Morgunblaðið - 16.01.1997, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 16.01.1997, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Könnun á viðhorfum erlendra ferðamanna til Reykiavikur Almenn ánægja með þjónustuna Könnun meðal erlendra gesta í Reykjavík Af hverju er sérstakur áhugi á að dvelja í Reykjavík? Fjöldi Hlutfall Kynnast höfuðborginni 285 38,6 Ráðstefna, viðskiptaerindi, vinna 75 10,0 Miðpunktur fyrir dagsferðir 74 10,0 Afþreying og/eða menning 55 7,4 Vil skoða allt landið 49 6,6 Góður upphafspunktur fyrir ferð um landið 42 5,7 Annað 160 21,7 Samtals 740 100,0 Af hverju er ekki sérstakur áhugi á að dvelja í Reykjavík? Áhugi á að skoða náttúruna Áhugi á að skoða landið Er í skipulagðri hópferð Annað, eða engin ástæða Samtals Hótel Gistiheimili Tjaldstæði Is 110,3% Svara ekki □ 2,8% Mjög ánægð(ur) Frekar Hlutlaus Frekar óánægð(ur) □ 2,0% Mjög óánægð(ur) |] 0,8% Fjöldi 193 166 30 151 540 Hlutfall 35.7 30.7 5,6 28,0 100,0 46,2% 40,7% Hvar er gist meðan dvalið er í Reykjavík? (%af 1.378) 44,6% 38,5% 14,0% Hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ertu með aðstöðuna á gististaðnum? Fótgangandi í strætó í langferðabíl í leigubíl í Bílaleigubíl í einkabíl Á reiðhjóli Annað og þá, í hvers konar verslun? Matvöruverslun I.' fBlf.LÁÚj Minjagripaverslun ú .V‘M Bókaverslun | Annað I . Vr1 21,0% »!■—71.1% Hvernig ferðast þú helst um Reykjavík? (Flestir ferðast á fleiri en einn máta) (af 1.378) höfðu verslað í Reykjavík, ajjasaa 68,8% W8& 56,9% 146,9% Heimild: Atvinnu- og ferða- málastofa Reykjavíkurborgar ERLENDIR ferðamenn eru al- mennt ánægðir með þá þjónustu sem í boði er í Reykjavík og þrátt fyrir að dvalartími erlendra gesta á íslandi hafi að meðaltali styst hefur höfuðborgin haldið sínum hlut. Þetta eru m.a. niðurstöður viðhorfskönnunar meðal erlendra ferðamanna sem gerð var á vegum atvinnu- og ferðmálastofu Reykja- víkurborgar sumarið 1996. í könnuninni kemur líka fram að hinn dæmigerði erlendi ferðamaður í Reykjavík kemur frá norðurhluta Evrópu. Hann er um fertugt og er sérfræðingur, kennari eða í þjón- ustu hins opinbera. Laun hans eru um eða yfir meðallagi og hann er í sinni fyrstu í heimsókn á íslandi. Umsjón könnunarinnar var í höndum nemenda á lokaári í sálar- fræði við Háskóla íslands. Úrtakið var 2.000 manns en spumingalist- um var dreift til erlendra gesta á 20 gististöðum í borginni. Svör bár- ust frá 1.378 eða 68,4% úrtaksins. Margir versla í matvöruverslunum Undirbúningur könnunarinnar hefur staðið í um tvö ár en hún er liður i stefnumótun Reykjavíkur- borgar í ferðamálum. „Tilgangur- inn er að safna upplýsingum sem nýta má til að bæta aðstöðu ferða- manna og vinna að markvissari markaðssetningu," sagði Anna Margrét Guðjónsdóttir, ferðamála- fulltrúi Reykjavíkurborgar. Hún sagði ennfremur að undir lok mán- aðarins væri fyrirhugað að efna til borgarafundar þar sem fólki gæfist kostur á að koma hugmyndum sín- um um ferðaþjónustu á framfæri." Að meðaltali dvelja erlendir gest- ir fjórar nætur í Reykjavík en með- aldvalartími þeirra á íslandi hefur styst úr hálfum mánuði í 11 daga, að sögn Önnu Margrétar. Könnunin leiddi m.a. í ljós að yfir 80% erlendra ferðamanna eru ánægðir með gististaði borgarinnar og þá þjónustu sem þar er veitt. Þá kom í ljós að 60% þeirra hafa ekki síður áhuga að dvelja í höfuð- staðnum en að skoða náttúru lands- ins. „Sérstaklega eru það Frakkar og Bandaríkjamenn sem hafa áhuga á Reykjavík en jafnframt kom fram mikill áhugi hjá fólki sem komið er yfir miðjan aldur.“ Aðstandendum könnunarinnar kom á óvart að 69% ferðamanna sem á annað borð gera innkaup í Reykjavík, versla í matvöruverslun- um. „Það er athyglisvert þar sem mikill meirihluti þeirra gistir á hót- elum og gistiheimilum," segir Anna Margrét. Alls eru 88% þeirra sem versla, mjög eða frekar ánægðir með þjónustuna í reykvískum versl- unum. Þegar spurt var um verðlag tóku um 60% afstöðu og meirihluti þeirra virtist vera sáttur við verðlagið, m.a. á matvörum og gistingu. Að sögn Önnu Margrétar ber að taka niðurstöðum um eyðslu ferða- manna með fyrirvara þar sem svar- hlutfall var einungis 43%. Þegar spurt var um heildareyðslu á ís- landi kom í ljós að um 40% er- lendra gesta áætla að um 20% af eyðslunni fari fram í Reykjavík. Þriðjungur fer á söfn Vægi skipulagðra hópferða hefur minnkað umtalsvert sl. ár að mati Önnu Margrétar, en könnunin leiddi í ljós að um 60% ferðamanna í sum- arleyfi á íslandi, ferðast á eigin vegum. Verulegur áhugi kom fram meðal ferðalanga á listum og menningu en rúmlega þriðjungur gesta fór á söfn og var Þjóðminjasafnið vinsæl- ast. Meirihluti ferðamanna kýs að fara fótgangandi um borgina en um 40% ferðast með SVR. Um 33% svarenda fengu upplýs- ingar um ísland sem ferðamanna- land hjá vinum og kunningum en 2,5% ferðamanna nálguðust upplýs- ingar í gegnum alnetið, þar af um 17% Bandaríkjamanna. Viðræður við Atlants- álhópinn STJÓRNENDUR Landsvirkjunar og Markaðsskrifstofa iðnaðarráðuneyt- isins eiga í dag fund í New York með forystumönnum Atlantsáls- hópsins, sem hafa haft uppi áform um að reisa álver á Keilisnesi. Búist er við að á fundinum skýrist hvort viðræður verða teknar upp að nýju um byggingu álvers á Keilisnesi, en þeim var frestað árið 1991. Þorsteinn Hilmarsson, upplýs- ingafulltrúi Landsvirkjunar, sagði að á fundinum myndu stjórnendur Landsvirkjunar kynna fyrir við- semjendum sínum stöðu raforku- mála á íslandi og möguleika fyrir- tækisins til að útvega stórum orku- kaupendum raforku í framtíðinni. Á vegum Atlansálshópsins hefði verið unnið nýtt frummat á hagkvæmi þess að reisa álver á Keilisnesi og sagði Þorsteinn að það yrði kynnt á fundinum. í framhaldi af því myndi skýrast hvort viðræðum yrði haldið áfram og þá með hvaða hætti. -----»,,+ »--- Kappsigling til Islands í SUMAR er von á 50 skútum í al- þjóðlegri kappsiglingu frá Englandi til íslands og eru skúturnar væntan- legar til Reykjavíkur 17. júní. Verður það í fyrsta sinn sem slík keppni fer fram en ákveðið hefur verið að hún verði endurtekin annað hvert ár. Að sögn Ágústs Ágústssonar markaðsstjóra Reykjavíkurhafnar, er það siglingaklúbburinn Royal West- ern Yaeht Club of England, sem skipuleggur siglinguna í samstarfí við siglingaklúbbinn Brokey. Þegar hafa um 111 skútur tilkynnt þátttöku en hámarksfjöldi þátttakenda er 50. Tveir verða um borð í skútunum sem eru 35-45 fet að stærð. Sjóleiðin frá Plymouth til Reykja- víkur er 1.170 mflur og er gert ráð fyrir að siglingin taki um tíu daga. Ákveðið hefur verið að efna til golf- móts fyrir þátttakendur á golfvellin- um á Seltjarnarnesi. Formaður AS A segir viðræður um samninga í loðnuverksmiðjum ganga of hægt Breytist vinnubrögð ekki skellur á verkfall Morgunblaðið/Garðar Pálsson VON er á skemmtiferðaskipinu Queen Elizabeth II til Reykjavík- ur i júlí í sumar en skipið hafði stutta viðkomu í Reykjavíkur- höfn síðastliðið sumar. Von á 70 þúsund tonna skemmtiferðaskipi SIGURÐUR Ingvarsson, formaður Aiþýðusambands Austurlands, segir að breytist vinnubrögð atvinnurek- enda í samningamálum ekki komi til verkfalls í loðnuverksmiðjum á Aust- urlandi. Hann segist hafa orðið fyrir vonbrigðum með viðbrögð vinnuveit- enda á samningafundi í gær. Stéttarfélögin sem fara með samn- ingsumboð fyrir starfsmenn loðnu- verksmiðja SR-mjöls hf. og loðnu- verksmiðjanna á Neskaupstað, Eski- firði, Hornafirði og Vopnafirði ræddu við vinnuveitendur hjá ríkissátta- semjara í gær og var það fyrsti samn- ingafundur sem haldinn er í kjara- deilunni frá því í lok nóvember. „Ég varð fyrir vonbrigðum með fundinn. Það kom í ljós að Vinnuveit- endasambandið er ekki undirbúið í málinu. Það er búið að hafa kröfur frá okkur til umfjöllunar í u.þ.b. tvo mánuði. Núna óska þeir eftir um- hugsunarfresti og segjast þurfa lengri tíma til að móta sínar kröf- ur,“ sagði Sigurður. Næsti fundur eftir viku Ágreiningur var milli samnings- aðila um tímasetningu á næsta fundi. Stéttarfélögin óskuðu eftir fundi í þessari viku, en vinnuveitendur sögð- ust þurfa meira en eina viku til að skoða kröfur og koma með viðbrögð við þeim. Niðurstaða sáttasemjara var að boða næsta fund eftir viku. Sigurður sagðist hafa gert sér vonir um að unnið yrði í málinu af krafti eftir að málinu var vísað til sátta- semjara. Hann sagðist ekki þora að fullyrða að vinnuveitendur væru vís- vitandi að tefja viðræður. „Ef svo er þá eru vinnuveitendur að leika sér að eldi, svo ég vísi til ummæla framkvæmdastjóra VSÍ. Ef samningamenn VSÍ snúa sér ekki af krafti að því að leysa málið eru þeir að kalla verkföll yfir sína menn sem reka loðnuverksmiðjur. Ef at- vinnurekendasamtökin breyta ekki vinnubrögðunum í samningaviðræð- um þá eru þeir að kalla yfir sig verk- föll,“ sagði Sigurður og bætti við að stéttarfélögin ætluðust til þess að niðurstaða yrði fengin í viðræðum innan skamms tíma. Sigurður sagði að aðalkrafa stétt- arfélaganna væri að það yrði bætt við einum vakthópi í loðnuverksmiðj- um þannig að þeir verði þrír og að þessi breyting leiddi ekki til tekjur- ýmunar hjá starfsmönnum. Vinnutí- matilskipun ESB gerði það að verk- um að nauðsynlegt væri að breyta vinnufyrirkomulagi i loðnubræðslum. Vinnutímatilskipunin hefur áhrif á viðræður Þórarinn V. Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri VSÍ, vísaði því á bug að vinnuveitendur kæmu illa und- irbúnir til þessarra viðræðna. Það hefði verið mikil óvissa um vinnu í loðnuverksmiðjunum vegna vinnutí- matilskipúnar Evrópusambandins. Samningar milli VSÍ og ASÍ hefðu ekki tekist um framkvæmd tilskipun- arinnar fyrr en um áramót og enn hefðu ekki náðst samningar milli verkalýðshreyfingarinnar og Vinnu- málasambandsins um málið. Það hefði því ekki verið hægt að hefja vinnu við gerð nýs kjarasamnings fyrr en nú. Þrátt fyrir þennan þrönga tímaramma hefðu VSI og Vinnu- málasambandið lýst því yfir að þau myndu svara öllu kröfum stéttar- féíaganna á næsta fundi eftir viku. Þórarinn sagði það fráleitt að vinnu- veitendur væru að tefja viðræður. í SUMAR er von á nýju skemmti- ferðaskipi, Enchantment of the Sea, til landsins. Skipið tekur milli 2.300- 2.400 farþega og kemur við í Reykja- vík á leið sinni til Bandaríkjanna. Það er væntanlegt í september en í júlí er von á Queen Elizabeth II hing- að öðru sinni. Að sögn Ágústs Ágústssonar, markaðsstjóra Reykjavíkurhafnar, er von á svipuðum fjölda skemmtiferða- skipa til landsins í sumar og var síðastliðið sumar. Þegar er búið að skrá um 50 skipakomur en endanleg- ur fjöldi mun ekki liggja fyrir fyrr en eftir páska. Stærsta skipið sem von er á til landsins er nýja skipið, Enchantment of the Sea, en það er um 70 þús. tonn að stærð og tekur milli 2.300- 2.400 farþega. Skipið er bandarískt og verður hleypt af stokkunum í vor eða sumar. Ferðin til íslands með viðkomu í Reykjavík og á Akureyri er með fyrstu ferðum skipsins en héðan heldur það til heimahafnar í Bandaríkjunum. Ágúst sagðist reikna með að fleiri farþegar kæmu til iandsins með skemmtiferðaskipum í sumar en síðastliðið sumar. „Skipin eru að stækka þannig að þótt skipakomur séu álíka margar má búast við að farþeg- ar verði 22-23 þúsund," sagði hann.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.