Morgunblaðið - 16.01.1997, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 16.01.1997, Qupperneq 56
>6 FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens JVMPO, HVAP, 1 GEFueþ£ezBrr \ TlL /0 SÖLSA WP/e/ í /;-i/ </f 1 TV/ee ST&ek4e seöeuLreNNúx. /USKE/rr ókzp dksþp7Ú TON/t AF BE/N/lke£MJ/1NC>/ Vö&WM/ TJfsaeaeö 1 Foev/TN/NA, ! Túmbó r\\ þ/G VATh)SPÖP&\ / /}LlaN DAG/NH?C_ [■ gir i oyr. Grettir óqjól'tn esu helolur _ e-hki Caryk undan. Okqr" BREF HL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavik • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 • Netfang: lauga@mbl.is Um álver á Grundartanga Frá Kristjáni Oddssyni: í GREIN sem aðstoðarforstjóri Col- umbia Ventures skrifar í Morgun- blaðið fimmtudaginn 9. janúar sl. kemur fram að fyrirtæki hans hafi að markmiði að starfa í fullri sátt við umhverfi og íbúa þess. Nú er það viðurkennt af öllum (nema þá helst af iðn- aðarráðherra, sjá grein í Morg- unblaðinu 8. jan- úar sl.) sem eitt- hvert vit hafa í kollinum, að frá álveri_ stafar mengun og það ekki lítil. í tiliögu að starfsleyfi fyrir hugsanlegt álver C.V., sem það hyggst byggja á Grundartanga, er gert ráð fyrir að það blási frá sér á ári hverju 198 tonnum af flúor (ógnar dýralífi og jarðvegi), 180 tonnum af „ryki“?, 3.780 tonnum af brennisteinstvíoxíði (ógnar loft- hjúp jarðar og veðurfari) og er það talið ásættanlegt, hvað svo sem það þýðir. Nú vill svo til að ég er búsettur á Neðra-Hálsi í Kjós, sem er í að- eins 4,5 km fjarlægð frá umræddum byggingarstað. Á jörðinni er stund- uð lífræn ræktun sem felur það í sér að í framleiðslunni eru engin kemísk áburðarefni eða önnur eitur- efni notuð. í lífrænni ræktun er kostnaður vegna umhverfisverndar staðgreiddur í gegnum vöruverð. Með neyslu á lífrænum afurðum felst líka fyrirbyggjandi heilsuvernd og er hún þá einnig staðgreidd. Það er því eðlileg krafa að fyrir- tæki, sem setur sig niður í miðju landbúnaðarsvæðis, setji sér sömu markmið og útiloki alla mengun, og að notendur vörunnar greiði þann kostnað. Á fundi sveitarstjómar Kjósar- hrepps með aðstoðarforstjóra C.V. kom fram að markmið fyrirtækisins væri að græða fé. Það er forkastan- legt og úrelt að láta náttúruna og velferð þessarar jarðar og jarðarbúa víkja fyrir slíkum sjónarmiðum. Benda má á að umhverfi Hvalfjarð- ar er eina græna svæðið sem eftir er vestan Heilisheiðar, sem höfuð- borgarbúar hafa aðgang að og er inann seilingar frá höfuðborgar- svæðinu. Að fórna slíku svæði undir eiturspúandi verksmiðjur er með öllu óskiljanlegt. Okkar framtíð mun byggjast á lífrænum landbúnaði og þjónustu við ferðamenn auk þess sem allt umhverfi Hvalfjarðar býður upp á gríðarlega möguleika til úti- vistar í óspilltri náttúru. (Ath. Nor- egur á aðeins eftir 10% af óspilltu landi.) Öllu þessu er stefnt í voða. Nú veit ég að staðsetning álvers í Hvalfirði er ekki eingöngu á ábyrgð forstjórans, þó að hann hafi að skiljanlegum ástæðum valið Hvalfjörð öðrum fremur. Þar hlýtur ábyrgðin að liggja hjá stefnulausum stjórnvöldum í umhverfismálum og sveitarstjórnarmönnum norðan Hvalfjarðar. Ef forsvarsmenn álversins ætla ekki að taka þátt í því stórkostlega umhverfisslysi sem nú vofir yfir Hvalfirði, þá verðum við að taka höndum saman og finna því annan stað. Að öðrum kosti verður leiðin löng í sættir. Stöðvum því uppbygg- ingu stóriðjusvæðis í Hvalfirði. KRISTJÁN ODDSSON, Neðra-Hálsi, Kjósarhreppi. Jólabókahuffleið- ingar frá Osló Frá Guðbjörgu Grímsdóttur og Berglindi Viktorsdóttur: ÞAÐ er alltaf gaman að fá bók í jólagjöf, ekki síst þegar maður er erlendis. Við erum tvær vinkonur sem búum í Osló og eyddum jólunum hér. Báðar fengum við bækur í jóla- gjöf. Önnur var svo heppin að fá „Z ástarsaga" eftir Vigdísi Grímsdóttur en hin var ekki eins heppin, hún fékk 101 Reykjavík eftir Hallgrím Helgason. Af þrjósku einni saman lásum við alla bókina í þeirri von að hún myndi batna við lesturinn. Sú varð ekki raunin. Jólabók Hail- gríms fjallar um 33 ára gamlan mann sem stundar bari, er atvinnu- laus, verðleggur konur eftir útliti og er mjög upptekinn af tippinu á sér. Okkur fannst bókin illa skrifuð, höf- undur talar niðrandi um konur og býr til nýyrði eftir hentugleikum. Eftir lestur bókarinnar hugsar mað- ur með sjálfum sér hvert siðferði manneskjunnar sé sem skrifar svona. Við fundum engan boðskap, hvergi var að finna virðingu fyrir nokkurri manneskju (eða dýri) og eiturlyf og áfengi eru eins sjálfsögð og að bursta tennurnar. Á þetta að bera fyndið eða töff? Rithöfundur getur haft mikil áhrif og því finnst okkur mikil ábyrgð fylgja því að skrifa bók. Þá kom upp í hugann gamla orðatiltækið „Það er ekki sama hvort það er Jón eða séra Jón“ og í framhaldi af því kem- ur spurningin. Hefði sagan verið gefin út ef einhver annar hefði skrif- að hana? Að lokum vonumst við til að Hall- grímur skrifi betri bók fyrir næstu jól. GUÐBJÖRG GRÍMSDÓTTIR, BERGLIND VIKTORSDÓTTIR, kennarar í Ósló, Trondheimsveien 162a, 0570 Ósló, Noregi. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.