Morgunblaðið - 10.01.1997, Page 39

Morgunblaðið - 10.01.1997, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1997 39 ekki um það en kvartaði aldrei og naut ferðarinnar út í ystu æsar eins og við hin. Ég vil svo sannarlega þakka almættinu það að hafa fengið að fara með henni í þessa ferð og eiga nú þær góðu minningar sem eftir sitja. Að lokum vil ég þakka Þóreyju systur minni fyrir allt sem hún gerði fyrir mig og mína. Telpumar hennar hafa líka ævinlega verið boðnar og búnar til að gæta bama minna og hjálpa mér. Þær standa nú þétt sam- an eins og þær hafa alltaf gert en móðir þeirra hélt vel utan um þær allt frá upphafi og ekki síður eftir að hún og faðir þeirra skildu. Hún hélt þétt utan um hópinn sinn og lifði fyrir dætur sínar. Missirinn er því mikill fyrir þær og fjölskyldur þeirra nú þegar móðirin er horfín. En í minningunni lifir hún áfram með þeim og með okkur öllum. Guð styrki ykkur öll í ykkar miklu sorg. Hrefna systir. Mig langar að minnast Þóreyjar mágkonu minnar í fáeinum orðum. Minningarnar koma upp í hugann hver af annarri, enda em rúmlega 37 ár síðan við kynntumst, þegar bróðir hennar Jón Sturla bauð mér að koma með sér að hitta eldri syst- ur sína, Þóreyju, sem bjó þá á Hring- braut 47, ásamt eiginmanni sfnum Steingrími og dætrum. Þau kynni urðu strax góð og héld- ust fram á hennar síðasta dag. Árin liðu, við kynntumst betur, börnin okkar uxu úr grasi, frænkumar fóru að umganst hver aðra, urðu jafn- framt bestu vinkonur. Ég dáðist oft að dugnaði mágkonu minnar, hún var heimavinnandi hús- móðir, eins og það kallast í dag, enda urðu dætur þeirra hjóna sjö talsins, og hún eiginkona sjómanns, sívinnandi, dugleg og myndarleg húsmóðir, góð móðir, síðast en ekki síst frábær amma og traustur vinur. Oft var komið við á Hringbraut- inni, ef skroppið var niður í bæ, dætur mínar að hitta frænkur sínar og leika sér, við mágkonurnar að ræða saman. Þórey var oftast að vinna eitthvað á heimilinu þegar í heimsókn var komið. Hún hafði þann eiginleika að gera margt í einu. Eitt sinn þegar ég kom þar var hún að strauja þvott, hélt á lítilli dóttur á vinstri handlegg. Ég bauðst til að taka bamið, en hún afþakkaði það, en bað mig frekar að hella á kaffi- könnuna. Árin liðu, við hjónin fengum stund- um eldri frænku til bamapíustarfa. Kom þá á tímabili ekki neitt annað til greina en að einhver systranna af Hringbraut kæmi og var það auð- fengið. Þær vom svo bamgóðar og skemmtilegar. Einn fastur liður í tilverunni var að þegar Svava dóttir okkar átti af- mæli 22. des. var öllum frænkunum af Hringbrautinni að sjálfsögðu boð- ið. Komu þær allar í nýjum jólakjól- um, eins klæddar, fínar og fallegar, og allir kjólamir saumaðir af móður þeirra. Þórey var mikið náttúmbarn, þótti mjög gaman að skreppa út úr bæn- um, þegar tími gafst til, hvíla sig frá borginni og njóta íslenskrar nátt- úmfegurðar. Oft var farið norður í Snartartungu, dvalið þar yfir sumar- tíma heima hjá foreldmm sínum, vom dætumar að sjálfsögðu með. Þegar vetur gekk í garð brá mág- kona mín sér stundum á gömlu dans- ana, hafði mikla skemmtun af, enda létt og frá á fæti. Á 100 ára afmælisdegi Ásmundar föður hennar, þ. 5. ágúst sl., kom fjölskyldan saman, í Snartartungu, og var þá gist hjá Sigurkarli og Gunnhildi. Sfðar reis myndar tjald- borg í túninu heima. Höfðu allir mikla ánægju af að dveljaþar. Fórum við í góða gönguferð, Þórey í for- ustu. Ég og Hrefna systir hennar á eftir. Gengið var upp í Húsadal, um mela og móa, Þórey hress og kát, sagði frá gömlum álagabletti, nefndi undirritaðri öll kennileiti, naut þess að vera í fallegu sumarveðri á æsku- slóðum sínum. Þannig ætla ég að geyma hana í minningu minni. Þórey var búin að vinna í mörg ár á taugalækningadeild Landspítalans, 32-A. Undi hún sér þar vel, rómaði starfsfólk deildarinnar fyrir frábært samstarf og vináttu í sinn garð. í september sl. fór Þórey til Kanada með Hrefnu systur sinni og Gissuri mági sínum. Eyddu þau þar saman sumarfríinu sínu og ferðuðust um með Snorra bróður þeirra systra, sem er búsettur þar. Var víða farið. Hittu þau böm Snorra, og Gunnvöru mágkonu sína. Urðu þar miklir fagnaðarfundir. Voru þau afar ángæð með þetta skemmtilega sumarleyfí. Ég votta elskulegum dætrum hennar, tengdasonum, barnabörnum og systkinum einlæga samúð mína. Við söknum hennar öll. Það er komið að kveðjustund. Við hjónin, dætur okkar og fjölskyldur þeirra vottum Þóreyju virðingu okkar og þakklæti fyrir hugljúfar samveru- stundir í lífí okkar. Að lokum bið ég algóðan Guð að blessa minningu Þóreyjar mágkonu minnar. Guðrún Erna Narfadóttir. Elsku amma okkar. í minningu þína langar okkur að skrifa þér nokk- ur kveðjuorð. Það var alltaf svo gott að koma í heimsókn til þín, alltaf tókst þú jafnvel á móti okkur. Það kom svo mikil hlýja frá þér, og ef einhverjar deilur komu upp á milli bamabarnanna var það alltaf þú sem laumaðir að okkur sætindunum og við gæddum okkur á því og spöruðum ekki brosið. Þú varst alltaf jafnhjálp- söm við að setja skraut í hárið á okkur stelpunum og bæta fötin ef þess þurfti. Ég (Þórey) mun aldrei gleyma þvf er ég og Elva Dögg rif- umst um það hvor okkar væri nú meiri ömmustelpa. En þá gerðir þú okkur ljóst að ekki var hægt að dæma þar á milli. Bros þitt mun ávallt tifa í hjarta okkar. Þórey Birgisdóttir, Sigrún Sigurðardóttir. Með þessum orðum langar okkur systkinin að minnast elskulegrar ömmu okkar Þóreyjar Ásmundsdótt- ur. Margs er að minnast frá þeim samverustundum sem við áttum með þér. Ógleymanlegar eru verslunar- mannahelgarnar, réttirnar og árlegu jólaboðin, þú varst ailtaf til í að taka þátt í öllum leikjum og uppákomum sem okkur barnabörnunum datt í hug. Ailtaf tókst þú vel á móti okk- ur og helst með einhveijum kræsing- um og þótti okkur best heimabökuðu vínarbrauðin þín. Þegar við vorum yngri fóru for- eldrar okkur til útlanda og við feng- um að vera hjá þér þann tíma sem þau voru úti. Eitthvað held ég að við höfum verið erfíð þegar mamma og pabbi komu heim, því þú lést allt eftir okkur sama hvað það var. Engan grunaði hvað þú varst orð- in veik eftir komuna frá Kanada í endaðan september og núna ertu farin frá okkur. Ég fór og kvaddi þig þann 24. desember sl. því ég var á leiðinni til Kanaríeyja með vinum mínum sama dag. Þú sagðist hlakka til að sjá mig aftur, brúna og ánægða eftir vel heppnaða ferð, en það varð aldrei neitt úr því. Elsku amma, við kveðjum þig nú og vitum að þér líður vel hjá öllum ástvinum þínum hinum megin. Minn- ingarnar um þig munu alltaf lifa í hjörtum okkar. Elva Dögg, Alfreð og Steingrímur. Elsku amma, mig langar í nokkr- um orðum að minnast þín og í leið- inni að þakka þér fyrir allt það góða sem þú skildir eftir. Nú þegar þú ert farin frá okkur koma fram ótal minningar. Einu sinni þegar ég og mamma heimsóttum ömmu í Þórufellið var hún svo ánægð að sjá okkur að hún bakaði pönnukökur og gerði heitt súkkulaði eins og hún gerði svo oft. Svo sátum við í stofunni hennar og skoðuðum gamlar ljósmyndir og töluðum saman. Hún reyndi alltaf sitt besta til þess að gleðja aðra. Hún gaf okkur bamabörnunum stundum strumpa- páskaegg og þegar við heimsóttum hana mátti allt eins búast við ein- hveiju sætu sem leyndist í skápunum hjá henni og skálum. Hún kom stundum heim og sat inni i eldhúsi á meðan mamma setti í hana permanent. Mér þótti svo vænt um að koma í stofuna hennar og sjá allar mynd- irnar sem hún var með í hillunum hjá sér af dætrum sínum og okkur barnabörnunum. Amma geymdi alltaf litla sæta jólatréð sitt með skrautinu og öllu og notaði það svo ár eftir ár. Hún vildi alltaf allt fyrir alla gera og með þessum orðum vil ég kveðja hana ömmu mína. Nú legg ég augun aftur, Ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vöm í nótt. Æ, virzt mig að taka, mér yfír láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð S. Egilsson) Agnes. Nú er elsku amma mín dáin. Alltaf þótti mér gott að koma til hennar ömmu sem ávallt tók mér opnum örmum. Þegar amma var í fríi hringdi ég oft til hennar til að athuga hvort ég mætti koma til henn- ar og gista. Þegar við vorum saman gerðum við margt skemmtilegt eins og að fara saman i kolaportið, hjóla, þvo bílinn, fara upp í sveit og jafnvel í sirkus síðastliðið sumar. Alltaf var amma tilbúin að passa okkur systkin- in þegar á þurfti að halda og reynd- ist okkur mjög vel. Það gladdi okkur öll mjög mikið þegar þú í veikindum þínum gast komið og eytt með okkur þínu síðasta aðfangadagskvöldi. Amma var mér góður vinur og geymi ég, elsku amma mín, allar minningarnar um þig í hjarta mínu. Eirikur Bjarki. Nú er amma farin til guðs og sit- ur hjá honum. Hún var svo góð, gaf okkur nammi og spilaði við okkur. Við vorum glöð að fá þig til okkar um jólin, þótt þú værir veik. Við þökkum fyrir allt sem þú gafst okk- ur og gleymum þér aldrei. Blessa amma. Katrín og Eiías. t Eiginmaöur minn, faðir okkar og afi, HALLUR GUÐMUNDSSON fyrrv. matsveinn, Kirkjustíg 4, Eskifirði, lést á Landspítalanum þann 6. janúar. Jarðarförin fer fram frá Eskifjarðarkirkju laugardaginn 11. janúar kl. 14.00. Þóra Ólöf Guðnadóttir, synir og barnabörn. t ÓLAFÍA Þ. REIMARSDÓTTIR, sem andaðist á Ljósheimum, Selfossi, 4. janúar, verður jarðsungin frá Selfoss- kirkju laugardaginn 11. janúar kl. 10.30. Aðstandendur. t Elsku móðir okkar, amma og langamma, SIGRÍÐUR JÓHANNSDÓTTIR, Hringbraut 50, áður Höfðatúni 9, er látin. Jarðarförin hefur farið fram. Þökkum auðsýnda samúð. Halldór Guðjónsson, Þuriður ída Jónsdóttir, Jóhann Guðjónsson, Rebekka Guðjónsson, ömmubörn og langömmubörn. i í i | ; Okkur systkinin langar að minnast Þóreyjar Asmundsdóttir sem bjó á Hringbraut 47 í fjölda ára. Þar áttum við systkin einskonar aukaheimili því öll áttum við vinkonur á fyrstu hæð- inni. Þórey átti sjö stelpur en við systkinin á þriðju hæð vorum aðeins fímm og þarafleiðandi var rúmlega ein vinkona á hvert okkar. Leikirnir voru misfjörugir og oftar en ekki fylgdi töluverður hávaði og ærsla- gangur svona stórum hóp af krökk- um en eftir á að hyggja sjáum við að Þórey var fljót að koma skikk á hópinn án þess að við'gerðum okkur alveg grein fyrir því enda var það ekki gert með neinum fyrirgangi. Hún sendi einhveija úr hópnum út í mjólkurbúð og elstu stelpumar með þær yngstu út í kerrur og vagn. Þar með höfðu allir um nóg að hugsa og gauragangurinn í okkur og orkan fengu útrás í þessum ábyrgðarstörfum. Þórey var um margt mjög sérstök kona. Hún var þvílíkur dugnaðarforkur að í minn- ingunni fínnst manni að hún hafí aldrei sofíð. Það var alltaf ijós í glugganum hjá Þóreyju hún sat við sauma fram á rauðanætur og sá um að stelpunar ættu fallegar flíkur á þeim árum sem ekki var verulegt úrval af fatnaði í verslunum. Bökun- arilm lagði fram á gang nánast dag- lega því mikið þurfti af kaffíbrauði á stóru heimili. Dæturnar voru ekki háar í loftinu þegar þær fengu tæki- færi á að æfa færni sína í heimilis- verkum, bakstri og barnapössun. Þórey vissi að æfmgin skapar meist- arann og dætumar eru allar sönnun þess að hún hafði rétt fyrir sér. Þó- rey var grannvaxin 5 meðallagi há, augun voru dökk, hún virkaði frekar fálát og dul þeim er ekki kynntust henni en fjölskyldu, vinum og vensla- mönnum var hún létt, kát og afskap- lega trygglynd. Þórey vann utan heimilis eins og aðstæður leyfðu. Eftir að börnin voru uppkomin gerði Þórey Landsspítalann að starfsvett- vangi sínum. Barnabömin vom henn- ar líf og yndi. Hennar helsta tilhlökk- unarefni var að láta af störfum vegna aldurs og hafa meiri tíma fyrir barna- börnin sín. Tími hennar er nú liðinn hér á jörð. Við biðjum góðan Guð að styrkja systurnar sjö og allt þeirra fólk. Systkinin Hringbraut 47, III t.h. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okk- ar, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR BORGÞÓR MAGNÚSSON húsasmiðameistari, Tunguvegi 23, lést á Landspítalanum að kvöldi 6. janúar. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Sesselja Ásgeirsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Ásmundur R. Richardsson, Ásgeir Sigurðsson, Gabriela E. Pitterl, Magnús Sigurðsson, Valborg H. Gestsdóttir, Ingunn Sigurðardóttir, Þorkell Ágústsson, Helga Sigurðardóttir, Jóhannes H. Símonarson og barnabörn. Systir mín, INGVELDUR JÓHANNSDÓTTIR frá Litlu-Þúfu, Miklaholtshreppi, verður jörðuð að Fáskrúðarbakkakirkju laugardaginn 11. janúar 1997 kl. 14.00. Rútuferð verður fré Umferðarmiðstöð- inni sama dag kl. 10.00. Fyrir hönd aðstandenda, Ásta Lára Jóhannsdóttir. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, MARGRÉT HARALDSDÓTTIR, Eyjavöllum 13, Keflavík, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 11. janúar kl. 13.30. Magnús Kolbeinsson, Kristfn Sigurðardóttir Rose, Brian D. Rose, Kolbrún Sigurðardóttir, Rúnar Sigurbjartarson, Magnea Brynja Magnúsdóttir, Konráð Ingvi Sigurðarson, Robert Thomas Rose, Patrick Brent Rose.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.