Morgunblaðið - 23.01.1997, Síða 26

Morgunblaðið - 23.01.1997, Síða 26
26 FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Ekkí gráta, fóstra mín! _ GUÐMUNDUR Páll Ólafsson sem titlar sig föður og náttúru- vemdara skrifar mikla hugvekju til þjóðarinn- ar í Morgunblaðinu sunnudaginn 19. jan- úar sl. og hvetur hana til að beijast gegn áformum um virkjun fallvatna og uppbygg- ingu orkufreks iðnað- ar. Hann rekur búsifj- ar þær sem landið má þola af hendi Lands- virkjunar og stóriðju hvers konar og þykir sem enginn fái þar rönd við reist enda kraftaskáldin dauð og hugsjóna- bændur horfnir og því fátt til varn- ar gegn sérstökum áróðursmönn- um Landsvirkjunar sem yfirgnæfa andstæðinga sína og rugla fólk í ríminu með blekkingum og falsrök- um. Það er einkenni áróðurs að reynt er að höfða til tilfinninga fólks fremur en skynseminnar og grein Guðmundar Páls er satt að segja gott dæmi um slíka tilburði. Þá notar hann ítrekað öfgakenndar lýsingar á málavöxtum og stað- lausa stafí um lögleysu, falsrök og yfírgang Landsvirkjunar. Þetta er annað stílbragð úr smiðju áróðurs- manna: að mála andstæðing sinn svo sterkum litum og ljótum að þeir sem ekki vita betur skipa sér strax í flokk gegn varmenninu. Talsmenn Landsvirkjunar hafa raunar haldið sig til hlés í fjölmiðl- um og ekki lagt mikið til málanna Þorsteinn Hilmarsson í umræðum þeim um virkjunarmál og stór- iðju sem átt hefur sér stað að undanförnu og síst hafa þeir haldið uppi áróðri. Fyrirtækið gegnir því hlutverki að stuðla að aukinni nýt- ingu vatnsafls og jarð- varma og vinnur ötul- lega að því að svo megi verða. Árangur í því starfí næst ekki með því að hugsjóna- menn á öndverðum meiði haldi hugvekjur hver í kapp við annan eða að kraftaskáld kveðist á. Umræðan þarf að vera málefnaleg og rök- semdir og skynsemi að leiða til niðurstöðu sem felur í sér málam- iðlun milli ólíkra sjónarmiða. Sem betur fer hefur framvinda upp- byggingar í orkumálum verið far- sæl til þessa því að ábyrgir aðilar hafa fjallað um málin æsingalaust. Siðferðisskyldan Guðmundi Páli er tíðrætt um siðferði og segir að siðferðileg skylda íslendinga felist í því að skila landi og lofti óspilltu til kom- andi kynslóða og hann virðist telja að sú staðreynd geri alla tilburði við umhverfismat og arðsemisút- reikninga marklausa þvi að þeir taki ekki á siðferðilegri hlið mál- anna. Hann segir það siðferðilega skyldu okkar að meta heildaráhrif á landið, þjóðina og ferðaþjónustu framtíðar ef taka eigi ákvörðun um virkjanir og stóriðju. Nú er sið- Það er einkenni áróðurs, segir Þor- steinn Hilmarsson, að reynt er að höfða til til- finninga fólks fremur en skynsemi. fræði flókin fræði sem ég hef raun- ar lagt mig eftir en þó geri ég mér ekki alveg grein fyrir hvers vegna ferðaþjónusta kemur þar sérstak- lega við sögu í þessu samhengi. Látum nú vera að siðferðisskyldan felist m.a. í því að huga að ferða- þjónustu-en hvílir þá ekki sama siðferðisskylda á herðum okkar að huga að uppbyggingu í orkumálum og stóriðju? Eg mæli eflaust fyrir munn margra þegar ég segi að ég vilji að afkomendur mínir fái ríkari arf en óspillt land og loftið sem við öndum. Náttúruverndarstefna sem felst í því að ekkert megi gera hefur enga þá siðferðilega verð- leika sem eykur líkur á að kom- andi kynslóðir vegsami okkur frek- ar en ef okkur tækist að búa þeim traustar efnahagsstoðir með vand- aðri uppbyggingu á innviðum sam- félagsins. Minnast má þess að traustur efnahagur er ein forsenda góðs árangurs í umhverfismálum eins og dæmin sanna víða um heim. Guðmundur hefur þess vegna rétt fyrir sér í því að meta þurfi heildaráhrif þess sem við tökum okkur fyrir hendur á land og þjóð. Ekki er óeðlilegt að ætla sér að byggja upp og nýta þær auðlindir sem við eigum svo að hagur og farsæld íslendinga vaxi. Nýting vatnsafls og jarðvarma í því skyni er ekki siðlaus ef vel er að verki staðið. Vandséð er hvernig vanda á til verka í ákvörðunum er áhrif hafa á náttúru landsins ef nota á brjóstvitið og tilfinningarnar en rannsóknir og útreikningar eru taldir marklausir. Lón og flón Sú mynd sem Guðmundur Páll bregður upp af virkjun vatnsafls og náttúruvernd þætti sennilega léleg að gæðum ef hún væri ljós- mynd - alltof miklir kontrastar! Hann segir að Landsvirkjun og allt sem henni fylgir sé mesta ógn við náttúru íslands sem upphugsuð hefur verið. Hvernig skal svara slíkri fullyrðingu? Rafmagn er ein meginundirstaða samfélagsins og notkun þess einhver skaðminnsta og gagnlegasta nýting tæknikunn- áttu mannanna sem um getur. Vatnsaflið er hreinlegasta stórtæka aðferð til að framleiða rafmagn sem þekkist og byggist þar að auki á því að nýta náttúruöflin, rennsli vatnsins, þannig að það er auðlind sem ekki eyðist þótt af sé tekið. Vissulega veldur virkjun vatnsafls röskun og fórna þarf landi undir lón, stöðvarhús og línur. Þótt allar helstu jökulár landsins yrðu virk- jaðar nemur það land sem fer und- ir vatn og mannvirki innan við ein- um hundraðasta af flatarmáli ís- lands, en það kallar Guðmundur Páll að sökkva hálendinu. Álitamálin eru mörg þegar ákveða skal hvar og hvernig eigi að virkja. Það verður að komast að niðurstöðu um hvað er ásættan- legt og hvað ekki eftir þeim form- legu leiðum sem landslög kveða á um og þau gefa almenningi færi á að láta í ljós sín sjónarmið. Guð- mundur Páll kvartar yfír að fólki séu ekki kynntir framtíðarmögu- leikar í virkjunarmálum. Fyrir þá sem það vilja vita er vandalítið að nálgast slíkar upplýsingar og þeim hafa verið gerð skil í fjölmiðlum og á kynningarfundum víða um land. Þá má benda á útgefna skýrslu iðnaðarráðuneytisins frá 1994 „Innlendar orkulindir til vinnslu raforku" sem hefur að geyma yfírlit yfír helstu virkjunar- kosti um land allt og auðvelt er að nálgast. Landsvirkjun og starfsmenn hennar leggja metnað sinn í að viðhafa vönduð vinnubrögð við rannsóknir og undirbúning virkjana og leitað er leiða til þess að nýta vatnsaflið með sem minnstri röskun á náttúrunni. Einn megingalli á umræðu um málefni hálendisins er að þeir sem gæta annarra hags- muna en Landsvirkjun, t.d. hags- muna náttúruverndar og ferða- mennsku, hafa að mínu mati því miður ekki náð eins langt í rann- sóknum og stefnumörkun á sínu sviði eins og Landsvirkjun hefur á sínu. Þetta kemur Landsvirkjun síst til góða enda hefur fyrirtækið bætt þar úr með því að standa fyr- ir margvíslegum umhverfisrann- sóknum sem andmælendur virkjun- aráforma hafa nýtt sem grundvöll til að byggja málflutning sinn á. Stór hluti þeirra rannsókna á jarð- fræði, gróðurfari og dýralífi á há- lendinu sem fram hafa farið hefur verið kostaður af Landsvirkjun. Því fer Ijarri að Landsvirkjun valsi um hálendið og segi: „Hér og hér lón - þið flón“ eins og Guðmundur Páll lýsir því. Máttur Landsvirkjunar sem staf- ar af því að hún veldur hlutverki sínu svo vel sem raun ber vitni og hefur fjármuni til að fylgja málum sínum eftir með þessum vandaða hætti kallar því miður stundum á andstöðu sem sprottin er af ótta við hið óþekkta. Betra er að vera á móti virkjunaráformunum en að hætta á að fóma einhveiju sem ekki er vitað hvað er. Skyldi það vera að hugsjónabóndinn Guð- mundur Páll falli í þá gryfju? Höfundur er upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar, faðir og náttúruverndari. Vaxtarbroddur í atvinnumálum Nokkur orð um álver á Grundartanga Að undanfömu hefur verið mikið rætt og ritað í fjölmiðlum um bygg- ingu fyrirhugaðs álvers á Grundar- tanga. Mig langar í fáum orðum að greina frá skoðun minni á mál- inu og draga jafnframt fram örfáar staðreyndir um málið. Störfum hefur stöðugt fækkað hér á svæðinu sunnan Skarðsheiðar á undanfömum tveimur áratugum. Hefðbundinn landbúnaður hefur dregist mjög mikið saman á þessu tímabili. Hefðbundinni landbúnað- arvömframleiðslu hefur verið hætt á 12 jörðum af 24 í Hvalfjarðar- strandarhreppi. Á árunum þegar ríkið stóð í uppkaupum á fram- leiðslurétti í sauðfjárafurðum vora um 30% af rétti svæðisins seld. Svipuð þróun hefur átt sér stað • varðandi mjólkurframleiðslu. Jörð- um, þar sem mjólk er framleidd, hefur fækkað mikið í hreppunum fjóram sunnan Skarðsheiðar, en þó misjafnlega mikið. Þess má geta að á síðasta ári var mjólkufram- leiðslu hætt á þremur jörðum á svæðinu hér norðan og sunnan Hvalfjarðar, sem varð meðal annars til þess að ráðist var í róttækar breytingar á mjólkurflutningum af svæðinu til að ná fram meiri hag- ræðingu og hagkvæmni í flutning- um. Mörg störf töpuðust þegar hvalveiðum var hætt og það kom tilfinnanlega niður á svæðinu öllu. Jafnframt hefur dregið mjög úr umsvifum Olíufélags- ins hf. í Hvalfirði og þar hafa einnig tapast störf. Þar að auki má ljóst vera að með til- komu Hvalfjarðar- ganga munu á annan tug starfa tapast í veit- ingastöðum á Hval- fjarðarströnd. Tilraun- ir hafa verið gerðar hér til að skapa atvinnu, en árangur ekki alltaf orðið sem erfiði og kostnaður. Sem dæmi um það er nærtækast að nefna fiskeldisstöð sem reist var á Hval- fjarðarströnd. Margir bændur og aðrir íbúar í Hvalfjarðar- strandarhreppi lögðu í hana tölu- vert fé sem allt tapaðist í gjald- þroti stöðvarinnar. Þetta lýsir dap- urlegri þróun, sem ekkert lát virðist á, en mér fínnst nauðsynlegt að þetta komi fram þegar við reynum að gera okkur grein fyrir atvinnu- ástandi svæðisins í heild. Þessi þróun og nauðsyn þess að vaxtarbroddur sé í atvinnumálum á svæðinu varð til þess að forráða- menn sveitarfélaganna á svæðinu hér sunnan Skarðsheiðar tóku því með jákvæðu hugarfari þegar farið var að ræða hugmynd um byggingu álvers á Grundartanga. Ég held hins vegar að aðdragandinn að þeirri umræðu sé lengri en svo að þetta sé eitthvað sem eigi að koma á óvart núna. Þess má minnast að á tímabilinu frá 1988 til 1994 var unnið svæðis- skipulag fyrir sveitar- félögin sunnan Skarðs- heiðar; Hvalfjarðar- strandarhrepp, Skil- mannahrepp, Innri- Akraneshrepp, Leirár- og Melahrepp og Akra- nes. I svæðisskipulag- inu er svæðið við Grundartanga skipu- lagt sem iðnaðarsvæði. Þetta iðnaðarsvæði, sem í skipulagsvinnunni var ætlað fyrir stóriðju, var stækkað út fyrir það svæði, sem ríkið keypti á sínum tíma úr jörðinni Klafastöðum þar sem verksmiðja íslenska Járn- blendifélagsins hf. stendur nú. Skipulagða iðnaðarsvæðið nær núna yfír svæði sem er í tveimur hreppum, Hvalfjarðarstrandar- hreppi og Skilmannahreppi. Strax meðan á skipulagsvinnunni stóð kom upp hugmynd um stóriðju á svæðinu. Forráðamenn allra sveit- arfélaganna sunnan Skarðsheiðar, þar á meðal Akraness, rituðu sam- eiginlegt bréf dagsett í maí 1990 til þáverandi iðnaðarráðherra, þar sem iðnaðarsvæði á Grundartanga Valgarðsson var boðið til nota fyrir álver sem svonefndur Atlantsálhópur hugðist reisa hér á landi. Hugmyndir um meiri stóriðju á svæðinu hafa því verið til umræðu í mörg ár. í Ijósi alls þessa var það mat sveitarstjóma Hvalfjarðarstrandar- hrepps og Skilmannahrepps að mik- ill fengur væri fyrir atvinnulíf svæð- isins að fá hingað álver Columbia Ventures Company og hafa sveitar- stjórnirnar unnið samhentar að því að sem best mætti takast til með undirbúning, byggingu og rekstur. Sveitarstjórnirnar hafa í viðræðum sínum við fulltrúa ríkisvaldsins lagt þunga áherslu á að hvergi verði slakað á kröfum um að besti meng- unarvarnabúnaður verði notaður í verksmiðjuna og að ströngustu staðlar verði notaðir varðandi Forráðamenn sveitar- félaga sunnan Skarðs- heiðar tóku því með jákvæðu hugarfari, seg- ir Jón Valgarðsson, þegar hugmyndin um álver á Grundartanga kom til umræðu. mengunarmörk. Jafnframt að mengunareftirlit verði sem víðtæk- ast og nái yfir stórt svæði, verði vel skipulagt, mælingar reglulegar og tíðar og að hlutaðeigandi aðilum verði ávallt sent afrit af niðurstöð- um. Allar upplýsingar um þessi fyrir- tæki hafa legið opnar öllum þeim sem hafa viljað kynna sér málið nánar, mikil umræða hefur verið í blöðum og öðrum fjölmiðlum í lang- an tíma, auk þess sem sérstakur kynningarfundur fór fram á niður- stöðum umhverfismats vegna fyrir- hugaðs álvers í nóvember 1995 og íbúum þar gefínn kostur á að koma með fýrirspumir til fulltrúa Hönn- unar hf., sem vann umhverfísmatið, Hollustuvemdar ríkisins, Skipulags ríkisins, iðnaðarráðuneytisins, Landsvirkjunar, sveitarstjórnanna og fleiri aðila sem málið varðar. Þegar allt þetta er virt tel ég að sveitarstjórnirnar hafi reynt að standa vel að málum. Æskilegra hefði verið að fá hing- að annars konar starfsemi en ál- bræðslu, en eins og dæmin sanna er ekki um það að ræða að við getum valið úr tegundum atvinnu- fyrirtækja. Því er það skoðun mín að við eigum að taka við þessu ál- veri, en halda jafnframt vöku okkar um að vel verði staðið að byggingu þess og rekstri. Ég vil biðja fólk um að láta ekki deigan síga við uppbyggingu á öðr- um atvinnurekstri því álver er ekki það eina sem unnið hefur verið að í atvinnumálum hér á svæðinu. Okkur ber auðvitað að minnast þess sem vel hefur tekist til með. Sem dæmi má nefna að skipulagðar hafa verið og leigðar út lóðir undir sumarbústaði á sex jörðum hér í Hvalfjarðarstrandarhreppi og hafa tekjur af því komið að nokkru í stað tekna af hefðbundnum land- búnaði. Ferðaþjónusta hefur einnig aukist og hvort tveggja, ferðaþjón- usta og uppbygging sumarbústaða- svæða, hefur borið góðan árangur. Sú uppbygging hefur farið fram þrátt fyrir að stóriðja hafi verið rekin á Grundartanga í tæp 20 ár og ekki hef ég heyrt að stóriðjan hafi að nokkru leyti staðið í vegi fyrir þeirri uppbyggingu. Höfundur cr bóndi á Eystra-Miðfelli ogoddviti Hvalfjarðarstrandarhrepps. I I > ) i i ! i

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.