Morgunblaðið - 23.01.1997, Síða 33
AÐSENDAR GREINAR
-f
1 MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 1997 33
Morgunblaðið, Jón Baldvin
og matvælaverðið
„ÞARNA sérðu, landbúnaðarvör-
urnar eru tvöfalt dýrari hér en í
Evrópu," sagði bróðir minn við mig
að morgni 7. janúar sl., og benti
mér á fyrirsögn Morgunblaðsins á
baksíðu: „Matvöruverð hér helmingi
hærra“.
Síðar um daginn heyrði ég viðtal
í útvarpinu við Jón Baldvin Hanni-
balsson sem lagði auðheyrilega út
af fyrirsögn Morgunblaðsins og
skírskotaði til skýrslu nefndar sem
forsætisráðherra skipaði að beiðni
ASÍ og VSÍ til að kanna fram-
færslukostnað heimilanna. Talaði
Jón Baldvin eins og áður um land-
búnaðarmál, annaðhvort vísvitandi
eða ómeðvitað leggjandi út af röng-
um samanburðartölum og vitnaði
til þess sem hann hefði sagt fýrir
nokkrum árum.
Svo lengi og svo oft má halda
fram röngum málatilbúnaði að það
eins og síast inn í þjóðarvitund og
er mér nær að halda að svo sé að
verða á íslandi í dag. Þess vegna
leyfi ég mér að mótmæla þessu og
nefni eftirfarandi máli mínu til
stuðnings:
Matvælaverð á íslandi næstum
það sama og á hinum
Norðurlöndunum
Á baksíðu Morgunblaðsins kem-
ur reyndar fram í því sem skrifað
var að fyrirsögnin var röng miðað
við íslenska málvenju. Átt var við
að matvaran væri 50% dýrari en í
löndum Evrópusambandsins. En
var það rétt? Athugum það. í skýrsl-
unni er tekið mið af verðlagi í 15
Þessi samanburður sýn-
ir, segir Halldór Gunn-
arsson, að matvælaverð
á íslandi er næstum það
sama og á hinum Norð-
urlöndunum.
löndum Evrópusambandsins og sett
meðaltal verðlags 100. Til viðbótar
er sýnt verðlag í fjórum löndum:
íslandi, Sviss, Noregi og Póllandi.
Það matvöruverð sem Morgunblað-
ið taldi fram innihélt einnig drykki
og tóbak, sem hækkaði um nokkur
prósent meðaltalið. Hefði Morgun-
blaðinu, fréttamönnum útvarps og
Jóni Baldvin, ekki verið nær að
bera saman matvælaverð án
drykkjarverðs og tóbaks og bera
saman við hin Norðurlöndin. I eftir-
farandi frumgögnum skýrsluhöf-
unda kemur fram eftirfarandi mat-
arverð í þessum löndum. Á íslandi:
136, í Danmörku: 136, í Noregi:
137, í Svíþjóð: 125 og í Finnlandi:
132. Þessi samanburður sýnir að
matvælaverð á íslandi er næstum
það sama og á Norðurlöndum. Þetta
finnst mér að hefði átt að koma
sérstaklega til skoðunar og frétta-
mats hjá fjölmiðlafólki.
Bækur, dagblöð og tímarít 161%
hærri hér en í löndum ESB.
Vissulega hefði mátt segja frá
og skýra þann verðmun sem var
mestur í skýrslunni.
Hæsta verðið miðað
við Island er kostnað-
ur bóka, blaða og
tímarita eða 261 mið-
að við ESB-löndin.
Við skulum líta á
sama samanburð og
áður við hin Norður-
löndin. Í Danmörku:
146, í Noregi: 138, í
Svíþjóð: 122 og í
Finnlandi: 126. Sem-
sagt, verðlag á bók-
um, dagblöðum og
tímaritum er þrefalt
og allt upp í sjöfalt
hærra á íslandi en á
hinum Norðurlöndun-
um. Hvers vegna er það ekki
fréttaefni blaða og áþreifanlegt
baráttumál ASÍ og VSÍ til lækkun-
ar á framfærslukostnaði?
Útlegging af röngum
upplýsingum
Jón Baldvin Hannibalsson reyndi
á frægum fundum með endemum
fyrir nokkrum árum að sannfæra
bændur um að Alþýðuflokkurinn
væri að berjast fyrir bændur og
töfralausn hans væri innganga ís-
lands í Evrópusambandið, þar sem
íslenskir bændur myndu þá njóta
niðurgreiðslna eins og í Evrópu,
sem væri jafnvel meiri en hér og
neytendur myndu þá njóta niður-
greiddra landbúnaðarvara í stór-
lækkuðu verði. Það er rétt, niður-
greiðslur hjá ESB taka mið af legu
landa, þannig að norðlæg lönd
njóta meiri niður-
greiðslu á landbún-
aðarframleiðslu en
suðlæg. Niðurgreiðsl-
urnar eru einnig öðru-
vísi greiddar. Þær eru
ekki framleiðslu-
tengdar, heldur frem-
ur greiddar til að
koma í veg fyrir fram-
leiðslu.
Beingreiðslur til
bænda, sem sumir al-
þingismenn og fjöl-
miðlar í útleggingum
aftur og aftur hafa
reynt að gera tor-
tryggilegar, eru ekk-
ert annað en niður-
greiðsla á matvælaverði sem er
nálgun við niðurgreiðslur ESB mið-
að við það sem áður var hér á landi,
þegar heildsöluverð var niðurgreitt
í prósentum til heildverslunar, en
bændur nutu þess aðeins að hluta
i framleiðsluverði.
Það er nóg að svara margfram-
settum málatilbúningi Jóns Bald-
vins með hans eigin rökum og segja
við hann: Lestu frumgögn skýrsl-
unnar sem þú varst að leggja út
frá. Hvað er matarverðið í Dan-
mörku, ESB-landi til svo margra
ára?
Að lokum örfá orð til þeirra
mörgu sem leggja út frá röngum
upplýsingum.
Islenskir bændur eru að ganga
í gegnum miklu meiri kreppu en
aðrar starfsstéttir þessa lands.
Þeir hafa gert það fram til þessa
Halldór
Gunnarsson
án þess að hefja kröfuspjöld á loft,
eða koma keyrandi á dráttarvélum
til þéttbýlisstaða, eins og bændur
gera erlendis til áréttingar launa-
kröfum, stöðva umferð eða henda
niður afurðum. Krafan um að fá
að lifa af í landinu er réttmæt.
Að lifa við sambærilegar aðstæður
og bændur í næsta nágrenni og
þurfa ekki að keppa við niður-
greidda landbúnaðarframleiðslu án
tolla eða fá annars sambærilega
niðurgreiðslu hér og greitt er er-
lendis.
Með búvörusamningi 1991 í
sauðfjárrækt og fleiri aðhaldsað-
gerðum árlega síðan hefur ríkis-
sjóður lækkað niðurgreiðslur sínar
á matvöruverði og greiðslur til
bænda um rúmlega fjóra milljarða
króna og þrátt fyrir það hafa
bændur lækkað matvælaverðið og
á síðasta ári selt á sína ábyrgð
allar umframbirgðir dilkakjöts.
Bændur reyna eins hratt og þeir
geta að aðlaga sig óskum neytenda
um ferskt kjöt á markaði árið um
kring og að ná niður matvæla-
verði, þannig að það sé sem næst
meðalmatvælaverði á Norðurlönd-
um. Ef ríkisstjórn íslands verður
knúin í samningaviðræðum ASÍ og
VSÍ til að bijóta niður nauðsynlega
tollvernd þá hrynur grundvöllur
bænda til að eiga möguleika á að
lifa af við landbúnaðarframleiðslu.
Þá fyrst heíjast fólksflutningarnir
frá sveit til þéttbýlis. Og hvað tek-
ur þar við? Bændur reyna þá lík-
lega að ganga inn í ASÍ og þiggja
molana af borði þeirra í formi at-
vinnuleysisbóta. Framkvæmda-
stjóri ÁSÍ fær þá verðugra við-
fangsefni, en hann virðist nú hafa.
Hagfræði hans þarf auðsjáanlega
nýjar grunntölur til að leggja út
frá eða útlegging hans að ná til
afleiðingarinnar sem gæti orðið.
Höfundur er sóknarprestur og
bóndi í Holti undir EyjafjöIIum.
* Tilt 9 joðsdagar! Glös - Matarstell 20 - 50% afsláttur
iittala rpl Laugavegi24. riNiANn l\Ul vl sími 562 4525
Maharishi Mahesh Yogi
INNHVERF ÍHUGUN
Kynningarfyrirlestur um Innhverfa íhugun (TM-
hugleiðslu) verður haldinn í kvöld, fimmtudag,
kl. 20:30 að Suðuriandsbraut 6 (sal Ökuskól-
ans). Aðgangur ókeypis. Uppl. í síma 551 6662
eða 588 8455.
ÍSLENSKA ÍHUGUNARFÉLAGIÐ
Sérðu stundum lítinn
tilgang í lífi þínu?
Vissir þú að sálarrannsóknir undanfarin 150 ár hafa sýnt hverjum
sem heyra vill að bæði er, að yfirgnæfandi líkur benda til iífs eftir
dauðann, og það sem meira er, að það bíður flestra mjög fallegt líf í
ótrúlega merkilegum heimi, sem er reyndar ekki svo fjarri okkur þegar
öllu er á botninn hvolft? Og vissir þú að nú gefst þér sem öllum sem
áhuga hafa á, að setjast í afar skemmtilegan skóla eitt kvöld í viku,
eða eitt laugardagssíðdegi í viku fyrir hófleg skólagjöld, þar sem reynt
er á sem víðsýnastan hátt að gefa nemendum sem besta yfirsýn yfir
hverjar séu raunverulegar niðurstöður þessara handanheimafræða?
Hringdu ogfáftu allar nánari upplýsingar um langmerkilegasta
skólann sem í boifi er i dag. Svarað í sítna Sálarrannsóknarskólans
alla daga vikunnar kL 14 til 19. Kynningarfundir eru í skólanum
i kvöld kL 20.30 og á laugardaginn kL 14. Allir velkomnir.
ASálarrannsóknarskólinn
- „skemmtilegasti skólinn f bænum" -
Vegmúla 2,
símar 561 9015 og 588 6050.
Nú er hafin framleiðsla á lífrænni mjólkurvöru, segja má að með því sé að nokkru
leyti snúið aftur til búskaparhátta sem tíðkuðust fyrr á tímum þó tækni nútímans sé
nýtt. Vistvæn sjónarmið eru höfð að leiðarljósi og þess gætt að sem minnst röskun
verði á náttúrulegu umhverfi. Lífrænn landbúnaður og vinnsla eru háð ákveðnum
reglum, eftirliti og vottun auk þess sem ströng gæðastjórnun miðar að því að varan
sé ávallt í hæsta gæðaflokki.
Meginatriði lífræns landbúnaðar eru að:
• Viðhalda og auka frjósemi jarðvegsins
• Nota lífrænar varnir gegn illgresi og skordýrum
• Efla náttúrulegt mótstöðuafl dýra gegn sjúkdómum
• Nota skiptiræktun og lífrænan áburð
• Tryggja velferð dýra, veita þeim nægilegt húsrými og ráðrúm
til eðlislægrar hegðunar, hreyfingar og fóðrunar
Skilyrði við vinnslu á lífrænni mjólkurvöru eru að:
• Vinnslan sé vottuð af viðurkenndri vottunarstofu
• Vinnsla hennar sé aðskilin frá annarri framleiðslu
Mjólkurbú Flóamanna hefur fengið vottun Túns ehf. til framleiðslu á Lífrænni ab-mjólk
og er þannig fyrst mjólkurbúa til að hefja framleiðslu á lífrænni mjólkurvöru fyrir
almennan markað. Enn sem komið er hafa aðeins örfáir bændur fengið vottun til |
framleiðslu á lífrænni mjólk og því verður til að byrja með aðeins framleitt takmarkað
magn af Lífrænni ab-mjólk. Eftirspurn ræður miklu um hvernig þessi nýsköpun í s
matvælaframleiðslu þróast, en hjá nágrannaþjóðum okkar hafa þessir framleiðsluhættir
rutt sér æ meira til rúms á undanförnum árum. §