Morgunblaðið - 23.01.1997, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 1997 23
HRAÐLESTRARNAMSKEIÐ
pasta
Döbætiefni
^hjartað
'mm
Tónlist að hætti
Rudolfs Steiners
nudd
jóga
hómópatar
grasalækningar
heilsufæði
SHUE BAKER er enskur tónlistar-
maður sem heldur tónleika á Sóloni
Islandusi í kvöld. Baker hefur sér-
hæft sig í að leika fyrir fötluð böm
og starfar í anda hugmyndafræði
austurríska dulspekingsins Rudolfs
Steiners. Steiner setti fram ákveðnar
hugmyndir um uppeldisfræði sem
svokaílaðir Steiner-skólar eða Wald-
orf-skólar starfa eftir. í Steiner-skól-
um er meðal annars leitast við að
þroska tilfinningalíf og sjálfstraust
nemenda með listsköpun þar sem
áhersla er lögð á hugmyndaauðgi.
Hér á landi hefur meðal annars verið
starfað eftir þessum aðferðum á Sói-
heimum í Grímsnesi og Sólstöðum í
Reykjavík.
Baker hefur fengist við það að
spila fyrir fotluð böm í um þijátíu
ár. „Ég leik á hljóðfæri sem líkist
mjög hörpu í útliti en er skyldara líru
en þessi hljóðfæri töldu menn að hefðu
lækningamátt til foma. Hljóðfærið
var þróað af Steiner-skólunum fyrr á
öldinni. Það hefur fimmtíu strengi og
er hægt að spila alls konar tónlist á
það, bæði Bach, Bartok og Bítlana.
Ég leik hins vegar aðallega skoska
þjóðlagatónlist sem ég kynntist þegar
ég komst fyrst í kynni við þetta hljóð-
færi í Skotlandi. Ég leik líka eigin
tónlist sem ijallar um umhverfið og
lög sem ég hef samið við skoska ljóð-
list.“
Baker leikur á tvenns konar lírur,
stóra og litla sem kölluð er bamalír-
an. Einnig leikur hann á koparflautu
sem hefur mjög sérstakan hljóm og
tólf strengja gítar. „Tónlistin sem ég
leik er ætlað að hafa róandi áhrif en
hún er byggð á hugmyndafræði Ru-
Sjálfstætt
fólkí
Banda-
Meira en
200 Iieilsvititlar I
í Eymimdsson
rílqunum
SKÁLDSAGAN Sjálfstætt fólk
eftir Halldór Laxness kemur
út í lok þessa mánaðar hjá
Vintage-bókaforlaginu sem er
hluti af Random House-útgáfu-
samsteypunni. Vaka-Helgafell
sem fer með útgáfurétt á verk-
um Halldórs gekk á liðnu ári
frá samningum um
útgáfuna, en þess
má geta að bókin var
gefin út vestra af
sömu samsteypu
árið 1946 ogseldist
þá i hálfri milljón
eintaka á um það bil
hálfum mánuði.
Engin bók Halldórs
Laxness hefur frá
þeim tíma komið út
hjá stóru bókafor-
lagi i Bandaríkj-
unum.
A bókarkápu get-
ur að líta umsagnir
nokkurra bók-
menntamanna um
Sjálfstætt fólk. Þar er vitnað
í inngang Brad Leithousers að
sögunni, en hann hefur verið
óþreytandi við að vekja at-
hygli Bandaríkjamanna á þess-
ari bók. Hann skrifar: „Til eru
góðar bækur og til eru stór-
kostlegar bækur og kannski
er til bók sem er ennþá meira:
hún er bók manns eigin lífs...
Sú bók sem ég met mest eftir
núlifandi rithöfund er Sjálf-
stætt fólk.“
Bandaríska útgáfan er 506
blaðsíður að lengd með inn-
gangi. Kápumynd bókarinnar
MÁLVERK Louisu Matthíasdóttur á kápu bókarinnar.
Halldór
Laxness
er eftir Louisu
matthíasdóttur.
Sjálfstætt fólk hef-
ur nú komið út á
23 tungumálum í
54 útgáfum á löngu
árabili. Vintage-
forlagið gefur bók-
ina út í þýðingu
J.A. Thompsons, en
hann var enskur
háskólamaður sem
kenndi við Háskóla
íslands.
Kvöldvaka í tilefni
útgáfunnar
Norræna félagið
heldur hátíðarkvöldvöku í til-
efni af að 50 ár eru liðin síðan
Sjálfstætt fólk kom fyrst úr á
ensku og rétt 40 ár eru síðan
Halldór Laxness fékk Nóbels-
verðlaunin. Eins er þess minnst
að Louisa Matthíasdóttir held-
ur upp á stórafmæli sama dag,
20. febrúar, en hún lánaði
málverk eftir sig til mynd-
skreytingar á kápu ensku út-
gáfunnar.
Fyrirlesari verður Brad
Leithauser. Móttaka verður
eftir fyrirlesturinn og bókin til
sölu.
gleði
Emmanúel
nýöld
dauðinn
Heilsufræði
Tao
golf
götiguleiðir
reykingar
grænmeti
Morgunblaðið/Ásdís
SHUE Baker með líruna sem
hann kallar svo og mun leika
á á Sóloni íslandusi í kvöld.
dolfs Steiners. Ég hef leikið fyrir
böm mjög illa á sig komin sem hafa
róast við hana. Einnig hef ég gert
nokkuð af því að leika fyrir heilbrigt
fólk eins og ég mun gera í kvöld og
undantekningalaust hefur fólk heill-
ast af þessum væru tónum. Það
mætti lýsa þessari tónlist sem hæg-
látri og opinni; ég reyni ekki að spila
eins margar nótur og ég get á mín-
útu heldur hangi svolítið á tónunum,
opna þá.“
Baker hefur dvalið hér á landi um
skeið og leikið í íslenskum Steiner-
skólum. Tónleikamir á Sóloni ísland-
usi í kvöld hefjasl kl. 20.30.
Viltu margfalda lestrarhraðann og afköst í námi?
v/'' Viltu auka afköst í starfi um alla framtíð?
sf Viltu lesa góðar bækur með meiri ánægju?
Ef svar þitt er jákvætt skaltu skrá þig strax á næsta
hraðlestrarnámskeið.
Skráning er í síma jö>4-2100
Næstu dagar verða heilsudagar í verslunum
Eymundsson. Verslanirnar eru fullar af
bókum og tímaritum á góðu verði sem
tengjast heilsunni á einn eða annan hátt. Nú
er rétti timinn til að hrista af sér slenið og
byrja nýtt og betra líf.
jS Eymundsson
V STOFNSETT 1872
Kringlunni: 533 1130 Austurstræti: 511 1130
nálastungur
► orka
styrkur
vígsla
ljösið
. steiuar
í virkni
| miðlar
o
| streita
o
< slen
1 náttúrulækningar
og allt hitt...