Morgunblaðið - 05.02.1997, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hafna austfjarðasamn-
ingum fyrir SR-mjöl
SIGNY Jóhannesdóttir, formaður
Verkalýðsfélagsins Vöku á Siglu-
fírði, sem er í forystu fyrir verka-
lýðsfélögin sem semja við SR-mjöl
hf., sagðist ekki vera ánægð með
kjarasamning sem Alþýðusam-
band Austurlands og vinnuveit-
endur undirrituðu á sunnudag
vegna vinnu í loðnuverksmiðjun-
um á Eskifirði, Neskaupstað, Höfn
og Vopnafirði.
Signý sagði að það hefði verið
talsverður munur á samningum
við SR-mjöl hf. og austfjarða-
samningunum varðandi starfsald-
urshækkanir. „Starfsaldurshækk-
anir í austfjarðasamningunum
byggjast á fyrsta tilboði vinnuveit-
enda og það er óviðunandi fyrir
okkur,“ sagði Signý.
í samningum SR-mjöls hf. er
aðeins eitt starfsaldursþrep, þ.e.
eftir eins árs starf, en í austfjarða-
samningunum eru þrepin þijú.
Boðuðum samn-
ingafundi frestað
Signý sagði að vinnuveitendur
hefðu borið eins árs taxta SR-
mjöls saman við fimm ára taxta
í austfjarðasamningunum, sem
væri mjög óhagstætt fyrir hóp
manna sem vinnur hjá SR-mjöli.
Samningafundi frestað
Boðaður hafði verið samninga-
fundur milli vinnuveitenda og
stéttarfélaganna um samninga við
SR-mjöl í dag, en honum hefur
verið frestað um ótiltekinn tíma.
Signý sagði að staðan í viðræðun-
um væri sú að stéttarfélögin gætu
undirritað samninga ef þau næðu
saman við vinnuveitendur um
launatöfiuna. „Við vorum ekki
sátt við þá launatöflu sem okkur
var boðið að skrifa undir, en Aust-
firðingar hafa hins vegar gert það
og því má segja að þeir hafí sett
okkur í ákveðinn vanda,“ sagði
Signý.
Hannes G. Sigurðsson, að-
stoðarframkvæmdastjóri VSÍ,
sagði að vinnuveitendur gætu ekki
farið að víkja frá þeim samningi,
sem gerður hefði verið á Aust-
fjörðum, í samningum sem á eftir
að gera við önnur stéttarfélög.
Undanfarna daga hafa staðið
yfir samningafundir milli Verka-
lýðs- og sjómannafélags Fáskrúðs-
ijarðar og Vinnumálasambandsins
um samninga fyrir nýju loðnu-
bræðsluna á Fáskrúðsfirði. Eiríkur
Stefánsson, formaður félagsins,
sagði að hann væri ósáttur við þá
samninga sem gerðir voru á Eski-
firði og vildi ekki skrifa undir sams
konar samning. Lægstu taxtarnir
væru of lágir og breyta þyrfti
nokkrum öðrum atriðum.
Játaði að hafa skotið að manni sem lést
Sætir gæsluvarð-
haldi til 19. mars
24 ÁRA Hafnfirðingur, Sveinn
Ingi Andrésson, var í gær í Hér-
aðsdómi Reykjaness úrskurðaður
í gæsluvarðhald til 19. mars, í
kjölfar þess að hann játaði að
hafa hleypt af haglabyssu í átt
að Hlöðveri S. Aðalsteinssyni að-
faranótt 29. desember sl.
Hlöðver fannst látinn við
Krýsuvíkurveg að morgni sunnu-
dagsins 29. desember og var hann
með skotsár á handlegg. Nokkrir
samverkandi þættir eru taldir or-
sök dauða hans, blóðmissir vegna
skotsársins og lostástand, auk
þess sem hann var veill fyrir
hjarta.
Rannsóknarlögregla ríkisins
handtók Svein Inga síðdegis á
mánudag, eftir að DNA-rannsókn
hafði leitt í ljós að yfirgnæfandi
líkur voru á að hann hefði verið
í bíl hins látna. Þá leiddi skotfæra-
rannsókn RLR í ljós að skotið sem
hæfði Hlöðver heitinn hafði komið
úr haglabyssu er fundist hafði í
fórum Sveins Inga. Grunur beind-
ist fyrst að honum þegar í ljós
kom að mennirnir tveir höfðu
ræðst nokkrum sinnum við í síma.
Hörður Jóhannesson, yfirlög-
regluþjónn RLR, sagði að svo
stöddu ekkert hægt að upplýsa
um ástæður verknaðarins annað
en að Sveinn Ingi hefði ætlað sér
að hræða Hlöðver með því að
skjóta að honum.
Rannsókn málsins miðar vel.
Vegna alvarleika brotsins situr
maðurinn að öllum líkindum í
gæsluvarðhaldi allt þar til dómur
fellur, eins og venja er í slíkum
málum.
Hálkan
tafðiför
MIKIL hálka á götum höfuð-
borgarinnar og nágrennis gerði
ökumönnum gramt í geði í gær-
morgun. Umferð silaðist áfram
og allnokkrir árekstrar urðu.
Þar sem flestir fóru sér nyög
hægt urðu skemmdir ekki mikl-
ar þegar bílar nudduðust saman.
Nokkuð var um illa búna bíla
og gáfust ökumenn þeirra á
stundum upp á þófinu og skildu
bílana eftir við vegkantinn. Lög-
reglan fékk aðstoð kranabíls við
að fjarlægja níu bíla, sem gáfust
upp á Kringlumýrarbrautinni
einni.
Hafís við Mel-
rakkasléttu
HAFÍS var kominn 28 sjómílur
norður af Rauðanúp á Melrakka-
sléttu í gær.
Samkvæmt upplýsingum frá
Veðurstofu tilkynnti togarinn Kol-
beinsey um þykkan og mikinn ís á
þessum slóðum í gær og var sigl-
ingaleiðin norðan Melrakkasléttu
orðin torfær.
Morgunblaöið/Jón Svavarsson
Innbrot í bifreiðir aldrei verið fleiri en í fyrra
Kostnaður talinn nema
70-90 milljónum króna
ALLS eru skráð 903 innbrot og
þjófnaðir í bifreiðar á seinasta ári
á svæði lögreglunnar í Reykjavík,
428 skemmdarverk á bflum og 89
bílþjófnaðir, eða alls 1.420 tilvik.
Innbrotin hafa aldrei verið fleiri.
Til samanburðar má geta þess
að árið 1995 voru skráð 688 inn-
brot og þjófnaðir í bifreiðar, 523
tilvik árið 1994, 428 tilvik árið
1993 og 863 tilvik árið 1992. í lok
árs 1992 og byijun árs 1993 voru
bfleigendur hvattir til að fylgjast
með bifreiðum sínum og gera aðrar
varúðarráðstafanir, auk þess sem
vel var fylgst með bílastæðum við
kvikmyndahús og aðra fjölfama
staði, sem kann að skýra fækkunina
milli þessara ára.
Innbrotum fjölgaði mest
Ómar Smári Ármannsson aðstoð-
aryfirlögregluþjónn segir að fjölgun
innbrota og þjófnaða í bifreiðar sé
í réttu hlutfalli við fjölgun annarra
skyldra brota á svæðinu, en þó sé
hlutfallslega mesta aukning inn-
brota og þjófnaða í tengslum við
ökutæki. Einkum séu þjófar á
höttunum eftir tækjum á borð við
geislaspilara og radarvara, auk
geisladiska og annarra verðmæta.
„Fyrir utan verðmætin sjálf
leggst talsverður kostnaður á bíl-
eigendur vegna skemmdanna sem
þjófarnir valda, og gæti ég trúað
að meðaltjón á bifreið nemi um 80
til 100 þúsund krónum. Miðað við
það mat má áætla að heildartjón
bíleigenda eingöngu vegna innbrota
og þjófnaða í ökutæki á höfuðborg-
arsvæðinu á seinasta ári nemi á
milli 70 og 90 milljónum króna, og
ég reikna með að þetta sé varlega
áætlað, auk þess sem skemmdar-
verkin eru ekki tekin með í reikn-
inginn, en talsverður hluti þeirra
er rúðubrot sem getur verið merki
um misheppnað innbrot," segir
Ómar Smári.
Ýmis úrræði í athugun
í þessum tölum er eingöngu um
að ræða tilvik sem tilkynnt voru til
lögreglu, og segir Ómar Smári lítinn
vafa leika á að dæmin séu fleiri,
þótt þau hafi ekki komið til kasta
lögreglu. Lögreglan hefur upplýs-
ingar um hvar öll þessi innbrot fóru
fram og hefur að sögn Ómars Smára
kortlagt hvar þessi afbrot eru al-
gengust.
Þar verður eftirlit hert, komið á
framfæri athugasemdum um betri
lýsingu og reynt að brýna fyrir eig-
endum ökutækja hvað þeir geti gert
til að draga úr líkum á að verða
fyrir barðinu á innbrotsþjófum.
Ómar segir fleiri úrræði í skoðun,
ekki síst að ná til sökudólganna sem
oftar en ekki séu ungir að árum og
að hefja afbrotaferil sinn.
Borgarráð
Athafna-
svæði verði
í Geldinga-
nesi
TILLAGA borgarráðsfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins um að Geld-
inganes verði íbúðarsvæði, en
ekki athafnasvæði eins og
Reykjavíkurlistinn leggur til, var
felld í borgarráði í gær með þrem-
ur atkvæðum meirihlutans gegn
tveimur atkvæðum minnihluta.
Sjálfstæðismenn lögðu til að
Geldinganes yrði skipulagt með
hliðsjón af tillögum þeim, sem
verðlaun hlutu í skipulagssam-
keppni, sem fram fór um svæðið
á sínum tíma. Bentu þeir á að
Geldinganes væri án efa eitt besta
byggingarland, sem eftir væri
innan marka Reykjavíkur.
í bókun borgarráðsfulltrúa
Reykjavíkurlistans vegna Geld-
inganess, er vitnað til greinar-
gerðar með aðalskipulagi, þar
sem kemur fram að þegar til
framtíðar sé litið sé Geldinganes
- Eiðsvík besti kosturinn til að
byggja upp stórt samfellt at-
hafnahverfi og þjónustu í tengsl-
um við flutninga- og iðnaðarhöfn
og þjóðbraut til og frá borginni.
Iðnó
Ný bygging-
arnefnd
skipuð
SKIPUÐ hefur verið ný
byggingarnefnd vegna end-
urbyggingar á Iðnó.
Hjörleifur Kvaran borgar-
lögmaður situr áfram í
nefndinni fyrir hönd borgar-
innar en Jónas Garðarsson,
formaður Sjómannafélags
Reykjavíkur, hefur tekið við
af Guðmundi J. Guðmunds-
syni, fyrrverandi formanni
Dagsbrúnar, og Þórarinn
Magnússon hefur tekið við
af Haraldi Blöndal sem sam-
eiginlegur fulltrúi eigenda.
Er hann jafnframt formaður
nefndarinnar.