Morgunblaðið - 16.01.1997, Page 47

Morgunblaðið - 16.01.1997, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 1997 47 Margt er óljóst í minningunni frá vetrinum er ég var sex ára, en það er alltaf skýrt í mínum huga, að þá settist ég í skóla ísaks Jónsson- ar í Grænuborg og þar hófust kynni okkar Braga. Haustið 1939, að liðnu besta sumri þessarar aldar á íslandi, tók við nám í Austurbæjarskólanum, og þá skipaðist svo, að við Bragi lentum í bekk hjá Jónasi Jósteins- syni, síðar yfírkennara, og urðum brátt sessunautar og fylgdumst svo að í námi hlið við hlið næstu tutt- ugu árin, þar til við lukum báðir embættisprófi í lögfræði árið 1959. Öll barnaskólaárin geisaði heims- styrjöldin síðari og allt þjóðfélagið tók skyndilega róttækum breyting- um. Þetta voru spennandi tímar og eftirminnilegir og mótuðu skarpt þá sem voru að vaxa úr grasi. Nú þegar leiðir okkar skilur vil ég kveðja vin minn og minnast hans nokkrum orðum, þótt hugur- inn sé dapur og höndin þung til skrifta. Bragi Björnsson skar sig strax úr sem unglingur. Hann var bráð- þroska, dökkur yfirlitum, laglegur og hárprúður, meira en meðalmaður á hæð, bar sig vel og vakti hvar- vetna athygli. Hann var glaðsinna á ytra borði, vinsæll og mannblend- inn og átti gott með að umgangast fólk í hvaða umhverfi sem var. Hafði næmt auga fyrir því skoplega í tilverunni og sérstæðan húmor, sem hann brá fyrir sig á góðum stundum með tilþrifum, einkum á yngri árum. En hann var í raun mikill alvörumaður og nokkur ein- fari. Átti við ýmist andstreymi að stríða um ævina, flíkaði því ekki né bar á torg, en tók því, sem að höndum bar, með karlmennsku og æðruleysi. Ragnheiður móðir hans hélt lengst af heimili með Guð- mundi föður sínum,_ en hún var ekkja eftir Gunnar Árnason, skip- stjóra á línuveiðaranum Fróða, sem lét lífið ásamt bróður sínum og þremur öðrum skipveijum í árás þýskrar flugvélar í mars 1941. Var þetta þeim mæðginum mikið áfall og þungbær missir, en Bragi hafði bundist stjúpföður sínum traustum böndum. Ragnheiður Guðmundsdóttir var sérstök sómakona. Tók hún ætíð vinum Braga opnum örmum á heim- ili sínu á Leifsgötunni, en þar var oft fjölmennt á menntaskólaárun- um. Hún átti við alvarleg veikindi að stríða seinni hluta ævinnar. Reyndist Bragi henni einstaklega góður sonur og vakti yfir velferð hennar í einu sem öllu. Fyrir rúmu ári greindist Bragi með illkynja mein, sem numið var brott með skurðaðgerð í árslok 1995. Barðist hann hetjulegri bar- áttu til að ná heilsu á ný allt síðast- liðið ár og var alltaf tvísýnt um lyktir. Virtist þó vera að rofa til í þeim efnum, en þá ber andlát hans svo brátt að. Bragi Björnsson var um margt minnisstæður maður. Hann var af góðu fólki kominn í báðar ættir. Hlaut góðar gáfur í vöggugjöf og ýmsa ágæta hæfileika. Gekk menntaveginn eins og sagt er, en mestu menntunina hlaut hann í líf- inu sjálfur. Hann var áhugasamur um þjóðmál, víðlesinn á góðar bók- menntir og hafði yndi af fögrum listum. Ferðalög voru honum hug- leikin, hann hafði ferðast um gjör- vallt landið ýmist á eigin vegum eða með Ferðafélaginu og Útivist. Þá var hann mikill áhugamaður um landgræðslu og skógrækt og sýndi það rækilega í verki. Bragi var starfsamur maður alla tíð og kom mörgu í verk á sinni ævi. Átti ætíð velgengni að fagna í starfi og var vel virtur. Hann var dulur að eðlisfari, skapgerðin var traust, en helstu einkenni hennar voru heiðarleiki og hreinskiptni, skyldurækni og trygglyndi samfara ríkri réttlætiskennd og samúð með þeim sem standa höllum fæti. Urðu þessir eiginleikar honum einkar notadijúgir í starfí. Hann var eins og góður lögfræðingur þarf að vera, vel að sér, glöggur og fljótur að átta sig á aðalatriðum máls og leit- andi að réttri lausn að lögum og réttlátri, en með góðum vilja fer þetta oftast saman, sem betur fer. Hans verður sárt saknað. Að leiðarlokum vil égþakka þess- um elsta og besta vini mínum sam- fylgdina í hartnær sextíu ár og vin- áttu hans og trygglyndi, sem aldrei brást né nokkurn skugga bar á. Ég bið honum blessunar á Guðs vegum. Ástvinum hans ber ég mínar fyllstu samúðarkveðjur. Ólafur Stefán Sigurðsson. í dag kveðjum við Braga Björns- son. Hann andaðistþegarysjólanna er að baki og nýtt ár að byija með sínum fyrirheitum og vonum. Dag- inn er farið að lengja og morgun- birtan að skila sér inn í hjarta okk- ar, sem þráum hlýju og sól. En þá slokknar á lífskertinu hans. Bragi minn, mér finnst ég hafa misst tryggan vin, sem alltaf var sannur. í lífi okkar á Hraunbraut- inni verður tómarúm. Engar heim- sóknir þínar og Gunnars. í eldhús- inu mínu er sætið þitt autt og skemmtilegar frásagnir þínar og hlátur munu ekki heyrast framar. Kæri vinur, ég bið góðan Guð að taka þér hlýjum höndum. Elsku Gunnar og aðrir ástvinir. Innilegar samúðarkveðjur. María. Andlát Braga Björnssonar færir mig í huganum aftur í gömlu Reykjavík, jafnvel niður á Lækjar- torg þar sem við Bragi slitum barns- skónum í bróðerni þótt aldursmunur væri fímmtán ár. í bróðerni segi ég, því hann varð fyrsta barn í fjöl- skyldurvú eftir að við systkinin komumst á legg og bættist því þankastrikalaust við hópinn. Föður- ætt Braga og móðurætt rákust saman upp í Mosfellsdal, en árið sem Dalvíkurskjálftinn fældi hest- ana fyrir okkur og hvolfdi niður sandinum sem við urðum svo að sækja aftur niður á Ása, var pabbi að hrista sveitamanninn upp í sjálf- um sér með draumnum um stórbú að Minna-Mosfelli. Skólapilturinn Björn Guðfinnsson, síðar magister með meiru í íslenskum fræðum, var þarna að púla á bretti við að byggja hlöðu og haughús því í hugljóman mun pabbi hafa séð búskapinn vaxa þegar fram liðu stundir. Draumum pabba sleppi ég, en staðreyndir vaka í honum Braga því pabbi átti eftir að verða afi hans með hjálp eins af steypuþrælunum á brettinu, en Bragi, sonur Björns og Rögnu systur minnar, fæddist sem tengi- liður fjölskyldnanna. Þegar Bragi var skírður vissi ég samt ekki hvaða nafn síra Bjarni hafði gefið honum fyrr en Lási kokkur, sem vann hjá okkur á Heklunni, sagði mér í óspurðum fréttum að barnið héti alveg eins og skipið, hann héti Braði, alveg eins og Braði. Bragi fékk gott uppeldi og tók því vel, hvers manns hugljúfi. Þetta var skýr drengur og skemmtilegur. Hann fór í sveit á sumrin eins og venja var á þeim tíma og vitnaði hann oft í veru sína hjá Guðrúnu og Eyjólfi í Laxnesi. Hann tók fljótt ástfóstri við Mosfellsdalinn. Þegar tímar liðu og hann hafði náð emb- ættisprófi tók alvaran við og var ekki annað að finna en hann nyti sín við það lífsins vekefni sem hann valdi sér til framfærslu sinnar og sinna. Hann eignaðist sex börn með tveimur konum, tveimur ágætis konum, sex yndisleg börn, sem spjarað hafa sig hvert á sína vísu. Áð vísu var yngsti drengurinn fatlaður, andlega fatlaður, en um- hyggja fyrir þessum dreng vakti í Braga þann kærleika sem er öllum mannkostum ofar og sem í huga mínum geymir myndina af Braga og Gunnari litla syni hans sem tákn fullkomins náungakærleika. Svo flókin er náttúran að varla er hægt að ætlast til að maður bregðist rétt við öllum þeim ábend- ingum sem hún gaukar að manni. Sumir gera þetta og komast upp með það, aðrir gera hitt og fallera. Margur hefur fallerað á flöskunni. Við Bragi vorum meðal þeirra. En náttúran vill okkur vel og þegar hætta steðjar að aðvarar hún okk- ur með sínu rauða ljósi, þ.e.a.s. timburmönnunum. Á miðjum aldri reyndi Bragi að sniðganga þessa aðvörun með því að grípa til lög- legra lyfja lækniskúnstarinnar, sannfærður um að þannig gæti hann sniðgengið lögmálið. En auð- vitað tapaði hann þeim leik með áratuga erfiðleikum í baráttunni við sjálfan sig. En hann komst samt út úr vítarhringnum um síðir með breyttu hugarfari og ferskri lífsstefnu. En enginn má sköpum renna. Hann veiktist af krabbameini í maga. Eftir að hafa með hjálp vís- inda og hæfni lækna unnið svo á þessum erfiða sjúkdómi að hann var farinn að sækja Sundhöllina í von um endurnýjaða krafta, og líka far- inn aftur að sinna starfi sínu í bank- anum, sem hann í langvarandi veik- indum taldi sig hafa kvatt fyrir fullt og allt, þá féll hann snögglega frá, í einrúmi heima í sínu rúmi. Ég kveð nú frænda minn sann- færður um að hann kom ekki til einskis inn í tilveruna þótt ekki væri nema fyrir lystigarðinn sem hann af lífi og sál ræktaði upp í jaðri Móatúnsins að Minna-Mos- felli, því svo sannfærður var hann um kynngikraft gróskunnar að ekki sviki hann ef honum væri sinnt. Steinar Guðmundsson. í dag er kvaddur Bragi Björns- son lögfræðingur. Er mér til efs að honum hefði líkað það allskostar að vinir hans settust niður til að skrifa lofpistla um hann látinn, en ég vil með nokkrum orðum minn- ast góðs vinar sem ég tel lán að hafa kynnst og starfað með í nær þijátíu ár. Bragi var fæddur í Reykjavík og ólst þar upp á miklum breytinga- tímum í íslensku þjóðlífi. Hann upplifði erfiðleika millistríðsár- anna, hernámsárin og uppgangs- tíma eftirstríðsáranna. Á skólaár- unum vann hann á sumrin hin ýmsu störf til sjávar og sveita eins og títt var um námsmenn á þeim árum. Eftir embættispróf í lög- fræði frá Háskóla íslands starfaði hann í nokkur ár í Vestmannaeyj- um sem lögmaður og starfsmaður Útvegsbanka íslands. Hann réðist síðan til Landsbanka íslands, Reykjavík, sem lögfræðingur bank- ans og starfaði þar til æviloka. Bragi var mörgum kostum búinn, skarpgreindur, fastur fyrir og fylg- inn sér. Hann var hrókur alls fagn- aðar hvar sem hann kom enda gæddur ríkri kímnigáfu, og gat sagt sögu þannig að hún varð því magn- aðri sem hann sagði hana oftar. Var sjaldan logn í kringum hann. Áhugamál hans voru mörg. Hann hafði unun af ferðalögum og hafði farið víða bæði utanlands og innan. Hann ferðaðist um landið þvert og endilangt og kunni góð skil á staðháttum og sögu landsins og átti einkar auðvelt með að tengja þetta saman í fræðandi frá- sögn. Hann unni tónlist og góðum bók- um. Hann sagði oft að góð bók væri verulega góð ef hún væri um leið fræðandi. Ekki má gleyma áhuga hans á garð- og skógrækt. Hann kom sér upp sælureit í Mos- fellsdal. Þangað leitaði hann í frí- stundum sínum og undi sér vel við útiveru og skógræktarstörf. Hann hafði af miklum dugnaði gróður- sett þar ótrúlegan fjölda tijá- plantna á nokkrum hekturum lands. í störfum sínum var hann far- sæll og naut þar kunnáttu sinnar í lögum og góðrar greindar. Var gott að leita til hans í vanda og var hann ávallt úrræðagóður og fljótur að skilja hismið frá kjarnan- um. Verður hans sárt saknað á vinnustað. Með þessum orðum kveð ég góð- an vin og við hjónin sendum börn- um hans og aðstandendum innileg- ar samúðarkveðjur. Reinhold Kristjánsson. Tunqumálanám á vorönn ’97 Enska Celene Olgeirsson Peter Chadwick Robert S. Robertson Celene Peter Robert Spænska Carmen Ortuno Elisabeth Saguar Hilda Torres Carmen Elisabeth Hilda .firamka Ann Siguijónsson Ingunn Garðarsdóttir ^nn Þýska Bernd Hammerschmidt Reiner Santura Italska - Qríska Paolo Turchi Kínverska Guan Dong Qing Sænska Qing Adolf H. Petersen Danska Adolf Námskeið fyrir börn oq fullorðna Kvöldnámskeið Nám fyrir byrjonduroq lenqra komna Magdalena Ólafsdóttir Finnska Daqnámskeið Tuomas Járvelá ✓ Islenska fyrir útlendinga Inga Karlsdóttir Norska Lars Indresand Japanska Tomoko Giamo Mímir • Tómstundaskólinn • lykill tiú leik og starfi • Sími: 588 72 22

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.