Morgunblaðið - 05.02.1997, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 05.02.1997, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Morgunblaðið/Jónas Erlendsson UNGLINGARNIR skipuðu sér í hópa í Víkurskóla. TURKÍ hefur störf í Vík í Mýrdal Fagradal - Táningar innan ung- mennahreyfingar Rauða kross íslands, TURKI, hefur tekið til starfa í Rauðakrossdeild Víkur- læknishéraðs. I ungmenna- hreyfingunni eru 24 af 35 nem- endum í 7. til 10. bekk Víkur- skóla. Þetta er fjórða félagið sem stofnað hefur verið. Áður hafa verið stofnuð félög í Reylgavík, Dalvík og Mosfellsbæ og fyrir- hugað er að stofna félag á Suð- urnesjum. Ætlunin er að deild- irnar verði með samstarf sín á milli. Unglingarnir hafa setið á kynningarfundi í Víkurskóla og notið leiðsagnar frá aðilum úr öðrum unglingahreyfingum Rauða krossins sem kynntu starf Rauða krossins og komu með hugmundir um hvað þau vilja gera í þessu félagsstarfi. Unnið var i hópvinnu og helstu niðurstöður úr þeirri vinnu voru að ungliðarnir vildu fá nám- skeið og fræðslu um margvísleg málefni sem snerta unglinga í dag. Þessi hópvinna hjálpar yf- irumsjónarmönnunum í Vík, sem eru Fríða Hammer og Ás- laug Einarsdóttir, til að skipu- leggja áframhaldið. Björgunarsveitin Tryggvi Gunnarsson á Selfossi 30 ára Erum alltaf á höttunum eftir góðu fólki til starfa Selfossi - Björgunarsveitin Tryggvi Gunnarsson á Selfossi hélt upp á 30 ára afmæli sitt sunnudaginn 2. febrúar. Sveitin var stofnuð 12. mars 1967 og hefur á ferlinum vaxið upp í það að vera nú ein af öflugustu björgunarsveitum lands- ins. Nú eru 60 manns félagar í sveitinni með harðan kjarna sem alltaf er viðbúinn útköllum. „Við erum alltaf á höttunum eft- ir góðu fólki til að taka þátt í starf- inu og líka unglingastarfinu," sagði Páll Bjarnason formaður. Hann sagði fólk á Suðurlandi opið fyrir slysavörnum og einkum jarð- skálftavá en björgunarsveitin vinn- ur ásamt öðrum sveitum á Suður- landi að gerð myndbands um við- brögð við jarðskjálftavá. Mynd- bandið er unnið í samvinnu við Verkfræðistofnun Háskóla íslands og svonefnt SEISMÍS verkefni. „Fólk verður að vera undirbúið í þessum efnum eins og öðrum að- stæðum sem upp geta komið og vita hvernig bregðast skal við,“ sagði Páll Bjarnason. I tilefni afmælisins var haldin vegleg samkoma í Tryggvabúð. Á dagskránni voru ávörp forystu- manna og stofnenda sveitarinnar ásamt því að forseti Slysavarnafé- lags íslands, Gunnar Tómasson, sæmdi tvo félaga, Johnny Símonar- son og Sigurð Ola Guðbjörnsson, Morgunblaðið/Sig. Jóns. FYRSTA stjórn björgunarsveitarinnar Tryggva Gunnarssonar ásamt núverandi formanni og forseta SVFI. Frá vinstri: Páll Bjarnason formaður, Stefán Jóhannsson, Ólafur íshólm Jóns- son, Elís Kjartansson, sonur Kjartans Ögmundssonar, Eggert Vigfússon og Gunnar Tómasson forseti SVFÍ. heiðursmerki SVFÍ fyrir framgöngu þeirra og störf í þágu slysavarna. Stofnendur Tryggva Gunnarssonar og fyrstu stjórnarmenn voru heiðr- aðir. Umfangsmikil björgunaræfing Björgunarsveitin vinnur að mörgum slysavarnaverkefnum. Nú í sumar stendur m.a. til að gefa öllum 6 ára börnum reiðhjólahjálma en það verkefni er í samvinnu við Kiwanishreyfinguna. Þá er framundan stór björgunar- æfing í samvinnu björgunarsveita, lögreglu, slökkviliða og sveita á vegum NATO. Páll Bjarnason segir það alltaf fast verkefni að koma upp nýjum búnaði og efla þann búnað sem fyrir er svo unnt sé að sinna þeim verkum sem upp koma af sem mestri kostgæfni. ísafjarðarbær • • 011 sorp- hreinsun á einni hendi ísafirði - Gámaþjónusta Vestfjarða á ísafirði hefur keypt rekstur og eignir Gámaþjónustu Hafþórs á ísafirði. Að sögn Ragnars Ág. Kristins- sonar, framkvæmdastjóra Gáma- þjónustu Vestfjarða, kaupir fyrir- tæki hans bifreið Hafþórs, gáma og kör auk þess sem það yfirtekur verksamninga. Gámaþjónusta Hafþórs hefur haft með höndum sorphreinsun á ísafírði og síðar ísafjarðarbæ um margra ára skeið en þar á undan sá faðir Hafþórs, Halldór Geir- mundsson, um sorphreinsun á svæðinu í tvo áratugi. „Við höfum tekið við allri sorp- hreinsun í ísafjaðrarbæ, Bolungar- vík og Súðavík. Þeir starfsmenn sem voru hjá Hafþóri koma til starfa hjá mér og væntanlega þarf ég að bæta einum starfsmanni við til að sinna verkefninu. Með kaup- unum næ ég fram mikið hagstæð- ari rekstri, ég kem til með að selja strax tvo bíla, enda var um að ræða nánast tvöfalt gengi að sorp- hreinsibúnaði á svæðinu," sagði Ragnar. BÓKHALDSHUGBÚNAÐUR fyrir WIND0WS Á annað þúsund notendur gl KERFISÞRÓUN HF. Fákafeni 11 - Sími 568 8055 www.treknet.is/throun Peningaleg staða Fella- hrepps batnar milli ára Vaðbrekka, Jökuldal - Rekstur sveitarsjóðs Fellahrepps gekk vel á síðasta ári og skilaði afgangi uppá rúmar tvær milljónir, skuldir sveitarsjóðs greiddust niður um þijár milljónir, svo peningaleg staða hreppsins batnaði um fimm milljónir um það bil. Áð sögn sveitarstjóra Fella- hrepps, Guðlaugs Sæbjörnssonar, hefur rekstur sveitarfélagsins á margan hátt verið peningalega léttari nú en undanfarin ár. Það er mestu veldur þar um er að sam- ið var við Landsbankann um inn- heimtu gjalda fyrir hreppinn. Bankinn yfirtók í raun fasteigna- gjaldapakkann og greiddi sveitar- félaginu strax í febrúar síðastliðn- um alla álagninguna. Fjárhagsáætlun síðasta árs stóðst að mestu leyti, að sögn Guðlaugs, en hana varð að endur- skoða við yfirtöku Grunnskólans á síðasta ári og hækkaði fjárhagsá- ætlunin um fimm milljónir við það, bæði tekju- og gjaldamegin. Þá hækkaði einnig liðurinn félags- leg þjónusta um eina milljón, og staðgreiðslutekjur urðu rúmum tveimur milljónum hærri en reikn- að var með. Fjárhagsáætlun þessa árs ligg- ur nú fyrir. í henni er gert ráð fyrir tekjum upp á 68,5 milljónir og gjöldum uppá um 60 milljónir, afgangur til framkvæmda og fjár- festinga er þess vegna um 8,5 milljónir. Að sögn Guðlaugs sveit- arstjóra er ekki ennþá búið að ganga frá framkvæmdaáætlun ársins, þó er reiknað með svipuð- um greiðsluafgangi og á síðasta ári. „Þetta ætti í öllu falli að gefa okkur að peningaleg staða Fella- hrepps batni svipað og á síðasta ári eða um fimm milljónir, sem er harla gott,“ sagði Guðlaugur. Vaka mótmælir uppsögnum Þormóðs ramma „STJÓRN Verkalýðsfélagsins Vöku mótmælir uppsögnum Þor- móðs ramma hf. á 56 starfsmönn- um fyrirtækisins. Yfirlýsing fram- kvæmdastjóra fyrirtækisins um að ekki sé grundvöllur fyrir rekstri frystihúsa er alhæfing sem ekki stenst, sé litið til þeirra fyrirtækja sem hafa lagt kapp á sérhæfingu og markaðssókn með góðum ár- angri,“ segir í fréttatilkynningu frá stjórn Vöku. Áhætta að treysta á eina tegund Stjórn Vöku skorar á forráða- menn fyrirtækisins að endurskoða þessa ákvörðun og halda áfram botnfiskvinnslu í fyrirtækinu. Ekki síst með tilliti til þess að það hlýt- ur að vera ákveðin áhætta fólgin í því að treysa alfarið á eina teg- und vinnslu og einnig hverfur sú verkþekking sem hefur verið til staðar í frystingunni. Það er fleira tap en tapað fé. Bæjaryfirvöld beiti sér Margir starfsmenn í frystihúsi Þormóðs ramma hafa unnið við fiskvinnslu og frystingu alla sína starfsævi og fluttust úr frystihúsi SR til Þormóðs ramma þegar það fyrirtæki var stofnað. Margt af þessu fólki á aðeins nokkur ár eft- ir í starfslok sem nú virðast ætla að verða með allt öðrum og ömur- legri hætti en það hefur búist við. Stjórn Vöku skorar einnig á bæjaryfirvöld að beita sér í þessu máli. og reyna að hafa áhrif á ákvörðun fyrirtækisins þar sem með því að leggja niður rekstur bolfiskfrystingar verður atvinnulíf bæjarins enn einhæfara og var þó einhæft fyrir. Morgunblaðið/Jónas Baldursson BJÖRGMUNDUR Guðmundsson, Björn Sigurvaldason, Sverrir Björgvinsson og Ingólfur Bjömsson við lok sveinsprófsins. Pjórir luku sveins- prófi í húsasmíði Grýtubakkahreppur - Fjórir nem- ar þreyttu og luku sveinsprófi í húsasmíði í tréiðnaðardeild Verk- menntaskólans á Akureyri. Að þessu sinni var verkefni þeirra samsetning glugga ásamt ísettu lausu fagi. Um 8 nemar hafa lokið sveins- prófi í húsamíði á Akureyri á hveiju ári. Að þessu sinni voru nemarnir allir frá stöðum utan Akureyrar, frá ísafjarðarbæ, af höfuðborgarsvæð- inu og Eyjafirði. Guðmundur Jóhannsson prófdóm- ari hafði orð á því við afhendingu niðurstaðna úr sveinsprófinu, hversu margir nemar væru misjafn- lega vel undir prófið búnir. Auðséð væri að nemar frá fámennari vinnu- stöðum hefðu að öllu jöfnu notið fjölbreyttari menntunar en nemar sem kæmu frá fjölmennari fyrir- tækjum. Samsæti verður haldið fyr- ir þá nema sem lokið hafa sveins- prófi á árinu næsta haust og verða skírteini þeirra afhent við það tæki- færi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.