Morgunblaðið - 05.02.1997, Side 1
72 SÍÐUR B/C/D
29. TBL. 85. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Meira en 7 0
hermenn
fórust
Shaar Yishuv. Reuter.
TUGIR ísraelskra hermanna fór-
ust þegar tvær herþyrlur rákust
á í vondu veðri rétt við iíbönsku
landamærin í gærdag. Benjamin
Netanyahu, forsætisráðherra
ísraels, aflýsti ferð til Jórdaníu í
dag þegar fréttist af slysinu.
„Þetta er mikill harmleikur og
öll þjóðin grætur dauða þessara
ungu hermanna," sagði í yfirlýs-
ingu frá Netanyahu.
Þyrlurnar, bandarískar Sik-
orsky-flutningaþyrlur, sem flutt
geta 50 manns, voru að flytja
hermennina til Suður-Líbanons
þegar þær rákust á. Haft var eft-
ir heimildum innan ísraelska
hersins, að 37 menn hefðu verið
í hvorri og ísraelska útvarpið
sagði, að 70 manns að minnsta
kosti hefðu farist.
Þyrlurnar féllu niður á sam-
yrkjubú og urðu gífurlegar
spengingar þegar þær komu nið-
ur. Ekki var þó vitað til, að neinn
á jörðu niðri hefði látið lífið.
A myndinni eru ísraelskir her-
menn að bera burt iík eins félaga
sinna sem fórust með þyrlunum.
Reuter
MEIRA en 100.000 manns komu saman í Sofiu, höfuðborg Búlgaríu, í gær til að krefjast nýrra
kosninga. Þessi stjórnarandstæðingur var sigurviss eins og sjá má og skömmu síðar tilkynnti sós-
íalistaflokkurinn, að kosningar yrðu í april. Skilaði hann jafnframt umboði sínu til stjórnarmyndunar.
Sósíalistar í Búlgaríu
samþykkja kosningar
------------------ Sofíu. Reuter.
Reuter
SÓSÍALISTAFLOKKURINN í
Búlgaríu féllst í gær á að efnt yrði
til þingkosninga í apríl og lét þar
með undan síga í deilunni við
stjórnarandstöðuna, sem hafði efnt
til daglegra fjöldamótmæla í mánuð
til að krefjast þess að gengið yrði
til kosninga sem fyrst. Stjórnar-
andstæðingar fögnuðu tíðindunum
í miðborg Sofíu, dönsuðu, sungu
og báru Petar Stoyanov forseta um
göturnar.
I yfirlýsingu frá forystumönnum
Sósíalistaflokksins og stjórnarand-
stöðuflokkanna sagði að samkomu-
lag hefði náðst um að óska eftir
því að forsetinn boðaði til kosninga
ekki síðar en 20. apríl. Forsetinn
hafði veitt sósíalistum umboð til
að mynda ríkisstjórn fyrir miðnætti
í nótt en þeir féllust á að skila
umboðinu gegn því að stjórnarand-
stöðuflokkarnir notuðu ekki tæki-
færið til að mynda ríkisstjórn. Stoy-
anov á að mynda bráðabirgðastjórn
sem verður við völd fram yfir kosn-
ingar.
Forsetanum þakkað
„Ég vil þakka forsetanum, sem
tókst að leysa þetta erfíða mál,
öllu fólkinu á götunum, öllum þeim
sem lögðu niður vinnu í þágu mál-
staðarins, og einkum námsmönn-
unum því án eldmóðs þeirra hefðum
við aldrei náð eins langt,“ sagði
ívan Kostov, einn af leiðtogum
stjórnarandstöðunnar.
Þrautaganga Jag-
lands heldur áfram
Þriðji
ráðherr-
ann farinn
ANNE Holt, dómsmálaráðherra
Noregs, sagði af sér embætti í gær
af heilsufarsástæðum. Er brott-
hvarf hennar enn eitt áfallið fyrir
Thorbjorn Jagland forsætisráð-
herra en Holt er þriðji ráðherrann,
sem lætur af embætti frá því að
núverandi minnihlutastjórn Verka-
mannaflokksins var mynduð fyrir
rúmlega þremur mánuðum.
Eftirmaður Holts í embætti er
Gerd-Liv Valla, varaformaður
bandalags opinberra starfsmanna
í Noregi. Að því er fram kemur í
dagblaðinu Aftenposten tilheyrir
hún róttækari armi Verkamanna-
flokksins og er meðal annars and-
víg aðild Noregs að Evrópusam-
bandinu. Talið er, að með skipan
hennar sé Jagland að friða Evrópu-
andstæðinga innan flokksins en
hann hefur verið sakaður um að
skipa stjórnina eingöngu stuðn-
ingsmönnum ESB-aðildar.
Yfirlýsing frá læknum
Holt, sem er 37 ára að aldri,
átti ásamt Terje Rod-Larsen að
gefa stjórn Jaglands nýjan og
ferskan svip en Rod-Larsen sagði
af sér í nóvemberlok vegna ásakana
um skattsvik. Grete Faremo orku-
málaráðherra sagði af sér rúmlega
hálfum mánuði síðar vegna
hneykslis varðandi norsku leyni-
þjónustuna.
Holt hefur verið frá störfum í
nokkrar vikur vegna veikinda en
hún þjáist af þrálátu blóðleysi. Þeg-
ar Jagland skýrði frá afsögn hennar
í gær afhenti hann fréttamönnum
yfírlýsingu frá læknum um veikind-
in til að girða fyrir grunsemdir um
að aðrar ástæður lægju að baki.
Milosevic, forseti Serbíu, lætur undan eftir fjöldamótmæli í 80 daga
Viðurkenmr kosningasig-
ur stjórnarandstöðunnar
Belgrad. Reuter.
Bhutto
hafnar úr-
slitunum
Islaraabad, Lahore. Reuter.
NAWAZ Sharif, leiðtogi
Múslimabandalagsins í Pak-
istan, sem vann stórsigur í
þingkosningunum á mánu-
dag, kvaðst í gær ætla að
koma á „mjög djörfum umbót-
um“ til að bjarga efnahag
landsins. Benazir Bhutto galt
afhroð í kosningunum.
Bhutto óskaði Sharif vel-
farnaðar en tók fram að hún
viðurkenndi ekki kosningaúr-
slitin.
Þegar úrslit lágu fyrir í 194
kjördæmum af 217 hafði
flokkur Sharifs, Múslima-
bandalagið, fengið 132 þing-
sæti og Þjóðarflokkur Bhutto
aðeins 17. Samstarfsflokkur
Múslimabandalagsins var
með átta þingsæti.
■ Sharif stafar lítil/18
SLOBODAN Milosevie, forseti Serb-
íu, sneri skyndilega við blaðinu í gær
og lýsti því yfír, að sigur stjórnar-
andstöðunnar í sveitarstjórnarkosn-
ingunum í nóvember yrði viður-
kenndur. Leiðtogar Zajedno, sam-
bands stjórnarandstöðuflokkanna,
fögnuðu þessu en með nokkrum
fyrirvara þó og sögðu mótmælin
gegn einræði sósíalista mundu halda
áfram þar til losað yrði um tök
stjórnarinnar á fjölmiðlum og hafist
handa við aðrar lýðræðisumbætur.
Sósíalistastjórn Milosevics ógilti
sigur stjórnarandstöðunnar í um 14
borgum 17. nóvember sl. og var því
svarað með fjöldamótmælum, sem
staðið hafa dag hvern í tvo og hálf-
an mánuð. Hafa þau farið friðsam-
lega fram þar til fyrir þremur dögum
en þá létu sérsveitir Milosevics til
skarar skríða gegn mótmælendum í
fyrsta sinn. Var óttast, að það væri
undanfari þess, að Milosevic lýsti
yfir neyðarástandi í landinu til að
kveða niður mótmæli stjórnarand-
stæðinga og námsmanna.
OSE og umheimurinn
Yfírlýsing hans kom því mjög á
óvart en hann skipaði Mirko Maij-
anovic, forsætisráðherra sínum, að
beita sér fyrir því á þingi, að úrslit
sveitarstjórnarkosninganna yrðu
viðurkennd í samræmi við skýrslu,
sem sendinefnd frá ÖSE, Öryggis-
og samvinnustofnun Evrópu, birti í
desember sl. Sagði Milosevic, að góð
samskipti við ÖSE og umheiminn
væru mikilvægari landi og þjóð en
einhver fjöldi sæta í sveitarstjórnum.
Hugsanlegt er talið, að nýkomm-
únískir harðlínumenn í sósíalista-
flokknum reyni að koma í veg fyrir,
að þingið viðurkenni sigur stjórnar-
andstöðunnar en ekki er þó talið lík-
legt, að þeim takist það.
Áttatíu þúsund manns mótmæltu
sósíalistastjórninni í Belgrad í gær
og fagnaði fólkið ákaflega þegar
fréttist af sinnaskiptum Milosevics.
Stjórnarandstöðuleiðtoginn Zoran
Djindjic sagði þó, að mótmælum
yrði haldið áfram þar til skipan nýrra
sveitarstjórna væri í höfn og þeir
sóttir til saka, sem hefðu staðið fyr-
ir kosningasvikum. Auk þess yrði
að leysa fjölmiðlana úr ánauð ríkis-
valdsins.
Engin efnahagsaðstoð
ÖSE lagði í gær hart að sósíalista-
stjórninni í Serbíu að hefja viðræður
við stjórnarandstöðuna og ýmsir full-
trúar vestrænna ríkja lýstu því yfir,
að hún þyrfti ekki að gera sér nein-
ar vonir um aðstoð við uppbyggingu
efnahagslífsins, beitti hún sér ekki
fyrir lýðræðislegum umbótum.
Evrópusambandið, Bretar og
Bandaríkjamenn lýstu í gær ánægju
með yfirlýsingu Milosevic en þeir
síðarnefndu kváðust þó ekki myndu
trúa fyrr en þeir tækju á. Hér væri
aðeins um að ræða fyrsta skref af
mörgum, sem taka þyrfti.