Morgunblaðið - 05.02.1997, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 05.02.1997, Blaðsíða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 1997 MINIMINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Systir okkar, KRISTJANA ÞORSTEINSDÓTTIR RUSSELL (Sjana) frá Dvergasteini við Lágholtsveg, Highland Park, New Jersey, er látin. Jarðarförin hefur farið fram. Einar Þorsteinsson, Elín Þorsteinsdóttir og fjölskyldur. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓNAS MAGNÚSSON starfsmaður umferðarráðs, Engjavegi 16, Selfossi, lést á St. Jósefsspítlanum, Hafnarfirði, 2. febrúar. Aðalbjörg Katrín Haraldsdóttir, Sesselja og Jóna Bára Jónasdætur, Ásbjörn Hartmannsson og barnabörn. t Ástkær eiginkona, móðir okkar, tengdamóðir og amma, MARÍA HALLA JÓNSDÓTTIR, Ingvörum, Svarfaðardal, lést á Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar 2. febrúar sl. Jarðarför auglýst síðar. Árni Steingrímsson, Edda Björk Valgeirsdóttir, Júlíus V. Sigurðsson, Jón Víkingur Árnason, Ester Anna Eiríksdóttir, Saga Árnadóttir, Börkur Árnason, Birkir Árnason, Sigrún Árnadóttir og barnabörn. t Móðir mín og tengdamóðir, KRISTÍN JAKOBSDÓTTIR frá Sogni í Kjós, Merkjateigi 7, Mosfellsbæ, andaðist í Landspítalanum þriðjudaginn 4. febrúar. Fyrir hönd vandamanna, Hannes Ólafsson, Þórdís Torfadóttir. A 4* t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, dr. BJÖRN MAGNÚSSON fyrrv. prófessor, Bergstaðastræti 56, lést á hjúkrunarheimilinu Eir þriðjudag- inn 4. febrúar. Dóróthea Björnsdóttir, Jón K. Björnsson, ingi R.B. Björnsson, Jóhann E. Björnsson, Björn Björnsson, Ingibjörg Björnsdóttir, Oddur B. Björnsson, Valgerður Kristjánsdóttir, barnabörn og bai Birgir Óiafsson, Margrét Dannheim, Jóna A. Sæmundsdóttir, Inger Bjarkan Ragnarsdóttir, Svanhildur Sigurðardóttir, Ólafur H. Óskarsson, Ásta Magnúsdóttir, Ragnheiður I. Magnúsdóttir, t Ástkær eiginkona min, dóttir, móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGURBJÖRG EIRÍKSDÓTTIR, Stuðlaseli 22, Reykjavík, lést á Landspítalanum þriðjudaginn 4. febrúar. Svavar Sigurjónsson, Sigríður Þórmundsdóttir, Áslaug Svavardóttir, Geir Magnússon, Margrét Svavarsdóttir, Ingólfur Gissurarson, Eirikur Svavarsson og barnabörn. KRISTÍN MA GNÚSDÓTTIR + Kristín Magnús- dóttir fæddist á Patreksfirði 15. júlí 1938. Hún lést í Landspítalanum 27. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Magnús Ingi- mundarson, f. 18. desember 1914, og Maria Sigurðardótt- ir, f. 24. mars 1921, dáin 1. nóvember 1981. Systkini Kristínar eru Guð- björg, f. 21. júní 1942, Hrafnhildur, f. 21. september 1947, Ragn- hiidur, f. 30. ágúst 1950 og Ingi- mundur, f. 13. febrúar 1961. Hinn 25. desember 1956 giftist Kristín Hlyni Ingimarssyni, f. 5. apríl 1935. Börn þeirra eru Magnús, f. 12. júlí 1956, Ómar, f. 25. maí 1959, Linda Björk, f. 15. ágúst 1960, og Kristín Ósk, f. 20. maí 1967. Utför Kristínar fer fram frá Vidalínskirkju í Garðabæ í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Englanna skarinn skær skínandi sé mér nær. Svo vil ég glaður sofna nú sætt í nafni Jesú. (Guðbjðrg Jóhannesdóttir.) Með þessari bæn viljum við kveðja kæra frænku og vinkonu, Kristínu Magnúsdóttur, sem við kölluðum alltaf Gógó frænku. Bæn þessi er eftir föðurömmu Gógóar. Hann var langur mánudagurinn 27. janúar, með bið frá því um morguninn er hún fór í mikla skurð- aðgerð. Þegar myrkt var orðið að kveldi kom fréttin um að hún væri ekki lengur á meðal okkar, hún væri farin í þá ferð er við öll förum misjafnlega snemma og missnöggt. Stuttur var aðdragandi að veikind- um hennar, frá áramótum hafði hún verið í rannsóknum og eftir þær var ákveðin skurðaðgerð. Hún var vel undirbúin fyrir þessa aðgerð og vildi fá sem flest og best svörin við öllu er að aðgerðinni laut. Hún var bjart- sýn og fór með góðu hugarfari, að allt yrði gott eftir á. Á Patreksfírði liðu bernskuár Kristínar og þriggja yngri systra og seinna bættist kærkominn bróðir í hópinn. Gógó átti gott með nám og var vel gefin; þegar skólagöngu lýkur fyrir vestan fer hún í Flens- borgarskóla. Er þá til heimils hjá okkur og eigum við margar góðar minningar frá þeim tíma sem geym- ast í huga okkar. Ein er sú þegar hún var að læra að tjútta, þá batt hún trefli í hurðarhún og tjúttaði. Síðan hefur traust vinátta haldist á milli okkar og þökkum við af alúð allan hlýhug og vináttu sem hún hefur sýnt okkur öll þessi ár. Gógó kynntist ung manni sínum, Hlyni Ingimarssyni, áttu þau fjögur börn sem öll eru uppkomin og búin að stofna heimili. Barnabörnin eru 14. Gógó var mikil og góð eigin- kona, móðir og amma, hún unni fjöl- skyldu sinni mikið og oft var mann- margt heima hjá henni. Hlynur starfaði seinni árin er- lendis og fylgdi Gógó honum til fjar- lægra landa og bjuggu þau í ýmsum löndum. Þau ferðuðust mikið á þess- um árum til margra heimsálfa. Mik- ið var gaman að hlusta á ferðalýs- ingar hennar frá þeim tíma. En svo kom að því að hún saknaði barna sinna og bamabarna, þegar þau fóru að koma, og hún kom heim, en Hlynur var um stund lengur er- lendis. Þau hittust í fríum Hlyns, bæði hér heima og á heimili þeirra á Kýpur. Gógó naut þeirra daga sem í hönd fóru, endurnýjaði sambönd við ætt- ingja og vini, henni leið vel en sakn- aði Hlyns, en sá dagur kom að hann kom alkominn heim. Þau nýttu vel þann tíma er í hönd fór við að fegra heimili sitt og umhverfi. Á dapurri kveðju- stund eru það ekki orð- in sem sefa sorg og söknuð, heldur traust minning um fallegt líf hins horfna. Við sem urðum svö auðug að eignast vináttu Gógóar og fá að umgangast hana deyfum söknuð- inn með því að geyma minningar um allar góðu stundirnar. Eiginmanni, börnum og fjölskyldum þeirra, föður og öðrum ætt- ingjum vottum við ein- læga samúð og biðjum góðan Guð að styrkja þau í sínum mikla sökn- uði. Við geymum góðar minningar um góða frænku og vinkonu um ókomin ár. Það er stórt skarð rofið í ættar- garðinn frá Ystu-Tungu við fráfall Gógóar. Farðu í friði, friður Guðs þig blessi. Hjálmar og Sigríður. Æskan fólnar með árunum. Vordagar líða skjótt. Viðkvæm blóm deyja, ef andað er á þau. Og spekingurinn segir mér að gleyma því ekki að lífið er aðeins daggarperla á blaði lótusblómsins. (R. Tagore.) Á dimmu janúarkvöldi barst til mín sú sorgarfregn að vinkona mín, Kristín Magnúsdóttir, væri látin. Kynni okkar Gógó, en það var hún ævinlega kölluð, hófust þegar- við vorum nágrannar í Lundar- brekku 6 fyrir tæpum 20 árum. Við áttum margt sameiginlegt við Gógó. Börnin okkar eru á sama aldri og þau yngstu gengu í sama skóla og tókst með þeim góð vinátta. Það var alltaf hressandi andblær sem fylgdi Gógó og Hlyni. Það var gott að koma til þeirra og gaman að fá þau í heimsókn. Þegar Hlynur og Gógó fiuttu í Lundarbrekku höfðu þau nýlega selt einbýlishús í Garðabæn- um og keypt sér góða seglskútu til að sigla á í frístundum sínum. Þau voru dugleg í því sem öðru og Gógó sigldi m.a. til Bretlands, það vant- aði mann vegna forfalla annars og hún var ekkert að hika við það. Ekki stöldruðu þau lengi við í Lund- arbrekku því árið 1982 fór Hlynur að vinna hjá Sameinuðu þjóðunum og þau fluttu til ísraels ásamt yngstu dótturinni sem enn var í foreldrahúsum. Síðar bjuggu þau oft á Kýpur. Þar var oft gestkvæmt hjá þeim og margir dvöldu hjá þeim um lengri eða skemmri tíma. Börnin þeirra, frændur og vinir dvöldu hjá þeim í sumarfríum og þá var nú siglt á skútum og seglbrettum. Oft var langt á milli okkar Gógó en bréfín okkar rötuðu á milli og tengslin slitnuðu ekki. Þegar Hlynur og Gógó voru í heimsókn hér á Fróni urðu fagnaðarfundir og margt þurftum við þá að ræða. Þau hjónin fluttu aftur heim til íslands fyrir nokkru. Þau keyptu aftur húsið Ránargrund 5, sem þau höfðu átt í Garðabænum. Þau eru búin að gera húsið upp og ég hef sjaldan komið inn á fallegra heim- ili. Allt er smekklegt og ber vitni þeirri umhyggju og vandvirkni sem einkenndi það sem Gógó lagði hönd á. Hún var mikil fjölskyldumann- eskja og ævinlega var fullt hús af börnum og barnabörnum sem voru hjá henni í lengri eða skemmri tíma. Það er erfitt að trúa því að hún Gógó sé ekki lengur á meðal okkar. Mér er efst í huga þakklæti fyrir allar þær stundir sem við áttum sam- an. Elsku Hlynur, við hjónin vottum þér, bömum þínum, íjölskyldum þeirra og öðrum aðstandendum okk- ar innilegustu samúð. Megi Guð styrkja ykkur í sorg ykkar. Eins og stjarnan lýsir í myrku himinhvolfínu lýsir trúin í myrkri angistar okkar. Missum ekki trúna vonina og kærleikann leyfum þeim að lýsa upp líf okkar. Emilía Guðmundsdóttir. Elsku Gógó frænka. Þegar við hittumst seinast heima hjá afa datt mér ekki í hug að þetta væri í seinasta sinn sem að ég mundi hitta þig og því langar mig að kveðja þig með nokkmm orðum þó að þú verðir alltaf í hjarta mínu. Þetta kvöld heima hjá afa töluð- um við mikið saman. Við töluðum t.d. um að þegar þetta væri allt yfírstaðið færum við tvær út að borða saman, bara til að spjalla. Ég er þó þakklát fyrir svona stund- ir sem við áttum saman, þó að ég óski þess að samverustundirnar hefðu verið fleiri. Þetta er svo erfitt að vita að þú eigir ekki eftir að fylgja mér í fram- tíðinni því að þú hefur alltaf stutt mig og þótt vænt um mig, alveg eins og mér þykir vænt um þig. Elsku Gógó, ég mun sakna þín alla tíð meðan ég lifi og ég trúi því og vona að við eigum eftir að hittast aftur. Með þessum kveðjuorðum vil ég og fjölskylda mín votta Hlyni, börn- unum ykkar, afa Magnúsi, öllum 14 bamabömunum þínum, sem þú varst svo stolt af, og öllum sem fengu að kynnast þér okkar dýstu samúð. Þín frænka, María Jóhannsdóttir. í dag kveðjum við vinkonu okk- ar, Kristínu Magnúsdóttur, sem er látin. Þó kynni okkar hafi ekki ver- ið löng voru þau á hinn bóginn ánægjuleg og okkur reyndist hún vel. Kynni okkar tókust fyrst þegar við komum saman nokkrar konur til að láta gott af okkur leiða fyrir þá sem höfðu orðið illa úti eftir snjóflóðið í Súðavík. Þetta var nokk- uð mislitur hópur kvenna og aldurs- munur var nokkur. Þær sem eldri voru og reyndari í lífsins ólgusjó tóku okkur sem yngri vorum sem jafningjum. Kristín var fremst með- al jafningja og hrókur alls fagnað- ar. Eftir að við höfðum skilað af okkur verkefninu og hver hélt til síns heima hófust kynni okkar af Kristínu fyrir alvöru og þá fyrst kom í Ijós hversu góðum mannkostum hún var búin. Hún var okkur sem þetta skrifum fyrirmynd og við litum framtíðina björtum augum. Það gaf okkur mikið að koma til hennar og finna þann góða vilja og kraft sem hún bjó yfir og frá Kristínu fórum. við ætíð ánægðari og betri mann- eskjur. Svo mikið gaf hún af sér að það er fyrst núna sem við skynj- um hvað mikið við höfum farið mik- ils á mis að hafa ekki átt þess kost að kynnast Kristínu fyrr á lífsleið- inni. Við þökkum henni fyrir þennan stutta tíma sem hún gaf okkur af lífshlaupi sínu og verður okkur ætíð minnisstæður. Við viljum með þess- um fátæklegu línum þakka henni fyrir þessi góðu kynni og biðjum þess í bænum okkar að sálin öðlist hinn eilífa frið. Við biðjum góðan Guð að hugga aldraðan föður henn- ar, eiginmann, börn og maka þeirra og barnabörn. Hvíli hún í friði. Svava Guðmundsdóttir, Jóhanna Sveinsdóttir. Skrif hafa ekki verið mín sterka hlið en ég vil með nokkrum orðum kveðja systur mína Gógó, sem var mér meira en bara systir. Kveðju- stundin er komin þó mér finnist það of snemmt. Ég sakna hennar svo mikið að mér hefur fundist hjartað marið og aumt. Ég held samt að hún hafi innst inni vitað að hún færi á fund mömmu, sem dó ekki mikið eldri. Ég þakka fyrir að hafa fengið að búa hjá henni síðustu þrjú árin á Ránargrund. Það er nú ómetanlegur tími fyrir mig, því þó að manni hafi stundum fundist maður vera lítill strákur er
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.