Morgunblaðið - 16.01.1997, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 16.01.1997, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ, 1 Deildarráðsfundur læknadeildar Háskólans FRETTIR Dagsbrún Ekkert mót- framboð ÚTLIT er fyrir að einn listi verði í kjöri til stjórnar og trúnaðarráðs Verkamannafélagsins Dagsbrúnar í allsheijaratkvæðagreiðslu sem fram fer í lok mánaðarins. Að sögn Kristjáns Ámasonar, sem var í efsta sæti á lista mótfram- boðs við síðasta stjórnarkjör, munu þeir sem stóðu að því framboði ekki gefa kost á sér við væntanlegt stjórnarkjör. Tillögur uppstillingamefndar og trúnaðarráðs um stjórn og aðra trúnaðarmenn liggja frammi á skrifstofu félagsins en öðrum tillög- um ber að skila fyrir kl. 16 föstu- daginn 16. janúar. -----♦ ♦ ♦----- Veikt barn flutt frá Grænlandi VEIKT bam var flutt frá Sjúkra- húsi Akureyrar í gær á gjörgæslu- deild Landspítalans, en þangað kom það frá Grænlandi fyrir tveimur dögum. Barnið var alvarlega veikt af heilahimnubólgu og þurfti að gera skurðaðgerð til að létta þrýst- ingi af höfði þess. Samkvæmt upplýsingum frá Atla Dagbjartssyni, sérfræðingi á barna- deild, er bamið ekki í lífshættu. Hann sagði að það kæmi ekki í ljós fyrr en að nokkrum dögum liðnum hvort bamið næði fullum bata. 499 einkanúmer afgreidd hjá Bif- reiðaskoðun Islands hf. ÁLETRUN á númeraplötum er bæði á íslensku og erlendum málum. Vonbrigði með skáldskaparandann ALLS hafa 499 bifreiðaeigendur keypt einkanúmeraplötur á bíla sína frá því að reglugerð á grund- velli nýrra umferðarlaga tók gildi í júní á síðasta ári. Að sögn Högna Eyjólfssonar, yfirmanns tölvudeildar hjá Bif- reiðaskoðun íslands hf., er það svipaður fjöldi og búist hafði ver- ið við þegar farið var að afgreiða númerin. Hann segir algengt að valin séu mannanöfn og vöru- merki og að frumleikinn sé ekki alltaf í fyrirrúmi. „Ég hef orðið fyrir ákveðnum vonbrigðum með skáldskaparandann hjá fólki að þessu leyti. Þó var ég mjög ánægð- ur með einn sem pantaði um dag- inn númerið 313, en það er númer- ið á bílnum hjá Andrési önd,“ seg- ir Högni. Sé gluggað í lista Bifreiðaskoð- unar yfir skráð einkanúmer má til dæmis sjá starfsheiti eins og PÍP- ARI, BONDI og MÁLARI, átrúnað- argoðin ELVIS og JORDÁN og lýsingarorðið VARKÁR. Einnig getur þar að líta áletranir á borð við ÍSLAND, EYJAR, FRÓNIÐ, HEKLA, MÝVATN og SIGLÓ. Þeir sem kaupa sér einkanúmer greiða fyrir það 25.000 krónur sem renna til Umferðarráðs, auk venjulegs númeragjalds sem er 3.750 kr. Endumýja þarf leyfið á átta ára fresti. Samþykkt að hleypa níu nemum áfram 39 læknanemar áfram Á DEILDARRÁÐSFUNDI læknadeildar Háskóla íslands í gær var samþykkt að leggja fram tillögu til Háskólaráðs um að hleypa inn níu læknanemum tii viðbótar í læknadeildina vegna þeirra mistaka sem urðu á tíma- vörslu í efnafræðiprófi fyrsta árs læknanema í desember. Ef tillaga þessi verður samþykkt í Háskóla- ráði halda 39 læknanemar nú áfram á fyrsta ári í læknadeild í stað 30 eins og regla um fjölda- takmarkanir segir til um. Afgreitt í dag Að sögn Einars Stefánssonar, forseta læknadeildar, verður til- laga þessi borin upp til samþykkt- ar á auka Háskólaráðsfundi sem haldinn verður í dag, fimmtudag, kl. 13. „Ég vonast náttúrulega til að Háskólaráð fallist á þessa til- lögu, annars myndi ég ekki bera hana upp,“ sagði hann í gær, en samkvæmt öðrum heimildum Morgunblaðsins er talið líklegt að tillagan nái fram að ganga. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, formaður Stúdentaráðs Háskólá íslands, segist fagna þessaii niðurstöðu deildarráðs lækna- deildar. „Niðurstaðan tryggir að þeir stúdentar sem ekki fengu lengri tíma í efnafræðiprófinu þurfi ekki að líða fyrir mistökin sem urðu við prófvörsluna. Ég óska nemendunum níu til ham- ingju, þeir eiga þetta skilið," seg- ir hann. Ánægð með niðurstöðuna Einn þessara níu nemenda seip hér um ræðir er stúlka sem vanl - aði aðeins 0,09 stig upp á meða - einkunn sína til að vera með þeiib þijátíu efstu á prófinu. Hún var að þreyta prófið í fyrsta sinn, eh var ekki í þeim hópi sem fékk lengri tíma á efnafræðiprófinu og hefði að sögn verið tilbúin til að fara í hart hefði niðurstaða deila- arráðs ekki verið henni að skapi- „Ég er að vonum mjög ánægð og býst við að mæta í kennslutíma sem fyrst,“ sagði hún í samtali við Morgunblaðið í gær. Tillaga um að mótmæla hvalveiðum lögð fram í Ferðamálaráði Áhrif hvalveiða á ferðaþjónustu könnuð DRÖG að tillögu um að mótmæla því að hvalveiðar verði hafnar að nýju voru lögð fram á fundi Ferða- málaráðs íslands á mánudag. Af- greiðslu tillögunnar var frestað fram til næsta fundar Ferðamála- ráðs, sem haldinn verður 10. febrúar næstkomandi. „Tillagan gekk út á það að það bæri að fara varlega í ákvarðana- töku um að hefja hvalveiðar, a.m.k. áður en búið væri að kanna til hlítar þau áhrif sem það gæti haft fýrir ferðaþjónustuna, sem er nú orðinn næststærsti gjald- eyrisaflandi atvinnuvegur þjóðar- innar,“ sagði Birgir Þorgilsson, formaður Ferðamálaráðs, í sam- tali við Morgunblaðið. Hann sagði umræðu um tillög- una hafa verið málefnalega og að eðlilega hefðu komið fram skoðan- ir og rök bæði með og á móti. Þó væri hans tilfinning sú að það væru frekar fleiri á þeirri skoðun að ekki bæri að hefja hvalveiðar. Ástæða þess að afgreiðslu til- lögunnar var frestað var sú að margir fulltrúanna á fundinum voru að sjá hana í fyrsta sinn á mánudaginn og höfðu því ekki náð að kynna sér hana nægilega vel. „Fulltrúamir munu nú kynna sér afstöðu sinna umbjóðenda heima í héraði og annarra hagsmunaaðila og koma með mótaða afstöðu til fundarins 10. febrúar. Við munum einnig leita álits þeirra sem standa fyrir skrifstofum Ferðamálaráðs erlendis, í Frankfurt og New York, og biðja þá að kynna sér sjónar- mið þeirra aðila sem helst stunda íslandsferðir beggja vegna hafs- ins,“ sagði Birgir. Eyrarbakki Kaffi Lefolii verður opið lengur á kvöldin DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hef- ur fellt úr gildi ákvörðun sýslu- mannsins í Árnessýslu um styttri opnunartíma veitingahússins Kaffí Lefolii á Eyrarbakka. Sýslumaður hafði úrskurðað að Þóri Erlingssyni, eiganda staðar- ins, væri óheimilt að hafa opið lengur en til kl. 22 á kvöldin virka daga og til kl. 23:30 um helgar, en samkvæmt úrskurði ráðuneyt- isins var þessi ákvörðun hans ekki í samræmi við lög og verður veitingahúsið því hér eftir opið til kl. 23:30 á virkum dögum og til kl. 2 eftir miðnætti um helgar líkt og áður var. Þórir sagðist fagna þessari nið- urstöðu. Hún væri í samræmi við það sem hann hefði vonast eftir. Hann sagðist hafa trú á að íbúar á Eyrarbakka fögnuðu henni einnig enda hefðu þeir lýst al- mennri óánægju með ákvörðun sýslumanns á sínum tíma. Morgunblaðið/Golli ÞÓRIR Einarsson ríkissáttasemjari ræðir við forystumenn Dagsbrúnar og Framsóknar á samningafundi í Karphúsinu. Dagsbrún og Framsókn vísa kjaradeilu sinni til sáttasemjara Nefndir undirbúa af- greiðslu verkfallsboðunar VERKALYÐSFELOGIN Dagsbrún og Framsókn hafa sett á taggirnar tvær sameiginlegar nefndir til að vinna að undirbúningi ákvarðana og atkvæðagreiðslna um boðun vinnu- stöðvunar ef viðræðutilraunir um gerð kjarasamninga reynast árang- urslausar. Halldór Bjömsson, formaður Dagsbrúnar, segist vera þeirrar skoðunar að ef til átaka kemur á vinnumarkaði muni þau hefjast í næsta mánuði. Ekki miklar líkur á samkomulagi Samninganefndir Dagsbrúnar og Framsóknar vísuðu á fundi hjá ríkissáttasemjara í gærmorgun kjaradeilu sinni við vinnuveitendur á almenna vinnumarkaðinum til sáttasemjara en hins vegar var ákveðið að bíða um sinn með að visa viðræðum við samninganefnd sveitarfélaga til sáttasemjara. „Mér sýnist ekki miklar líkur á að menn nái saman miðað við það bil sem er á milli aðila í dag. Hvorug- ur aðilinn virðist tilbúinn að spila út öðru en þegar hefur komið fram,“ sagði Halldór Björnsson. Dagsbrún og Framsókn hafa kos- ið sérstaka kjömefnd félaganna sem á að annast undirbúning og af- greiðslu ef ákveðið verður að bera tillögu um verkfallsboðun undir at- kvæði í félögunum en skv. þeim breytingum sem gerðar voru á lög- um um stéttarfélög og vinnudeilur í fyrra, dugar ekki lengur að kalla saman félagsfund til boðunar verk- falls, heldur þarf að viðhafa almenna atkvæðagreiðslu um tillögu um boð- un vinnustöðvunar. „Okkur fannst eðlilegt að setja á laggirnar sameiginlega nefnd til að vega og meta þessa hluti svo menn yrðu alveg klárir á því hvernig ætti að standa að þessu. Auk þess settum við á fót verkfallsnefnd sem á að leggja línurnar um hvernig menn sjá þessi átök fyrir sér ef til þeirra kem' ur,“ sagði Halldór. Meta stöðuna um mánaðamót Halldór sagði að ríkissáttasemjar’ réði nú ferðinni í viðræðunum. Hins vegar hefði komið skýrt fram á fund' inum 5 gær að verkalýðsfélögin vildu ekki draga viðræðurnar á langinn heldur ætluðu menn að skoða stöð- una um næstu mánaðamót. Gert ráð fyrir að næsti samninga' fundur félaganna með viðsemjend' um verði haldinn hjá ríkissáttasemj' ara í næstu viku. Verkamannasambandið, Röntg' entæknafélagið og Múrarasamband íslands vísuðu kjaraviðræðum þeirra við viðsemjendur sína einnig ld sáttasemjara í gær.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.