Morgunblaðið - 05.02.1997, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.02.1997, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR 0 Nemendafélag MHI kærir húsnæði skólans í Laugarnesi til Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur Telja húsnæðið heilsuspillandi Músagangur, engin loftræsting og kennslustofur ekki þrifnar í allan vetur * Nemendafélag Myndlista- og handíðaskóla Is- lands hefur sent kæru til Heilbrigðiseftirlits Reylq'avíkur vegna húsnæðis skólans í Laugar- nesi, sem nemendur telja heilsuspillandi og ófull- nægjandi. Þeir kregast þess að húsnæði skólans verði lokað tafarlaust og úrbætur gerðar. I KÆRU Nemendafélags MHI kemur fram að um miðjan desem- ber 1992 veitti Vinnueftirlit ríkisins skólanum bráðabirgðaleyfi til að nota kjallara húss, sem byggt var fyrir Sláturfélag Suðurlands, til kennslu. Gengið var út frá því að leyfið gilti í um þrjú ár, en þá var reiknað með að framtíðarhúsnæði fyrir skólann yrði tekið í notkun í sama húsi. Leyfið hafi verið veitt með skilyrðum, svo sem að gólf og lóð yrðu rykbundin og bætt yrði úr loftræstingu og salernisaðstöðu. Ulllútuðí lokuðu rými „Úr þessum atriðum hefur aldrei verið bætt og lýsum við undrun okkar á því hversu lengi ástandið hefur verið óbreytt, án afskipta Heilbrigðiseftirlitsins," segir Helga Þórsdóttir sem situr í stjórn nem- endafélagsins og segir enn fleiri þætti með slíkum fádæmum að ekki verði við unað. „Við getum tækið dæmi um að í desember síðast liðnum lútuðu nemendur textíldeildar skólans ull í gluggalausu rými, með óvirku loft- ræstikerfi og stífluðum niðurföllum. Afleiðingin var óbærileg lykt ásamt miklum raka, og er það raunar svo að mikill kuldi myndast í húsinu að vetrarlagi. Fjölmörg dæmi eru um bronkítistilfelli ásamt öðrum þrálátum sjúkdómum, tengdum kulda og slæmu lofti.“ Um 90 nemendur sækja tíma í SS-húsinu og fer þar fram kennsla í fjöltækni, málun og skúlptúr, sem öll eru greinar sem kalla á mikla notkun efna sem mörg hver eru hættuleg, auk tækja á borð við log- suðutæki og sagir sem mengun stafar af. María Pétursdóttir, sem einnig á sæti í stjóm nemendafé- lagsins, tekur í sama streng og Helga og draga þær upp afar ófagra mynd af ástandi mála. „Ræstingafyrirtækið sem sjá á um þrif hefur ekki séð sér fært að sinna því hlutverki í allan vetur vegna þess hve ástandið er slæmt og því hefur engin kennslustofa verið þrifin í allan vetur. Sumar kennslustofur eru án rennandi vatns og fyrir kemur að óbærileg skólplykt gýs upp úr niðurföllum.“ Ryk ertir öndunarfæri „í öllu húsnæði skólans er hvergi að finna sameiginlega matar- og kaffiaðstöðu, enda væri það vart löglegt sökum ryks og óþrifnaðar. Bergmál gerir kennslu sem fyrir- lestra illmögulega og mýs og önnur óværa eiga greiða leið að hús- næðinu, ekki síst í gegnum rör sem liggja upp á aðra hæð hússins, en hún stendur ónotuð og er í raun aðeins fokheld. Vegna þess að gólf em óryk- bundin og ekki þrifín, myndast fín- gert steinryk um allt hús sem veld- ur ertingu í öndunarfæram, slímhúð og hörandi. Veikindi hafa verið tíð af þessum sökum,“ segir María. Þær segja einnig eldvamir ófull- nægjandi og geymsluaðstöðu fyrir vinnu nemenda með þeim hætti, að þeir þurfi að hafa verk sín og muni á glámbekk, jafnframt því sem víða Sóttu ökumanninn heim HARÐUR árekstur varð á mót- um Bæjarbrautar og Rofabæjar skömmu fyrir miðnætti í fyrra- kvöld. Ökumaður annars bílsins ók strax af vettvangi, en þegar lög- reglan kom á staðinn var bílnum lýst, þar á meðal skráningamúm- erinu. Lögreglan fór og bankaði upp á hjá ökumanninum, sem reyndist heldur valtur á fótum og er granaður um að hafa setið ölvaður undir stýri. Enginn hlaut meiðsli í árekstr- inum. 1 insur i Linsunni Fagleg ráögjöf. Góö þjónusta. LINSAN í krókum og kimum séu staflar af efnisleifum á borð við sementspoka, hjólbörar, málningarfötur, timbur o.fl. Þær benda á að Vinnueftirlit rík- isins sendi stjórn skólans erindi í desember sl., þar sem fram kemur það álit að ekki verði unað við nú- verandi ástand lengur. í bréfí stofn- unarinnar er m.a. gagnrýnt að ekk- ert bendi til þess að staðið verði við þær framtíðaráætlanir sem bráðabirgðaleyfið byggðist á. „Umræddur kjallari er að stóram hluta gluggalaus og ljóst að hann uppfyllir engan veginn reglur um húsnæði vinnustaða og ákvæði í heilbrigðisreglugerð um skólahús- næði. Loftræsting og afsog vegna efnanotkunar er ófullnægjandi,“ segir í bréfí Vinnueftirlits ríkisins. Einnig er bent á í erindinu að gólfin era illa rykbundin sem valdi ásamt langvarandi vanþrifum vera- legum óþægindum fyrir starfsfólk og nemendur. Gerð var krafa um að úrbætur yrðu gerðar fyrir 1. febrúar síðast liðinn. „Okkur skilst að enn ein undan- þágan hafí verið veitt, að þessu sinni til 1. mars nk., en við getum einfaldlega ekki sætt okkur við að bíða. Húsnæðið var hannað fyrir slátran og við teljum í raun óger- legt að aðlaga það þörfum lista- skóla. Við höfðum samband við menntamálaráðherra fyrir skömmu vegna þessa vanda og fengum þau svör að honum sýndist athugasemd- ir Vinnueftirlitsins lúta að yfírvöld- um skólans annars vegar og Fast- eignum ríkisins hins vegar. En þótt Fasteignir ríkisins teljist vera eig- andi hússins og hafí ekki heimilað neinar framkvæmdir sem gætu breytt sláturhúsi í listaskóla, hefur stofnunin sér til málsbóta að beðið er eftir pólitískum ákvörðunum um stofnun listaháskóla. Enginn veit hins vegar hvort og hvenær af hon- um verður. Meðan við eram hér þarf hins vegar að grípa til tafarlausra að- gerða,“ segir Helga. Morgunblaðið/Golli HELGA Þórsdóttir og María Pétursdóttir í einni kennslustofu skólans, sem er ekki loftræst. Rauðleiti hringurinn á gólfinu stafar af því að niðurföll stífluðust og vökvi blandinn málningu gaus upp, en nemendur ákváðu síðan að „myndskreyta" hann. NEMENDUR MHÍ nota mörg hættuleg efni við nám sitt, og segja andrúmsloft mengað ryki og öðrum óhreinindum. Kaffiað- staða nemenda er heldur ekki upp á marga fiska. Mótmælaaðgerðir fyrirhugaðar Verði ekki orðið við þeim kröfum, segja þær vilja fyrir því að nemend- ur efni til verkfalls til að leggja áherslu á óskir um úrbætur, auk þess sem ákveðið hafí verið að árleg vorsýning skólans verði haldin í öðra húsnæði í mótmælaskyni. Gjannsteinn Gíslason skólastjóri MHÍ segir að reynt hafí verið að endurbæta húsnæðið í Laugarnesi eftir föngum og nánast öllu fram- lagi sínu á fjárlögum til þeirra verka. „Þama hafa þráfaldlega komið upp öndunarfærasjúkdómar og fyrir skömmu frétti ég af tveim- ur tilfellum af asma, sem rekja má til húsnæðisins. Ég óskaði af þeim sökum eftir úttekt Vinnueftirlitsins, sem taldi það óviðunandi og það er ljóst að þegar nemendur veikjast er húsnæðið óhæft.“ Hann segir að húsnæðið muni væntanlega falla undir skipulag fyrirhugaðs listaháskóla, og hafi forsvarsmenn skólans haft vænt- ingar um að undirbúningur hans yrði svo hraður að úrbætur væra á næsta leiti. MHÍáekki fjármuni „Við sjáum hins vegar ekki að listaháskólinn sé í burðarliðnum, en höfum verið í ágætu sambandi við Fasteignir ríkisins um að halda húsnæðinu í horfínu. Við höfum ekki haft nein bein samskipti við ráðuneytið um ástand hússins, sem helgast af þessum málum sem tengjast listaháskóla. MHÍ hefur aftur á móti enga fjárhagslega burði til að byggja upp þetta hús- næði, enda höfum við ekki heimild til þess frá bygginganefnd húss- ins,“ segir hann. Þrír ísfirskir frændur hefja veitingarekstur í Noregi Opna Pizza 67 veitinga- stað í Kristianssand ísaflrði. Morg’unblaðid. STEINÞÓR Friðriksson og Gróa Böðvarsdóttir, eigendur veitinga- staðanna Sjallans og Krúsarinnar og Pizza 67 á ísafirði og ísafjarð- arbíós, eru um þessar mundir að hefja undirbúning að opnun fyrsta Pizza 67 veitingastaðarins í Nor- egi. Staðurinn verður í miðbæ Krist- ianssand í Suður-Noregi og era eigendur hans, auk þeirra Stein- þórs og Gróu, tveir frændur Stein- þórs Unnar Eyjólfsson og Orri Vil- bergsson, sem báðir era bomir og barnfæddir ísfírðingar. Ráðgert er að hinn nýi veitinga- staður verði opnaður 1. mars nk. Að sögn Steinþórs mun hinn nýi veitingastaður taka um 100 manns í sæti en hann verður í um 300 fm húsnæði. Húsnæðið er leigt til fímm ára. Fyrirhugað er að opna sex Pizza 67-staði til viðbótar í Noregi á þessu ári og hefur Orri keypt einkaréttinn að þeim öllum. „Eg og Gróa erum meðeigendur í fyrsta veitingastaðnum sem opnaður verður í Noregi og höfum for- kaupsrétt á hlutafé í hinum. Ástæðan fyrir því að við förum út í þetta er sú að á þessu ári er ég að halda upp á tíu ára afmæli mitt sem veitingamaður. Okkur fannst kominn tími til að gera eitt- hvað nýtt og þetta varð fyrir val- inu,“ sagði Steinþór í samtali við blaðið. Auk þessa munu miklar breyt- ingar vera á döfinni á haust- mánuðum á rekstri veitingastaða þeirra Steinþórs og Gróu á Isafirði. Má þar m.a. nefna að veitingastaðnum Pizza 67 verður breytt í alhliða veitingahús. Stein- þór fer til Noregs í næstu viku og mun dvelja þar fram að opnun staðarins. í júní munu Steinþór og Gróa halda á ný til Noregs og sjá um rekstur staðarins í sumar. „Það búa þarna um 50 þúsund manns að staðaldri en íbúafjöldinn margfaldast yfir sumartímann enda er staðurinn mesta ferða- mannaparadís Noregs," sagði Steinþór sem er bjartsýnn á kom- andi mánuði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.