Morgunblaðið - 23.01.1997, Blaðsíða 19
Tölvuþjálfun
Windows • Word • Excel
Yeðjað á Thatcher
London. Reuter.
WALESBÚI, sem er
sannfærður um að
einn spádóma
Nostradamusar eigi ,
við endurkomu Marg-
aretar Thatcher á
svið stjórnmálanna,
hlýtur 25.000 pund,
um 2,5 milljónir frá BHLaí*
veðmöngurum, rætist I ''
spádómurinn og
Thatcher verði að
nýju leiðtogi íhalds-
flokksins áður en árið H
2000 gengur í garð.
Maðurinn lagði 100
pund, um 10.000 ísl. kr. undir en
hlutföllin hjá veðmöngurum eru
|j|1. j nú 1 á móti 250. Hann
I j erþessfullvissaðspá-
I dómur Nostradamus-
J ar, um að árið 1999
jgj, j muni „hún, sem var
jfe |j útskúfuð, [] snúa aft-
JÉLaJ ur“ eigi við Thatcher,
PBl sem neyddist til að
» fVn láta af formennsku í
HjáiÍÉg íhaldsflokknum árið
1990 eftir 15 ár á leið-
togastóli og 11 ár sem
forsætisráðherra.
Sjálf hefur Thatchcr
þvertekið fyrir það
að hún hyggi á endur-
komu í stjórnmálum en hún verð-
ur 74 ára árið 1999.
Það er aldrei of seint að byrja!
60 stunda námskeið þar sem þátttakendur kynnast
grundvallarþáttum tölvuvinnslu og fá hagnýta þjálfun
Vönduð kennslubók innifalin í verði.
Innritun stendur yfir.
Fjárfestu í framtíðinnil
Tölvuskóli íslands
Höfðabakka 9 • Sími 5671466
Hart barist á
Filippseyjum
STJ ÓRNARHERMENN á
Filippseyjum drápu 21 ísl-
amskan uppreisnarmann í
hörðum bardögum á Mind-
anao-eyju á þriðjudag, að sögn
hersins í gær. Tveir hermenn
féllu og um 2.000 óbreyttir
borgarar urðu að flýja heimili
sín vegna bardaganna í Buldon
í Maguindanao-héraði.
Elstu stein-
áhöld heims
VÍSINDAMENN skýrðu frá
því í gær að fundist hefðu 2,5
milljóna ára gömul steináhöld
við landamæri Eþíópíu og
Kenýu og þetta eru talin elstu
steináhöldin sem fundist hafa
í heiminum. Talið er að þau
séu um 200.000 árum eldri en
önnur áhöld sem fundist hafa
á svæðinu. „Við spáum því að
enn eldri smíðisgripir fínnist,"
sagði einn vísindamannanna,
Sileshi Semaw, frá Rutgers-
háskóla í New Jersey í Banda-
ríkjunum.
Melnik segir
af sér
NÝI fjármálaráðherrann í
Lettlandi, Vassilí Melnik, sagði
af sér í gær eftir að skipun
hans hafði valdið stjórnar-
kreppu í landinu. Áður hafði
Andris Shkele forsætisráð-
herra ákveðið að segja af sér
vegna deilu við Guntis Ulman-
is forseta, sem hafði hvatt
þingið til að hafna Melnik sem
fjármálaráðherra vegna ásak-
ana um að hann hefði átt að-
ild að vafasömum viðskiptum.
Þúsundir
húsa hrundu
TUGIR þúsunda manna
neyddust til að flýja heimili sín
vegna tveggja landskjálfta
sem urðu að minnsta kosti
tólf manns að bana í Xinjiang-
héraði í norðvesturhluta Kína
á þriðjudag. Um 9.500 hús
hrundu og rúmlega 20.000
skemmdust í skjálftunum, sem
mældust 6,4 og 6,3 stig á
Richters-kvarða. Flestir þeirra
sem misstu heimili sín hafast
við í tjöldum í vetrarkuldanum.
KAKTUSAR
MIKIÐ ÚRVAL
300 kr.
MORGUNBLAÐIÐ_____________________________________________- FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 1997 19
ERLENT