Morgunblaðið - 05.02.1997, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 05.02.1997, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 1997 9 FRÉTTIR Útboð á tryggingum atvinnubílstjóra 200 manns hafa sagt upp tryggingum UM 200 atvinnubílstjórar í Trausta, Frama og Landsambandi vörubif- reiðastjóra hafa sagt upp trygging- um á ökutækjum sínum, þar af yfir 100 leigubílstjórar. Félögin hafa samið við Alþjóðlega miðlun um útboð ökutækjatrygginga er- lendis. Hjá mörgum bílstjórum hefst nýtt tryggingaár 1. mars nk. og þurftu þeir að segja tryggingum sínum upp ekki síðar en 28. janúar ef þeir hugðust skipta við annað tryggingafélag. Sigfús Bjarnason, formaður Frama, segir að í þessum þremur félögum séu um 1.300 SIV Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, gagnrýndi stuðning fjármálaráðherra við hug- myndir stjórnar Áfengis- og tób- aksverslunar ríkisins um breyting- ar á fyrirkomulagi áfengis- og tób- akssölu á Alþingi á mánudag og segir þær stangast á við yfirlýsta stefnu ríkisstjórnarinnar í fíkni- efna-, áfengis- og tóbaksvörnum. Þau atriði sem Siv gagnrýnir helst eru hugmyndir um að taka dreifíngu tóbaks frá ÁTVR og hefja sölu á bjór og léttvíni í almennum verslunum. Hún telur að með þess- um breytingum verði aðgangur ungs fólks að áfengi auðveldaður og að samkeppni milli tóbaksinn- flytjenda aukist og þar af leiðandi tilraunir þeirra til að koma vöru sinni á framfæri. Hún spyr hvort einungis viðskiptasjónarmið eigi að ráða varðandi sölu á áfengi og tób- aki. manns en aðeins hluti þeirra er með gjalddaga 1. mars. Sigfús segir að margir leigubíl- stjórar telji hag sínum best borgið hjá sínum tryggingafélögum vegna tilboða sem þau bjóði sé um fleiri en eina grein trygginga að ræða. Lækkunin þarf að vera 10-20% Alþjóðleg miðlun mun hafa til- búin verð á þessum tryggingum um miðjan febrúar. Sigfús segir að iðgjöldin þurfí að lækka um 10-20% til þess að þetta borgi sig Friðrik Sophusson fjármálaráð- herra segist ekki hafa skoðað ná- kvæmlega hvort hugmyndir stjórn- ar ÁTVR samræmdust í einstökum atriðum stefnu ríkisstjórnarinnar. Hann bendir þó á að samkvæmt könnun hafi fjórðungur íslendinga yfir tuttugu ára aldri drukkið landa. Dregur úr drykkju ólöglegs áfengis „Það eru því ekki einungis við- skiptasjónarmið sem liggja að baki því, til dæmis, að lækka verð á léttvíni og bjór. Það má búast við að lækkun á þessum víntegundum dragi úr drykkju unglinga og ann- arra á ólöglegu áfengi. Ég tel að það megi og eigi að fylgja heilbrigð- isstefnu varðandi verðlag á tóbaki og að það sé hægt án þess að ÁTVR annist heildsöludreifingu á því,“ segir Friðrik. en menn geri sér vonir um að lækk- unin verði enn meiri. „Ég á von á því að til lengri tíma litið færi flestir félagsmenn sig til nýs tryggingafélags lækki íslensku tryggingafélögin ekki sínar trygg- ingar. Við leituðum ekki tilboða frá þeim því þau hafa haft tækifæri til þess að lækka iðgjöld. Þau lækk- uðu nýlega iðgjöld á einkabíla en ekki atvinnubíla," sagði Sigfús. Sigfús segir að iðgjald af kaskó- tryggingu sem leigubílstjóri með 70% í bónus greiðir sé að lágmarki á bilinu 100-120 þúsund krónur á ári. Vaclav Klaus heimsæk- ir Island FORSÆTISRÁÐHERRA Tékklands, Vaclav Klaus, mun eiga viðdvöl hér á landi í boði forsætisráðherra, Davíðs Oddssonar, 19. febrúar nk. ásamt eiginkonu sinni og fylgdarliði. Klaus mun ávarpa ráðstefnu um markaðs- og einkavæðingu sem haldin verður á vegum ríkisstjórnar- innar síðdegis saman dag. Ásamt tékkneska forsætis- ráðherranum munu Jírí Weigl, aðalráðgjafi ríkisstjórnar Tékklands, Birgitta Kantola, einn af varaforsetum Alþjóða- bankans, Jónas Haralz, fv. bankastjóri, Halldór Ásgríms- son, utanríkisráðherra, og Davíð Oddsson, forsætisráð- herra, ávarpa ráðstefnuna. Ráðstefnustjóri verður Hreinn Loftsson, formaður fram- kvæmdanefndar um einka- væðingu. - kjarni málsins! Siv Friðleifsdóttir um breytingar á áfengis- og tóbakssölu Samræmist ekki stefnu rík- isstj órnarinnar Atta mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot ísafirði. Morgunblaðið. HÉRAÐSDÓMUR Vestfjarða dæmdi á mánudag 36 ára karlmann í 8 mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn 2 ára göml- um dreng. Brotið framdi hann í ág- úst síðastliðnum í húsi á Suðureyri þar sem báðir voru næturgestir. I niðurstöðu dóms Héraðsdóms segir að fyrir liggi að ákærði hafi verið mjög ölvaður greinda nótt. Muni hann, þegar svo er ástatt, eiga vanda til að missa úr minni atburði og jafnvel ekki muna eftir lögbrotum sem hann hefur framið í ölvunar- ástandi. Fram kemur að maðurinn neitaði ekki sakargiftum við rann- sókn málsins en taldi ólíklegt að hann hefði brotið af sér gagnvart drengnum. Hann neitaði hins vegar allri sök fyrir dómi. Upplýst er að drengurinn sofnaði við hlið móður sinnar í þriggja sæta sófa í stofu nefndrar íbúðar og var þá íklæddur náttsamfestingi. Með hliðsjón af staðfestum framburði vitna er sannað að drengurinn hafði síðar legið nakinn á sæng í tveggja sæta sófa þeim sem ákærði hafði lagt sig í. Engar málsbætur Við ákvörðun refsingar lítur Hér- aðsdómur annars vegar til aldurs Fallegar og vandaðar gjafavörur á frábæru verði Listhúsinu (gegnt Hótel Esju), slmi 568 3750. ákærða og alvarleika brotsins sem framið var gagnvart ósjálfbjarga barni á meðan heimiiisfólk var í fasta svefni. Dómurinn segir að ekkert bendi til þess að með ákærða hafi vaknað ásetningur til að fremja brot- ið síðla nætur. Þá sé ekkert fram komið sem bendi til þess að drengur- inn hafi hlotið varanlegan skaða af háttseminni. Ákærði eigi hins vegar engar málsbætur. Þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 8 mán- uði. Sökum alvarleika brotsins og sakaferils ákærða kemur ekki til álita að skilorðsbinda þá refsingu. Dóminn kváðu upp héraðsdómar- arnir Jónas Jóhannsson, Ólafur Ól- afsson og Sverrir Einarsson. Ný sending frá Daniel D. TESS v neö neöst viö Dunhaga, sínii 562 2230 Opið virka daga kl.9-18, laugardag kl. 10-14. Vertu áfram í öruggum höndum og endurnýjaðu spariskírteinin þín í nýjum ríkisverðbréfum ef þú átt skírteini á innlausn í febrúar: 1. febrúar 1. fl. D 1992-5ár 10. febrúar 1. fl. D 1989-8ár Tryggðu þér áfram góð kjör og skiptu gömlu skírteinunum yfir í ný ríkisverðbréf. Við aðstoðum þig og gefum góð ráð við skiptin. Komdu með gömlu spariskírteinm og skiptu yfir í ný LÁNASÝSLA RÍKISINS Hverfisgata 6, 2. hæð, sími 562 6040 ÚTBOÐ RÍKISVERÐBRÉFA • SALA • INNLAUSN • ÁSKRIFT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.