Morgunblaðið - 16.01.1997, Qupperneq 38
38 FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 1997
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Ríkisútvarpið og alþjóðlegt tón-
listarsamstarf útvarpsstöðva
RÍKISÚTV ARPIÐ
hefur á undanförnum
árum haldið úti skipu-
lagðri kynningu á tón-
list sem er úr alfara-
leið í einhverjum skiln-
ingi; tónlist sem al-
þjóðleg útgáfufyrir-
tækja fúlsa við þar eð
annað efni selst betur.
Síðustu misseri hefur
Ríkisútvarpið til að
mynda lagt áherslu á
að kynna framandlega
tónlist Norður-, Mið-
og Suður-Ameríku í
þáttaröðinni Americ-
ana. Útvarpsþættir
þessir, sem urðu rúm-
lega fjörutíii talsins, byggðust
ýmist á tónleikum, sem hljóðritað-
ir voru hér heima, eða voru unnir
úr hljóðritum, sem Ríkisútvarpið
sótti til útvarpsstöðva, stofnana
og einstaklinga vestan hafs. Kynnt
ty. var tónlist af öllum toga, allt frá
flautuleik indíána í Amazon-frum-
skóginum og brasilískum sömbum
til kanadískrar raftónlistar.
ísMús
Þemavinna af þessum toga hef-
ur á undanförnum árum verið
kynnt í Ríkisútvarpinu undir heit-
inu IsMús, sem í fljótu bragði virð-
ist sarnruni tveggja íslenskra orða,
þ.e. Island og músík. En svo er
ekki. Yfirskriftin ísMús er dregin
af lokaatkvæðum orðsins „plural-
ismus“, og vísar til fjölstranda-
hyggjunnar, sem liggur til grund-
vallar dagskrárgerð þessari. Vert
er að minna á að lög um Ríkisút-
varpið gera beinlínis ráð fyrir, að
stofnunin vinni skipulega að því
víkka sjóndeildarhring hlustenda
sinna.
Aðföng
Ríkisútvarpið hafði samvinnu
við fjölda aðila um efnivið í Amer-
icana-þættina sem áður er getið.
Skal hér sérstaklega nefna til sög-
unnar tónskáldið, hljómsveitar-
stjórann, útvarpskonuna og tón-
menningarfrömuðinn
Aliciu Terzian frá
Argentínu, varaform-
ann alþjóða tónlist-
arráðsins, sem benti
Ríkisútvarpinu á ýms-
ar óvenjulegar leiðir
til að nálgast fjöl-
skrúðugan tónbálk
Suður- og Mið-Amer-
íku. í raun veitti Alic-
ia Terzian Ríkisút-
varpinu aðgang að
tónlist sem Evrópubú-
ar þekkja vart nema
af afspurn. Alicia
Terzian hefur einnig
ótilkvödd, í krafti
þeirrar virðingar sem
hún nýtur á alþjóðlegum vett-
vangi, ekki síst í Suður- og Mið-
Ameríku, beitt sér fyrir því, að
útvarpsstöðvar þess heimshluta
leiki og kynni íslenska tónlist af
geislaplötum. Þannig hefur hún
þakkað áhugann sem Ríkisútvarp-
ið hefur sýnt tónmenningu Suður-
og Mið-Ameríku. Eins hefur Alicia
Terzian árum saman verið skel-
eggur stuðningsmaður íslenskra
tónskálda er Ríkisútvarpið hefur
kynnt tónverk þeirra á Tónskálda-
þinginu í París. Stuðningur hennar
og einlægur áhugi hefur tvímæla-
laust leitt til þess að íslensku verk-
in hafa verið leikin víðar en ella,
íslenskri tónmenningu til fram-
dráttar almennt. Sjálf hefur hún
í áratugi kynnt íslensk tónskáld í
vikulegum útvarpsþáttum sínum í
Argentínu. Þetta allt ber að þakka.
Lokahnykkurinn á Americana
þemavinnunni er að hluta til tón-
leikar, sem Ríkisútvarpið efnir til
í Háskólabíói næstkomandi
fimmtudagskvöld í s.amvinnu við
Sinfóníuhljómsveit íslands. Þá
verður meðal annars leikið þekkt-
Viðamesti liðurinn í
þessu samstarfi, segir
Guðmundur Emilsson,
er norræna útvarpstón-
leikaröðin, sem ár hvert
hefur að geyma eina
tónleika frá hverju
landi.
asta tónverk Aliciu Terzian, fiðlu-
konsertinn í d-moll. Ofangreind
þakkarorð eru sögð af því tilefni.
Samstarf ríkisútvarpsstöðva
Norðurlanda og landanna
við Eystrasalt
En tónleikarnir á fimmtudaginn
eru sérstakir að öðru leyti. Þeir
eru einnig liður í umfangsmiklu
samstarfi ríkisútvarpsstöðva
Norðurlandanna og landanna við
Eystrasalt; samstarfi sem felst
meðal annars í dagskrárskiptum á
ýmsum sviðum tónlistar. Hér á
landi eru til að mynda framundan
útsendingar á hljóðritum frá Ung
Nordisk Musikfest, sem haldin var
í Kaupmannahöfn nú í haust, sem
og hljóðritum frá norrænni kam-
mermúsíkkeppni, sem útvarps-
stöðvarnar stóðu fyrir í Kaup-
mannahöfn fyrir skömmu og tveir
íslenskir kammerhópar tóku þátt
í fyrir hönd Ríkisútvarpsins. Að
auki skiptast löndin átta á tónlist-
arannálum. í allt eru þetta um 50
klukkustundir af útvarpsefni.
Viðamesti liðurinn í þessu sam-
starfi er norræna útvarpstónleika-
röðin, sem ár hvert hefur að geyma
eina tónleika frá hverju landi.
Að ráðast á
Guðmundur
Emilsson
FÓTHVÍLA
Efþú vilt láta þér liða
virkilega vel.
EG Skrifstofubúnaður m
Ámula 20. 108 Rvik. Sími 533 5900
llillll-,
Verslunar-
menn!
sjálfvirk skráning
Límmiðaprentari
RAFHONNUN VBH §{■
Ármúla 17 - Sími 588 3600
Fax 588 3611 - vbh@centrum.is
UNDANFARIN
misseri og ekki síst
. síðustu vikur hafa
ýmsir einstaklingar
og fjölmiðlar, með
DV í broddi fylking-
ar, farið herför gegn
verksmiðju járn-
blendifélagsins að
Grundartanga fyrir
eitthvað, sem ætla
mætti skv. skrifum
og fréttaflutningi, að
sé eiturlofthernaður
verksmiðjunnar
gagnvart umhverfi
hennar. Allt er þetta
liður í síðbúnum við-
brögðum við iðnaðar-
uppbyggingu á Grundartanga og
þeim mun furðulegra, sem þessi
uppbygging er búin að vera á
stefnuskránni nær tvo áratugi.
Það sést þessum krossförum yfir,
að mistúlkanir, rangfærslur og
lygar, hrína ekki á verksmiðjum,
stálgrindarhúsum, vélum og bún-
aði, en koma illa við fólk, sem vinn-
ur með þennan búnað. Það leggur
sig fram um að láta tæknibúnað-
inn vinna sín verk eins vel og lengi
og kostur er. Svo ryðjast menn
fram í fjölmiðlum og væna það
um illvirki og lögbrot. Þessum
starfsmönnum hefur lengst af
starfstíma verksmiðjunnar tekist
að halda reykhreinsivirkjum henn-
ar gangandi allan sólarhringinn,
allt árið, að frátöldum samtals
nokkrum klukkutímum flest árin
upp í nokkra daga. Síðasta ár var
gangtími reykhreinsivirkja 99,3%
af rekstrartíma ofns 1
og 99,0% af ofni 2.
Því til frádráttar má
reikna tíma þegar
reykhreinsun var ekki
að fullu virk en um
tveir þriðju hlutar
reyks hreinsaðir,
þetta var í 0,7% af
rekstrartíma ofns 1
og 1,6% af rekstrar-
tíma ofns 2. Allur út-
blástur af þessu tagi
er þess eðlis, að við
hann verður ekki ráð-
ið. Ástæða þess, að
hvergi þykir vert að
tvöfalda búnaðinn,
svo að þetta gerist
ekki, er að það væri óskaplega
dýrt og efnið, sem sleppur út er
allt óskaðlegt, - sýnilegt ryk, en
meinlaust. Þar á ofan sendir verk-
smiðjan 30-35 sinnum á sólar-
hring upp í loftið strók af hreinni
vatnsgufu, sem eflaust einhver
ruglar saman við útblástursryk.
Síst er að undra, að fólkið, sem
fyrir slíkri árás verður sé sárreitt
og vill helst efna til málaferla fyr-
ir meiðyrði og miska, enda full
ástæða til.
Sá, sem þetta skrifar gerði ær-
lega tilraun til að efna til málefna-
legrar umræðu við nágranna verk-
smiðjunnar um umhverfísmál
hennar fyrir einhverjum misser-
um. ítarlegt umburðarbréf var
sent á öll heimili í nágrenni verk-
smiðjunnar og á öll byggð ból, sem
vitað var um í sjónlínu frá henni.
í bréfinu var gerð grein fyrir stað-
Jón Sigurðsson
Tónlistarráðunautar útvarpsstöðv-
anna skipuleggja tónleikaröðina á
árlegum fundum sínum. I því starfi
er eitt og annað haft að leiðar-
ljósi. Að minnsta kosti eitt tónverk
hverra tónleika skal eiga rætur í
norrænni tónlistarhefð, vera nor-
rænt eða vera eftir tónskáld frá
viðkomandi landi. Á tónleikunum
á fimmtudagskvöld verður til
dæmis frumflutt verk Þorkels Sig-
urbjömssonar, Gylfaginning, fyrir
sópran og hljómsveit. Eins er leit-
ast við að prýða tónleikaröðina
með tónverkum sem eru úr alfara-
leið, eins og það var orðað hér að
ofan; með ferskum verkum og
óvenjulegum. Verkin sem flutt
verða á fimmtudagskvöld eru öll
af þeim toga. Ballettsvíta Albertos
Ginasteras, Estancia, er tii dæmis
á verkefnaskrá flestra sinfóníu-
hljómsveita Mið- og Suður-Amer-
íku, en heyrist sjaldan í öðrum
heimsálfum. Sama á við um verk
Aliciu Terzian, sem hefur unnið
sér fastan sess í suður-amerískum
tónbókmenntum. Verk Respighis
hefur aldrei verið flutt á íslandi
áður.
Tónleikaröð með
alþjóðlegu yfirbragði
Til marks um fjölbreytni tón-
leikaraðar norrænu útvarpsstöðv-
anna í ár, skulu hér talin upp tón-
skáldin sem við sögu koma: Þau
eru: Peteris Plakidis, Wolfgang
Rihm, Igor Stravinsky, Rolf Wall-
in, Steve Reich, Poul Ruders, Vy-
tautas Barkauskas, Aleksandr
Skriabin, Jouni Kaipainen, Francis
Poulenc, Þorkell Sigurbjörnsson,
Richard Wagner, Johan Ham-
merth, Gustav Mahler, Ludwig
van Beethoven, Alicia Terzian,
Franz Schubert, Johannes Fredrik
Fröhlich, Ottorino Respighi, Chri-
fólk
Þessi gerð sannaði rit-
ara þessarar greinar,
segir Jón Sigurðsson,
að Kjósverjar kærðu sig
ekki um málefnalega
umræðu um þessi efni,
heldur hávaða og fjöl-
miðlafár.
reyndum um útblástur verksmiðj-
unnar og skýrt tekið fram, að í
þeim útblæstri séu engin efni, sem
eru skaðleg í þeim styrk, sem þau
koma frá verksmiðjunni, hvorki
þeim hluta hans, sem orðið getur
sýnilegur, né hinum, sem er ósýni-
legur.
Viðbrögð við þessu bréfi voru
alls engin. Fyrir milligöngu góðra
vina fréttist af einni konu í
Kjósinni, sem þótti bréfið upplýs-
andi og hið besta framtak. Frá
öðrum heyrðist ekkert.
í tengslum við nýtt álver á
Grundartanga og raunar alllöngu
eftir að því hafði verið valinn stað-
ur, hófust svo nornaveiðarnar með
blaðaskrifum dr. Arnórs Hanni-
balssonar prófessors.
Að óreyndu hefði mátt ætla, að
hann fjallaði um málið af fræði-
mannsnákvæmni, en því fór ijarri.
Af skrifunum mátti ráða, að hann
vissi staðreyndir málsins að því
er járnblendiverksmiðjuna varðaði,
stopher Rouse, Sergei Rachman-
inov, Per-Henrik Nordgren, Erkki-
Sven Tuiir og Alberto Ginastera.
Sannarlega glæst lið ólíkra skáld-
bræðra. Einleikarar, einsöngvarar
og hljómsveitarstjórar eru úr röð-
um alþjóðlegra tónlistarmanna.
Norrænu tónleikaröðinni verður
væntanlega útvarpað í helgardag-
skrá rásar 1 í sumar.
Evrópusamband útvarpsstöðva
Auk tónlistarsamstarfsins við
útvarpsstöðvar á Norðurlöndum
er Ríkisútvarpið aðili að Evrópu-
sambandi útvarpsstöðva - EBU.
Hér er eins farið að; tónlistarráðu-
nautar útvarpsstöðvanna hittast
einu sinni á ári, skipta með sér
verkum og skipuleggja fjölda tón-
leikaraða, annast undirbúning
þeirra og framkvæmd. Hlustendur
Ríkisútvarpsins hafa þannig greið-
an aðgang að fremstu tónlistar-
mönnum álfunnar í viku hverri,
jafnt í tónleikasölum, djassklúbb-
um, sem óperuhúsum. Þessar dag-
skrár EBU eru margar hverjar
sendar út beint, til dæmis óperurn-
ar á laugardagskvöldum.
Ríkisútvarpið reynir að láta ekki
sitt eftir liggja í þessu samstarfi.
í vetur leggur það til tvenna tón-
leika sem sendir eru beint um gjör-
valla Evrópu. Þeir fyrri eru að
baki, en þá lék djass-sextett Sig-
urðar Flosasonar fyrir áheyrendur
rúmlega 20 útvarpsstöðva megin-
landsins. Framundan eru tónleikar
í tónleikaröð sem EBU helgar trú-
arlegri tónlist, og söngmessum
sérstaklega. Þá syngur Kór Lang-
holtskirkju Petite Messe Solenelle
eftir G. Rossini í beinni útsendingu
um gjörvalla Evrópu. Að auki
verður útvarpsstöðvum EBU boð-
inn aðgangur að tilteknum nýjum
hljóðritum í safni Ríkisútvarpsins.
í sem fæstum orðum: Ríkisút-
varpið hefur á undanförnum árum
fært út kvíarnar og er nú orðið
fullgildur þátttakandi í tónlistar-
samstarfi útvarpsstöðva um víða
veröld.
Höfundur er tólistarráðunautur
Ríkisú tvarpsins.
en þar afflutti hann margt og ló
frá víða, eins og þar stendur.
Síðar komu til sögunnar aðrir
spámenn, þar á meðal sveitarstjóri
í Kjós, sem hélt sveitarfund. Þar
kusu Kjósveijar að hallmæla okk-
ur járnblendifélagsmönnum á bak
fremur en fást við staðreyndir
málsins, sem við höfðum lagt þeim
til.
Þessi gerð sannaði ritara þess-
arar greinar, að Kjósveijar kærðu
sig ekki um málefnalega umræðu
um þessi efni, heldur hávaða og
fjölmiðlafár. Hefst þá þáttur DV
í málinu. Bóndinn á Hálsi í Kjós
átti viðtal við blaðamann DV og
sagði honum uppspunasögu af því
tagi, sem ætti heima í sögum vell-
ygna Bjarna. Hann þóttist heyra
á morgnana um 8 kílómetra veg,
þegar starfsmenn járnblendifé-
lagsins skrúfuðu fyrir útblástur-
inn, sem þeir hefðu hleypt út í
skjóli nætur. Af þvílíkri heyrn
hefur ekki spurst síðan Heimdallur
var upp á sitt besta. Sagan er góð
sem sú lygisaga, sem hún er, en
blaðamaður DV var nógu mikið
barn til að birta hana sem frétt.
Það tekur þó út yfir, þegar rit-
stjóri DV gerði þessa lygisögu að
uppistöðu og ívafi leiðara síns í
blaðinu næsta dag.
Málefnaleg umræða á æðilangt
í land í þessu þjóðfélagi, þegar
áhrifamiklir þátttakendur í henni
hegða sér þannig, - og vandséð,
hvað þeim gengur til. Til málefna-
legrar umræðu um þessi efni eru
járnblendifélagsmenn alltaf reiðu-
búnir við hvem sem er. En þeir
verða þá að vera tilbúnir til að
taka mark á staðreyndum.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Islenska járnblendifélagsins hf.