómyndir væri dottin
niður úr öllu valdi árið 1995. Þá voru
frumsýndar nokkar mjög góðar myndir
en áhorfendur létu sig vanta. í fyrra
var Djöflaeyjan nær ein um hituna og
uppskar ríkulega og varð vinsælasta
mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar til
þessa. Ástæðurnar fyrir velgengni
myndarinnar eru margar en þrennt
kemur einkum til: Bækur Einars Kára-
sonar, sem hún er unnin uppúr og Ein-
ar skrifar sjálfur handrit eftir,
eru þjóðkunnar og vinsælar
fyrir, ekkert var til sparað svo
framleiðslan yrði sem glæsi-
legust og það sést á tjaldinu
að Djöflaeyjan er dýrasta ís-
lenska myndin hingað til og
loks fjallar hún um athyglis-
verðan þátt í íslenskri borgar-
menningu sem nú er horfinn
þar sem voru braggahverfin.
Allt gerði þetta að verkum að
fólk taldi sig verða að sjá
myndina og dreif sig í bíó.
Það flykktist einnig á Þjóð-
hátíðardag, sem var meist-
aralega markaðssett af sölu-
mönnunum í Hollywood svo
enginn taldi sig mega missa
af henni. Alls sáu hana
66.600 manns svo tekjur af
henni námu 36,6 milljónum
króna ef margfaldað er með miðaverð-
inu, 550 krónum (ekkert sérverð tekið
með). Myndin lagði undir sig öll kvik-
myndahús borgarinnar nema Sambíó-
in svo varla var aðra mynd að hafa
þá helgi sem hún var frumsýnd og
hún reyndist verulega skemmtilegt
sumarbíó en þoldi illa nærskoðun nema
Microsoft sé farið að selja óvinveittum
geimskrímslum tölvuforrit!
Bond enn vinsæll
í þriðja sæti er gamall kunningi
metsölulistans. James Bond myndin
Gullauga byrjaði í lok árs 1995 en
alls sáu hana ríflega 50 þúsund manns
(27,5 milljónir) í allt sem er metaðsókn
á Bondmynd. Njósnarinn hafði fengið
andlitslyftingu með Pierce Brosnan og
fór sigurför um heiminn. Á eftir hon-
um er annar góðkunningi metsölulist-
ans: Jim Carrey getur gert heimskustu
myndavitleysur og fólk flykkist á þær.
Framhaidsmyndin „Ace Ventura 2“
var meira af því sama, rop og prump
og fíflalæti í svörtustu Afríku og
41.803 seldir miðar gerðu hana að
fjórðu vinsælustu mynd ársins með
tekjur upp á tæpar 23 milljónir króna.
Flestar myndimar á listanum eru
að venju sumar- og jólamyndir og svo
er um Klettinn, sem var ein af mest
sóttu myndum sumarsins. Handritið
byggðist á sérstaklega ósennilegri
sögu en Sean Connery og Nicholas
Cage ásamt fínum hasaratriðum gerðu
myndina mjög álitlega og 38.555 (21,2
milljónir) voru því sammála. Fast á
hæla hennar var annar sálarlaus
spennutryllir gerður eftir gömlum
spennuþáttum í Kanasjónvarpinu, Sér-
sveitinni eða „Mission: Impossible“.
Alls sáu hana’ 36.961 (20,3 milljónir)
og Tom Cruise mátti vel við una.
íslendingar brugðust einnig óvenju
vel við myrkum og drungalegum
fjöldamorðingjatrylli sem gaf meira í
skyn en sýndi skeífilega verknaði geð-
VINSÆLASTA myndin 1996; úr Djöflaeyju Friðriks Þórs Friðrikssonar.
FIMMTA sætið; Connery og Cage í Klettinum.
INNRÁS metsölumyndar; Þjóðhátíðardagur varð í öðru sæti.
Vinsælusti
ar á Isla
1. Djöflaeyjan ..............
2. Þjóðhátíðardagur (ID4)......
3. Gullauga (Goldeneye)+ .....
4. AceVentura2 ...............
5. Kletturinn (The Rock) .....
6. Sérsveitin (Mission: Impossible)
7. Höfuðsyndirnar sjö (Seven) .
8. Klikkaði prófessorinn (The Nutty
9. Leikfangasaga (Toy Stoiy) .
10. Algjör plága (The Cable Guy) ....
11. Eraser ...................
12. Níumánuðir(NineMonths)+ ....
13. Hiti(Heat)................
14. VaskigrísinnBaddi(Babe) ..
15. Stormur (Twister) ...........
16. Pocahontas+..................
17. Fuglabúrið (The Birdcage) ...
18. Trufluð tilvera (Trainspotting) ..
19. í hæpnasta svaði (Spy Hard) .
20. Brotin ör (Broken Arrow)..
21. Agnes+ ...................
22. Jumanji ..................
23. Guffagrín ................
24. Fyrirbærið (Phenomenon)...
25. Dauðasök (Á Time to Kill) ...
26. 12 apar (12 Monkeys).........
27. Náið þeim stutta (Get Shorty) ...
28. Hættuleg ákvörðun (Executive I
29. Góðkunningjar lögreglunnar (T1
+Byrjaði í lok árs 1995.