Morgunblaðið - 16.01.1997, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 1997 55
FRÉTTIR
’ 300 manns á norrænu
þingi Lions-félaga
I ÞING norrænna Lionsfélaga verð-
I ur haldið dagana 16.-18. janúar
1 á Hótel Loftleiðum. Þessi þing eru
haldin árlega til skiptis á Norður-
löndunum. Þegar hafa 300 manns
skráð þátttöku sína, þar af um 200
erlendir gestir.
í kvöld, fimmtudag 16. janúar,
verður sérstakt kynningarkvöld í
Norræna húsinu sem hefst kl. 18.
Þingið hefst föstudaginn 17. jan-
úar kl. 13 á því að Laufey Jóhanns-
dóttir, fjölumdæmisstjóri Lions-
hreyfingarinnar á íslandi, en hún
er fyrsta konan sem gegnir því
embætti í Evrópu, setur þingið sem
ber yfírskrisftina: Markaðssetning
- konur í Lions. Að þingsetningu
lokinni heíjast 5 námstefnur sem
þingfulltrúar geta valið um að sitja.
Verður fjallað um félaga-, kynn-
ingar- og fræðslumál. Efni nám-
stefnunnar verður: Markhópar og
markaðssetning á Lions.
2 ----------------------------------
Leo-leiðtogar framtíðarinnar.
Þema þeirrar námstefnu verður
Leo brúar kynslóðabilið. Fjallað
verður um uppbyggingu á öflugu
Leostarfi og hvaða tilgangi það
þjónar fyrir Lions og unga fólkið.
Lions-Quest; þema námstefn-
unnar verður: Fjölskyldan, skól-
inn, samfélagið. Á þessari nám-
stefnu verður fjallað um Lions-
Quest, vímuvarnir, skólann og fyr-
irbyggjandi aðgerðir. Sagt verður
frá gangi mála á Norðurlöndum.
Alþjóðasamskipti. Sagt verður
frá norrænum verkefnum sem
unnið er að. Rædd 5 ára áætlun
fyrir Eystrarsaltslöndin 1998-
2003.
Unglingaskipti. Efni námstefn-
unnar verður: Hvernig á að byggja
upp unglingabúðir? Rætt verður
um unglingabúðir, hvers vegna
unglingasamskipti, gagnsemi
þeirra og árangur í starfi.
Á föstudagskvöldið verður sam-
eiginlegur kvöldverður í Hlégarði
í Mosfellsbæ og hefst kl. 19.
Laugardaginn 18. janúar kl.
11.45 við innganginn að Hótel
Loftleiðum mun Halldór Ásgríms-
son utanríkisráðherra afhenda
sendiherra Rússlands, Jouri A.
Rechetov, fullan gám af tækjum
til nota á barnaheimilinu í Friazino
í Moskvu þar sem dvelja mjög fjöl-
fötluð börn. Þetta er samnorrænt
hjálparverkefni sem íslenskir Li-
onsmenn hafa skipulagt. Heildar-
kostnaður er um 5 mkr. Framlag
íslensku Lionsfélaganna er um
1.000.000 kr. og auk þess lagði
íslenska ríkið til 500.000 kr.
Þing norræna samstarfsráðsins
NSR stendur yfír allan laugardag-
inn. Dagskrá þingsins lýkur með
lokahófi á Hótel Loftleiðum á laug-
ardagksvöldið kl. 19.30.
VÖRUR sem verða á lagerútsölunni voru teknar upp í gær.
Ellingsen opnar
lagerútsölu
ÚTSALA hjá Ellingsen hefst í dag,
fimmtudaginn 16. janúar. Að sögn
Óttars B. Ellingsen er þessi útsala
sú fyrsta með nýju sniði og haldin á
lagernum en ekki í versluninni eins
og vant er. Þetta er nú gert vegna
kvartana frá föstum viðskiptavinum
vegna óþæginda sem hlutust af löng-
um biðröðum í búðinni á fyrri útsöl-
um. Afslátturinn er frá 25-70% og
vöruvalið fjölbreytt. Útsöluvörur er
hægt að panta í síma og fá sendar
hvert á land sem er skó, peysur,
skyrtur, boli, sokka, buxur o.m.fl.
Útsalan byrjar í dag kl. 9 og verð-
ur opin virka daga frá kl. 9-18 og
á laugardaginn frá 10-16. Opnunar-
tími verslunarinnar verður hins vegar
óbreyttur. Virka daga frá kl. 8-18
og laugardaga kl. 9-14.
Hafnarfjörður
Slökkviliðið að-
stoðaði í 213 skipti
i Á ÁRINU 1996 urðu 213 útköll hjá
| Slökkviliði Hafnarfjarðar. í þessum
213 útköllum var um eld að ræða
í 113 tilvikum. í meirihluta þeirra,
eða 69 útköllum, var eldur í „rusli,
sinu og gróðri“. Árið 1995 voru
útköll 258, þar af voru 165 vegna
elds.
Á síðasta ári var allt liðið kallað
út 3 sinnum, aðstoð fengin frá
Slökkviliði Reykjavíkur einu sinni,
, 29 sinnum var aukalið (lítið útkall,
i ein vakt), kallað út en 20 útköll af
{ þeim voru vegna bráðaflutninga með
sjúkrabifreiðum. Stórtjón varð 15.
maí er Glugga- og hurðasmiðja Sig-
urðar Bjarnasonar, Dalshrauni 17,
Hafnarfírði, brann til kaldra kola.
Brunavarna- og þjónustusvæði
Slökkviliðs Hafnarfjarðar er auk
Hafnarfjarðar, Garðabær og Bessa-
staðahreppur. Á svæðu þessu voru
samkvæmt tölum Hagstofu íslands
þann 1. desember sl. 27.053 íbúar.
Slökkviliðið sinnir sjúkra- og
neyðarflutningum fyrir sama svæði
og fóru sjúkraflutningabifreiðar i
1.490 flutninga á nýliðnu ári, þar
af voru 424 bráðaflutningar vegna
slysa og annarra áfalla. Sjúkra-
flutningar urðu hins vegar 1.639
árið 1995 en þar af voru 394 slysa-
og bráðaflutningar. Hlutfall bráða-
flutninga er alltaf að aukast eða
úr 209 árið 1986 í 424 nú á síðast-
liðnu ár, segir í fréttatilkynningu.
Ráðgjöf o g
fyrirlestur
J um heilbrigði
ÍRSKI læknirinn Donn Brennan
verður í Reykjavík og á Akureyri
17.-23. febrúar til að halda nám-
skeið í ayurveda-
fræðum um heil-
brigði og veita
áhugasömum
einkaráðgjöf.
Brennan kemur til
landsins á vegum
íslenska íhugunar-
félagsins.
- Ayurveda-fræð-
in eru elstu fræði
mannsins um heil-
brigði og hafa vakið athygli vest-
rænna lækna á undanförnum árum,
segir í fréttatilkynningu. Lögð er
áhersla á leiðir til þess að fyrir-
byggja ójafnvægi hugar og líkama
með einföldum ráðum sem taka
I mið af líkamsgerð hvers og eins.
Þetta er gert meðal annars með
* sérstakri púlsgreiningu sem veitir
upplýsingar um ástand líkamans.
Ráð ayurveda eru af ýmsum
toga, til dæmis rétt mataræði,
jurtalyf og hugleiðsla.
Lýst eftir bílum
og vitnum
( BIFREIÐINNI NX-269, sem er
Mercedes Benz árgerð 1991,
steingrá að lit, var stolið frá Bílasöl-
unni Bliki, Skeifunni 8, síðastliðinn
laugardag.
Þá var bifreiðinni í-5378 stolið
frá stæði við Iðnskólann í Reykja-
vík fyrir skömmu, en hún er af
gerðinni Toyota Tercel árgerð 1980,
blá að lit. Þeir sem hafa orðið bif-
reiðanna varir eru vinsamlegast
beðnir um að tilkynna það til lög-
reglu.
Lögreglan óskar einnig eftir vitn-
um að árekstri sem varð á mótum
Bústaðavegar og Grensásvegar
þriðjudaginn 7. janúar, um klukkan
11.50. Ford Sierra bifreið var ekið
austur Bústaðaveg og beygt til
vinstri áleiðis norður Grensásveg,
en Peugeot var í sömu andrá ekið
inn á gatnamótin vestur Bústaða-
veg, og rákust bílarnir saman. Ekki
eru sérstök beygjuljós á gatnamót-
unum.
Stofnfundur
Heilsufrelsis
i kvöld
UNDIRBÚNINGSNEFND Heilsu-
frelsis boðar til stofnfundar sam-
takanna á Hótel Borg, Kristalsal,
fimmtudaginn 16. janúar kl. 20.30.
Þar verða tilgangur og markmið
samtakanna kynnt.
Áhersla er lögð á rétt almennings
til að kjósa sjálft sína læknismeð-
ferð en láta heilsu sína ekki eftir
ákvörðun stjórnvalda eingöngu. Allt
áhugafólk er velkomið.
Málshefjendur verða Kolbrún
Björnsdóttir, Úlfur Ragnarsson,
Einar Þorsteinn Ásgeirsson og Örn
Svavarsson. Fundarstjóri er Guðný
Guðmundsdóttir.
Fijálsar umræður verða á eftir.
MIKE Chu, nýr eigandi Kínamúrsins.
Eigendaskipti
á Kínamúrnum
EIGENDASKIPTI hafa orðið á veit-
ingastaðnum Kínamúrnum við
Hlemm. Hinir nýju eigendur heita
Mike Chu og Pang.
Mike Chu er fæddur í Sjanghæ
og bjó í Hong Kong áður en hann
fluttist til íslands. Hann hefur búið
hér á landi í 24 ár og starfað á
austurlenskum veitingastað í
Reykjavík undanfarin 10 ár. Pang
hefur getið sér orð sem matreiðslu-
maður á kinverskum veitingastað.
Hann er frá Peking en hefur búið
á íslandi í sjö ár.
Nýir eigendur Kínamúrsins
hyggjast leggja aðaláherslu á hollan
og góðan kínverskan mat, „alvöru
Kínamat", eins og þeir orða það,
og góða þjónustu. Kínamúrinn er
fremur lítill og notalegur staður,
tekur 30 manns í sæti og vel stað-
settur við Hlemm með næg bíla-
stæði í grenndinni.
Kínamúrinn verður opnaður hinn
15. janúar kl. 17 og verður síðan
opinn frá kl. 11.30-22.30 virka
daga en til kl. 23.30 um helgar.
Nám í höfuð-
beina- og
spjaldhryggs-
jöfnun
SKRÁNING er hafin á námskeið í
höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun,
„Cranio-Sacral Balancing", og
verður fyrsta stig námskeiðsins
haldið 14.-20. mars næstkomandi,
en áætlað er að náminu, sem er í
þremur stigum, ljúki á þessu ári
eða í byijun ársins 1998.
í fréttatilkynningu kemur fram
að höfuðbeina- og spjaldhryggs-
jöfnun nemi og losi um spennu og
höft í beinakerfi líkamans sem
umlykur miðtaugakerfið og hjálpi
þannig líkamanum að starfa eðli-
lega. Aðferðin eigi rætur að rekja
í beinafræði en hafi öðlast nýtt og
aukið gildi innan hefðbundinnar
læknisfræði siðustu ár, m.a. við
endurhæfingu ýmiskonar og með-
ferð þroskavandamála, ekki síst hjá
börnum. Námskeið í þessari með-
ferð hafa áður verið haldin hér á
landi og í fyrra stofnuðu 25 manns
sem lokið hafa 3. stigi með réttindi
til þess að stunda þessa meðferð
fagfélagið Atlas.
Fyrsta stig námskeiðsins er 55
tímar og er engin skylda til að taka
öll þijú stigin nema viðkomandi vilji
stunda meðferðina sjálfstætt. Aðal-
kennari verður sem áður Svarupo
H. Pfaff, en hún er þýskur heila-
praktiker sem stundað hefur höfuð-
beina- og spjaldhryggsjöfnun í tæp-
an áratug og kennir hún vítt og
breitt um Evrópu.
Skráningu á námskeiðið annast
Gunnar Gunnarsson sálfræðingur
sem veitir allar nánari upplýsingar.
Tölvudagar
í Háskólabíói
TÖLVUDAGAR íslenskra náms-
manna verða haldnir 8. febrúar nk.
í Háskólabíói. Húsið opnar kl. 10
þar sem námsmenn geta kynnt sér
tilboð tölvufyrirtækja. Forseti ís-
lands, herra Ólafur Ragnar Gríms-
son, opnar TÍN ’97 við hátíðlega
athöfn kl. 13 og að því loknu hefst
röð fyrirlestra í sal 2.
Kl. 13.15-14: Teymi hf. Nettöl-
van og framtíð hennar. Kl.
14.15-15: OZ hf. Þriðja víddin í
tölvuheiminum. Kl. 15.15-16: Hall-
grímur Thorsteinsson. Margmiðlun.
Aðstandendur TÍN ’97 eru Stúd-
entaráð Háskóla Islands, Bandalag
íslenskra sérskólanema, Félag
framhaldsskóianema og Iðnnema-
sambandið. Tilgangurinn með deg-
inum og sýningunni er að gefa
námsmönnum tækifæri á að kynn-
ast því hvað er í boði á tölvumark-
aðnum og í annað stað að eignast
tölvu, fylgi- og hugbúnað á hag-
stæðu verði.
í tilefni TÍN ’97 mun sérstöku
riti verða dreift með Stúdentablað-
inu sem sent verður öllum náms-
mönnum, 16 ára og eldri, alls um
30.000 manns. í ritinu verða viðtöl
við Vilhjálm Þorsteinsson í íslenskri
forritaþróun og Ólaf Jóhann Ólafs-
son, rithöfund. Auk þess verða
ýmsir fróðleiksmolar úr tölvuheim-
inum og tilboð fýrirtækjanna kynnt.
Komið verður upp heimasíðu TÍN
’97. Slóðin er www.hi.is/pub/tolvu-
dagar. Heimasíðan verður opnuð
1. febrúar og þar er hægt að nálg-
ast allar upplýsingar um Tölvudag-
ana.
Námskeið 1
Háteigskirkju
Á NÁMSKEIÐINU Lifandi steinum
sem haldið er í Safnaðarheimili
Háteigskirkju er tekist á við tilvist-
arspurningar: Hvað er nútímamað-
ur í samfélagi kristinnar trúar?
Hver eru hin kristnu lífsviðhorf i
heimi samtíðar? Námskeiðið bygg-
ist mjög á framlagi þátttakenda og
nærist á gagnkvæmri uppörvun og
samfélagi, segir í fréttatilkynningu.
Leiðbeinendur eru Jóhanna
Björnsdóttir og Tómas Sveinsson.
Námskeiðsgjald er 1500 kr. Nám-
skeiðið sem er öllum opið er á mánu-
dögum frá kl. 20-22 og hefst 22.
janúar.
LEIÐRÉTT
Rangt föðurnafn
RANGT var farið með föðurnafn
Björns Guðjónssonar, bónda og
húsasmíðameistara, í afmælistil-
kynningu í blaðinu í gær og eru
hlutaðeigendur beðnir velvirðingar
á því.
- kjarni málsins!