Morgunblaðið - 16.01.1997, Qupperneq 10
10 FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hert eftirlit með innflutningi unninna kjötvara til Danmerkur
Hefðbundinn þorramatur
ekki á boðstólum þetta árið
ALLT bendir til þess að hefðbundinn þorra-
matur verði ekki á boðstólum á þorrablótum
Íslendingafélaganna í Danmörku þetta árið
þar sem dönsk stjórnvöld heimila ekki inn-
flutning á kjötvörum til einkanota í stærri
sendingum en sem nemur einu kílói til ein-
staklinga. Að sögn Guðmundar Sigþórssonar,
skrifstofustjóra í landbúnaðarráðuneytinu, er
um að ræða hertar reglur og takmarkanir
danskra stjórnvalda á innflutningi kjötvara
til einkanota í samræmi við reglur Evrópusam-
bandsins.
Sendiráðið í Kaupmannahöfn hefur ritað
íslendingafélögum og námsmannafélögum í
Danmörku bréf og greint þeim frá þeim tak-
mörkunum sem eru á innflutningi kjötvara til
Danmerkur og vandkvæðum sem af því gætu
hlotist. Að sögn Róberts Trausta Árnasonar
sendiherra hefur hann ritað danska landbún-
aðarráðuneytinu bréf þar sem spurst er fyrir
um það hvort möguleiki sé á því að veita
undanþágu fyrir íslendingafélögin og náms-
mannafélögin í Danmörku til að flytja inn
þorramat, enda sé hann aðeins til þeirra nota
að halda þorrablót en ekki annars brúks. Svar
við þessari málaleitan hefur enn ekki borist.
„Sendiráðið er að vinna í málinu, en ég vil
gera þetta löglega og með vitund og vilja
danskra yfirvalda," sagði Róbert Trausti.
Róbert Trausti sagði að nokkrir íslendingar
hefðu haft samband við sendiráðið í Kaup-
mannahöfn fyrir síðustu jól og borið sig illa
yfir því að jólamatur frá ættingjum heima á
Islandi hefði stoppað í tollinum og þar verið
lesin upp reglugerðarákvæðin fyrir viðtakendur.
Sömuleiðis hefði verslunarkeðjan Super-
Brugsen leitað ásjár hjá sendiráðinu um aðstoð
við að flytja inn íslenska unna kjötvöru sem
SuperBrugsen hefur hug á að bjóða upp á í
verslunum sínum. Þegar forseti Islands var í
opinberri heimsókn í Danmörk í nóvember síð-
astliðnum var haldin íslensk vörukynning og
fékk SuperBrugsen þá ekki að flytja inn hangi-
kjöt og fleiri vörur á þeirri forsendu að innflutn-
ingur á unninni íslenskri kjötvöru væri ekki
heimill samkvæmt dönskum reglugerðará-
kvæðum.
Skítamórall heldur uppi
stuðinu á þorrablótinu
Þrátt fyrir að útlit sé fyrir að ekki verði
hægt að bjóða upp á íslenskan þorramat þetta
árið mun Islendingafélagið í Óðinsvéum halda
þorrahátíð hinn 14. febrúar næstkomandi og
verður þar boðið upp á hlaðborð að hætti Dana,
en til að blíðka hátíðargesti vegna skortsins á
súrsuðum hrútspungum, hákarli og fleira góð-
gæti mun hljómsveitin Skítamórall halda uppi
stemmningunni að loknu borðhaldi.
Strangari framkvæmd í
kjölfar stærri sendinga
Guðmundur Sigþórsson segir að samkvæmt
reglum Evrópusambandsins sé óheimilt að
flytja inn meira en eitt kíló af kjöti í sendingu
til einkanota, en um slíkan innflutning gilda
mun vægari reglur um gjöld og eftirlitsskoðun
en um innflutning á meira magni.
„Sama vandamál hefur komið upp í Svíþjóð
fyrir tvenn síðustu jól, en hins vegar var fund-
in bráðabirgðalausn í báðum tilfellunum sem
er óviðunandi vegna þess að það er auðvitað
ekki hægt að fá um það niðurstöðu á síðustu
stundu að jólamatur, sem verið er að senda
aðilum úti, fái að koma inn í landið. Það þarf
að vera ljóst löngu fyrr hvort þetta er hægt
eða ekki. Þeir hafa verið að herða eftirlitið
og framkvæmd reglnanna, en jólamatarsend-
ingarnar fóru á sínum tima í gegn af því að
þetta voru litlar sendingar til einstaklinga og
kannski ekki í miklu magni. Síðan hefur ver-
ið tekin upp skipulögð sending á matvælunum
hjá Eimskipi og Samskipum og þar með jókst
magnið og þá var farið að stemma stigu við
þessu og framkvæma þetta strangar,“ sagði
Guðmundur.
Gjaldheimt-
an lögð niður
Ríkissjóður innheimtir þinggjöld í Reykjavík
Mótmæli
við bygg-
ingu álvers
STJÓRN Búnaðarsambands Kjalar-
nesþings hefur lýst yfir fullum stuðn-
ingi við hreppsnefnd Kjósarhrepps og
aðra íbúa við Hvalfjörð gegn áformum
um byggingu álvers á Grundartanga.
„Það ætti að vera öllum aðilum ljóst
að staðsetning stóriðju í miðju land-
búnaðarhéraðs samrýmist ekki þeirri
framtíðarsýn forystumanna í land-
búnaði um markaðssetningu á hrein-
leika og hollustu íslenskra matvæla.
Bent skal á að um 15% af dags-
neyslu á mjólk á höfuðborgarsvæðinu
koma af þessu svæði kringum Hval-
fjörð. Vísir að lífrænni ræktun, þjón-
ustu við ferðamenn og útivistarfólk
er þegar hafinn og er sá vaxtarbrodd-
ur sem menn horfa til í náinni fram-
tíð. Öllu þessu er stefnt í voða með
áformum stjómvalda um mengandi
stóriðju á Grundartanga," segir m.a.
í yfirlýsingu stjórnarinnar.
Kraf ist rannsókna og
efnamælinga
Heilbrigðisnefnd Kjósarsvæðis
hefur gert fjölmargar athugasemdir
við starfsleyfi fyrir álver á Grundart-
anga og á fundum nefndarinnar 10.
og 12. janúar voru gerðar nokkrar
bókanir vegna málsins.
Nefndin gerir m.a. athugasemd
við að umhverfísráðherra skuli hafa
fellt úr úrskurði skipulagsstjóra ríkis-
ins mikilvæga þætti að mati nefndar-
innar, er varði starfsleyfið og þess
er krafist að umhverfisrannsóknir
taki til andrúmslofts, þurrlendis,
vatna, strandsvæða og sjávar. Þá er
þess krafist að komið verði upp föst-
um mælistöðvum á strandlengjunni
sunnan Hvalljarðar þar sem stöðugt
verði mæidur styrkur brennisteinsdí-
oxíðs, flúors og ryks í andrúmslofti.
Gefa út rit
um fíkniefni
FÉLAG íslenskra fíkniefnalög-
reglumanna hefur gefið út rit
um fíkniefni. Ritið er ætlað
kennurum og foreldrum og
verður því dreift í skóla og
aðrar uppeldisstofnanir. I því
er fjallað um öll ólöglegu efnin,
áhrif þeirra og birtar myndir
af efnunum og áhöldum til
neyslu þeirra. Lögreglumenn-
irnir Ólafur Guðmundsson, full-
trúi í forvarnadeild og Einar
Karl Kristjánsson, fulltrúi í
fíkniefnadeild, afhentu Birni
Bjarnasyni menntamálaráð-
herra eintak af ritinu í gær.
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
samkomulag milli ríkissjóðs og
borgarsjóðs um að hætta sameig-
inlegri innheimtu á opinberum
gjöldum í Reykjavík. Samkomu-
lagið gerir ráð fyrir að Gjaldheimt-
an verði lögð niður frá og með 1.
janúar 1998.
I samkomulaginu kemur fram
að eitt af verkefnum starfshóps,
sem fjármálaráðherra skipaði til
að vinna að innheimtumálum ríkis-
ins á opinberum gjöldum, væri að
sameina sem mest innheimtu ríkis-
ins í lögsagnarumdæmi Reykjavík-
ur í eina stofnun. Skyldi að því
stefnt að það yrði eigi síðar en
1. júlí 1998. í vinnu starfshópsins
hafi komið fram að ef segja ætti
upp samningum um sameiginlega
innheimtu í Reykjavík yrði það að
gerast með árs fyrirvara. Jafn-
framt að ef flytja ætti innheimtu
á þinggjöldum frá Gjaldheimtunni
til ríkissjóðs væri heppilegast að
það yrði gert um áramót.
Fram kemur að samkomulagið
fæli í sér að aðilar eru sammála
um að Gjaldheimtan verði lögð
niður 1. janúar 1998. Ríkissjóður
myndi frá og með sama tíma taka
við innheimtu á þinggjöldum í
Reykjavík. Á árinu 1997 munu
samningsaðilar ganga frá samn-
ingi sín á milli um þau atriði sem
tengjast niðurlagningu Gjald-
heimtunnar svo sem ráðstöfun á
húsnæði og öðrum búnaði, lífeyris-
réttindum starfsmanna, innheimtu
fasteignagjalda o.fl.
Bifreiða-
*
skoðun Is-
lands skipt
í tvennt
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á fundi
sínum á þriðjudag að skipta Bifreiða-
skoðun Islands í tvö_ fyrirtæki, það
er Bifreiðaskoðun íslands hf. og
Skráningarstofuna hf. og jafnframt
að selja helmings hlut ríkisins í Bif-
reiðaskoðun. Ríkið mun áfram eiga
helming í Skráningarstofunni hf.,
að sögn Þórhalls Ólafssonar, aðstoð-
armanns dómsmálaráðherra.
Hreinn Loftsson, hæstaréttarlög-
maðui' og formaður einkavæðingar-
nefndar, segir að hlutui' ríkisins í
Bifreiðaskoðun verði varla seldur
fyrr en eftir mitt ár. „Nú er verið
að ganga frá endanlegri skiptingu
fyrirtækisins. Hluthafafundur verð-
ur haldinn um mánaðamót og í kjöl-
far hans hefst undirbúningur að söl-
unni væntanlega," segir Hreinn.
Jafnframt segist hann búast við að
hlutabréfin verði boðin út til almenn-
ings.
Hreinn segir ekki hægj, að áætla
hversu mikið fáist fyrir hlut ríkisins.
„Væntanlega verður gerð úttekt á
fyrirtækinu eftir skiptinguna og
unnið að tillögugerð um söluferilinn
að því loknu. Sala ætti því að geta
hafist seinni hluta ársins."
-----» ■».♦
Snj óbrettaþj ófar
handsamaðir
Lögreglan lok-
aði flóttaleiðum
SNJÓBRETTI var stolið í Bláfjöllum
í fyrradag en fyrir snarræði eigend-
ans og lögreglunnar í Hafnarfírði
náðust þjófamir eftir skamma stund.
í bíl þjófanna fundust jafnframt tvö
snjóbretti sem stolið var um síðustu
helgi.
Eigandi brettisins hafði skilið
það eftir um stund við skálann í
Bláfjöllum. Þegar hann kom aftur
ásamt félaga sínum til að vitja um
það var það horfið. Þeir hlupu þá
strax að bílastæðunum. Fólk sem
þar var statt sagði þeim að tveir
strákar með snjóbretti hefðu fyrir
skömmu farið í ofboði í hvítan
fólksbíl og keyrt af stað. Eigandinn
hafði samband við starfsfólk í Blá-
fjöllum sem hringdi á lögregluna í
Hafnarfirði og Reykjavík. Lögreg-
an lokaði strax flóttaleiðum þjóf-
anna og greip þá skömmu síðar.
Að sögn Einars Bjarnasonar,
starfsmanns í Bláfjöllum, er þar
alltaf öðru hveiju stolið snjóbrett-
um, en þetta er í fyrsta sinn sem
þjófarnir nást. Hann segir að brett-
in kosti 20-60 þúsund krónur og
missir þeirra sé því tilfinnanlegur.
----------» ♦ ♦
Handteknir
vegna innbrota
á Akureyri
Rannsóknarlögreglan á Akur-
eyri handtók mann í fyrrakvöld
og þrjá menn til viðbótar í gær í
tengslum við nokkur innbrotsmál
í bænum. I gær var maðurinn sem
handtekinn var í fyrrakvöld úr-
skurðaður í gæsluvarðhald til
laugardags og þá hefur einn þre-
menningana viðurkennt aðild að
sex innbrotum.
Rannsókn málsins tengist m.a.
innbrotum í Ding Dong, veitinga-
staðinn Við Pollinn, Trygging-
amiðstöðina, Trésmíðaverkstæði
Iðju, vinnuskúra hjá SJS-verktök-
um og skrifstofuhúsnæði Skóg-
ræktarfélags Eyfirðinga í Kjarna-
skógi. Að sögn Daníels Snorrason-
ar, lögreglufulltrúa, leikur grunur
á að fleiri innbrot tengist málinu,
sem enn er í rannsókn.
VESTURBÆR
5 millj. Byggingarsjóður ríkisins
Glæsileg 3ja-4ra herb. endaíbúð á 2. hæö í nýlegu húsi við
Bárugranda. Parket. Suðurvalir. Útsýni. Bílskýli. Áhv. 5 millj.
Byggingarsjóður ríkisins (40 ára). Ákv. sala.
Fasteignasalan Framtíðin,
sími 511 3030.