Morgunblaðið - 10.01.1997, Síða 48
MORGUNBLAÐIÐ
48 FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1997
Tommi og Jenni
Ferdinand
BREF
HL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reylqavik • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Forseta Islands
afhent 250.000.
Nýja testamentið
Frá Sigurbirni Þorkelssyni:
EINS og venja hefur verið heimsóttu
liðsmenn Gídeonfélagsins grunn-
skóla landsins í haust og gáfu nem-
endum 5. bekkjar Nýja testamentið
að gjöf. Því ættu nú flestir íslending-
ar á aldrinum 10-54 ára að hafa
fengið Nýja testamentið að gjöf frá
félaginu.
250.000 eintök
Sigurbjörn
Þorkelsson
Gídeonfélagið á íslandi, sem var
stofnað árið 1945, hefur m.a. haft
þau verkefni önnur en að gefa æsku
landsins Nýja
testamentið, að
koma eintökum
af Biblíunni eða
NT fyrir á hótel-
erbergjum, her-
bergjum gisti-
húsa, í náttborð
sjúkrahúsanna, í
fangelsi og skip
auk þess sem NT
með sérstaklega
stóru og aðgengi-
legu letri er komið fyrir við rúm
þeirra sem dvelja á dvalarheimilum
aldraðra. Þá er öllum nýútskrifuðum
hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum
einnig gefið eintak af Nýja testa-
mentinu.
Skrifstofa félagsins hefur reynt
að fylgjast með því hversu mörgum
eintökum er úthlutað árlega allt frá
fyrstu tíð. Það varð því staðreynd
sl. haust að eintak nr. 250.000 fór
í umferð og var forseti íslands svo
vænn að heiðra félagið með því að
taka við eintaki af Nýja testamentinu
eins og öll 10 ára börn í landinu fá
á hverju hausti. Var eintakið áritað
og tölusett. Einnig var hr. Ólafi
Ragnari Grímssyni, forseta íslands,
afhent Nýja testamenti með stóru
letri sem hann stakk upp á að fengi
að liggja frammi í móttökusal emb-
ættisbústaðarins á Bessastöðum.
Forseti íslands, hr. Ólafur Ragnar
Grímsson, var í öðrum árgangi Ís-
lendinga sem fengu Nýja testament-
ið að gjöf frá Gídeonfélaginu á sínum
tíma, þá sem nemandi í Miðbæjarskó-
lanum í Reykjavík og sagðist forseti
muna vel eftir þeim atburði og sagð-
ist hann eiga bókina ennþá.
Gídeonfélagar þakka forseta ís-
lands, hr. Ólafi Ragnari Grímssyni,
kærlega fyrir góðar móttökur og
fyrir að vilja veita viðtöku 250.000.
Nýja testamentinu sem gefið er af
Gídeonfélaginu á íslandi.
Gídeonfélagið, alþjóðasamtök
Gídeonfélagið er alþjóðasamtök,
sem starfa nú í 172 löndum að út-
breiðslu Heilagrar ritningar með
sama hætti og gert er hér á landi.
Þess má til gamans geta að ísland
er þriðja landið þar sem Gídeonfélag
var stofnað, árið 1945.
Framlengdur armur
kirkjunnar
Gídeonfélagið er eins og fram-
lengdur armur kirkjunnar. í félaginu
eru eingöngu menn og konur sem
tilheyra kristinni kirkju og vilja að
boðskapur hennar, kærleiksboðskap-
ur Guðs, sem birtist okkur svo skýrt
í Jesú Kristi nái til allra manna. Ekki
endilega með hávaða og látum heldur
í kyrrð og með þeim ólýsanlega friði
sem Guð einn getur veitt.
„Því að Guðs orð er lifandi og kröft-
ugt og beittara hveiju tvíeggjuðu
sverði og smýgur inn í innstu fylgsni
sálar og anda, liðamóta og mergjar,
það dæmir hugsanir og hugrenningar
hjartans." (Hebreabréfið 4:12)
Það er hjartans von og bæn liðs-
manna Gídeonfélagsins að þau
250.000 eintök af Nýja testamentinu
sem félagið hefur gefið landsmönnum
mættu nýtast mönnum sem mest og
best svo við fáum teygað af þeim
kærleikans og hjálpræðislindum sem
þar er að finna og á uppsprettu sína
í höfundi lífsins og frelsaranum okkar
Jesú Kristi, okkar eilífa lífgjafa.
Guð blessi forseta vorn og lands-
menn alla.
SIGURBJÖRN ÞORKELSSON,
framkvæmdastjóri Gíeon-
félagsins á íslandi.
Hellna ekki getið
Frá Sæbirni Valdimarssyni:
Á DAGSKRÁ Stöðvar 2 á nýársdag
var þáttur um náttúrufegurð sem
nefndist „Snæfellsnes - á mörkum
hins jarðneska". Að flestu leyti hinn
ágætasti þáttur, t.d. voru myndskeið
tekin á lágflugi yfír strandlengjuna
falleg, einkar forvitnileg sjónarhom
og vel heppnuð.
Þegar á að kvikmynda jafnfjöl-
breytt og ægifagurt landslag þar sem
sagan að auki minnir á sig við hvert
fótmál, er úr vöndu að ráða. Verður
að velja og hafna. Þó er mér spurn;
Hvemig í ósköpunum tókst kvik-
myndargerðarmönnunum að gera
slíka mynd án þess að koma við á
Hellnum? (Utan eitt skot af strönd-
inni á milli Stapa og Hellna.) Að
margra dómi einum fegursta staðnum
undir Jökli og þó víðar sé leitað. Mál
manna að óvíða sé Jökullinn og Stapa-
fellið jafntilkomumikið, eisog allt
umhverfíð, sama hvert er litið.
Hér er náttúruperlan „Baðstofa",
einstakur sjávarhellir sem við rétt
samspil ljóss og sjávar býður uppá
þvílík litbrigði að þau eiga tæpast
sinn líka í náttúm landsins. Sjávar-
klettamir, plássið litla með kirkjuna
kúrandi í því miðju, og ekki síst höfn-
in, skapa friðsæla en um ieið stór-
brotna fegurð sem er engri lík. Ekki
er sagan ómerkari, talar til manns
úr hveijum hól og hleðslubroti. Hér
var í aldanna rás einn mestur útgerð-
arstaður, ekki aðeins undir Jökli, held-
ur landinu öllu. Hellnum er ekki hægt
að hlaupa framhjá.
SÆBJÖRN VALDIMARSSON,
Bergstaðastræti 71,
Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.