Morgunblaðið - 05.02.1997, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 1997 39
inu, að sögn Sigurðar, að mikil
andstaða hafi komið fram á fund-
inum sem hafi verið víðs fjarri
sannleikanum. Einnig hafi ekki
fengist birt fréttatilkynnig um
fundarherferð til kynningar á til-
lögum nefndarinnar í Degi-Tíman-
um.
Kvaddi þá formaður L.H. sér
hljóðs og sagði meðal annars að
Sigurður hefði vegið ómaklega að
fyrrverandi stjómarmönnum L.H.
sem ekki væru til staðar til að
svara fyrir sig. Sagðist hann enn-
fremur vonast til að Sigurður
Magnússon hefði lokið máli sínu á
þessu þingi. Birgi varð hinsvegar
ekki að ósk sinni því Sigurður kom
að vörmu spori í púltið og sagði
meðal annars að hann hefði aldrei
verið beðinn að þegja á fundum
áður. Að því búnu róaðist umræðan
og við tóku árangursrík þingstörf
þar sem ríkti góð samstaða í svo
til öllum málum sem fram voru
borin.
Starfsemin útvíkkuð
Á fjórða tug tillagna voru bornar
fram á þinginu og flestar þeirra
samþykktar. Flestar þeirra fjölluðu
um minniháttar breytingar á
keppnisreglum sem orðnar eru
ærið fióknar og þarf talsvert til,
til að standa klár á þeim þegar í
keppnina er komið. Þá var mark-
miðum í lögum samtakanna breytt
þannig að mögulegt verður að út-
víkka starfsemina. Er því ekki ólík-
legt að skipað verði í talsvert fleiri
nefndir á vegum H.Í.S. en gert
hefur verið, þar sem farið verður
inn á fleiri svið hestamennskunnar
eins og til dæmis reiðvegamál og
ræktunarmál, svipað og gert er
hjá L.H.
Samþykkt var heimild um að
bjóða upp á þijá styrkleikaflokka
á íþróttamótum á árinu en mikill
áhugi hefur verið fyrir því meðal
hestamanna á síðustu árum að
skapa keppnisvettvang fyrir fleiri
hestamenn. Samþykkt var að gefa
aukið svigrúm á tímasetningu
þinghalds og er nú mögulegt að
halda þing samtakanna á tímabil-
inu frá október til febrúar.
Svanasöngur
hindrunarstökksins hafinn?
Hindrunarstökk hefur verið fellt
út úr heildarstigareikningi á mót-
um og má gera ráð fyrir að þar
með séu dagar þessarar lítt vin-
sælu greinar þar með taldir.
Þingið samþykkti að_ úrtaka
vegna vals á landsliði íslands í
hestaíþróttum skuli fara fram að
Varmárbökkum í Mosfellsbæ dag-
ana 18. til 22. júní n.k. Er úrtöku-
keppnin óvenju snemma á ferðinni'
að þessu sinni. Þá var tekið boði
Dreyramanna á Akranesi um að
halda íslandsmót 1998 á Æðar-
odda.
Ein breyting varð á stjórn sam-
takanna, Sævar Kristjánsson,
Gusti, sem gegnt hefur stöðu rit-
ara gaf ekki kost á sér til endur-
kjörs en í hans stað var kjörin
Oddný Jónsdóttir, Gusti. Aðrir í
stjórn samtakanna eru Jón Albert
Sigurbjömsson Fáki, formaður,
Bergur Jónsson Freyfaxa, varafor-
maður, Sigrún Ólafsdóttir Snæfell-
ingi, gjaldkeri, og Sigurður Marín-
usson Fáki, meðstjórnandi. í vara-
stjórn eru Áslaug Kristjánsdóttir
Létti, Halldór Vilhjálmsson Sleipni
og Jón Halldórsson Faxa. Hákon
Bjarnason Fáki, sem unnið hefur
ötullega að málefnum hestaíþrótta,
var sæmdur gullmerki Í.S.Í. fyrir
vel unnin störf í þágu íþrótta.
Hefur hann komið mjög við sögu
innan samtaka frjálsíþróttamanna
og handknattleiksmanna auk
hestamennskunnar. Þá var Ragn-
ari Ágústssyni Sörla, veitt viður-
kenning hestafréttamanna fyrir
frábæran árangur í ungmenna-
flokki. Þá er þess að geta að Létt-
ir á Akureyri fékk sérstaka viður-
kenningu frá stjórn H.Í.S. fyrir
gott framlag til æskulýðsmála inn-
an hestamanennskunnar. Vegur
þar þyngst Frissa fríska mótið sem
haldið var í fyrsta skipti á síðasta
ári.
Brynhildur Þorkelsdóttir
Morgunblaðio/Brynhildur Porkelsdóttir
7. ÁRSÞING H.Í.S. þótti takast með miklum ágætum. Formaðurinn Jón Albert Sigurbjörnsson sem hér er í ræðustól
boðaði útvíkkun á starfsemi samtakanna.
HESTAR
Illégaröur í
Mosfellsbæ
7. ÁRSÞING HESTA-
ÍÞRÓTTASAMBANDS
ÍSLANDS
FULLUR einhugur ríkti um
sameiningarmálin á 7. ársþingi
Hestaíþróttasambands íslands sem
haldið var í Hlégarði í Mosfellsbæ
um helgina. Tillaga um að halda
áfram vinnu við sameiningu Land-
samband s hestamannafélaga og
H.Í.S. á grundvelli tillagna frá
sameiningarnefnd samtakanna,
var samþykkt með öllum greiddum
atkvæðum að einu fráskildu. Einn-
ig samþykkti þingið að leggja nið-
ur starfsemi H.I.S. að afloknum
stofnfundi nýrra samtaka þegar
þau hafa.tekið til starfa. Þá lýsti
þingið þeim eindregna vilja sínum
að nauðsynlegu ferli í sameiningu
verði lokið fyrri hluta ársins 1998.
Umræða um þessar tillögur var
ekki mikil enda mikið verið fjallað
um þessi mál á ársþingi L.H. í
haust og í kjölfar þess. Ekki er
neinum blöðum um að fletta hver
sé vilji meðlima innan H.I.S. sem
flestir ef ekki allir eru einnig félag-
ar í L.H.
Þing samtakanna tekur þama
skýra ákvörðun og undirstrikar vel
að það er yngra fólkið úr röðum
hestamanna sem frekar styður
sameiningu L.H. og H.Í.S. Eldri
kynslóðin sem er aðsópsmeiri inn-
an L.H. spornar við fótum en ljóst
má öllum vera hvað framtíðin ber
í skauti sér. Hér virðist aðeins
tímaspursmál hvenær „gömlu
mennirnir“ hætta að sporna við
fótum eða hverfa af vettvangi.
Nafnið skiptir ekki máli
Ávörp fluttu Júlíus Hafstein for-
maður Ólympíunefndar, Helga
Thoroddsen forseti bæjarstjórnar
Mosfellsbæjar, Birgir Sigurjónsson
formaður L.H. og Ellert Schram
forseti Í.S.Í. Hvatti hann til
sameiningar því verið væri að
vinna að sömu málum í tveimur
samtökum. Gerði hann einnig að
umtalsefni nafngift á nýjum
samtökum og sagði það einu gilda
hvað þau hétu, þess vegna mættu
þau heita Landsamband
hestamannafélaga ef það yrði til
að liðka til fyrir framgangi
málsins. Mæltist hann til að þessi
mál yrðu rædd með rökum og
skilningi og óskaði hestamönnum
að lokum alls hins besta.
Snarplega tekist á
Til snarpra orðaskipta kom milli
Birgis Siguijónssonar formanns
L.H. sem sat þingið sem gestur
og Sigurðar Magnússonar
formanns sameiningamefndar
Landsliðið í hestaíþróttum
Sigurður Sæmundsson skipaður einvaldur
LANDSLIÐSNEFND hefur út-
nefnt Sigurð Sæmundsson í
Holtsmúla í stöðu landsliðsein-
valds og mun hann jafnframt
gegna stöðu liðsstjóra. Að sögn
formanns landsliðsnefndar,
Ragnars Tómassonar, er þessi
staða sem Sigðurður tekur við
bæði valdameiri en verið hefur
og um leið fylgir meiri ábyrgð.
Sigurður er ekki alveg ókunn-
ur þessum starfa en hann hefur
gegnt stöðu liðsstjóra fimm sinn-
um eða oftar en nokkur annar.
I samtali við Morgunblaðið sagði
Sigurður að sér litist vel á starf-
ið. Nokkrar breytingar hafi verið
gerðar á hinum svokallaða lykli
sem notaður er við val á liðinu.
Nefndi hann i fyrsta lagi að ef
enginn skeiðhestur næði lág-
markstíma myndi einvaldurinn
hafa óbundnar hendur um val i
þetta sæti. Þá væru áfram tveir
hestar valdir af einvaldi en sú
breyting orðin á að hægt er að
velja báða hestana erlendis frá í
stað annars áður. Af þessu má
sjá að íslendingar búsettir er-
lendis eiga mun betri möguleika
á sæti í Iiðinu að þessu sinni en
alls eru sjö knapar valdir.
Þá benti Sigurður á að þeir
sem væru erlendis ættu að hafa
samband við hann eða skrifstofu
HÍS og láta vita ef þeir stefndu
á sæti í liðinu og þá með hvaða
hest. „Eins væri gott að vita á
hvaða mótum þeir hygðust
keppa, svo auðveldara verði að
fylgjast með frammistöðu
þeirra," sagði Sigurður að lok-
um.
Valdimar Kristinsson
Eindregin afstaða
með saineiningxi
ÁSLAUG Krisljánsdóttir tók
við viðurkenningu sem H.Í.S.
veitti Létti á Akureyri fyrir
gott starf i þágu unga fólksins.
samtakanna beggja og fyrrverandi
framkvæmdastjóra Í.S.Í. Sigurður
gerði meðal annars að umræðuefni
umfjöllun umsjónarmanns
hestaþáttar hjá Degi-Tímanum
sem Sigurður kvað misnota
aðstöðu sína hjá blaðinu þegar
greint var frá kynningarfundi sem
haldinn var hjá Fáki í Reykjavík.
Hér átti Sigurður við Kára
Arnórsson fyrrverandi formann
L.H. sem er sem kunnugt er
andstæðingur sameiningar og
sagði hann í umfjöllun sinni í blað-
HESTAFRÉTTAMENN veittu Ragnari Ágústssyni viðurkenningu
fyrir góðan árangur á síðasta ári. Sigurður Sigmundsson frá
Eiðfaxa afhenti Ragnari gripinn fyrir hönd hestafréttamanna.
HAKON Bjarnason hefur víða komið í starfi sínu að íþróttamál-
um. Hefur verið að frá sjötta áratugnum, fyrst í frjálsum, þá
handbolta og síðast í hestamennsku. Veitti Ellert Schram forseti
Í.S.Í. honum gullmerki samtakanna og þótti hann vel að því kominn.