Morgunblaðið - 23.01.1997, Síða 43

Morgunblaðið - 23.01.1997, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 1997 43 BREF TIL BLAÐSINS Stóriðja og ferða- þjónusta eiga ekki samleið Einar Torfi Finnsson Frá Einari Torfa Finnssyni: Fyrstu kynni flestra útlendinga, af höfuðborgarsvaeðinu er ein af stærri byggingum íslands, sem sé Álverið. Fyrsta spurningin sem kemur upp í huga margra þeirra er: „Já, er þá ál í jörðu á Islandi?" Og þegar maður út- skýrir að hráefn- ið sé innflutt, að einfaldlega sé verið að nýta ódýra raforku koma oft spurningar um hvernig raforkunnar er aflað, hvort ekki fýlgi mengun sem ekki eigi heima í annars hreinu landi. Þessir er- lendu gestir okkar halda nefnilega oft að hér sé hreint land, algerlega án mengunar og umhverfisvanda- mála. Það fyrsta sem þeir hins vegar sjá er orkufrek stóriðja og ekki bætir málmbræðslan hinum megin við veginn, útsýnið. Þeir hugga sig þá við það að orkufram- leiðslan mengi ekki umhverfið. Við sem byggjum landið vitum þó að hún er ekki án fórna á landsins gæðum. Uppistöðulón eru tiltölulega grunn á Islandi. ísland er þannig mótað að á þeim svæðum þar sem vatnsöflun til virkjana er auðveldust, er lands- lag tiltölulega flatt og lítið um djúpa dali. Uppistöðulón virkjana verða þannig mörg hver, ákaflega grunn (oft innan við 10 m meðal- dýpt) og því þarf að kaffæra til- tölulega mikið land fýrir tiltölulega lítinn vatnsforða. Þannig verður t.d. væntanlegt Hágöngulón ákaf- lega yfirborðsmikið miðað við dýpt. Einmitt á þessu svæði hefur undirritaður, eins og fleiri leið- sögumenn, ferðast um með er- lenda ferðamenn sem sækjast eft- ir algerum óbyggðum. Einnig hafa margir íslendingar á leið í Vonar- skarð farið um svæðið auk jeppa- og vélsleðamanna á vetrum. Rök Jakobs Björnssonar í Morgunblað- inu föstudaginn 17. janúar, um að uppistöðulón virkjana taki svo lítið af heildaryfirborði hálendisins hljóma í mínum eyrum hjákátleg. Uppistöðulónin lenda oft inni á þekktum ferðamannaleiðum og útlitsskemmdir, vegagerð, stíflu- garðar og annað hefur áhrif á svæði langt umfram það sem yfir- borð þessara mannvirkja segir til um. Hér er því um hreina blekk- ingu að ræða af hálfu Jakobs Björnssonar. Stóriðja grefur undan ferðamannaþjónustu. Það fer ekki vel saman að reka orkufrekan stóriðnað og byggja upp ímynd ómengaðrar paradísar ferðamanna. Nú viljum við enn bæta um betur. Bráðlega komast ferða- mennirnir varla út úr Reykjavík aftur áður en við þeim blasa hlið við hlið, járnblendiverksmiðja og álver. Og það við einn af fallegri fjörðum landsins. Ráðamenn þjóð- arinnar virðast ekki skilja að sú stóriðju- og orkuvinnslupólitík sem rekin er í landinu í dag, grefur undan einni mikilvægustu at- vinnugrein landsmanna, ferða- þjónustunni. Það sem þó er verra, er að sumir af forráðamönnum ferðaþjónustunnar, skilja það ekki heldur og sýna litla samstöðu með örvæningarfullum íbúum við Hval- §örð. Þetta verður að breytast, ef við viljum viðhalda þeim orðstír sem þó fer af landinu í dag. Stór- iðja og ferðaþjónusta fara ekki saman. Útflutningur á raforku um sæstreng og ferðaþjónusta fara ekki saman vegna þess að með þeim framkvæmdum sem stóriðju og aukinni orkuvinnslu eru samf- ara, völdum við landinu varanleg- um útlitslýtum sem illa verða bætt. Við skemmum þá ímynd sem við erum að selja og verðum kjána- leg í augum þeirra sem hingað sækja í óspjallaða náttúru sem löngu er horfin í heimalandi þeirra. Nýstofnuð samtök um náttúru og umhverfisvernd sem (þegar þetta er skrifað) ekki hafa en hlotið nafn, verða að taka ákveðna af- stöðu gegn framkvæmdum eins og álverinu í Hvalfirði og styðja við bakið á íbúum svæðisins sem hafna mengandi stóriðju. Hlutverk samtakanna hlýtur m.a. að verða að upplýsa fólk um framkvæmdir sem þessar, hvetja almenning til þess að leggja fram athugasemdir og mótmæli áður en auglýstur frestur til slíks rennur út þannig að fólk vakni ekki við vondan draum eftir að skipulag hefur ver- ið samþykkt. Það sorglega er að fæstir þeirra sem eru andsnúnir álverinu í Hvalfirði áttuðu sig á að mótmæla þegar á skipulags- stigi. Nú hafa heimamenn brugð- ist hart við, við hin sem eigum hagsmuna að gæta, megum ekki láta okkar eftir liggja. EINAR TORFI FINNSSON, leiðsögumaður og rekur litla ferðaskrifstofu. UTSALA - UTSALA Mikiö úrval af: Jökkum á kr. 5.000. Pilsum á kr. 1.500. Buxum á kr. 2.800. Blússum á kr. 1.500. Pilsum á kr. 2.800. Peysum á kr. 1.800. Dragtir, kápur, úlpur, blússur og peysur. Opið á laugardögum frá 10-16 mraarion Reykjavíkurvegi 64 ■ Hafnarfirði • Sími 565 1147 MORGUN BLAÐSINS Sunnudaginn 2. febrúar nk. gefur Morgunblaðið út hinn árlega blaðauka, Fjármál fjölskyldunnar. Blaðaukinn mun væntanlega nýtast lesendum vel við gerð skattframtalsins, en frestur til að skila framtalinu rennur út mánudaginn 10. febrúar nk. Blaðaukinn fjallar um flest það sem viðkemur sköttum og fjármálum heimilanna. Meðal efnis: ■ Breytingar á skattareglum. Hvaða áhrif hafa þær? ■ Skattaafsláttur ■ Endurgreiðsla skatta ■ Leiðbeiningar varðandi skattframtalsgerð ■ Breytingar á lífeyrissjóðakerfinu ■ Greiðsluþjónusta bankanna ■ Fjárfestingaleiðir almennings ■ Viðtöl o.fl. Allar nánari upplýsingar veita starfsmenn auglýsingadeildar í síma 569-1171 eða með símbréfi 569-1110. Skilafrestur auglýsingapantana er til kl. 12.00 máníidaginn 27. janúar. - kjarni niálsins! kvöldMóu m KOPAVOGS ^7 Snælandsskóli - 200 Kópavogur TUNGUMALANAMSKEIÐ Kennt er í byrjenda-, framhalds- og talæfingaflokkum. ENSKA - DANSKA - NORSKA - SÆNSKA - FRANSKA - ÍTALSKA - SPÆNSKA - ÞÝSKA - KATALÓNSKA - * ISLENSKA fýrir útlendinga og fjöldi annarra námskeiða. Innritun í símum: 564 1527, 564 1507 og 554 4391 kl. 17.00-21.00.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.