Morgunblaðið - 05.02.1997, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 1997 23
Lífsgleði njóttu
Verk eftir
Eyborgu
á Annarri
hæð
OPNUÐ hefur verið sýning á
verkum Eyborgar Guðmunds-
dóttur í sýningarsalnum Önn-
ur hæð á Laugavegi 37.
Eyborg er fædd 1924. Á
sjötta áratugnum umgekkst
hún ýmsa starfandi listamenn
þess tíma og ekki síst vegna
hvatningar Dieter Roth, sem
hún kynntist 1958, hélt hún
til Parísar 1959 til að iðka list
sína.
í kynningu segir: „Eyborg
ferðaðist um alla Evrópu og
sýndi list sína víða m.a. með
listamannahópnum Group
Mesure sem vann í ákveðinni
andstöðu við tachismann og
lagði stund á geometríska list,
oft í tengslum við arkitektúr.
Árið 1965 snéri hún heim og
starfaði að myndlist sinni auk
þess að sinna félagsmálum.
Eyborg var alltaf trú sannfær-
ingu sinni og vann ávallt innan
hinnar geometrísku hefðar
þótt greina megi áhrif úr
ýmsum áttum frá op list og
síðar pop list. Reyndar var hún
fyrsti íslenski listamaðurinn
til að vjnna með op list hér á
landi. Urvinnsla Eyborgar úr
hinni geometrísku hefð er
vönduð og persónuleg".
Eyborg lést árið 1977 að-
eins 53 ára gömul. Sýningin
er opin á miðvikudögum frá
kl. 14-18 í febrúar og mars.
„KAKA á stólpa" á sýning-
unni Eilíft líf í Listasafninu á
Akureyri.
Kökur á
sýningu
ÞORVALDUR Þorsteinsson
myndlistamaður flytur fyrirlestur
um verk sín í „Barmahlíð" Mynd-
lista- og handíðaskóla Islands,
Skipholti 1, miðvikudaginn 5. febr-
úar.
í fyrirlestrinum sem hann kallar
Kökur á sýningu mun hann meðal
annars fjalla um sýningu sína Ei-
líft líf í Listasafninu á Akureyri í
haust.
„Sú sýning var um margt
óvenjuleg og fólst meðal annars í
beinni þátttöku fjögurra kvenfé-
laga, 36 María og fjölda ónafn-
greinds fólks í heimahúsum auk
þess sem hluta hennar var að finna
á rás 2 og í Degi-Tímanum“, seg-
ir í kynningu.
Fyrirlesturinn hefst kl. 16 og
er öllum opinn.
KVIKMYNPIR
Háskólabíó
ÁTTUNDIDAGURINN
(LE HUITIEME JOUR)
★ ★'/i
Leikstjóri og handritshöfundur Jaco
Van Dormael. Kvikmyndatökustjóri
Walther Van den Ende. Tónlist Pi-
erre Van Dormael. Aðalleikendur
Daniel Auteuil, Pascal Duquenne,
Miou Miou, Fabienne Loriaux. 115
mín. Belgísk/Frönsk. DA/TFI/Canal
+. 1996.
UMFJÖLLUNAREFNI Áttunda
dagsins er árekstur tveggja heima;
hinna heilbrigðu og fötluðu. Harry
(Daniel Auteuil) er störfum hlaðinn
framkvæmdastjóri sem hefur svo lít-
inn tíma aflögu að konan er flúin
með dætur þeirra tvær. Nótt eina
ekur hann niður hund í eigu Georges
(Pascal Duquenne), ungs manns sem
strokið hefur af geðveikrahæli. Ge-
orges er haldin Down-heilkenni
(mongólíti) og Harry á í erfiðleikum
með að finna aðstandendur hans. Á
meðan þeirri leit stendur myndast
sterk vináttubönd með þessum ólíku
ferðafélögum.
Minnir talsvert á Regnmanninn
en útkoman er talsvert veikari. Att
er saman þverstæðum úr lífsbarátt-
unni, Harry, hinum upptekna yfir-
manni í erilsömu nútímafyrirtæki og
Georges, með sína bækluðu barns-
sál. Sakieysið andspænis veraldar-
viskunni. Hvor skyldi hafa betur?
Georges. Með sínum einfalda en
ófalska strengjaslætti kemur hann
Harry, sem misst hefur sjónar á lífs-
gildunum, aftur á rétt spor. Stórleik-
arinn Daniel Auteuil túlkar á lipran
og trúverðugan hátt mann í tilvistar-
kreppu, sem hefur tapað fjölskyldu
sinni sem á ekki innangengt í hans
formúlukenndu deilkarnegíveröld
þar sem ailt er úr plasti. Náttúru-
barnið Georges leikur Pascal Duqu-
enne á hreint undraverðan hátt.
Hann lýsir - ekki síður en þeir sem
alheilbrigðir teljast - innri sem ytri
baráttu sinni við umhverfið - oftast
fjandsamlegu - og vinarþeli sínu í
garð þeirra sem sýna honum hlýju.
Viðskipti hans við veikara kynið eru
ótrúlega vei gerðir þættir annars
sveiflukenndrar myndar.
Leikur, saga og efnið er forvitni-
legt og vel unnið að mörgu leyti.
Áttundi dagurinn er afarhlý og tii-
fmningarík mynd en það tekst ekki
sem skyldi að bræða saman þá ólíku
heima sem fjallað er um, hrynjandin
er brokkgeng. Bestu kaflarnir tví-
mælalaust samspil Harrys og Georg-
es í leit þeirra að lífsins gildum og
samastað til handa þeim síðamefnda.
Van Dormael (Toto le Herös) gerir
sig sekan um væmni og langhunds-
hátt og efnistök sem henta betur
ódýram glansmyndum þegar líða
tekur á sýninguna. Þau atriði virka
utangátta og draga niður óvenju vel
gerða sýn inn í hinar miklu andstæð-
ur, hrekklausa, náttúruelskandi
barnssál gagnvart heilaþvegnum,
malbiksfirrtum nútíma klækjaref.
Sæbjörn Valdimarsson.
Fjármálanámskeið Búnaðarbankans eru
fyrir alla aldurshópa - bókaðu þig núna!
Með því að skipuleggja fjármálin og láta skynsemina ráða er
hægt að ná miklum árangri í að lækka útgjöldin án þess að neita
sér um alla ánægjulega hluti.
Búnaðarbankinn mun standa fyrir röð af námskeiðum um
fjármál fyrir alla aldurshópa. Þátttakendur fá vandaðar
fjármálahandbækur sem hafa verið samdar sérstaklega fyrir
hvern aldurshóp.
ncinu.isi.fN'AN
Fjdrmdl heimilisins
ét*
'Jfr
fJÁRMAlAttA /í t) Bú X
®éÖNAÖAHBANKINN
........
Fjármál unga fólksins
•■P!|
-• ÍglSM
•>
■ s&ii <■
■ MjjSt
■
NÁMS ■
(%)Bt)NAmRBANKINN
Fjármál heimilisins
Þar er fjallað um ýmis atriði sem teng-
ast heimilisrekstri. Hvernig spara má í
útgjöldum, lánamöguleika, ávöxtunarleið-
ir, heimilisbókhald, áætlanagerð, skatta-
mál, húsnæðislán, kaup á íbúð o.fl.
Verð 2000 kr. (3000 kr. fyrir hjón).
Ath! Félagar í Heimilislínu borga 1500 kr.
(2500 kr. fyrir hjón). Innifalin er veg-
leg fjármálahandbók og veitingar.
Næstu námskeið:
Fjármál unga fólksins
Nýtt námskeiö sem er sérstaklega
ætlað fólki á aldrinum 16 - 26 ára.
Tekið er á flestum þáttum fjármála
sem geta komið upp hjá ungu fólki í
námi og starfi.
Verð 1000 kr. Innifalin er
Fjármálahandbók fyrir ungt fólk og
veitingar.
Fjármál heimilisins
miðvikudaginn 19. febrúar kl. 18 - 22
þriðjudaginn 25. febrúar kl. 18 - 22
miðvikudaginn 26. febrúar kl. 18 - 22
miðvikudaginn 12. febrúar kl. 18 - 22
fimmtudaginn 20. febrúar kl. 18 - 22
Fjármál unga fótksins
Fjármál unglinga
Nánari upplýsingar um námskeiðin og skráning eru í síma 525 6343.
þriðjudaginn 18. febrúar kl. 15 -18
fimmtudaginn 27. febrúar kl. 15 -18
Fj
* A V
Á R M Á L A w
a
r w .Át
VAXTALINAN
Fjármál unglinga
Fjármálanámskeiðið er fyrir unglinga á
aldrinum 12 -15 ára. Þar er leiöbeint
um hvernig hægt er að láta peningana
endast betur, hvað hlutirnir kosta og
ýmislegt varðandi fjármál sem ungling-
ar hafa áhuga á að vita.
Ath! Ekkert þátttökugjald. Veitingar.
BÚNAÐARBANKINN
-traustur banki!