Morgunblaðið - 16.01.1997, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Tónleikar til styrktar
Ólafi Helga Gíslasyni í Glerárkirkju
Bæjarstjóri um
ábyrgð vegria HM ’95
Hlaupum
ekki frá
ábyrgðinni
JAKOB Björnsson bæjarstjóri á
Akureyri sagði á fundi bæjarstjórn-
ar í vikunni að verið væri að skoða
ýmsa þætti ábyrgðarveitingar bæj-
arins til Halldórs Jóhannssonar
vegna aðgöngumiðasölu á heims-
meistaramótið í handknattleik sem
fram fór í maí árið 1995. Akur-
eyrarbær veitti einkaleyfishafa að-
göngumiðasölunnar 20 milljóna
króna ábyrgð.
Fram kom í máli bæjarstjóra að
HSÍ teldi að skilyrði ábyrgðar-
greiðslusamnings um greiðslu
ábyrgðarinnar væri nú uppfyllt eft-
ir að bú Halldórs var tekið til gjald-
þrotaskipta. Ymis atriði varðandi
framkvæmd mótsins hafi orðið með
öðrum hætti en upphaflega var
gert ráð fyrir og hafi bæjarlög-
manni verið falið að kanna til hlítar
þá þætti málsins og fleiri atriði
varðandi samninginn.
„Akureyrarbær hleypur ekki frá
ábyrgð sinni í þessu máli frekar en
öðrum, en það er full ástæða til að
skoða málið gaumgæfilega," sagði
Jakob, en bæjarlögmaður mun eiga
fund með forsvarsmönnum HSÍ inn-
an tíðar. Kvað Jakob vonir standa
til að staða mála skýrðist eftir fund-
inn.
Sameining sveitarfélaga við Eyjafjörð
skemmd í nýrum og varð að fara
reglulega í nýrnavél. Árið 1983
fékk hann nýra í Danmörku og
náði þeirri heilsu að geta unnið að
búskap með foreldrum sínum að
Brúnum næstu árin. Fyrir þremur
árum fór ígrædda nýrað að gefa
sig og verður hann nú að fara reglu-
lega í nýrnavél. Á síðasta ári þurfti
að taka af honum báða fæturna
vegna dreps og skömmu seinna
einnig fingur. Hann dvelur nú á
Landspítalanum og er byrjaður að
standa í gervifætur. Hefur Ólafur
tekið veikindum sínum með jafnað-
argeði og stefnir að því að komast
í endurhæfingu að Reykjalundi og
í framhaldi þess er það ósk hans
að komast í þjónustuíbúð fyrir fatl-
aða í Reykjavík.
Allir seldir miðar á tónleikana eru
jafnframt happdrættismiðar, en
meðal vinninga er flugfar fyrir tvo
með FN til Reykjavíkur, trérista
eftir Þorgerði Sigurðardóttur og
ostakarfa frá Osta- og smjörsölunni.
Miðaverð á tónleikana er 1.300
krónur. Fyrir þá sem vilja styðja
við bakið á Ólafi en komast ekki á
tónleikana er tekið á móti framlög-
um á reikning nr. 5000 í Sparisjóði
Suður-Þingeyinga og nr. 8500 í
Búnaðarbankanum á Akureyri.
Fylgstu meb í
Kaupmannahöfn
Morgunblabib
fæst á Kastrupflugvelli
og Rábhústorginu
IWor^nnhlatiib
-kjarni málsins!
Akureyrarbær hafi
frumkvæði að fundi
GÍSLI Bragi Hjartarson bæjarfull-
trúi Alþýðuflokks telur að Akur-
eyrarbær eigi að hafa frumkvæði
að því að sveitarfélög í Eyjafirði
hugi af alvöru að sameiningu.
Gísli Bragi sagði á fundi bæjar-
stjórnar að sér virtist sem sveitar-
stjórnarmenn hefðu aðra sýn en
áður varðandi sameiningu, þeir
væru jákvæðari nú. „Það er allt
annar tónn í mönnum núna en var,“
sagði hann. Nefndi hann að sveitar-
félög á svæðinu hefðu með sér
margvíslegt samstarf og Akur-
eyrarbær veitti nágrannasveitarfé-
lögum sínum þjónustu af ýmsu tagi.
„Akureyringar hafa viljandi haldið
sig til hlés í þessu máli, en nú held
ég að tími sé kominn til að þeir
taki af skarið og hafi frumkvæði
að viðræðum."
20 þúsund íbúar?
Fimmtánþúsundasti Akureyring-
urinn var heiðraður á dögunum og
sagði Gísli Bragi af því tilefni að
hann vonaðist til að innan tíðar
yrði sveitarfélagið með um 20 þús-
und íbúa - það væri vel hægt ef
rétt væri á spilunum haldið.
„Það eru stjómvöld sem ráða
byggðaþróun og mér sýnist sem
byggja eigi upp einhvers staðar
annars staðar en við Eyjafjörð,"
sagði Gísli Bragi. „Við höfum verið
í varnarstöðu hér varðandi íbúaþró-
un, þó svo að atvinna og góð þjón-
usta sé fyrir hendi.“
Sigfríður Þorsteinsdóttir, bæjar-
fulltrúi Framsóknarflokks sagði að
rætt hefði verið um á héraðsnefnd-
arfundi á dögunum að Akureyrar-
bær beitti sér fyrir fundi um sam-
einingu sveitarfélaga á Eyjafjarðar-
svæðinu. „Það er annað hljóð í fólki
nú en var, sveitarfélögin á svæðinu
hafa þegar með sér ijölmörg sam-
starfsverkefni og mönnum finnst
ekki ástæða til að fjölga þeim, held-
ur ganga hreint fram og vinna að
sameiningu sveitarfélaganna."
Sölumaður
Haftækni hf., Akureyri, óskar að ráða til starfa drífandi og
framsækinn sölumann, sem á auðvelt með að starfa sjálf-
stætt.
Starfssvið:
• Sala á siglinga- og fiskileitartækjum, Apple
Macintosh tölvum og tölvubúnaði.
Hæfniskröfur:
• Tæknimenntun.
• Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu á sviði
siglinga- og fiskileitartækja og góða þekkingu á
stýrikerfi Apple Macintosh tölva.
Þyrfti að geta hafið störf sem fyrst.
Skriflegar umsóknir skulu berast okkur fyrir 24. janúar
1997.
Með umsóknir verður fariö sem trúnaðarmál.
HAFTÆKNI HF.,
Hvannavöllum 14b,
600 Akureyri.
Morgunblaðið/Kristján
Nonni með
hvítan kraga
SNJÓKORN falla á allt og alla,
segir í einhverju jólalaganna og
það eru greinlega ekki ýkjur.
Styttan af Jóni Sveinssyni,
Nonna, sem stendur við Nonna-
hús í Aðalstræti á Akureyri er
þar ekki undanskilin. Nonni er
þessa dagana með hvítan kraga
og hatt og verður sennilega eitt-
hvað áfram því gert er ráð fyrir
áframhaldandi snjókomu norð-
anlands og hita um frostmark.
Morgunblaðið/Kristján
Snjómokst-
urinn hafinn
NOKKUR snjókoma var norð-
anlands í byrjun vikunnar og því
þurfti að ræsa tæki til að lireinsa
götur á Akureyri. Gert er ráð
fyrir í fjárhagsáætlun að um 15
milljónir króna fari í snjómokst-
ur og hálkuvarnir á þessu ári. Á
síðasta ári fóru 12,5 milljónir í
þessi verkefni sem er rúmlega
helmingi minna en árið þar á
undan þegar upphæðin var um
28 milljónir.
TÓNLEIKAR til styrktar Ólafi
Helga Gíslasyni að Brúnum í Aðal-
dal verða haldnir í Glerárkirkju
næstkomandi laugardag, 18. jan-
úar, og hefjast þeir kl. 15.
Fjölmargir koma fram á þessum
tónleikum; Tjarnarkvartettinn,
Álftagerðisbræður, nýstofnaður
karlakór, Karlakór Eyjafjarðar,
blandaður kór úr Suður-Þingeyjar-
sýslu, Sálubót, Þráinn Karlsson les
upp og Jóhann Már Jóhannsson og
Örn Birgisson syngja ein- og tví-
söng. Séra Pétur Þórarinsson
ávarpar samkomuna, en kynnir
verður Atli Guðlaugsson skólastjóri.
Tekur veikindunum með
jafnaðargeði
Ólafur Helgi Gíslason er tæplega
fertugur, hann greindist ungur með
AUGLÝSING
um umferð á Akureyri
Samkvæmt heimild í 81. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 og að
fenginni tillögu bæjarstjórnar Akureyrar eru hér með settar
eftirfarandi reglur um umferð á Akureyri:
Hafnarstræti noróan Kaupvangsstrætis og suðurhluti
Ráðhústorgs verða vistgata og gilda því ákvæði 7. gr.
umferðarlaga nr. 50/1987 um alla umferð í götunni.
Einstefnuakstur er heimilaður um Hafnarstræti til norðurs frá
Kaupvangsstræti að Ráðhústorgi og þaðan austur
Ráðhústorg, sunnan torgsins, að Skipagötu. Umferð
norðan og vestan Ráðhústorgs er einungis heimil fötluðum
svo og vegna vörulosunar og skal aðkoma vera frá
Skipagötu og brottakstur um Brekkugötu.
Þrjú bifreiðastæði verða framan við Hafnarstræti 99-101 og
verða tvö þeirra merkt fyrir fatlaða en eitt fyrir gesti heilsu-
gæslustöðvar og önnur þrjú verða framan við Hafnarstræti
107 og verða tvö merkt fyrir fatlaða en eitt almennt með 10
mínútna hámarksstöðutíma.
Ákvörðun þessi er tímabundin og gildir frá 15. janúar 1997
til 30. maí 1997.
Akureyri, 3. janúar 1997.
Sýslumaðurinn á Akureyri.
Björn Jósef Arnviðarson.
Aukin ökuréttindi
Námskeið til auklnna ökuréttinda hefst í byrjun febrúar.
Upplýsingar í símunr.
462 1141 og 892 0228, Hreiðar Gislason.
462 2350 og 852 9166, Kristinn Jónsson.
Ath.:Væntanleg er breyting á reglugerð varðandi ökuréttindi.
Ökuskólinn á Akureyri sf.
Missti báða fæt-
ur á síðasta ári
i
i
í
i
I
l
I
:
5
t
i
I
I