Morgunblaðið - 23.01.1997, Síða 25
r MORGUNBLAÐIÐ______________
AÐSENDAR GREIIMAR
FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 1997 25
Kvenréttinda-
félag Islands
90ára
Til eigenda spariskírteina á innlausn í febrúar
ÞANN 27. janúar
eru 90 ár frá því að
Bríet Bjarnhéðinsdóttir
og Sigríður Hjaltadóttir
Jensson boðuðu til
fundar á heimili Bríetar
í Þingholtsstræti 18 í
Reykjavík.
Tilgangur fundarins
var að ræða stofnun
félags sem gengist fyr-
ir breytingum til hags-
bóta fyrir konur og
börn. Félagsstofnunin
var samþykkt einum
rómi og kosin bráða-
birgðastjórn, þar með
var Kvenréttindafélag
íslands stofnað.
Félagið setti sér þegar í upphafi
starfsins skýr markmið og voru þau
sett fram í lögum félagsins en þar
segir m.a. í 2. gr.:
a: að starfa að því að konur fái
fullt stjórnmálajafnrétti við karl-
menn, kosningarétt, kjörgengi svo
og rétt til embætta og atvinnu með
sömu skilyrðum og þeir.
b: að efla þekkingu og glæða áhuga
íslenskra kvenna á málefni þessu
með fyrirlestrum, blaðagreinum o.fl.
c. að efla félagsskap og samvinnu
meðai kvenna, með því að stofna
sambandsdeildir víðsvegar um
land, sem allar vinni að sama
markmiði, hlíti sömu lögum og
standi í sambandi við aðaldeildina,
sem er í Reykjavík.
í þessum þrem liðum voru í raun
sett fram þau atriði sem líklegust
eru til árangurs í starfi félagasam-
taka, þ.e. skýr markmið, fræðsla og
uppbygging fjöldahreyfingar. Kven-
réttindafélag íslands hefur unnið
ötullega í anda sinna stefnumála.
Kvenréttindafélagið, sem og önn-
ur fijáls félagasamtök, gegnir mik-
ilsverðu hlutverki í lýðræðislegu
þjóðfélagi; þau eru lagalega og
skipulagslega óháð ríkisvaldinu, en
mörg þeirra reyna að hafa áhrif á
opinbera stefnumótun með því að
halda fram ákveðnum hugmyndum
og vinna að úrbótum á sínu sviði.
Lýðræðið er í stöðugri þróun og tek-
ur mið af samfélaginu á hveijum
tíma, að því þarf að hlúa og tryggja
virkni almennings, jafnræði þegn-
anna og jöfn áhrif kvenna og karla.
Frá stofnun Kvenréttindafélags
íslands hefur mikið vatn runnið til
sjávar. Það er útilokað fyrir okkur,
nútímafólkið, að gera okkur grein
fyrir þeim lífskjörum og því réttleysi
sem knúði konur til stofnunar bar-
áttufélags um mannréttindi kvenna
fyrir 90 árum, starfið hefur skilað
slíkum árangri.
Þó hér verði ekki til-
greindir einstakir ár-
angursríkir áfangar sem
starf_ Kvenréttindafé-
lags Islands hefur skilað
þá er óhætt að fullyrða
að félagið var frum-
kvöðull í baráttunni fyrir
jafnari stöðu kynjanna
og bamavemd.
Fyrir rétt liðlega tutt-
ugu áram vora fyrst
sett almenn lög á íslandi
um jafna stöðu karla og
kvenna, þar með var
mótuð opinber stefna
um mörg helstu baráttu-
mál Kvenréttindafélags-
ins og Jafnréttisráð sett
á laggimar.
Hlutverk Jafnréttisráðs, auk þess
að vinna að því að lögunum sé fram-
fylgt, er m.a. að móta stefnu í jafn-
réttismálum hér á landi og hafa fram-
kvæði að sérstökum tímabundnum
aðgerðum sem auka kunna jafnréttið
í þjóðfélaginu. Jafnréttisráð er ráð-
Lagaleg staða kvenna
er góð, segir Elín R.
Líndal, en margt er
óunnið að jafnstöðu
kynjanna í reynd.
gefandi fyrir stjómvöld, sinnir
fræðslu til félagasamtaka og almenn-
ings samhliða rannsóknum á sviði
jafnréttismála. Kvenréttindafélag ís-
lands hefur frá árinu 1985 átt þess
kost að hafa mótandi áhrif á starfið
í Jafnréttisráði með fulltrúa þar.
Þrátt fyrir að lagaleg og formleg
staða kvenna sé góð þá er margt
óunnið til að ná fram jafnri stöðu
kynjanna. Kvenréttindafélagið er
mikilvægur hlekkur í því verkefni,
sem fijáls félagasamtök mun það
áfram hafa verðugt hlutverk með
því að vinna vænlegum hugmyndum
brautargengi, efla fræðslu og um-
fjöllun um jafnréttismál, veita að-
hald og benda á ambögur í mannlíf-
inu.
Um leið og ég færi Kvenréttinda-
félagi íslands heillaóskir á þessum
merka áfanga á ég þá ósk að starfið
í framtíðinni verði íslensku samfé-
lagi heilladijúgt.
P.s. Stuðst er við sögu KRFÍ,
Veröld sem ég vil, skráða af Sigríði
Th. Erlendsdóttur sagnfræðingi.
Höfundur er form. Jafnréttísráðs.
Elín R.
Lfndal
mm Reidhjölaverslunin ___
ORNINNP'
SKEIFUNN111,
SÍMI 588-9890
Verð frá 2.931
Hvítir og svartir - stærðir frá 28 - á meðan birgðir endast
Þeir framsýnu sem skiptu spariskírteinum sínum 1995 í Einingabréf
10 hafa náð framúrskarandi ávöxtun.
1. feb. 1995 1. jan. 1997
Einingabréf 10 Spariskírteini 1.000.000 1.000.000 1.248.000 1.116.355
Dæmi:
Spariskírteini voru innleyst fyrir 1 milljón í febrúar 1995. Fyrir
andvirðið voru keypt Einingabréf 10. Um áramótin var fjárhæðin
orðin 1.248.000 kr. eða 131.645 kr. meiri en ef fjárfest hefði verið
aftur í spariskírteinum.
Einingabréf 10
Nafnávöxtun
á ársgrundvelli
Raunávöxtun
á ársgrundvelli
Sl. 6 mánuðir 13,7% 12,3%
Frá stofnun 1.2.95-1.1.97 13,4% 11,5%
Einingabréf 10
Spariskírteini
nl ra Q. '3
£ 5 < S 3 ->
•3 O. «
cn <u ^
.<( tn O
■O OJ ro ra O. _ .-3
ZQ—. U- 5 ^ —<
'3 D. *i > C
o> <u ié 5 n ra
.< O 2 O ->
100% ábyrgð ríkissjóðs
Eignarskattsfrj áls
Góð vörn gegn gengisfellingu krónunnar
Fáanleg fyrir hvaða fjárhæð sem er
Fáanleg í áskrift
Eitt símtal nægir til þess að kaupa bréfin
Innleysanleg án nokkurs fyrirvara og greidd út strax
Þeir sein innleysa spariskírteinin sín hjá
okkur og skipta þeim í Einingabréf 10, fá
í kaupbæti fyrir hverja milljón sem þeir
innleysa Einingabréf eða Auðlindarbréf
að verðmæti 10.000 kr.
Þeir sem ávaxta fé í verðbréfasjóðum njóta
góðrar áhættudreifingar og ávöxtunar á
einfaldan og öruggan hátt. Leitaðu
upplýsinga hjá ráðgjöfum Kaupþings hf. í
síma 515-1500, hjá Kaupþingi Norðurlands
hf. og hjá sparisjóðunum.
KAUPÞING HF
Lvggilt verðbrffafyrirtœki
Ármúli 13A,
108 Reykjavík
Sími: 515-1500
Fax: 515-1509
i. 97