Morgunblaðið - 05.02.1997, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 05.02.1997, Blaðsíða 56
•'HYUNDAl HÁTÆKNI TIL FRAMFARA SS Tæknival SKEIFUNNI 17 SlMI 550-4000 • FAX 550-4001 MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 1997 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK * Morgunblaðið/Ásdís Reykjavík og Hafnarfjörður Samstarf um rekstur hafna BORGARSTJÓRI hefur lagt fram tillögu í hafnarstjórn Reykjavíkur um að stofnað verði undirbúningsfélag um rekstur hafna- og iðnaðarsvæða í Eiðsvík við Geldinganes og Straumsvík við Hafnarfjörð. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri sagði að í framhaldi um- ræðna um gufuvirkjun á Trölla- dyngjusvæðinu á Reykjanesi hefði komið fram hugmynd um að Hafnar- fjörður og Reykjavík tækju upp sam- starf um þróun hafna- og iðnaðar- svæða í Straumsvík og í Eiðsvík. Engin samkeppni „Gert hefur verið ráð fyrir að á þessum stöðum geti verið stórskipa- hafnir og stofnað verði félag um sam- rekstur á þessum svæðum. Þá yrði engin samkeppni milli hafnanna um að ná hlutunum til sín heldur myndu menn þróa þessi tvö svæði sameigin- lega með heildarhagsmuni svæðisins í huga. Allar telqur sem kæmu inn í félagið skiptust þá eftir eignaraðild og eins öll útgjöld," sagði Ingibjörg Sólrún. Borgarstjóri sagði að kanna þyrfti hvað yrði um fasteignagjöld á hafn- arsvæðunum en eðli málsins sam- kvæmt rynnu þau til þess sveitarfé- lags, þar sem fasteignin væri. Það yrði því að fínna leið til að greiða fasteignagjöld til sveitarfélaganna í hlutfalli við eignaraðild. „Það má segja að Straumsvíkurhöfn henti bet- ur fyrir stóriðnað en Eiðsvíkin," sagði borgarstjóri. í umsögn hafnarstjóra, sem lögð hefur verið fram í borgarráði, er mælt með að sett verði á laggimar verkefnisstjóm, en ekki sérstakt und- irbúningsfélag vegna samstarfs um hafna- og iðnaðarsvæði í Eiðsvík og Straumsvík. Telur hafnarstjóri að verkefni verkefnisstjómar eigi að vera að vinna að ákveðnum þáttum áður en til afstöðu starfsaðila kemur. Þá telur hafnarstjóri eðiilegt að hafnar- stjóm Reykjavíkur fari með umsjón málsins fyrir hönd borgarinnar. Júlíus felldur úr Óí JÚLÍUS Hafstein, formaður Ólympíunefndar íslands, féll í gær í kosningu um sæti í nefnd- inni en aðalfundur Óí var hald- inn í gærkvöldi. Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, var kjörinn formaður nefndar- innar í stað Júlíusar. Júlíus gekk af aðalfundinum eftir að úrslit voru ljós og sagði í samtali við Morgunblaðið að hann væri alls ekki sáttur enda ljóst að sumir af samstarfs- mönnum hans væru ódrengileg- ir. Júlíus lætur af störfum í nefndinni eftir átta ára starf. ■ Slæmt þegar/Bl Búist við vonskuveðri BÚIST er við hvassviðri og mikilli siqókomu eða éljagangi á suðvest- anverðu landinu í dag. I gærkvöldi tók að hvessa á suðvesturhominu og sagði Einar Þórðarson veður- fræðingur á Veðurstofu Islands þá í samtali við Morgunblaðið að búist væri við mikilli snjókomu þegar liði á nóttina. Hann sagði að þegar liði á morguninn gætu verið komin 9-10 vindstig af suðvestri á suð- vestanverðu landinu, en þessu veðri veldur djúp lægð sem í dag verður út af Snæfellsnesi. Si\jó- koman verður mest á suðvestur- horni landsins, en einnig mun byrja að snjóa á norðanverðu landinu þegar líður á daginn. Margir not- uðu hægviðrið í gær til að moka frá dymm og innkeyrslum og var hann Jóhann á Laugamesveginum meðal þeirra sem þá létu hendur standa fram úr ermum. Myndlistarnemar kæra kennsluhúsnæði í Laugarnesi Skólahúsið sagt heilsuspillandi Morgunblaðið/Golli NEMENDUR MHÍ segja hús- næði skólans heilsuspillandi. NEMENDAFÉLAG Myndlista- og handíðaskóla Islands hefur sent kæru til Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur vegna húsnæðis skólans í Laugar- nesi, sem nemendur telja heilsuspill- andi og ófullnægjandi. Þeir krefjast þess að húsnæði skólans verði lokað tafarlaust og úrbætur gerðar. í kærunni kemur m.a. fram að ræstingafyrirtæki sem sjá á um þrif hefur ekki séð sér fært að sinna því hlutverki í allan vetur, vegna þess hve ástandið er slæmt. Fyrir komi að óbærileg skólplykt gjósi upp úr niðurföllum, bergmál geri kennslu og fyrirlestra illmöguleg og mýs og önnur óværa eigi greiða leið að húsnæðinu. Einnig séu eld- vamir óviðunandi. „Vegna þess að gólf eru órykbund- in og ekki þrifin myndast fíngert steinryk um allt hús og veldur ert- ingu í öndunarfærum, slímhúð og hörundi. Veikindi hafa verið tíð af þessum sökum,“ segir María Péturs- dóttir, sem sæti á í stjórn nemenda- félagsins. Gunnsteinn Gíslason skólastjóri segir MHÍ ekki hafa fjármagn til úrbóta. ■ Telja húsnæðið/4 Lítið fjármagn til viðhalds og tækjakaupa hjá Sjúkrahúsi Reykjavíkur Lekur inn á gj örgæsludeild í rigningu FJÁRFRAMLÖG ríkis og Reykjavík- urborgar til viðhalds og tækjakaupa Sjúkrahúss Reykjavíkur eru langt frá því að vera viðunandi og þegar skor- ið er niður bitnar það fyrst og fremst á þesSum kostnaðarliðum. Þetta segir Ólafur Örn Arnarson læknir og framkvæmdastjóri upplýs- inga- og gæðamála hjá Sjúkrahúsi Reykjavíkur. „Sjúkrahús Reykjavíkur er nú með nokkur gömul hús til af- nota. Elsti hluti hússins í Fossvogin- um er til dæmis rúmlega 30 ára gam- all og því farinn _ að krefjast mikils viðhalds," segir Ólafur Óm. „Skipt var um þak á aðalspítalanum fyrir um tveimur ámm en þakið yfír E- álmu byggingarinnar í Fossvogi er svo til ónýtt og þarfnast viðgerðar hið fyrsta, því í mikilli rigningu lekur vatn niður um þakið á gjörgæslu- deild, eins og áður sagði, en einnig inn um glugga á austurhlið álmunnar sem er mjög illa farin.“ Viðhaldi frestað Að sögn Ólafs Arnar hefur ná- kvæmlega sömu upphæð verið varið árlega til viðhalds á Sjúkrahúsi Reykjavíkur undanfarin ár eða um 46 miiljónum króna, en þar áður hafí verið reynt að fresta viðhaldi á Landa- kots- og Borgarspítala eins lengi og unnt var. Ólafur segir að fyrir nokkrum árum hafí stjóm Sjúkrahúss Reykjavíkur beðið verkfræðifyrirtæki að fara yfír allar byggingar sjúkrahússins og gera í framhaldi af því heildarúttekt á við- haldsþörf þess fyrir næstu árin. „Niðurstaðan var sú að fyrir árið 1996 var áætlaður viðhaldskostnaður um 347 milljónir króna, fyrir árið 1997 átti hann að vera 306 milljónir króna og fyrir árið 1998 átti hann að vera 225 milljónir króna. í fjárlög- um fyrir árið 1997 er hins vegar gert ráð fyrir rúmum 46 milljónum króna. Verði þetta viðhald ekki fram- kvæmt mun viðhaldskostnaðurinn hækka um 3-4% á ári vegna þess að með tímanum verða skemmdirnar verri og viðgerðarkostnaður meiri,“ segir Ólafur Örn. Afleitt ástand Ólafur Öm segir ennfremur að framlag til tækjakaupa hafi verið skorið verulega niður á milli ára og hafí minnkað úr um þremur prósent- um af heildarrekstrarkostnaði spítal- ans niður í 0,6% á síðustu árum. „Fjármunum til tækjakaupa er ætlað að renna til tækja sem kosta yfír eina til tvær milljónir eins og til dæmis röntgentækja eða tækja á skurðstofu. Hingað til hefur niður- skurður til þessara kaupa verið bætt- ur upp með gjöfum frá ýmsum góð- gerðarfélögum. Það hefur hins vegar reynst erfiðara með ámnum því tæk- in verða æ flóknari og dýrari. Ástandið á tækjabúnaði spítalanna í dag er því afleitt." Olafur Örn segir að niðurskurður á viðhaldi eigi ekki aðeins við um Sjúkrahús Reykjavíkur heldur einnig aðra spítala á landinu og jafnvel stofnanir. „Ríkisspítalarnir hafa reyndar ekki farið eins illa út úr þessum fjárveitingum þó segja megi að þeir séu alls ekki ofhaldnir." A IS eykur sölu flaka vestanhafs ICELAND Seafood Corporation í Bandaríkjunum, dótturfyrirtæki Is- lenskra sjávarafurða hf., náði að auka sölu á frosnum fískflökum vestanhafs um 30% í janúar 1997 miðað við sama mánuð í fyrra. Sé árið 1996 borið saman við 1995, nam söluaukning á frosnum flökum, sem ekki fara inn í verksmiðju Iceland Seafood vestan- hafs til frekari meðhöndlunar, 5% í magni og 7% í verði. Sömuleiðis hefur orðið vart lítillegrar söluaukningar á verksmiðjuafurðum fyrirtækisins. Hal Carper, forstjóri Iceland Sea- food, segir að ýmsir samtvinnaðir þættir valdi þessari velgengni nú. Bæði hafi fyrirtækið náð að festa sig í sessi meðal nýrra viðskiptavina og auk þess hafí orðið vart meiri áhuga eldri viðskiptavina á hefðbundnum pakkningum. ■ 30% söluaukning/Cl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.