Morgunblaðið - 10.01.1997, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1997 51
BRIPS
Umsjón (luðmundur Páll
Arnnrson
ÚTSPILIN eru afdrifarík -
það þekkja allir spilarar.
Þess vegna er mikilvægt að
aðstoða makker eftir föng-
um til að finna hið eina rétta,
eða a.m.k. vara við því eina
ranga. Nokkra næstu daga
verða skoðuð spil úr Reykja-
víkurmótinu í sveitakeppni,
þar sem útspilin hefðu getað
lánast betur. Til að bytja
með hér misheppnað útskot
gegn slemmu:
Austur gefur; enginn á
hættu.
Norður
♦ Á10
V ÁD10
♦ 974
♦ ÁG1062
Vestur Austur
♦ G6 ♦ D9874
V K654 |||!|| * 932
♦ 106532 111111 ♦ ÁG8
♦ 95 * D4
Suður
♦ K532
V G87
♦ KD
♦ K873
Sagnir voru misskilningi
markaðar:
Vestur Norður Austur Suður
Pass 1 lauf
Pass 2 lauf Pass 2 grönd
Pass 4 grönd Pass 5 tíglar
Pass Pass 6 lauf Pass Pass
Kerfið er Standard og
hækkun norðurs í tvö lauf
var krafa. Tvö grönd suðurs
sýndu 12-14 punkta og
jafna skiptingu. Norður
meinti stökk sitt í íjögur
grönd sem almenna
slemmuáskorun, en suður
tók sögnina sem ásaspurn-
ingu og sýndi samvisku-
samlega eitt lykilspil - þ.e.
laufkónginn. Þar með varð
ekki aftur snúið.
Vestur spurði út í sagnir
og misskilningurinn kom í
ljós. Á meðan NS skegg-
ræddu sín á milli hvort
væri rétt að nota fjögur
grönd sem áskorun eða ása-
spurningu, íhugaði vestur
útspilið af kostgæfni. Svo
virtist sem skiptingin væri
jöfn og því var mikilvægt
að finna hlutlaust útspil,
sem ekki gæfi slag. En allir
litir voru hættuiegir og eftir
nokkar yfirferðir í huganum
ákvað vestur að trompa út.
Þar með var eini vandi
sagnhafa leystur og eftir
spennandi hjartasvíningu
gat hann lagt upp. Austur
kunni makker sínum engar
þakkir fyrir útspilið, en
vestur hafði svar á reiðum
höndum:
„Þú áttir að dobla, þá
hefði ég aldrei trompað út!“
Alltént hugmynd.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót o.fl. lesend-
um sínum að kostnað-
arlausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrir-
vara virka daga og
þriggja daga fyrirvara
fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælis-
barns þarf að fylgja
afmælistilkynning-
um og eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk
getur hringt í síma
569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329 eða
sent á netfangið:
gusta@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Dagbók
Morgunblaðsins,
Kringlunni 1,
103 Reykjavik.
I DAG
Arnaö heilla
Í*/\ÁRA afmæli. Á
Ov/morgun, laugardag-
inn 11. janúar, verður sex-
tug Sigríður G. Sigurðar-
dóttir, (Silla), Álfhólsvegi
133A, Kópavogi. Hún og
eiginmaður hennar Halldór
Jónsson taka á móti frænd-
fólki, vinum og venslafólki
á morgun, afmælisdaginn,
milli kl. 17-20, í félagsheim-
ili Kiwanismanna, Smiðju-
vegi 13A, Kópavogi (ekið
inn fyrir neðan Axishúsið).
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 24. ágúst í Alta
kirkju, Alta, Noregi, Elisa-
beth Andersen og Árni
Huxley Olafsson. Þau eru
búsett í Noregi.
COSPER
't 1^763. . COSPER.
JÆJA, við ættum kannski að drífa okkur í land, áður
en fiskbúðinni verður lokað.
HÖGNIHREKKVÍSI
8-21
C1995 Farcus Cartoons/dist. by Universal Press Syndicate LJAlSbt-ACS/CöÚCTUfitP-T
STJÖRNUSPÁ
cftir Frtnces Drake
STEINGEIT
Afmælisbarn dagsins: Þér
semur vel við aðra og þú
nýtur trausts í viðskiptum.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Varastu dagdrauma og
reyndu að einbeita þér að
því sem gera þarf í dag. Þú
þarft tíma útaf fyrir þig
heima í kvöid.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Flýttu þér hægt í vinnunni
í dag og láttu ekki smá mót-
byr á þig fá. Með einbeitingu
tekst þér það sem þú ætlaðir
þér.
Tvíburar
(21.maí-20.júni)
Þú færð góðar upplýsingar,
sem þú getur nýtt þér í við-
skiptum dagsins. Á næstu
mánuðum tekst þér að bæta
fjárhaginn til muna.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Gættu þess að reita ekki
hörundsáran starfsfélaga til
reiði í dag. Skilningur og góð
samskipti geta skilað ykkur
árangri.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Fjármálin geta valdið alvar-
iegum ágreiningi milli vina
í dag. Þeir, sem eru á far-
aldsfæti, verða fyrir óvænt-
um útgjöldum.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Þú átt auðvelt með að ein-
beita þér og finnur leið til
að bæta stöðuna í fjármál-
um. Vinir hafa heppnina með
sér í kvöld.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Töf getur orðið á því að þér
berist áríðandi fréttir, sem þú
bíður eftir. En hæfileikar þín-
ir njóta sin vel í viðskiptum.
Sþoródreki
(23. okt. - 21. nóvember) HlfS
Þér gengur vel að koma
skoðunum þínum á framfæri
í vinnunni í dag. Þegar
kvöldar sinnir þú málefnum
fjölskyldunnar.
Bogmaöur
(22. nóv. - 21. desember)
Varastu óþolinmæði í sam-
skiptum við aðra í dag og
farðu að öllu með gát. Láttu
skynsemina vísa þér veginn.
Steingeit
(22. des. - lð.janúar)
Þú átt góðar viðræður við
ráðamenn í vinnunni í dag,
en ættir að varast deilur um
fjármál. Slakaðu á heima í
kvöld.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Nú er ekki heppilegt að
íhuga viðskipti með fasteign-
ir, því þú þarft að kanna
málið betur. Hafðu ástvin
með í ráðum.
Fiskar
(19. febrúar- 20. mars)
Þú átt erfitt með að einbeita
þér í vinnunni og ættir ekki
að taka að þér nýtt verkefni
í dag. Þér berast góðar fréttir.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Velkomin á vornámskeíð
Biblíusl€ÓI««ns:
• ALFA - námskeiðið
Fjaliað um gnmdvallaratriði kristinnar trúar.
• Frá Lúther til upplýsingar
Stiklað verður á stóru i kirkjusógu seinni alda, frá Lúther til loka 18. aldar.
• Samskipti hjóna og sambandið við Guð
Fjallað um styrkingu sambandsins og eflingu trúarlega þáttarins í hjónabandinu.
• Boðun trúar með hjálp sjónhverfinga
Fjaliað um hvemig nota má sjónhverfingar til að ná athygli bama og unglinga.
• Boðun trúar og töflumálun
Hvemig nýta má töfiu og málningu við boðun trúarinnar.
• Samkynhneigð og kristin trú
Textar Bibliunnar, ábyrgð kirkjunnar, sálgæsla samkjmhneigðra, fyrirspumir og
umræður. Getur breyting orðið á kynhneigð fólks?
• Leiðtogi í mótun
Fjallað um hlutverk leiðtoga og forsvarsfólks í kristilegu starfi.
• Fjallræðan
Á námskeiðinu verður heildarbygging og áhersluatriði Fjallræðunnar skoðuð.
LEITIÐ NÁNARI
UPPLÝSIMG/V!
FÁIÐ SENT FRÉTTABRÉF
BIBLÍUSKÓLANS!
Eöa finnið okkur ó netinu:
www.speedo.is/Bibliuskolinn.htmi
^ Biblíuskólinn
við Holtaveg
Holtavegi 28, Reykjavík,
sími 588 8899, fax 588 8840
• Kvennakór • Vox feminae • Léttsveit'
• Senjoritur • Kórskóli •
Vorstarf kórsins hefst nú senn:
I Kvennakór Reykjavíkur MBH
Kórfélagar mæti miðvikudaginn I5.janúar kl. 20:30.
Kórinn getur bætt við sig nokkrum félögum og geta áhugasamar
konur mætt í inntökupróf sem haldin verða mánudaginn
13. janúar Stjórnandi er Margrét J. Pálmadóttir
og undirleikari Svana Víkingsdóttir.
Æfingar hefjast miðvikudaginn I5.janúar ki. 18:30.
Hópurinn er fullskipaður.
Stjórnandi Vox feminae er Margrét J. Pálmadóttir.
Félagar í Léttsveit Kvennakórsins mæti þriðjudaginn 2l.janúar
kl. 20:00. Léttsveitin getur bætt við sig nokkrum félögum og
áhugasamar konur geta þreytt inntökupróf sem haidin verða
þriðjudaginn 21. janúar. Stjórnandi Léttsveitarinnar er
Jóhanna Þórhallsdóttir og undirleikari Aðalheiður
Þorsteinsdóttir.
Æfingar hefjast mánudaginn 13. janúar kl. 16:00.
Hópurinn er fyrir siungar eldri konur og eru áhugasamir nýir
félagar boðnir velkomnir.
Stjórnandi Senjoritanna er Rut Magnússon.
Kórskólinn er ætlaður áhugasömum konum sem hafa litla eða
enga reynslu af söngstarfi. Kennd verður raddbeiting, tónfræði
og samsöngur. Námskeiðið er 12 skipti og fer kennsla fram á
mánudögum frá kl. 18:30-20:30. Námskeiðið hefst mánudaginn
20. janúar. Leiðbeinandi er Margrét J. Pálmadóttir.
Athyeli er vakin á að nokkur stéttarfélög, svo sem
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur, hafa veitt félagsmönnum
sínum styrk til námsins.
í Inntökupróf og skráning
Skráning í inntökupróf, kórskóla og Senjorítur fer fram
í síma 562 6460 föstudaginn I O.janúar kl. 17:00-19:00
og laugardaginn I l.janúar kl. 11:00-14:00
Inntökupróf verða sem hér segir:
Kvennakór Reykjavíkur: mánudaginn 13. janúar kl. 17:00-20:00
Léttsveit Kvennakórsins: þriðjudaginn 21. janúar kl. 17:00-20:00
I Nýi söngskólinn „Hjartans mál” WSm
Söngskólinn er starfræktur í húsi Kvennakórs Reykjavíkur
og býður upp á einsöngsdeild og undirbúningsdeild og fjölbreytt
tónlistarstarf fyrir börn.
Allar æfingar fara fram
í húsnæði Kvennakórs Reykjavíkur að Ægisgötu 7.
Kvennakór Reykjavíkur