Morgunblaðið - 05.02.1997, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 05.02.1997, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MINNIIMGAR MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 1997 35' ar ég hóf störf hjá Landmælingum íslands. Það var hlýr og traustur maður, fullur orku, sem tók á móti mér fyrsta starfsdaginn minn. Hann bauð mig velkominn með þéttu og karlmannlegu handtaki, enda var maður ávallt velkominn þar sem hann var. Við nánari kynni komu þessir eiginleikar hans betur í ljós. Ágúst átti gott með að tjá sig og var natinn við að leiðbeina, sýna réttu tökin og útskýra leynd- ardóma starfsins. Sjálfur bjó hann yfir mjög góðri þekkingu á sviði landmælinga og kortagerðar. Á þessum tíma var hann allt í öllu hjá stofnuninni sem var ung að árum, stofnuð 1956. Verkefnin voru mikil en húsakynnin, sem þá voru á Seljavegi 32 en síðar á Laugavegi 178, voru lítil og tæki og innanstokksmunir af skornum skammti. Rýrar fjárveitingar gerðu það að verkum að stundum horfði til vandræða vegna tækja- leysis. Það má ekki síst þakka einstakri verklagni, hugmynda- auðgi og útsjónarsemi Ágústs að hægt var að halda starfseminni gangandi á þessum fyrstu árum. Hann hannaði og smíðaði tæki sem stofnunin notaði til margra ára við kortagerðina, og þegar engin nógu stór myndavél var til í bænum til að mynda kortateikn- ingar vegna stærðar þeirra gerði hann sér lítið fyrir og breytti stór- um hluta heimilis síns í prent- myndastofu þar sem honum tókst að framkvæma verkið með heima- tilbúinni „myndavél". í öllu þessu umróti stóð Sigríður Sveinbjörns- dóttir kona hans með honum. Hún reyndist honum ávallt ómetanleg stoð. Ágúst var réttlátur og um- hyggjusamur yfirmaður og reynd- ist starfsmönnum sínum vel, hvort sem allt lék í lyndi eða eitthvað bjátaði á. Undir hans stjórn tóku Landmælingar íslands stórstígum framförum. Það var gott að vera í návist Ágústs. Hann hafði yndi af tónlist og átti mikið safn platna og segul- banda. Stundum bauð hann vinum og kunningjum að hlusta með sér og átti þá til að stilla hljómtækin svo hátt að garnimar í manni nötr- uðu. Ágúst var hagmæltur og eft- ir hann liggur fjöldi ljóða af margs konar toga. Um Chopin orti hann: Hann leikur sér að lífsins helgidómum. Með guðaveig af helgrar listar hyl, hann hrifur þá, sem geta fundið til og fegrar hjartans akur friðarblómum. Ágúst var félagi í Oddfellow- reglunni. Ég tók því fegins hendi þegar hann bauð mér að gerast reglufélagi. Ég hef ekki séð eftir því. Þar \zx hann hvers manns hugljúfí. Ágúst og Sigríður eignuð- ust son, Gunnar Hrafn Ágústsson verkfræðing, en hann lést á Þor- láksmessu árið 1990. Sigríður lést á aðfangadag jóla árið 1977. Að leiðarlokum kveð ég hann með vinsemd og virðingu og þakka honum samfylgdina og allan stuðn- ing við mig sem ég met mikils. Ég votta aðstandendum hans sam- úð mína. Hvíl í Guðs friði. Svavar Berg Pálsson. Er harðskeyttar hafoldur lífsins mig hröktu og brutu mitt skip, í langvinnri baráttu lifsins ég lamaðist aðeins í svip. Ég aldrei af áttinni villtist, þótt ógnaði beljandi dröfn, og tókst því er stormurinn stilltist að stýra í farsæla höfn. Þessar ljóðlínur eru úr kvæði eftir Ágúst Böðvarsson, landmæl- ingamann og^ fyrrum forstjóra Landmælinga íslands, sem í dag er til grafar borinn. Það er nánast lögmál að ævi hvers og eins sé vörðuð þyrnum og rósum, sorg og gleði, mótlæti og meðbyr, og 91 árs langur æviferill Ágústs var vissulega engin undantekning frá því. Stærsta gæfa hans og bjart- asta ljós í lífinu var án efa yndis- leg kona hans, Sigríður Svein- bjömsdóttir, sonur þeirra Gunnar Hrafn og fjölskylda hans, og sorg- in mest þegar hann missti þau feðgin, bæði fyrir aldur fram. En ég veit að þegar Ágúst gerði upp dæmið á kvöldi ævi sinnar komst hann vandalaust að þeirri niður- stöðu að hann hefði verið mikill gæfumaður, bæði í einkalífi sínu og ævistarfi. Þetta uppgjör endur- speglast í ofangreindum ljóðlínum, og þetta fundu allir sem áttu því láni að fagna að kynnast honum náið. Ágúst Böðvarsson hóf starfsfer- il sinn innan við tvítugt sem bóndi á Hrafnseyri við Amarfjörð, þar sem hann fæddist, en forlögin höfðu ætlað honum annað hlutverk í lífinu. Aðeins fjórum árum síðar réðst hann sem aðstoðarmaður Dana við hið stóra verkefni þeirra að mæla og kórtleggja ísland og að koma landinu á sinn rétta stað á heimskortinu. Þar með var ten- ingunum kastað - hann hafði haf- ið sitt ævistarf sem hann sinnti að fullu, þangað til hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Og hann hélt raunar áfram að sinna því þangað til hann missti sjónina nær alfarið fyrir nokkrum árum. Þetta sést m.a. á því að síðastliðið ár kom út mikið rit sem Ágúst tók saman að tilhlutan sinnar gömlu stofnunar, Landmælinga íslands, um mælingar og kortlagningu Dananna og um þátt íslendinga í þeim. Það var mikið lán fyrir Ágúst að fá tækifæri til að taka þátt í þessu stórvirki Dana, bæði vegna þess að það varð upphafið að því ævistarfi sem hann helgaði sér, og vegna þess að þannig fékk hann tækifæri til að kynnast landi sínu til hlítar. Þekking hans á landinu var nánast ótrúleg, og hún hélst allt til síðustu stundar því að hann var stálminnugur og átti því láni að fagna að halda andlegri reisn til síðustu stundar. En það var ekki síður lán fyrir ísland að Ág- úst valdist til þess mikilvæga verk- efnis, sem landmælingar voru og eru, og þeirra starfa sem hann síð- ar tók að sér á þeim vettvangi. Samvizkusamari og vandvirkari mann var naumast hægt að finna, og hann var gæddur því næma handbragði sem góður kortagerð- armaður þarf að hafa. Hann vann brautryðjandastarf á sviði land- mælinga sem eru einn af hom- steinunum í tækniþróun þjóðarinn- ar. Ágúst var virkur félagi í Odd- fellowreglunni í nærfellt 37 ár og lagði ómældan skerf til líknarmála hennar. Hann var fyrst í stúkunni nr. 3, Hallveigu, en gerðist einn af stofnendum stúkunnar nr. 11, Þorgeirs, árið 1964. Þar gegndi hann æðstu virðingarstöðum og var að verðleikum kjörinn heiðurs- félagi stúkunnar. Oddfellowbræð- ur og systur minnast Ágústs með þökk og virðingu. Ágúst var gott ljóðskáld, og liggja m.a. eftir hann ýmsir lands- fleygir sönglagatextar og tvær ljóðabækur. Kom önnur þeirra út á síðasta ári, aðeins nokkram mánuðum fyrir andlát hans. Tón- elskur var Ágúst með afbrigðum, og var sígild tónlist önnur stóra ást hans. Hún stytti honum ekki sízt stundir síðustu árin, eftir að hann missti sjónina. Ég átti því láni að fagna að eiga Ágúst fyrir leiðbeinanda, starfsfé- laga, Oddfellowbróður og vin í nærfellt fjöratíu ár. Ég er forsjón- inni óendanlega þakklátur fyrir að hafa fengið að njóta samfylgdar þessa öðlings og heiðursmanns sem nú, að lokinni langri og merkri starfsævi, er horfinn á vit ástvina og æðri tilvistar. Við hjónin sendum fjölskyldu hans og ættingjum einlægar sam- úðarkveðjur. Blessuð sé minning Ágústs Böð- varssonar. Ingvi Þorsteinsson. SIGURÐUR KRISTINSSON + Sigurður Krist- insson var fæddur á Eyrar- bakka 6. ágúst 1915. Hann lést í Sjúkrahúsi Reykja- víkur 23. desember síðastliðinn. For- eldrar Sigurðar voru Vigdís Eiríks- dóttir húsmóðir og Kristinn Þórarins- son sjómaður. Mest- an hluta starfs- ævinnar stundaði Sigurður sjó- mennsku. Eftirlif- andi eiginkona Sigurðar er Jón- ína Þórðardóttir. Börn þeirra eru: 1) Vigdís, f. 1948. 2) Jón, f. 1949. 3) Tvíburarnir Kristín og Sigríður, f. 1954. Áður eign- aðist Sigurður eina dóttur, Stejnunni, f. 1937. Útför Sigurðar fór fram í kyrrþey 31. desember. Eitt blik af auga heimsins hélt mér föngnum, það bærðist vart - það skein í andartak en hvarf svo burtu og samt varð bjart (Alvar Haust.) Ég álít það af einhveijum ástæð- um hið markverðara að komast óséð- ur gegnum lífið og hafa samt gert skyldu sína en að hafa verið hrókur alls fagnaðar. Ef til vill stafar hlýja mín til Sigga Kristins af þögulli nærveru hans. Eitt sinn fyrir mörg- um árum lagði ég hönd mína í hönd hans þegar við áttum bæði pínulítið bágt, síðan var hann alltaf vinur minn. Hann sagði aldrei við mig að honum þætt vænt um mig, ekki einu sinni að honum líkaði við mig — samt var það sem hann sagði ekki meira virði en mörg orð annnarra. Hann lifði og fór i meira látleysi en ég minnist að hafa kynnst hjá öðru fólki. Áttræði sjómaðurinn sem áleit málaratrön- umar mínar rétthærri en bíl í bílskúrnum okk- ar og var samt ekkert upprifinn af myndunum mínum, án þess að það væri særandi á nokkurn hátt. Hann benti mér eitt sinn á fallega Við- eyjarmynd sem er eldri en ég og sagði: „Það væri gaman ef þú málað- ir svona myndir." Ég sagði eins og var að þannig tilburðir af minni hálfu gætu aðeins endað á einn veg — með skelfingu. Samt fékk viður- kenningaijáið hans sem var alltaf i fylgd pínulítillar höfuðhneygingar. Þannig virti Siggi Kristins lífið í kringum sig, hreykti sér aldrei eða tróð fólki um tær og fjölyrti ekki þótt hann hafi eflaust viljað margt á annan veg en það fór. Ég óska ljúfmenninu hljóða, Sigga Kristins, góðrar heimferðar og þakka fágæt kynni. Edith Randy. Að kvöldi Þorláksmessu stoppaði lífsvél Sigurðar Kristinssonar. Þegar undirbúningur hátíðar ljóss og friðar stóð sem hæst barðist hinn aldni vélgæslumaður við gangverk sinnar eigin vélar, vélarinnar sem hafði gengið í rúm 80 ár. Sigurður fæddist á Eyrarbakka og var næstyngsta barn hjónanna Vigdísar Eiríksdóttur húsmóður og Kristins Þórarinssonar sjómanns. Þegar Sigurður var þriggja ára drukknaði faðir hans, en með dugn- aði, trú og útsjónarsemi kom móðir- JÓHANNA MAGNÚS- DÓTTIR ALONSO + Jóhanna Magn- úsdóttir Alonso fæddist í Lágu- Kotey í Meðallandi 20. nóvember 1940. Hún lést á heimili sínu í Barcelóna á Spáni aðfaranótt 13. janúar síðastlið- inn. Foreldrar Jó- hönnu voru Magnús Sigurðsson, bóndi í Lágu-Kotey, f. þar 7.5. 1901, d. 18.12. 1983, og kona hans, Jónína Margrét Eg- ilsdóttir, f. 26.5. 1903 í Kerlingardal í Mýrdal. í Lágu-Kotey bjuggu þau þjónin frá 1925 til ársins 1955, en þá brugðu þau búi og fluttu í Kópavoginn, byggðu sér húsið í Melgerði 24, en þar býr Mar- grét enn með syni sínum, Björg- vini Ólafi trésmið. f Lágu-Kotey fædd- ust þeim 12 börn, en eitt þeirra, dótt- ir, dó tveimur dög- um eftir fæðingu í maí 1942. Nú lifa 9 af bömum þeirra hjóna, flest gift og eiga afkomendur, dugandi fólk í margþættum störf- um og námi. Sambýlismaður Jóhönnu var Ronna Brauer og eignuð- ust þau son, Kurt Magnus, kvæntur í Gautaborg og rekur þar tölvufyrirtæki. Jóhanna og Ronna slitu sam- vistir. Eftirlifandi eiginmaður er José Alonso Fernánder. Útför Jóhönnu fer fram í Barcelona 16. janúar. s Athafnasemi þeirra hjóna í Lágu- Kotey var viðbrugðið. Víðkunn var eðlislæg greiðasemi þeirra. Sama var hver leitaði ásjár. Húsbændur töldu það skyldu sína að leysa úr vanda þess, sem að garði bar. Var þá ekki spurt um greiðslu þótt lang- an tíma tæki að leysa úr vanda komumanns. Slík var fómfýsi þeirra við sveitunga sína þótt aldrei væri auður í ranni. Níunda barn þeirra hjóna var Jó- hanna sem hér er minnst. Hún fylgd- ist með foreldrum sínum til þess er hún varð 21. árs. Þá fór hún til Svíþjóðar að leita sér starfa, en þá leituðu margir íslendingar þangað. Fljótlega fór hún í sambúð með sænskum manni, Ronna Brauer, og eignaðist með honum son, Kurt Magnus, sem nú er kvæntur í Gauta- borg og rekur þar tölvufyrirtæki. Þau slitu samvistum. Nokkru síðar kvæntist hún eftirlifandi eiginmanni sínum, Jóse Alonso Femánder. Þau bjuggu nokkur ár í Svíþjóð en flutt- ust síðar til Spánar, stofnuðu heim- ili sitt í Barcelóna og bjuggu þar síðan. Þau eignuðust ekki börn en Kurt Magnus ólst upp hjá þeim. Frá bemsku- og æskuárum er glaðlyndi Jóhönnu minnst, starfsfysi hennar, alltaf tilbúin til starfa, fijót að koma sér að verki og nýta með- fædda handlægni, sem var viðbrugð- ið svo sem hún átti kyn til. Á uppvaxt- arárum hennar lærðist einstaklingun- um þótt ungir væru að meta tímann og leggja sig fram svo sem þrek leyfði og nýta sér þau áhöld sem til féllu þótt framstæð væra. Þessir með- fæddu eiginleikar fylgdu Jóhönnu til in öllum sínum bömum á legg. Á uppvaxtarárunum vann Sigurður að sveitastörfum og við vegavinnu, en 16 ára gamall fór hann á sjóinn sem var hans starfsvettvangur mestan^ j hluta ævinnar, lengst af sem vél- , stjóri. Eiginkonan, Jónína Þórðar- j | dóttir, var manni sínum stoð og i , stytta, lífsförunautur sjómannsins | sem dvaldi langdvölum að heiman, l ] móðir og uppalandi fjögurra barna. | i Kynni okkar Sigurðar hófust 1983 þegar ég og Vigdís dóttír hans hófum sambúð, kynnin urðu fljótt að þeirri góðu vináttu sem ávailt hélst með , okkur. Sigurður var séstakt prúð- | menni sem ekki gerði kröfur sjálfum sér til handa, orðfár en rökfastur ef svo bar undir, víðlesinn á bókmennt- , j ir þó að ekki væri það oft á borð' borið, til hans sóttu börnin hljóð og góð þó svo að hann héldi ekki að þeim miklu töluðu máli. Oft spjölluðum við um menn og málefni líðandi stundar og þá sér- staklega í tengslum við sjóinn, einn- ig vora æskustöðvarnar fyrir „aust- an“ á Eyrarbakka ofarlega í huga, enda var oft farið í ökuferðir „aust- ur“_ meðan heilsan leyfði. Á seinni árum fór Sigurður reglu- lega í orlofsferðir, ekki í þær orlofs- ferðir sem flestir kalla svo, heldur var farið í orlofsferð til Hafnarfjarð- > ar og dvalið hjá okkur Vigdísi í daga ; eða vikur eftir aðstæðum. Sigurður var hrifinn af Hafnarfirði enda hafði ^ hann verið á skipum þaðan á sínum - í yngri áram. Nálægðin við hafnarlíf- ið, hraunið og sjóinn virtist hafa góð áhrif á dáðadrenginn Sigurð Krist- insson. Farðu I friði, vinur, væntanlega dvelur þú nú hjá þínu fólki fyrir „austan“. Blessuð sé minning Sigurðar Kristinssonar og megi styrkur Guðs ’ vera með þér, Jónína mín, börnunum í og öðram aðstandendum. Nú árið er liðið í aldanna skaut ^ og aldrei það kemur til baka, nú gengin er sérhver þess gleði og þraut, það gjörvallt er runnið á eilífðar braut, en minning þess víst skal þó vaka. (V. Briem.) Ragnar Valdimarsson hinstu stundar samfara trúmennsku í störfum, en sem vinnuveitendur hennar mátu að verðleikum, hvort sem var hér heima eða erlendis. Heimili þeirra hjóna í Barcelóna var rómað fyrir gestrisni. Gesti var fagnað, svo sem Jóhanna hafði alist upp við með foreldram sínum og i systkinum. íslendingar staddir í ‘j Barcelóna um lengri eða skemmrj, j tima nutu gestrisni þeirra þjóna sem veitt var af hlýleika. Eiginmaður Jóhönnu var sjúkra- þjálfari að mennt, en hann hafði | þjálfað sig í endurhæfingu aldraðra. i Var það ævistarf hans svo lengi sem I þróttur hans leyfði. Fyrir allmörgum | áram komu þau hjónin til íslands. | Fór þar saman gleði konunnar yfir að heimsækja fjölskylduna, sem Jó- j hanna mat mikils, samfara því að sýna eiginmanni sínum sérstæð fyr- irbæri íslenskrar náttúru. Þá vora i þau hérlendis um þriggja ára skeið. | Alonso vann hér nokkum tíma við sjúkraþjálfun aldraðra, fyrst í Sunnuhlíð í Kópavogi og síðan á Sólvangi í Hafnarfirði. Að þeim tímæ liðnum fóra þau til Barcelóna þar sem hjúkrunarstörfin biðu Alonso en fyölbreytt starf Jóhönnu við saumaskap í þágu verslunarfyr- irtækis. Jóhanna Magnúsdóttir er horfin úr hópi fjölskyldu sinnar hér á landi. Hlýjar samúðarkveðjur eru sendar eiginmanni hennar í Barcelóna og syni hennar í Gautaborg. Sár söknuð- ur er í hópi systkina, frænda og vina hér, en sárastur er söknuður hjá móður hennar. Hennar er minnst með þakklæti og virðingu og beðið með orðum Sigurðar Kr. Péturssonar. - Drottinn vakir, Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. Blíðlynd eins og besta móðir ber hann þig i faðmi sér. Allir þótt þér aðrir bregðist aldrei hann á burtu fer. Drottinn elskar, - Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. < Ingimundur Ólafsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.